Morgunblaðið - 24.09.1949, Side 4
tftORGV ISBLABIB
Laugardagur 24. sept. 1949. ]
jóhann ECarl Hjálmarsson
ÞANN 6. áept. síðastliðinn, ljest ’
að heimili sínu Bakka í Bjarn-
arfirði Jóhann Karl Hjálmars-
son, bóndi og póstur. Hann var
fæddur að Kambi í Arneshreppi
25. júlí 1887, og eins og fjöldi
alþýðumanna þess tíma var
hann borinn til þeirra erfiðu
lífskjara, sem þálifandi kynslóð
varð við að búa, og í uppvext-
inum lærði hann að skynja það,
að því aðeins var möguleiki til
ájálfsbjargar, að tengt væri sam
an afl huga og handa og vel
unnið hvern dag. Á þessum
sannindum byggði hann sitt
pefistarf allt til hinstu stundar.
Mjer eru minnug þau fyrstu
kynni, sem jeg hafði af Jóhanni
sál. Hann var þá heimiii. maður
að Gjögri í Arneshreppi. og
stundaði þar, sem aðrir íbúar
þorpsins, sjómennsku sem aðal-
atvinnu. Einn dag árla, lenti
lítil áraskekta í vörinni heima á
Kaldrananesi. Á land gekk
hvatlegur maður meðalhár, og
með honum lítill bjarthærður
drengur. Þetta var Jóhann Karl
og elsti sonur hans Ólafur, þá
10 ára gamall. Leiðin frá Gjögri
í Kaldrananes er talin allt að 3
stunda ferð á ganggóðum vjel-
bát, leiðin víða skerjótt og erf-
itt um landtöku. Jeg var ungur
þá og skynjaði lítt þau lífsins
rök, sem að því hníga, að heim-
ilisfaðirinn leggur upp svo lang
an veg frá konu og ungum börn
um til aðdrátta fyrir heimilið,
og hafa ekki fullkomnari far-
kost. Þessi rök eru mjer ljósari
nú. Síðan þetta atvik gerðist
eru nú liðin nær 30 ár, og á því
árabili hefur kynning okkar Jó-
hanns sál orðið mikil. Hann
hefur um langt árabil verið ná-
granni minn og oft starfsmað-
ur á heimili foreldra minna. í
gegnum þá kynningu hef jeg
fengið þekkingu á högum hans
og háttum, og staðfestingu á
áhrifum hinna fyrstu kynna. —
Þrautseigja, samviskusemi og
dugnaður í starfi voru eigindir
«em hann átti í ríkum mæli.
Lífssaga hans er baráttusaga al-
þýðumannsins, saga þeirrar
kynslóðar, sem nú er aþ hverfa
frá störfum í hinum afskektu
byggðum þessa lands, þeirri
kynslóð sem aðeins á efri ár-
um hefur komist í snertingu við
þau lífsþægindi, sem framtíðin
gerir kröfu til og væntanlega
fær við að búa. Sagan er í fám
orðum þessi: Erfiðar ferðir um
torkleifa fjallvegi til að leita
læknis og lífsbjargar. Á útlíð-
andi vetrum að skilja við kon-
una og barnahópinn, oft við
lítla björg í búi, mcðan leitað
var til fanga — vestur að Djúpi
eða í aðrar verstöðvar, og var
afkoma heimilisins þá undir því
komin hversu gjafmildur Ægir
yrði. En Jóhann háði ekki sína
lífsglímu .einn, við hlið hans
-stóð eiginkonan hans Ragnheið-
ur Benjamínsdóttir. Hún var
hans tryggi starfsfjelagi og lífs-
Jtr'J-nautur. Þegar hann varð að
vera langdvölum frá heimilinu,
þá varðveitti hún barnahópýin,
dýrmætustu eign þeirra beggja.
og þegar lífið gaf þeim tækifæri
til samdvalar, þá voru störfin
unnin í sameiningu, og sam-
eiginlega stefnt að því marki að
ot^aab ó h
' vera sjálfum sjer nóg. Um nokk
! urt árabil, eftir að aðstaðan
breyttist og Jóhann var orðinn
bóndi á Bakka var hann land-
póstur í norðurhluta Stranda-
sýslu; hjelt hann póstsstarfinu
til dauðadags.
i Þau hjónin, Jóhann og Ragn-
heiður, hafa aldrei átt gnægð
gulls, og skila þjóð sinni ekki
arfi sem metinn verður að pen-
ingagildi, en þau hafa alið henni
börn, sem eru nýtir þegnar. —
Litla snotra heimilið þeirra á
Bakka ber vitni þeirri sam-
heldni og heimilisrækt sem ríkt
hefur innan fjölskyldunnar. —
Jóhann varð ekki gamall mað-
ur, en þó varð starfsdagur hans
langur, því árla var risið og
| seint að sest. Nú eru leiðarlok.
