Morgunblaðið - 23.08.1949, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 23. ágúst 1949.
ÍÞB9TTIR
JT
Þiiú Islandsmet seti í meisiara-
mótinu
MEISTARAMÓT fslands í frjáls-
íþróttum (aðalhlutinn) fór fram
á íþróttavellinuní;'s.L laugardag
og sunnudag. — ÁÍ;%ugardaginn
var athyglisverðasti árangurinn
Islandsmet Arnar Clausen í 110
m. grindahlaupi, fÖO m. hlaupið
með þrjá menn inrián við 22 sek.
og 800 m. hlaup Magnúsar Jóns-
sonan í kvennagreinunum vakti
það og athygli, að Akureyrar-
stúlkurnar unnu hástökk og kúlu
varp, og settu íslandsmet í báð-
um. — Á sunnudaginn var 400
m. hlaupið nr. 1. ísland eignaðist
þá í fyrsta sinn hlaupara innan
við 50 sek., og ekki aðeins einn,
heldur tvo. Ásmundur Bjarnason
setti þar íslandsmet í undanrás,
sem Guðmundur Lárusson bætti
um 3/10 sek. í úrslitunum.
400 m. gr. og hástökk
Fyrsti íslandsmeistarinn á laug
ardaginn varð Reynir Sigurðsson
í 400 m. grindahlaupi. Hann hljóp
á 56,7 sek., sem er besti tími, sem
hann hefur náð í þeirri grein.
Skúli Guðmundsson vann há-
stökkið með miklum yfirburðum.
Hann fór yfir 1,88 í fyrsta stökki,
en næstu hæð, 1,93, felldi hann,
þótt litlu munaði.
Haukur á mettíma —
Þrír uudir 22,0
Það var enginn fyrir vonbrigð-
um með keppnina í 200 m. hlaup-
inu, enda besta hlaup í þeirri
grein, sem fram hefur farið hjer
á íþróttavellinum. í undanrás var
fyrri riðillinn miklu harðari en
sá' síðari. Var það'keppnin um
annað. sætið milli Harðar Har-
aldssonar og Ásmundar Bjarna-
sonar, sem gerði hann það. Finn-
björn varð fyrstur á 22,2, Ás-
mundur annar á sama tíma og
Hörður þriðji á 22,7 sek. — Hauk-
ur Clausen og Guðmundur Lár-
usson gátu tekið það rólega í
síðari riðlinum (22,5 og 23,0). —
í úrslitunum var Haukur orðinn
vel fyrstur er á beinu brautina
kom, og vann á mettíma sínum,
21,6 sek., Finnbjörn og Guðmund
ur hlupu að mestu samhliða og
var keppnin á milli þeirra mjög
hörð. Guðmundur var sterkari
síðustu metrana og náði öðru
sæti. Tímarnir 21,6 — 21,8 —
21,9 — 22,1 segja til um árangur-
inn, og tryggja íslandi þrjá menn
í keppni Norðurlandanna við
Svía í september.
Sigfús meistari í kúluvarpi
Huseby tók ekki þátt í kúlu-
varpinu, og Sigfús Sigurðsson frá
Selfossi tók meistaratitilinn. —
Náði hann ágætum árangri,
14,72 m.
Leiðindaatvik í 800 m.
í 800 m. hlaupinu skeði það
leiðinlega atvik, að methafinn
Óskar Jónsson var rekinn úr
hlaupinu fyrir að „þjófstarta"
tvisvar. Sannarlega sjaldgæft,
þegar um svo langt hlaup er að
ræða. — Úrslitin urðu enn óviss-
ari fyrir þetta. Pjetur Einarsson
tók forystuna og var fyrstur þar
til tæpir 100 m. voru eftir, að
Magnús Jónsson, sem fylgt hafði
honum alla leiðina, vann á enda-
sprettinum. Tími hans, 1.57,9 mín.
er þriðji besti tími íslendings í
því hlaupi. Pjetur hljóp á 1.58,4
mín.
