Morgunblaðið - 04.08.1949, Page 6
6
MORGUN BLAÐIÐ
Fimtudagur 4. ágúst 1949.
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands,
kr. 15.00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók.
Moðsuðan skal gilda
TÍMINN skýrir frá því í ritstjórnargrein nú fyrir helgina.
að Framsóknarílokkurinn ætli að láta til skarar skríða um
næstu helgi. Lengur muni flokkurinn ekki una því, ac
„bjargráðatillögur“ hans verði ekki teknar til greina. Jafn-
framt segir blaðið Framsóknarmenn muni leggja það til
é'ð ríkisstjórnin biðjist öll lausnar, og efnt verði til kosningí
í haust.
Enn hefur ekkert verið opinberlega um það tilkynnt.
hvernig ríkisstjórnin muni snúast við þessum úrslitakostum.
Hitt virðist ljóst af þessu tímatakmarki Framsóknarmanna.
að þeir sjeu ráðnir í því að rjúfa núverandi stjórnarsam-
vinnu, því að naumast munu þeir í alvöru gera ráð fyrir
því, að „stórfelldar ráðstafanir“ verði gerðar fyrir þann
tima, úr því að þeir sjálfir hafa ekki nein úrræði — eða
hafa að minnsta kosti enn ekki á þau bent — og hafa þeir
þó þótst sitja inni með alla visku í þessum málum. Má því
gera ráð fyrir því, að þingkosningar fari fram í haust, enda
er það ef til vill heppilegast, eins og málin standa.
Útskýringar Tímans á því, hvers vegna bjargráðin eru
fyrst nú tekin úr moðsuðunni, eru harla vandræðalegar.
Auðvitað er ekki gleymt að taka fram, að Framsóknarmenn
hafi gerst aðilar að þessari ríkisstjórn til þess áð bjarga. En
björgunin á að hafa gengið skrykkjótt. Um það munu allir
sammála, enda hafa aldrei nein björgunarafrek verið unnin
með því einu að stæra sig af leikni og björgunartækjum,
ef hvorugt reynist svo fyrir hendi. En hin hugvitssama skvr-
ing Tímans er sú, að allt björgunarstarfið hafi farið út um
þúfur vegna þess, að meiri hluti stjórnarinpar hafi ekki
viljað skerða „gróða braskaranna". Ekki gefur blaðið neina
frekari skýringu á því, hvað við er átt, enda mun hún vand-
fundin.
Sannleikurinn er sá, sem raunar allir vita, að Framsókn-
armenn hafa ætíð verið ráðþrota, er þeir hafa verið inntir
eftir þeim bjargráðum, er þeir alltaf hafa verið að stæra
sig af. Það er hins vegar auðskilið, að þeir vilji ekki játa,
hversu þeir hafa blekkt kjósendur sína. Menn brosa góðlát-
lega að þeirri skýringu, að þeir hafi ekki látið skerast í odda
íyrr en nú vegna kaupgjaldsmálanna. Allir vita, að þeir
vildu bíða þess, hvort síldveiði yrði góð í sumar, því að þá
vonuðust þeir til að þurfa ekki að gera grein fyrir „bjarg-
ráðunum“. Nú þykir þeim sýnt, eins og Tíminn segir, að
grípa þurfi til róttækra aðgerða í haust til þess að tryggja
hag útgerðarinnar, og þá vita þeir, að undan reikningsskilum
verður ekki komist.
Hjer hefur fyrir nokkrum dögum verið lítillega vikið að
„bjargráðatillögunum“, eins og þær voru birtar í Tímanum.
Skömmtunin var boðuð sem ævarandi nauðsyn og skömmt-
unarseðlar áttu að verða verslunarvara, væntanlega til að
bæta úr vöruskortinum. Byggja átti fleiri íbúðir, sem allir
hafa verið sammála um. Hagnýta átti sem best afkastagetu
iðnfyrirtækja og hafa sem best verðlagseftirlit, sem enginn
ágreiningur hefur verið um, —- og svo leggja á nýja skatta.