! Það er komið haúst. Björkin í
I hlíðum Bjarnarfjarðar fellir
i senn bliknað laufið. Mildur and
! varinn þýtur í sefinu. Það er
eins og mjúkir angurblíðir tón-
ar berist yfir dalinn. Það er
þakkargjörð frá lífgrösum vall-
arins til þeirra sem landið erja.
I Það eru saknaðarljóð byggðar-
! innar til sonarins horfna.
í guðs friði.
Þorsteinn Matthíasson.
Handknatfieiks-
267. elagur ársins.
Árdegisflæfíi kl. 7,25.
Síðdegisflæði kl. 19,45.
Næturlæknir er í Læknavarðstof-
unni, sími 5030.
Næturvörður er i Lyfjabúðinni
Iðunni. simi 7911.
Næturakstur annast B.S.R. sími
1720.
Yíessur á morgun
Dómkirkjan. Messað kl. 11, sjera
Jón Auðuns.
Hallgrímskirkja. Messað kl. 11
f.h. Sr. Sigurjón Arnason.
Laugarnrsprcstakall. Messa kl. 11
árd. Sr. Garðar Svavarsson.
Nesprestakali. Mess.að í Kapellu
Háskólans kl. 2. Sr. Jón Thorarensen.
Llliheimilið. Messað kl. 10 árd.
Sjera Sigurbjörn Gíslason.
Kaþólska kirkjan. Hámessa kl. 10
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Messa
kl. 2. Sr. Kristinn Stefánsson.
Brautarholtskiikja. Messa kl. 14.
Sjera Hálfdán Helgason.
i ÍJtskálaprestaKall: Me soiir í Kefla
I vik kl. 2 siðdegís. I— Njarðvíkurkirkja
kl. 5. — Sr. Eiríkur S. Brynjólfsson.
Grindavík. Messa kl. 2 e.h.. —
Sóknarpresturinn.
Kálfatjörn. Messa ki. 2. Sr. Garð-
ar Þprsteinsson.
Haustfermingarbörn
í Nesprestakalli komi til viðtals í
Melaskóla n.k. þnðjudag kl. 4 siðd.
— Sr. Jón Thorarensen.
Afmæli
50 ára er í dag frú Vilhelmina
Baldvinsdóttir, Túni, Innri-Njarðvík.
75 ára er í dag ekkjan Guðbjörg
Þórðardóttir, Bergstaðastræti 63.
Hjónaefni
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Hulda Sigurðardóttir, Hverfis
götu 25, .Hafnarfirði og Ari Kristjáns
son, Miklubraut 60, Reykjavik.
Útvarpið:
arfjarðar
HANDKNATTLEIKS-meist-
aramót Hafnarfjarðar var háð
s.l. sunnudag í Engidal við
Hafnarfjörð. Þátttakendur voru
Hafnarfjarðarfjelögin, F. H. og
Haukar, og kepptu tveir flokk-
ar kvenna og karla frá hvoru
i f jelagi.
J Úrslit mótsins urðu þau, að
| Haukar unnu kvenflokkana
| báða. Meistaraflokk kvenna
unnu þeir með 3:0, en annan
flokk með 2:0.
Báða karlflokkanna vann F.
H. Meistaraflokkinn vann fje-
lagið með 17:6, en annan flokk
með 9:7.
j Leikir kvenflokkanna voru
báðir mjög lítilfjöríegir, og
sýndu áþreifanlega hve hand-
knattleik kvenna í Hafnarfirði
hefir hrakað síðastliðin ár. —
Leikur karlfl. F. H. var aftur
á móti hinn áferðarfallegasti og
tæknislega mjög góður, en leik
ur Hauka einhæfur og þungur
og mun ljeleg æfing aðallega
valda því.
Fyrir þá scm sjálfir mála íbúð-
irnar. Það er ofl mjög þýðingar-
mikiS við málningu á gluggakist-
um og hurSum að sljetta vel með
sandpappír undir og ekki nóg meS
þaS. ÞaS verSur !íka aS fara yfir
flötinn með sandpappír mi.li yfir-
ferSa, þá verSur flöturinn aS lok-
um spegilsljettur. En gæta verSur
að þurka allt ryk af með deiguin
klút áSur en málaS er.
Brúðkaup
Hvirfilbyiur í Japan
TOKYO, 24. sept.: — Hvirfil-
bylur kom í dag yfir Mið-Jap-
an. Olli hann miklum skemd-
um. í kjölfar hans kom stór-
kostlegt skýfall og mældist úr-
koman í dag 400 mm á nokkr-
um stöðum. Stafaði af því mik-
il flóð, svo fólk hefir orðið að
flýja hús sín. — NTB.
