Morgunblaðið - 24.09.1949, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.09.1949, Qupperneq 12
"se’i'KTOill MORGUNBLAÐIÐ Laugaxdagur 24. sept 1949. Sjötugur: Guðbergur G. Jó- hannsson málarameistari GUÐBERGUR er fæddur í Hafnarfirði 24. sept. 1879. Ung- ur fór hann til - sjós, eins og títt var um unglinga í kaup- túnum á þeim tímum, og var hann á skútum allt til þess er hann hóf málarastörf hjer í bæ árið 1906. Mun hann því eiga lengri feril að baki, sem málari, én nokkur annar núlifandi mál- ari. Hann hefir alla tið verið hinn mesti vinnuhe^tur eins og sagt er, iðinn og ósjerhlífinn. Guð- bergur ávann sjer fljótt marga og góða viðskiftamenn. Ber þar margt til, en þó hygg jeg að hin prúðmannlega og einlæga framkoma hans hafi þar miklu ráðið. Síðustu 30 árin hefir hann jafnan haft marga menn í þjón-. ustu sinni, enda hefir hann flesta þá kosti til að bera. sem nauðsynlegir eru til mannafor- ráða. Guðbergur er stjórnsam- ur og verkhygginn, úrræðagóð- ur qg æðrulaus þó eitthvað blási á móti. Hann er þægilegur í viðmóti og gamansamur þegar syo ber undir. En það sem mjer þykir mest um vert af eigin- leikum hans er það hve orðvar og orðvandur hann er. Jeg man ekkí til að hafa heyrt hann tala ilia um nokkurn mann. Jeg held að honum sje blátt áfram illa við að hlusta á slíkt hjá öðrum, enda ætíð viðbúinn að leggja gott til málanna og snúa talinu að öðru. I öllum viðskiftum er Guð- bergur hinn sanrigjarnasti og áreiðanlegur svo af ber. f/,. Hann er einn af stofnendum Málarampistaráíjélags" Reykja- víkur. Hefir hánn þar, sem ann arsstaðar, reynst hinn besti fjelagi, og ávalt sýnt fjelaginu hina mestu ræktarsemi. Mörg- um trúnaðarstörfum hefir hann gegnt fyrir f jelagið; m. a. ver- ið endurskoðandi réikninga þess lengur en nökkur annar fjelagsmaður. Jyrir nokkrum : árum var Guðbergur kjörinn heiðurs- fjelagi Málarameistarafjelags- ins, og er hann nú sá eini sem skipar þann virðulega sess. Heilsu Guðbergs er nú mjög tekið að hnigna, sem ekki er óeðlilegt, því starfsdagurinn er orðinn ærið langur, og oft strangur. Undanfarnar vikur hefir hann verið við rúmið, og > svo er enn. Mun þetta skyggja nokkuð á þá ánægju, sem bæði hann, vinir hans og kunningj- ar, hefðu haft af að hittast á þessum merkisdegi. Veit jeg þó, að margir munu líta inn til hins aldna heiðursmanns en hinir munu þó fleiri, sem hugsa hlýtt til hans og senda honum bestu árnaðaróskir. Annars hefir Guðbergur tek- ið þessu mótlæti, sem öðru, með stakri ró og karlmennsku. Guðbergur er kvæntur Her- borgu Jónsdóttur frá Bústöðum, greindri gæðakonu, sem nú ann ast bónda sinn af alúð og um- hyggjusemi. Þau hafa eignast þrjú börn. Eru tvö þeirra á lífi, Sigur- jón málarameistari, sem dvel- ur erlendis um þessar mundir og Unnur, sem er gift og bú- sett í húsi foreldra sinna. Guð- rún dóttir þeirra dó fyrir mörg um árum, uppkomin, mesta efnisstúlka. Kæri stjettarbróðir. Jeg bakka þjer persónulega. ánægju lega og holla viðkynningu og óska þjer til hamingju með þitt góða dagsverk. Og fyrir hönd Málarameistarafjelags Reykja- víkur færi jeg þjer þakklæti fyrir velunnin störf, með bestu óskum um bjart æfikvöld. Jökull Pjetursson. I 14 Á LFLUTNINGS \ SKBIFSTOFA | Ein»r B. Guðmundsson, l ] Guðlaugur Þorláksson, \ Austurstræti 7. Símar: 3202, 2002. Skrifstofutími tct 10—12 og 1—5. IMMMII*IMI(lll(MIMMtllMMMMIMMII»<*l»'MM*MMIMlMM» 6. þing norðlenskra presta og kennara SJÖTTA ársþing norðlenskra presta, kennara og annarra á- hugamanna um kristna og þjóðlega menningu, var haldið á Húsavík 17. og 18. sept s.l. Framsöguerindi fluttu: Jónas Jónsson, kennari, Akureyri, um