En segja má bjargráðamönnunum það til lofs. að þeir fundu
sjálfir, hversu aum úrræðin voru, því að í niðurlaginu segir
Tíminn, að svo verði að hefjast handa um róttækar ráðstaf-
anir til að lækka dýrtíðina með gengislækkun eða niður-
íærslu. Um framkvæmdina eru engar tillögur. Finnst fólki
ekki eðlilegt að svona hugkvæmnir menn sjeu hneykslaðir
á úrræðaleysi annarra?
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ætíð verið þeirrar skoðunar,
að sem víðtækast samstarf allra þjóðhollra manna sje nauð-
synlegt til þess að leysa þann vanda, sem nú er við að stríða
Hinu þýðir ekki að leyna, að til þessa hafa engir viljað taka
á sig fórnir til að leysa vandann. Þar má segja, að allir eigi
sína sök, og Framsókn ekki síður en aðrir. Það er áreiðan-
legt, að kosningaskrum og moðsuðutillögur Framsóknar-
manna leysa ekki vandamál þjóðarinnar. Kosningar gætu
þó orðið þjóðinni til góðs, ef hún notar það tækifæri til þess
að skapa heilsteyptan þingmeirihluta. Geri hún það ekki.
og verði stjórnin rofin nú, má gera ráð fyrir svipaðri stjórn-
arkreppu og verið hefur oft áður.
ól’ri^ar:
DAGLEGA
LÍFINU
Hvað er að ske?
HVAÐ er að ske við Tjörnina?
spyrja ýmsir þessa dagana, og
víst er sú spurning auðskilin.
Tjörnin í miðjum höfuðstaðn
um er sem sje hægt, en örugg
lega að breytast í geysistóran
forarpytt, — vitaskuld öllum
til leiðinda, og ekki síst í góða
veðrinu.
Sumir telja, að vatnsleysið
í Tjörninni standi í einhverju
sambandi við gosbrunninn,
sem nú á víst að fara að gera
í henni miðri; en hvað um það,
öllum yrði það vissulega kær-
komið að fá einhverja „opin-
bera“ skýringu á ástandinu
þarna.
< •
Fuglarnir í
vamlræðum
ENGINN vafi er og á því, að
hver svb sem ástæðan fyrir
pyttinum nýja kann að vera,
hafa fjölmargir bæjarbúar
þessa dagana miklar áh.yggjur
út áf fuglalífinu við Tjörnina.
Endurnar og álftirnar og jafn-
vel krían lika virðast vera í
stökustu vandræðum vegna
vatnsleysisins: endurnar hafa
undanfarna tvo daga haldið til
að mestu á litlu svæði á „Stóru
Tiörninni" og yfirleitt forðast
að koma nálægt bökkunum,
bar sem leðjan er mest. Reynd
ár hafa fjölmarear eyrar þeg-
ar myndast í Tjörninni, og í
kringum líkneskið af Þorfinni
karlsefni sjest ekki deigur
dropi.
•
Getur orðið tómlegt
NÚ HAFA menn áhyggjur
af því, og riettilega að telja
má, hvort blessaðir fuglarnir
láti „bjóða sjer upp á þetta“.
Það er líka mikið vafamál,
hvort nú sje heppilegasti tím-
ínn til áð hefja miklar fram-
kvæmdir í Tjörninni, og enn-
bá meira vafamál má það telj-
ast, .hvort nokkur mannvirki
geta orðið það glæsileg, að þau
komist nálægt bví, að veea upp
4 móti fuglalífinu á þessum
uppáhaldsstað bæjarbúa. Æði
tómlegt væri þarna um að lit-
ast að minnsta kosti, ef fugl-
arnir tækiu upp á Því að
.stinga af“.