1 dag verða gefin saman í hjóna-
band af sjera Jakob .Tónssyni, ungfrú
Erna Benediktsdóttir. Granaskjóli 7,
og Karl Ragnarsjon, Leifsgötu 8.
Heimili brúðhjónunna verður að
Barmahlið 34.
í dag verða gefín saman í hjóna-
band i Landakotskirkju frk. Ölöf Kol-
beins Axelsdóttir, Laugateig 33 og
Donald L. McLafferty St. Paul,
Minnesota U. S. 4.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band af sjera Bjarna Jónssyni, ung-
frú Kristín Kjaran (Ingvars Kjaran
skipstjóra) og Ólafur Ingibjörnsson
(Jónssonai sjálfseignarbónda, Flanka
stöðum). Heimili ungu hjónanna verð
ur Tjarnargata 10 D.
1 dag verða gefin saman i hjóna-
band ungfrú Soffía Jónsdóttir, Njáls-
götu 13 a. og Eric Ohlsson, Svíþjóð.
Vigslan fer fram á Herrgárden
Storebro, Sviþjfíð og verður heimili
ungu hjónanna fyrst um sinn þar.
í dag verða gefin saman í hjóna-
band áf sjera Birni Magnússyni, ung-
frú Soffía J. Kristbjörnsdóttir, Berg-
staðastræt: 6 C og Ólafur Stephensen
stud. med. dent. Hringbraut 54. Heim
ili ungu hjónanna verður á Hring-
braut 54.
Kvennaskólinn
í Reykjavík
Námsmeyjar skólans komi til við-
tals í skólanum á þriðjudaginn kem-
ui'. 2V. sept. 1. og 2. bekkur kl. 10
og 3. og 4. bekkur kl, 2.
Sjálfstæðiskvennafjelagið
glugga Versl. Jóns Björnssonar í
Bankastræti. Sýning þessi hefir vakið
mjög mikla eftirtekt vegfarenda og
| virðist þar vera um góða framleiðslu
! að ræða.
I ‘
Orðsending til
Sjálfstæðismanna
| Athugið nú þegar, hvort þið eruð
{ á kjörskrá. ICærufrestur er útiunninn
. 2. október. Kjörskrá liggur frammi á
skrifstofu flokksins í Sjálfstæðishúsinu
sími 7100.
8,30—9.00 Morgunútvarp. — 10.10
| Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádegis-i
útvarp. 15,30—16,25 Miðdegisútvarp^
— 16,25 Veðurfregnir. 19,25 Veður-
fiegnir. 19,30 Tónleikar: Samsöngur
(plötur). 19,45 Auglýsingar. 20.00
I rjettir. 20,30 Utvarpstríóið: Einleik-
ur og trió. 20,45 Leikrit: „Laugardags
kvöld“ eftir Vilhelm Moberg (Leik
sljóri: Þorsteinn ö. Stephensen),
21,25 Tónleikar: Lög úr söngleikj urn.
eftir Victor Herbert (plötur). 22.00
Frjettir og veðurfregnir. 22,05 Dans-
lög (plötur). 24,00 Dagskrárlok.
Erlendar útvarps-
stöðvar
Bretland. Til Evrópulanda. Bylgja
Iendgir: 16—19—25—31—49 m. —
Frjettir og friettayfirlit: KI 11—13
—14—15,45—16— 17,15 —18—20—
23—24—01.
Auk þess m. a.: Kl. 14,45 Terenœ
Casey leikur á bíóorgel. Kl. 17,30
Getraunakeppni. Kl. 22,00 Danslög.
Victor Silvester og hljómsveit h'ans
h ikur. Kl. 00,10 Rússnesk óperulógs
hljómsveit leikur.
Noregur. Bylgjulengdir 11,54
452 m. og stuttbylgjur 16—19—23
—31.22—41—49 m. — Frjettir kl
07,35—12.00—13—18.05— 19,00 —
21.10 og 01.
Auk þess m. a.: Kl. 16,40 Torolv
Skage syngur norsk lög. Kl. 20.10
■ Útvarpshljómsveitin leikur.
Danmörk. B.ylgjulengdir 1250 og
131,51 m. — Frjettir kl. 17.45 03
kl. 21.00.
Auk þess m. a.: Kl. 17,00 Duke
Ellington og hljómsveit hans, plöt-
ui, Kl. 19,00 Utvarpshljómsveitin.
i Kl. 19,40 Upplestur, Rasmus Christ-
iensen leikari. Kl. 20,00 Skemmtilög,
liljómsveit leikur.
) Svíþjóð. Bylgjulengdir: 1388 05
128,5 m. Frjettir kl. 18 og 21,15.
Auk þess m. a.: Kl. 13,30 Upples::
ur, Áke Falk. Kl. 17,10 Tónlist at
plötum. Kl. 19,05 September-revyan,
Kl. 19,45 Gömul danslög.
