Morgunblaðið - 04.08.1949, Síða 12
VEÐURL'TLIT — FAXAFLÓI:
N«>r3-austan kaldi. Ljettskýjað,
UTVARPSRÆÐA
Eggerfg
Kristjánssonar, formanns Versl
unarráðs, er birt ó bls. 2.
174. tbl- —r— Fimtudagur 4. ágúst 1949.
Spánverjar óska eindregið
1 TT ’
* r
aó skipta við Islendinga
De íorafa greifi, sendifierra álífur slík
viðskipli báðum þjóðum fii hags
BENDIHERRA Spánar á íslandi de Torata greifi, sem afhenti
farseta embættisskilríki sín á laugardag hefur dvalist á íslandi
nærri vikutíma og gert sjer far um að kynnast landi og þjóð.
í gær áttu frjettamenn stutt viðtal við hann á heimili Magn-
risar Víglundssonar ræðismanns Spánar hjer á landi.
Barbara Hufton veik
Hefur íengi starfað í
wíanríkisþjónustu.
tugur að aldri, fæddur í Mad-
rid 1894. Hann las lög við há-
skólann í Toledo en gekk síð-
an í utanríkisþjónustu Spánar.
Hefur hann verið sendiráðsrit-
ari í París, London, Kaup-
mannahöfn og Buenos Aires.
Sendifulltrúi í Stokkhólmi
1938 og í Helsingfors 1939 —
Skrifstofustjóri við fjármála-
deild utanríkisráðuneytisins
«panska 1943 og 1947 var hann
skipaður sendiherra Spánar í
Osló.
Tit hags fyrir báðar
þjoðir.
Er frjettamenn ræddu við
greifann,. barst talið brátt að
viðskiptum milli íslands og
Spánar. Greifinn sagði að
Spánverjar vonuðust til að við-
áskipti milli landanna yrðu end-
urnýjuð hið fyrsta. ísland værí
ein af elstu viðskiptaþjóðum
Spánverja og atvinnuháttum
Jf*jóðanna væri svo háttað,- að
viðskipti yrðu til hags fyrir
báðar. •
Langar í islenskan fisk.
Greifinn kvað Spánverja enn
wiuna eftir gæðum íslenska
frsksins, sjerstaklega eftir
„Baccalao islandese“. Þeir ósk-
uðu og mjög eindregið eftir ís-
lenskum saltfiski. A undan-
förnum árum hafa Norðmenn
og Færeyingar selt Spánverj-
um þurkaðan fisk, en eftir
spurninni á Spáni er langt frá
l'VÍ fullnægt.
i»að sem Spánverjar
Irafa á boðstólum.
Ef íslendingar hinsvegar
vilja kaupa, hafa Spánverjar
á boðstólum m. a. ávexti, svo
sem appelsínur, sítrónur, ban-
ana, möndlur og allskonar nið-
ursoðna ávæxti, spönsk vín, svo
sem sherry. Þá er harpix og
kork. Auk þess flytja Spán-
verjar út járn, en mest til
Bretlands. Einnig vefnaðarvör-
ur, sem mikið hafa verið flutt-
ar til Bandaríkjanna.
Þarkar tefja endurreisnina.
Greifinn skýrði frá því, að á
siðuStu árum hefði verið unnið
á Spáni að víðtækum endur-
reisnarstörfum. Einkum væri
unnið að byggingu rafstöðva og
tðjtivera. • Verkið kvað hann
bafa tafist mikið vegna þess,
að á undanförnum árum hafa
verið miklir þurkar á Spáni og
sjerstaklega á þessu ári. Þurk-
arnir eyðileggja uppskeruna og
De Torata greifi er hálfsex- ^ árnar þorna svo mjög upp, að
ekki fæst nægileg vatnsorka til
að reka rafstöðvarnar En allt
hefur samt tekið miklum fram-
förum á undanförnum friðar-
árum. Fjöldi nýrra skóla og
sjúkrahúsa hafa verið reistir og
er almenningsmenntun komin í
gott horf.