Börn í berjaleit
ÞEIR, sem gerðu sjer ferð upp
á Oskjuhlíð síðastliðinn mánu-
dag, munu margir hverjir hafa
tekið eftir strákum og stelpum,
sem fóru á milli steinanna og
viitust rannsaka jarðveginn
furðu nákvæmlega. Jeg sá til
þessara ungu borgara, og þeg-
ar jeg gætti betur að, kom í
Ijós, að börnin voru farin að
tína ber. í Öskjuhlíðinni er
sem sagt nokkuð af krækibp’-j-
um, og ef vel er að gáð, má
nú þegar rekast á nokkur
þarna, sem orðin eru að heita
má fullþroskuð.
Auðvitað voru það börnin,
sem fyrstu fundu þetta sæl-
gæti jarðarinnar svona alveg
í bænum. og þau dróu ekkert
af sjer við leitina, þótt vissu-
lega kunni að vera skiptar skoð
anir um það, hvort þau hefðu
ekki átt að bíða með að tína
berin í svo sem eina eða tvær
vikur.
•
Malbik og gras
í SAMBANDI við berjatínslu
þessara ungu Reykvíkinga og
leik þeirra innan um steinana
í Öskjuhlíðinni, vaknar óneit-
anlega hjá manni sú tilhugsun,
hvort þeir mundu ekki margir
hverjir vilja vera komnir í fót
spor jafnaldra sinna upp í sveit.
Þau eru að vísu orðin mörg
reykvísku börnin, sem fara í
sveit á sumrin, en þó hvergi
nógu mörg að ýmsir telja. Það
er mikill munur á malbikinu
og grasinu, mikill munur á
aöturykinu og fjallaloftinu. —
Ætti ekki Reykjavík helst að
vera barnlaus borg á sumrin,
þótt vissulega sje margt gert
hjer vel fyrir yngstu borgar-
ana?
Ráðstefnur
í Reykjavík
’EYKJAVÍK er raunar vissu
lega „komin á kortið“ á heims
mælikvarða. Ljósustu dæmin
eru ráðstefnurnar, sem nú eru
haidnar hjerna. Á þriðjuclag
hófst hjer fulltrúafundur Nor
ræna fjelagsins, en fundarhöld
in fara fram í Alþingishúsinu
og mrnu' standa yfir í fjóra
daga. Á mánudaesmorgun hófst
svo í Reykjavík fulltrúafund-
ur Sambands norrænna banka-
manna, og þann fund sitja níu
fulltrúar frá Danmörku, Finn-
landi, Noregi og Svíþjóð, auk
þriggja fulltrúa íslenskra banka
manna.
Reykjavík er því þessa dag-
ana gestgjafi tveggja „alþjóð-
legra“ ráðstefna, en það hefir
vist ekki oft áður skeð í#sögu
borgaiinnar.
Bættar samgöngur
og fleira
AUÐVITAÐ eru það fyrst og
fremst hinar stórbættu sam-
göngur, sem orsaka það, að ís-
lenska höfuðborgin vérður nú
æ tíðar fyrir valinh. sem fund
arstaður fyrir ráðstefnur á borð
við þær, sem nefndar eru hjer
á undan. En ástæðurnar eru
fleiii. Reykiavík er orðin það
stór borg, að hún á vandræða-
laust að geta tekið á móti er-
lendum fundargestum og veitt
þeim jafngóð vinnuskilyrði og
margar aðrar borgir. þótt stærri
sjeu. Og hún á að stefna að
því marki að taka sem best
á móti þessum gestum, því úr
því hún er „komin á kortið“
verður hún að gæta þess vand-
lega að gegna stöðu sinni roeð
sóma.
Vinsælasta
skemmtunin
JEG sie það í blaðinu í dag
(miðvikudag), að Trípolibíó
hefir „erft“ síðustu myndina,
sem Austurbæjarbíó sýndi. —
Mvnd þessi heitir „Örlaga-
gyðjan“ og var fyrsta myndin
sem Austurbæjarbíó tók til
sýningar eftir tveggja vikna
lokun.