Torfi vann langstökkið
og Jóel spjótkastið
Stökklengdirnar hjá Torfa
kvennamet
Örn Oausen í 110 m. grhl. og Ásm. Bjarnason
og GuSmundur Lárusson í 400 m. hlaupi
i rt)
Guðmundur Lárusson setur Is-
landsmet í 400 m. hlaupi. —
Tíminn var 49,4 sek. (Ljósm.
Mbl. Ól. K. M.
Bryngeirssyni í langstökkinu
voru mjög jafnar. Hann var ailtaf
við 7 metrana, en náði þeim
aldrei, þótt ekki munaði nema 2
cm. — Jóel vann spjótkastið auð-
veldlega, kastaði yfir 62 m.
15,0 í 110 m. grindahlaupi
Örn Ciausen hljóp 110 m.
grindahlaup mjög vel og bætti
íslandsmetið um 2/10 sek. 15,0 er
besti tími, Sem sú vegalengd
hefur verið hlaupin á af Norður-
landamanni í ár.
Fjórir keppendur mættu til
leiks í 5000 m. hlaupi og er það
meira en oftast áður núna síðari
| árin. Hörður Hafliðason vann þar
1 á 17.15,8 mín.
I
Tvö kvennamet
( í hástökki kvenna bætti María
| Guðmundsdóttir frá Akureyri ís-
landsmetið um 6 cm: og í kúlu-
varpi kvenna var metið bætt
tvisvar. Laufey Ólafsdóttir frá
Selfossi bætti það fyrst um 15
cm, en Anna Sveinbjörnsdóttir
frá Akureyri síðan um 61 cm.
Stangarstökk
og kringlukast
Torfi Bryngeirsson fór yfir 4
m. í stangarstökki í fyrsta stökki,
en honum mistókst við 4,10.
Keppnin í kringlukasti var
mjög hörð og tvísýn á milli Frið-
riks Guðmundssonar og Þorsteins
Löve. Báðir köstuðu þeir yfir 42
m. og settu persónuleg met. —
Friðrik varð hlutskarpari, en
munurinn var aðeins 4 cm.
Tveir undir 50 sek. í 400 m.
I 400 m. hlaupinu hljóp Ás-
mundur Bjarnason á 49,7 sek. í
undanrás og setti nýtt íslenskt
met. Bætti hann met Guðmund-
ar Lárussonar, sem var nokkurra
daga gamalt, um 1/2 sek. — Ás-
mundur hljóp svo ekki með í úr-
slitunum, þannig að aðalkeppnin
þar hlaut að standa á milli Guð-
mundar Lárussonar og Magnúsar
Jónssonar. Guðmundur var ó-
heppinn með að lenda á ystu
braut, en hann hljóp mjög vel og
náði íslandsmetinu aftur, eftir að
Ásmundur hafði átt það i 3 stund-
arfjórðunga. Tíminn var 49,4 sek.
Magnús Jónsson hljóp á 50,1 sek.,
sem er þriðji besti tími íslend-
ings.
Haukur vann 100
og Pjetur 1500 m.
100 m. hlaupið og 1500 m. hlaup
ið voru að því leyti lík, hve marg-
ir skráðir keppendur hættu við
að hlaupa. Aðeins þrír í 100 og
tveir í 1500. Keppnin var samt
hörð. Hlaupið var á móti vindi
í 100 m. Tíminn varð þó 10,9 sek.
Haukur vann, en Finnbjörn var í
öðru sæti. — í 1500 m. varð Pjet-
ur Einarsson íslarídsmeistari.
Þrístökk og sleggjukast
Stefán Sörensson keppti nú í
þrístökki í fyrsta sinn á árinu, en
hann hefur ekki getað æft það
vegna meiðsla í fæti. Hann náði
sjer aldrei vel upp og varð áð
láta sjer nægja 13,51 m.
Vilhjálmur Guðmundsson vann
sleggjukastið, kastaði 44,25 m.,
sem er betri árangur en hann
hefur náð undanfarin. ár. Símon
Waagfjörð frá Vestmannaeyjum
varð annar.
Enn tvö kvennamet
Hafdís Ragnarsdóttir setti nýtt
íslandsmet í 80 m. grindahlaupi
kvenna. Hljóp á 15,2 sek. Ást-
hildur Eyjólfsdóttir, Á, sem átti
fyrra metið, hljóp á sama tíma.
