Morgunblaðið - 06.07.1949, Page 8

Morgunblaðið - 06.07.1949, Page 8
(8 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 6. júlí 1949.' Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavflc. /t! . Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesböl. ? Suður-ÞingeyjarsÝsla, ■ Bretland og Bandaríkin FRAMSÓKNARMENN halda því fram að þar sem sjereign- arstefnan og einstaklingsframtakið mótar stjórn landa og þjóða hafi kommúnisminn best þroskaskilyrði og þar af leiðandi flesta fylgjendur. Rjetta leiðin til þess að útrýma kommúnismanum sje þess vegna sú að auka áhrif .milli- floklca“ eins og Framsóknarflokksins, en firra frjálslynda borgaraflokka eins og Sjálfstæðisflokkinn öllu fylgi. Það er ómaksins vert að athuga, hvernig þessi Tímaspeki fái samrýmst raunveruleikanum. Ef athuguð er flokkaskiptingin í tveimur þroskuðustu lýðræðislöndum heimsins, sem bæði hafa lengstum fylgt sjereignarstefnu og aðhylst einstaklingsframtakið kemur það í ljós að fullyrðing Tímans um hana á sjer enga stoð. í báð- " um löndunum eru flokkar sjereignarskipulagsins og hins frjálsa framtaks mjög öflugir. Samkvæmt kenningu Fram- sóknar ættu kommúnistar því einnig að vera þar öflugir. En því fer víðs fjarri að svo sje. Kommúnistaflokkur Bretlands er að atkvæðatölu varla sjáanlegur og hefur aðeins einn eða tvo fulltrúa í Neðri málstofunni, sem 640 þingmenn eiga sæti í. í Bandaríkjunum er ástandið nákvæmlega eins. Þar berj- ast tveir nokkurn veginn jafn öflugir lýðræðisflokkar um völdin. Kommúnistaflokkur er að vísu til þar, en á engan fulltrúa á þingi og fær minna fylgi í forsetakosningum en kvekarar og jurtaætur. Fleiri dæmi mætti nefna um það, hversu gjörsamlega Framsóknarfullyrðingin er út í bláinn. En þess gerist ekki þörf að rifja þau upp. Til þess er hins vegar ástæða að minnast á það, sem blasir fyrir augum íslensku þjóðarinnar í hennar eigin landi. Vagga samvinnustefnunnar og „milliflokksins“, sem kennir sig við framsókn, stendur í Suður-Þingeyjarsýslu Þaðan voru þeir menn flestir komnir, sem hjeldu að sam- vinnustefnan nægði til þess að vera varanlegur grundvöllur að hugsjónabaráttu pólitísks flokks, sem hjet Framsóknar- flokkur. Undanfarna áratugi hefur þetta hjerað verið lang- öflugasta vígi Framsóknarflokksins, svo öflugt að fylgi ann- ara flokka hefur verið þar hverfandi lítið. Samkvæmt kenningu Framsóknar ættu kommúnistar ekk- ert fylgi að hafa í slíku hjeraði, sem mildur andvari „milli- flokksstefnunnar“ hefur leikið um í áratugi. En þessu er þveröfugt farið. í Suður-Þingeyjarsýslu er öflugri komm- únistaflokkur en í flestum öðrum sveitakjördæmum lands ins. Við síðustu Alþingiskosningar f jekk frambjóðandi komm únista í þessu hjeraði 332 atkvæði af 1984 atkvæðum, sem greidd voru eða um það bil 16%. Var þó vitað að fjöldi kommúnista greiddi atkvæði með frambjóðanda miðstjórn- ar Framsóknarflokksins fyrir frændsemis sakir. Hvað hefur gerst? Ekkert annað en það, að kommúnisminn hefur alist upp og dafnað í sjálfri vöggu „milliflokksins“, sem einn segist vera til þess kjörinn að granda honum. Það er einnig vitað að á sama tíma, sem kommúnistar hríðtapa íylgi í flestum byggðarlögum landsins er það tíska á Fram- sóknarheimilum í Reykjadal og fleiri sveitum Suður-Þing- eyjarsýslu að synir og dætur Framsóknarbænda gerist hjú Stalins og Brynjólfs Bjarnasonar. Þannig hefur „milliflokkn- um“ tekist að útrýma öfgunum, „bera klæði á vopnin“. En lítt mundi þessi þróun þingeyskra stjórnmála hafa verið að skapi Pjeturs á Gautlöndum og Benedikts á Auðnum, sem meira byggðu á fornum þjóðlegum menningararfi og ís- lenskri sveitamenningu en trúnaði við erlendar kúgunar- stefnur. Sama sagan og í Suður-ÞJingeyjarsýslu hefur gerst í ýms- j um öðrum höfuðhreiðrum Framsóknar. . . Um ástæðurnar fyrir gróðri kommúnismans í nábýlinu . við „milliflokkinn“ verður rætt síðar. En engum getur dul- . ist, hversu þessi dæmi, sem hjer hafa verið nefnd, bæði er- '<■ lend og íslensk, afsanna kenningar Framsóknar um mögu- leika hennar, sem „milliflokks“ til þess að uppræta land- ráðastefnu kommúnista. \JiLuerjl áhrifar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Því aðeins læra börnin málið í DRJEFI frá Raleighreiðhjóla- verksmiðjunum í Nottingham í Englandi, er sagt frá því, að fyrsti „skjaldarhafinn“ á ís- landi, sem hafi gerst meðlimur í „fjelagsskap Silfurriddar- anna“, sje Guðmundur litli Hallgrímsson, Öldugötu 16, í Reykjavík. Hann er þriggja ára. Fjelagsskapur „Silfurridd aranna“ er einskonar slysa- varnafjeíag fyrir börn, sem Raleigh-verksmiðjurnar hafa stofnað til. Þessi fjelagsskapur er í og með auglýsingaaðferð, en þó byggð á þeirir staðreynd, að „því aðeins læra börnin málið, að það ey fyrir þeim haft“. • Smábörnum kend umferðarmenning í FYRRNEFNDU brjefi er sagt frá því að tilgangurinn með þess um fjelagsskap þeirrá, sem eignast Raleigh-reiðhjól, sje að kenna börnum umferðarreglur og kurteisi, þannig að með tím- anum verði það að vana hjá þeim, í stað leiðinlegrar skyldu, að halda alménna umferðar- siði Fyrir sutan merki, sem sett verður á hjólhesta hinna ungu fjelaga, fá þeir myndabækur, sem á skemtilegan hátt segja frá því hvernig þeir eigi að haga sjer í umferðinnþ — Við og við fær Guðmundur litli brjef, þar sem honum verða sagðar nokkrar nauðsynlegar umferðarreglur og hvað hann á að gera til að tryggja öryggi sitt og annara végfarenda. Frumkvæðí foreldranna GUÐMUNDUR litli Hallgríms- son á ekki stórt farartæki, sem er hættulegt í sjálfu sjer fyrir vegfarendur. Það yrði tæpast stórt slys, þótt hann æki þrí- hjólinu sínu á einhvern. En með því, að kenna honum strax allar umferðarreglur, kemur það af sjálfu sjer, að síðar þegar hann eignast hjólhest og loks þegar að því kemur að hann fer að aka bifreið, þá þarf ekki ekki að óttast að hann verði ökuníðingur, eða fari ó- varlega. Því það, sem ungur nemur, gamall temur, eins og þar stendur. í brjefinu frá Raleigh-verk- smiðjunum er þess getið, að það hafi verið foreldrar Guð- mundar, sem hafi tekið eftir því, að þegar umbúðirnar voru teknar af nýja þríhjólinu, þá lá innan í auglýsingarspjald um fjelag „silfurriddaranna“. Og þau sendu inn umsókn fyrir son sinn, því þau munu hafa skilið, að hjer var góð hugmynd á ferðinni. • Því ekki íslenska deild? HJER ER líka góð hugmynd á ferðinni fyrir Slysavarnafje- lagið. Skátafjelagsskapinn, eða barnaskólana. Að stofna ís- lenska deild af „silfurriddur- um“, eða skyldum fjelagsskap. Vafalaust væri hægt að ná samvinnu við Raleigh-verk- smiðjurnar um að fá bækur og annað, sem síðan mætti ís- lenska. Því hætta er á, að til- tölulega fá íslensk börn hafi gagn af enskum bókum. Þetta gæti án efa haft hina mestu þýðingu fyrir aukna umferðarmenningu og öryggi á götum og vegum í framtíðinni. • 200 umsóknir á viku EINHVER sniðugur náungi fann upp á að stofna þenna öryggis- fjelagsskap fyrir unglinga. — Það var í júlímánuði í fyrra. Síðan hefir þessi hugmynd breiðst svo ört út, að stofnaðir hafa verið barnaklúbbar til ör- yggis í umferðinni í Bandaríkj unum, Suður-Ameríku, Afríku, Ástralíu og Austurlöndum. Ber ast Raleigh-verksmiðjunum nú hvorki meira nje minna en um 200 umsóknir á viku frá for- eldrum sem sjá, að hjer er um ágætt málefni að ræða. • Sýning SÍBS HANDAVINNSÝNING Sam- bands íslenskjra berklasjúklinga í Listamannaskálanum er án efa vel sótt. Satt að segja finst mjer það svo sjálfsagt, að fólk sæki þessa sýningu, að mjer hefir ekki þótt taka því, að spyrja um aðsóknina. En þessar línur eru ritaðar tií þess að minna þá á sýninguna, sem ekki hafa veitt því eftir- tekt að hún er opin þessa dag- ana. Það borgar sig að líta þang að inn. Sjálfsbjargarviðleitnin