Fækkar í sveitum Bandaríkjanna.
Við ársbyrjun bjuggu 27 milj.
manns á sveitabýlum í Banda-
ríkjunum en það er 9 prc. minna
en við manntalið 1940.
„Hvöt“
mun halda fund i Sjálfstæðishúsinu
á mánudaginn kemur. Fundurinn
hefst kl. 8,30. Er þess vænst að kon-
ur fjölmenni á fuudinn.
Fjelag íslenskra
rithöfunda
heldur fund á sunnudaginn kemur
kl. 2 e.h. i Iðnó uppi. Gengið inn
frá Vonarstræti. Áriðandi mál eru á
dagskrá.
Gluggasýning
Nú sem stendur hefir H.f. Nær-
fataefna- og Prjónlesverksmiðjan sýn
ingu á framleiðsiu sin.ii í sýningar-
Til bóndans í Goðdal
N. N. 40, II. J. I. H. 500, áheit 50,
áheit 20.
Flugvjelarnar.
■Ijoftleiðir:
I 1 gær var flogið til Blönduóss og
Hellisands
J I dag verður flogið til Vestmanna-
eyja (2 ferðir), Akimreyrar, Isafjarð
ar, Patreksfjarðar og Klausturs.
I Geysir fór til Kaupmannahafnar og
Prestwick kl. 8,00 í gær, væntanlegur
jtil baka kl. 18,00 í dag. Geysir fer
til New York i kvöld. Hekla fer kl.
8,00 í fyrramálið til London. væntan-
leg til baka kl. 22,30 annað kvöld,
Flugfjelag fslands:
1 1 dag verður flogið til Akureyrar, |
(2 ferðir), Vestmannaeyja. Blöndu-
óss, Isafjarðar og Koflavíkur.
I gær var flogið til Akureyrar (2
ferðit) og Vestmannaeyja.
Gullfaxi kom frá Prestwick í gær-
kveldi og fór aftur á miðnætt? til
Osló. Flugvjelin fer væntanlega til
Kaupmannahafnar um kl. 15,00 í dag.
| Skipafrjettir
Eimskip;
I Brúarfoss er í Reykjavík. Dettifoss
er á leið frá Kaupmannahöfn til
Gd'ynia og Finnlands. Fjallfoss er í
Kaupmannahöfn. Goðafoss er á leið
íiá Reykjavík til Vestmannaeyja, Isa-
fjarðar og New York. Lagarfoss er í
London. Selfoss er a Siglufirði. Trölla
foss er í Reykjavík Vatnajökull er í
Reykjavík.
E. & Z.:
J Foldin er í Reykjavík. Lingestroom
er í Amsterdam.
!
, Ríkisskip:
! Hekla er í Álaborg. Esja var á Ak-
ureyri í gær á vesturleið. Herðubreið
var á Breiðdalsvík i gær á norður-
leið. Skjaldbreið fór í gærkvöldi frá
| Reykjavík til Húnaflóa-, Skagafjarðar
' og Eyjaíjarðarhafna. Þyrill er í
Reykjavík.
Eimskipafjelag Keykjavíkur:
Katla er i Keflavik.
- Staksleinar
(Framh. af bis. 2)
kosning hans í haust sje
tryggari en nokkru sinni fyr.
Jóhann Þ. Jósefsson hefur
verið þingmaður Vestmann-
eyinga síðan árið 1924, eða i
rúman aldarfjórðung. Hanr;
hefur tekið þátt í hinurr;
merkilegu fjelagssamtökum
Vestmanneyinga um útvegs-
mál sín, sem að mörgu leyti
eru til fyrirmyndar. Hanr
hefur ennfremur haft forustu
um fjölmargar umbætur.
sem unnar hafa verið síðastl
áratugi í þessari þróttmestu
verstöð landsins. Jafnhliðt
hefur Jóhann Þ. Jósefsson
verið áhrifamikill þingmað
ur, sem látið hefur sig alþjóð
armál miklu skifta.
Hann mun áreiðanlega saka
lítt, þótt ritsóðar kommún-
ista og Tímamanna varpi að
honum skarni.
Þorðu ekki að sýna
Helga
Það hefur vakið nokkra at-
hygli, að Tíminn skýrði í gær
frá framboði Framsóknar i
Vestmannaeyjum án þess að
birta mynd af frambjóðand-
anum. Mun hann vera eini
frambjóðandi flokksins, sem
ekki er birt mynd af, með
lýsingu framboðs hans. Er
álitið, að Tíminn þori ekki að
sýna andlit þessa forvígis-
manns flokks síns og baráttu
manns fyrir bættu sið-
ferði í viðskiftamálum. En
Vestmannaeyingar þekkja
bæði andlitið og siðferðið!!!