Auðvitað verður að ætla, að
það sje fyrst og fremst vegna
skorts á myndum, að Trípoli-
bíó nú byrjar að sýna sömu
kvikmyndina og Austurbæjar
bió er búið að leggja á hilluna.
Tripolibíó gerir það varla fús-
lega að hirða svona leifarnar.
Þeir, sem ráða því, hve marg
ar og góðar kvikmyndir fást
fluttar til landsins, ættu að at-
huga þetta. Bíóferðin er vin-
sælasta skemmtun almennings,
os það er illa að farið, ef hann
fær ekki að njóta þeirrar
skemmtunar í friði.
MIDAl AkNARÁ OROA . . . .
Höbiin ChurdiHI í Kanada er að vaxa
Eftir Charles B. Lynch.
frjettaritara Reuters.
CHURCHILL heitir staður í
Manitoba fylki í Kanada. Það
er á eyðilegri suðurströnd Hud-
son flóa’í norðurhluta Kanada.
En þangað hefur verið lögð
jámbraut frá Mið-Kanada og í
Churchill var árið 1929 byrjað
að byggja höfn, þar sem eru
stórar korngeymsluskemmur og
önnur vöruhús. Kostnaður við
allar framkvæmdir hefur num-
ið um 55 milljón dollurum og
ætlunin var að gera nýja hand
hæga hafnar- og verslunar-
borg fyrir Mið-Kanada.
• •
HÖFNIN LOKAST
AÐ VETRARLAGI
EN CHURCHILL hefur alltaf
verið líkust draugaborg. Skipa-
leiðin til Churchill er talin opin
þrjá mánuði á ári frá þv: í
ágúst til október, en á öðrum
tímum þekur ísbreiða allan
Hudson flóa.
Þetta er að vísu nægur tími
til að sigla þangað hundruðum
skipa, en vandræðin hafa bara
verið, að skipin hafa ekki kom-
ið nema of fá. Öll þau skip,
sem komu til Churchill til að
sækja þangað korn, höfðu enga
vöruflutninga til bæjarins, svo
að allur kostnaðurinn fjell em-
göngu á útflutningsvöruna.
• •
VIÐSKIPTIN
AÐ AUKAST
EN FRÁ því 1945 hefur þó hcld-
ur tekið að færast líf í Port
Churchill og aldrei hafa við-
skiptin verið meiri en á síðasta
ári, samtals 160 þús. smál. með
35 flutningaskipum. Útflutn-
ingur á hveiti nam 5 Vz milljón
skeffa. Og í ár gera menn sjer
vonir um að framtíðardraum-
arnir fari að rætast að ráði.
• •
MEIRI
INNFLUTNING
ÞAÐ er gert ráð fyrir, að út
verði fluttar um Port Churciiil)
15 milljón skeffa af kprni og
nú er fyrir alvöru hafin bar-
átta fyrir að vöruflutningar til
Mið-Kanada færist yfir í Port
Churchill. Sú barátta fer senni-
lega að bera árangur á næst-
unni. Það hefur þegar verið á-
kveðið, að í ár verði flutt frá
Bretlandi til Kanada um Churc-
hill m. a. allmikið af glervarn-
ingi, bifreiðum og bifhjólum og
nýlenduvörum. Á síðasta ári
nam innflutningurinn tæplega
1,000 smálestum, en verður með
vissu langtum meiri á þessu
ári.
• •
RÝMKA UM
TÍMATAKMÖRKIN
LEIÐIN til Churchill er talin
opin milli 5. ágúst og 10. októ-
ber. Utan þessa tíma telja vá-
Þ'yggjendur leiðina ótrvgga
sökum borgarísjaka og isþoku
i mynni Hudson flóa. En fylg-
Frh. á bls. 8