lýsir sjer þar í hverju handbragði, fyrir utan, að á sýningunni eru margir ágætir listmunir. • Almennur bænadagur FRÁ ÞVÍ er sagt í frjettum, að breska þjóðin hafi haldið al- mennan bænadag s. 1. sunnudag til þess að biðja um rigningu. Uppskeran var í hættu sökum þuika. Nú er sá tími kominn, að síld veiðar ættu að fara að byrja, en lítið hefur orðið vart síldar. Afkoma þjóðarinnar byggist að miklu leyti á því, hvernig síld- veiðarnar takast í sumar. Væri ekki ástæða að við fær um að dæmi Breta og að biskup landsins sendi út boð til allra presta á landinu um, að næsta sunnudag skuli biðja um góð- an afla á síldveiðum í sumar. Vafalaust munu trúleysingjar fussa við þessari hugmynd og reyna að gera grín að henni. En það ætti ekki að aftra trú- uðum mönnum frá því að biðja í einlægni og af heilum hug. I MEÐAL ANNARA ORÐA .... | lllll•llll•ll•■lllll|lll•l|•lllllll•l•lllllllllll•llllll•lll•lll••MII■llllll■l■lll■|l■|||■|||||||| ll••ll■l••llll Fjöldi nýrra „sljórnmálaflokka" í Austurriki Frá frjetta Reuters VÍNARBORG- — Fjörutiu og fjórir nýir stjórnmálaflokkar hafa nú látið skrásetja sig hjá innanríkisráðuneyti Austurrík- is, í þeirri von, að einhver þeirra verði valinn sem „fjórði flokk urinn“ í landinu. Herráð bandamanna leyfir eins og er aðeins þrjá flokka í Austurríki. Flokkar þessir eru: þjóðflokkurinn, sem nýtur stuðnings manna úr flestum stjettum, meðal annars fjöl- margra bænda, presta og iðn- framleiðenda; sósíalistaflokkur inn, sem líkist í ýmsu breska verkalýðsflokknum, en er ef til vill heldur róttækari en hann; og austurríski kommúuista- flokkurinn, lítill flokkur en at- hafnasamur, sem í öllu fylgir stefnu Kominform. • • FRIÐARFLOKKUR AF HINUM nýstofnuðu stjórn- málaflokkum geta átta talist til konungssinna, en herráð banda manna hefir bannað samtök þeirra. Tíu aðrir flokkar sóttu um viðurkenningu fyrir tveim- ur árum, en fengu þá neitun. Þeir 26, sem þá eru ótaldir, heita ýmsum nöfnum og hafa ninar ólíkustu stefnuskrár. — Nokkur flokksheiti: „Heimats- bund fúr Tyrol“, „Austurríski endurbótaflokkurinn", ..Hinn frjálslyndi tilveruflokkur“ og ,Friðarflokkurinn“. í augum herráðsins eru flestir þessir flokkar of kynlegir eða hægri- sinnaðir til að hægt sje að leyía þá. • • LISTAMANNA- FLOKKURINN TIL viðbótar má svo nefna þrjú ný samtök, en tvö þeirra eru enn ekki yfirlýstir stjórn- málaflokkar og kalla sig því „fjelög“. Þetta eru „Listamannaflokk- urinn“ í Linz, „Framfarasinn- aðir sósíalistar“ og ,Fjelag frjálslyndra manna“ í Salz- burg. „Framfarasinnaðir sósíal istar“ eru á sömu línu og lepp flokkur Nennis í Ítalíu. Leiðtogar „Listamannaflokks ins“ eru rithöfundar, málarar og aðrir listamenn frá Linz. — Forseti flokksins er rithöfund urinn Josef Heiss, en leikrita- skáldið dr. Narbeshuber er varaforseti: • • GAMLIR NASISTAR UMSÓKN þeirra um að flokk- urinn fái viðurkenningu stjórn arvaldanna og herráðs banda- manna hefir valtið upp mikla mótmælaöldu í Vínarborg, þar sem fullyrt er, að Josef Heiss og fleiri stuðningsmenn hans hafi verið leiðtogar ýmissa listamannasamtaka, sem nasist ar stofnuðu á sínum tíma. Full- yrt er jafnvel, að Heiss hafi tekið virkan þátt í að skipu- leggja áróður nasista erlendis. í grein, sem nýlega var birt í „Neues Österreich“, er lýst yfir, að forseti „Listamanna- flokksins“ og aðrir leiðtogar hans hafi allir verið ötulir stuðningsmenn nasistaflokks- ins. Talið er, að flokkurinn geti því gert sjer litla von um viðurkenningu hernámsstjórn- arinnar í Austurríki. Sendiherra Tyrklands ræðir við Bevin LONDON, 4. júlí: — Sendi- herra Tyrklands í Bretlandi gekk í dag á fund Ernest Bevin utanríkisráðherra. Talið er, að sendiherrann liafi rætt við hann um þátttöku Tyrkja í Evrópuráðinu, en það mUn halda fyrsta fund sinn í næsta mánuði. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.