Tveir ieikskólar lyrir
börn byggðir í haust
föí) bira ép að geta séft hvorn skóla á dag
NÝLEGA hefur' byggingarnefnd bæjarins gefið samþykki sitt
tii að rcist verði tvó hús fyrir leikskóla handa börnum. Verður
annar þeirra í Austurbænum, en hinn í Vesturbænum, — Um
100 börn niunú daglega geta sött hvorn skóla.
BARBARA HUTTON, sem oft
er talin vera ríkasta kona
heimsins, eftir að hún erfði
Woohvorth-miljónirnar, er um
þessar mundir stödd á Itaiiu og
er sögð mjög veik. — Þegar
myndin hjer að ofan var tekin
var hún aðeins 80 pund.
De Torata greifi.
Þakkar góðar móttökur.
Sendiherrann mun fara af
landi burt á laugardaginn, en
hann hefur aðsetur í Osló. —
Þakkaði hann mjög góðar mót-
tökur á íslandi.
Lýsingu á feiknum
við Dani útvarpað
KNATTSPYRNUSAMBANDI
íslands barst um það skeyti í
gærkvöldi, að danska útvarpið
hyggðist útvarpa lýsingu á
á knattspyrnuleiknum milli
Dana og íslendinga, sem fram
fer í Árósum n.k. sunnudág.
Ekki var þess getið á hvaða
bylgjulengd útvarpað yrði. —
Hinsvegar þykir blaðinu rjett
að benda á, að venjulegar út-
varpssendingar danska útvarps
ins fara fram á bylgjulengdun-
um 1250 m. og 31.51 m. Tekið
var fram að þetta útvarp hefð-
ist kl. 2.30 eftir ísl. tíma og
stæði það í 20 mínútur.
Leikflokkurinn
„Sex í biT'
vekur hrifningu
víða um land
AKUREYRI, 3. ágúst. — Hinn
landsfrægi leikflokkur „6 í bíl“
er nú kominn til Akureyrar aft-
ur úr Bjarmalandsför sinni um
Austurland eftir að hafa háft
sýningar á fjölmörgum stöðum,
svo sem á Reyðarfirði, Nes-
kaupstað, Eskifirði og Seyðis
firði. Ennfremur var flokkurinn
staddur á hjeraðsmóti Sjálf-
stæðismanna á Egilsstöðum og
lagði þar til skemmtiatriði, en
þó ekki leikinn Candidu.
i Alls staðar fjekk flokkurinn
framúrskarandi viðtökur og
fjölmenni sótti sýningarnar. —
Varð á sumum stöðum að hafa
þær tvær.
í austurleiðinni hafði flokk-
urinn og tvær sýningar á Húsa-
vík, og í gærkvöldi á Grenivík.
Má svo að orði kveða, að
hann hafi víðast hvar sýnt líst
j sína nema í Ódáðahrauni og
Mývatnsöræfum.
Eftir allt þetta stranga og
erfiða ferðalag eru leikendurnir
eins og nýslegnir túskildingar,
hressir og kátir.
Flokkurinn lagði af stað í
morgun suður, en ætlar að hafa
sýningar á Blönduósi og
Hvammstanga í leiðinni. Vænt-
anlegur er hann til Reykjavik-
ur á föstudag. — H. Vald.
29 gegn fveimur
HAAG, 3. ágúst. —- öldunga
deild hollenska þingsins sam-
þykti í dag þátttöku Hollands
í Atlantshafsbandalaginu með
29 atkvæðum gegn Þ'eimur
(kommúnistar). Áður hafði
fulltrúadeildin samþykkt þátt-
tökuna með 65 atkvæðum gegn
sjö. — Reuter.
Hvassi á miðunum
í GÆRKVÖLDI símaði frjetta
ritari Mbl. á Raufarhöfn, að
síðasta sólarhring hefðu kom-
ið þangað 25 skip, öll með smá
slatta. Úr þeim var als landað
um 3000 mál og tunnur.
Norðan hvossviðri var
Einlyft timburhús
Reykjavíkurtær, sem byggir
báða leikskóla þessa, hefir ný-
lega fengið nauðsynleg leyfi
fyrir byggingu leikskólanna. —I
Hvor þeirra verður rúmlega
150 ferm. að stærð. Húsin
verða einlyft timburhús og í
þeim þrjár stofur.