— KR-stúlkurnar settu íslands-
met í 4x100 m. boðhlaupi og
María Jónsdóttir kastaði kringl-
unni fram fyrir íslandsmetið, en
heyrst hefur, að kringlan hafi
reynst of Ijett. Kvenfólkið er i
áberandi framför.
★
Mótið fór yfirleitt vel fram, og
tók aðalkeppnin ekki allt of lang-
an tíma. Áberandi var þó, hve
mikið var áf „óþarfamönnum“
(mönnum, sem ekkert hafa þar
að gera) inn á sjálfum vellinum,
sjerstaklega á laugardaginn.
Helstu úrslit urðu þessi:
LAUGARDAGUR
400 m. grindahlaup: — íslands-
meistari: Reynir Sigurðsson, ÍR,
56,7 sek., 2. Ingi Þorsteinsson, KR,
58,5 sek.
Hástökk: — íslm.: Skúli Guð-
mundsson, KR, 1,88 m., 2. Ás-
björn Sigurjónsson, UMSK, 1,70
m., 3. Gísli Guðmundsson, Umf.
Vaka, 1,65 m. og 4. Ásgeir Sig-
urðsson, Selfossi, 1,60 m.
200 m. hlaup: — íslm.: Haukur
Clausen, ÍR, 21,6 sek., 2. Guð-
mundur Lárusson, Á, 21,8 sek.,
3. Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR, 21,9
sek. og 4. Ásmundur Bjarnason,
KR, 22,1 sek.
Frh. á bls. 12.
DIDEE-PIIAC-KALKUÍIA
LeyfisLöfum útvega jeg frá verksmiSjum í ofán-
greindum borgum: Fiskpökkunar „Hessian“, Húsa-
striga, Húsgagnastriga, Borða, Síldarmjölspoka, Fiski
mjölspoka, Ullarbala, Kjötpoka, Hrognapoka, Hamp
og Hörsaumgarn- — Sýnishorn fyrirliggjandi.
ja
Austurstræti 9.
ig-núó O. Ota/áí
Hóon
Sími 80773. Símnefni: ,.LINK“
■ ■■iiaiMir*
Afgreiðslumann
duglegan og ábyggilegan, vanan afgreiðslu í kjöt-
búð, vantar nú þegar.
\Jet'ólnn ^Jxeió Jot
Cýur^eiróóonar
Barmahlíð 8.
■■■■■■■■■■
■ ■■■■■■■■■■■■■■•-■■■■■■■■■■■
■ ■■■■■■■.■■■■■■■■aBBaaaa.aaaaBaaB>|(|
■■■•111111
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■ ■•■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■!
STLL
l v®n saumaskap, oskast strax. Vantar einnig stúlku
: í handsaum. — Uppl. á kápusaumastofu okkar, Lauga-
j veg 105, 5. hæð. — Inngangur frá Hlemmtorgi.
| L/
‘•■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■a?raaaB>
*IRIIII9IIIIBNHMIIiai||l|lill||lg||«|ailalll||||a||||||aaaaaa|aaa|||
íbúð óskast
5 Fyrirframgreiðsla.
OL
OFCl
I STIÍLKA
■
; sem getur tekið að sjer brjefritun á ensku, dönsku og
; helst þý"sku, óskast nú þegar hálfan daginn á skrif-
; stofu.„ Tilboð með upplýsingum um fyrra starf og
: menntun sendist afgr. Mbl. merkt: „Brjefritun — 954“,
• fyrir miðvikudagskvöld.
Olíukyndingartæki
Nýtt amerískt oliukyndingartæki, algjörlega sjálf-
virkt, til sölu. — Tilboð merkt: „Olía — 973“ sendist
Mbl. fyrir miðvikudagskvöld.
Til sölu
Nýr kæliskápur R. 4þ4. Verðtilboðum sje skilað
fyrir fimmtudagskvöld á afgr. Mbl. merkt: „KÆLI-
SKÁPUR — 976“.
Best að augiýsa í Hurgunbiaðinu