Þar sem skólarnir verða
Jafnframt hefir bærinn á-
kveðið, hvar byggja skuli leik-
skólahús þessi. Skólinn í Aust
urbænum verður á opna svæð
inu á gatnamótum Barónsstígs
og Njálsgötu. Skólinn í Vestur-
bænum verður sunnan Ránar-
götu, milli Bræðraborgarstígs
og Brekkustígs.
Skólarnir
Leikskólarnir verða fyrir
bötn á aldrinum þriggja til
sjö ára. Verður skólunum skipt
í deildir, þannig að minstu
börnin þriggja og fjögurra ára
verða í einni stofu skólans, en
börn frá fimm ára aldri til sjö
ára, í hinum tveim, en sem
fyrr segir verða þrjár stofur
i hvorum skóla.
Leikskólarnir eiga að geta
tekið til starfa kl. 8 eða 9 árd.,
og starfa þá fram til kU 12 á
hádegi. — Síðdegisd(eildirnar
byrja kl 1 og verða börnin í
þeim til kl. 5 eða 6. Með þessu
fyrirkomulagi, er gert ráð
fyrir, að um 100 börn geti sótt
hvorn þessara leikskóla dag
hvern.
Byrjað bráðlega
Jónas B. Jónsson fræðslufull
trúi, skýrði Mbl. frá því í gær,
að væntanlega myndu fram-
kvæmdir við byggingu skól-
anna geta hafist á næstunni. —
Kvað hann bæjaryfirvöldin
hafa fullan hug á að flýta
smíði skólanna svo, þeir gætu
tekið til starfa á hausti kom-
andi.
Morgunblaðið hefir frjett að
Barnavinafjel. Sumargjöf verði
gefinn kostur á að sjá um
rekstur þessara leikskóla
beggja og er það vel.
Grænland með
góðan afia
GRÆNLANDSLEIÐANGUR
h.f. Útvegs, sem bækistöð héf-*
ur í Færeyingahöfn á Gr-jen-
landi, hefur sent skeyti um, að
enn sje þar góður afli, bæði á
útilegu bátana og eins trill—
urnar. Hefur afli verið góður
síðustu 10 daga, eða frá því að
fyrstá skeyti frá leiðangrinum
barst.
Leiðangursmenn allir voru
við góða heilsu, en skeytið var
sent frá Færeyingahöfn þann 1.
ágúst siðastl.
Presfskosning í
S-Þingeyjarsýsfu
í GÆR voru talin á skrif*
stofu biskups atkvæði við
prestskosningar í Skútustaða*
prestakalli í S-Þingeyjarsýslu.
Umsækjandi var aðeins einn,
Hermann Gunnarsson, cand.
theol.
Á kjörskrá voru 246 kjósend-
ur, en 1.52 greiddu atkvæði.
Umsækjandinn var löglega
kosinn með 143 atkvæðum, en-
9 seðlar voru auðir.
Kveðjur til forseta
MEÐAL orðsendinga, sem
forseta íslands bárust í tilefni
J af embættistöku hans voru
hlýjar kveðjur frá Truman
Bandaríkjaforseta, ennfremur
[ frá Berut Pólandsforseta svo og
frá áhöfn Súðar-
við árnaðaróskir
Norðurland í gær og var flot- innar og íslenskum sjómönn-
inn nær allur í vari. Hinsvegar ^ um við Grænlandsstrendur,
frjettist að Helgi Helgason VE frá Bandalagi ísl, skáta og frá
hefði fengi^S um 200 mála kast, íslendingadagsnefndinni í
þrátt fyrir slæmt veður við Blaine, Washingtonríki.
Rauðakrók. f (Frá Utanríkisráðuneytinu).
ZERMATT, Sviss: — Fyrr ' vilcunni
hröpuðu 3 Englendingar hjer í greind
er þeir klifu fjall. Fengif þeir bana
af, enda var fallið mikið eða um 600
fet. Menn þessir voru þaulvanir f jalí
göngumenn, er þarna iðkuðr íþrótt
sína ásamt öðrum fjelögum sinum újj
breska ,,Alþaklúbbnum“.