þegnskylduvinnu, sjera Benjamín Kristjánsson, um gamla og nýja guðfræði, sjera Páll Þorleifsson, um Barth- guðfræðina. Eiríkur Sigurðs- son, kennari, um guðspeki, og Sigurður Gunnarson, skóla- stjóri, Húsavík, um skógrækt- armál. Þingið samþykkti þess- ar ályktanir: I. Fundur norðlenskra presta, kennara o.s.frv. lítur svo á að íslensk þjóð sje nú í alvarlegri hættu stödd varðandi uppeldi, þegnskap, skyldurækni og við- horf til líkamlegrar vinnu, einkum sá hluti hennar, sem býr í kaupstöðum, og sje þess brýn nauðsyn, að leitað sje úr- ræða og umbóta. Telur fund- urinn í því sambandi tíma- bært að endurvekja þegn- skylduvinnumálið. Æskilegt sje að þegnskylduvinna, sam- ræmd nútíma viðhorfi, verði í einhverri mynd framkvæmd í landinu. Vill fundurinn benda á eftirfarandi leiðir: 1) Kaupstaðir og hreppar dragi ekki lengur að taka til um- ræðu framkvæmd heimild- arlaga um þegnskyldu, nr. 63, frá 27r júní 1941. Sjái þessir aðilar sjer ekki fært að framkvæma heimildar- lögin, þá geri þeir tillögur um þegnskyldulöggjöf, sem betur henti þjóð vorri eins og nú hagar til, t-d. að ríkið efni til framkvæmda, svo 0 sem við ræktun og bygg- ingu nýbýla á völdum stöð- um með þegnskylduvinnu. 2) Þegnskyldumálið verði tengt skólalöggjöfinni á þá leið, að síðasta ár skólaskyld- unnar verði notað til verk- náms í þegnskylduanda. Beinir fundurinn þessari á- lyktun til menntamálaráðu- neytisins og heitir á hin ýmsu fjelagssamtök í landinu að taka þegnskylduvinnumálið til rækilegrar umræðu og álykt- ana. II. Fundur presta, kennara o.s. frv. telur skógræktina, hvor sem er til^prýði eða nytja, mik- i ilvæga framtíðar- og pienn- ingarstarfsehii. Telur hann að leggja beri mjög aukna áherslu á skógræktarmálin í náinni framtíð, og hvetur alla til að leggja þeim lið. Fundurinn mælir með þeirri hugmynd, að gera skógrækt að skyldunámi í skólum landsins, enda leggi ríkið til plöntur til gróðursetningar með hóflegu verði. iii. Fundurinn lítur svo á, að mikil þörf sje á auknu starfi til eflingar kirkju- og kristni- lífi í landinu, og hvetur bæði kennimenn og leikmenn ein- dregið til stærri átaka á þeim vettvangi. IV. Fundurinn telur þá stefnu heillavænlegasta í guðfræði, sem öðru, að ganga ávallt og óttalaust því á hönd, ,,sem sann ara reynist“, samkvæmt rann- sókn, rökum og bestu þekk- ingu hvers tíma. Það er von fundarins og bæn, að jafnframt því, að hin íslenska þjóð gerir kröfu til að vera stjórnarfarslega frjáls, megi hún bera giftu til að rísa undir hinum vegsamlega vanda ^IMIMMM>lllllllllllllllllllinillllllllllUIIIIMIIIIIIIIMIIIIIIIMIIIIIMMIIIIIIIIimllllllinilllMiMIIIIIIIIIIIIIIIMIMIIIIIMIIIIIMIMIMMIIMMIIMIIIIIIIMMIIIIIIIIIIIHIIIIIIII(ll,'<>ll"|llll"l'"|ll",|l"IIM'l,l,'M|MIIIMMMMMIMIIIMIIIIMIIMMMMIMIIIMII £ I.. Mtrkó.r é Eftir Ed DoáS k.1MMMIMIMIIMMIIIIIMU'IMtMIMIMMIMMIIIMI IMIIIMMIIMMIIM IMIIMMMIIIIMfMIIIMMMIMIIIIMMIIIIIIIIIIMIIMIIIIMIIIIIMIIIMMMMMlT IHI= \ No; TWO -RGNCHMAN ) MEH..BUV ALONE. ONE eONE ALAKf — Hafði franski maðurinn þetta men á sjer? — Jamm! segir eskimóinn inni í húsinu. hann traustlega og fara með hann niður í kjallarabyrgið Og —Var franski maðurinn einn, Alak? — Nei, tveir. Hinn farinn. Jón Kr. Lárusson írá Amarbæli Fæddur 6. nóv. 1878. Dáinn 16. sept. 1949. KVEÐJA. Á hausti blikna blómin folde , blunda rótt í skauti moldar, hefjast aftur æskufögur, öðlast vorsins þroskak.jör. Þó er eins og alltaf rökkvi, orki á tungu hugans klökkv þegar bíður besta vinar búin skeið í hinstu för. Eftir dvelst í mætri minning mannsins göfgi birt við kym; g muninn. þræðjr gengins götr, greinir dýran æfíþátt. Hvort sem fórstu götu gie græðisslóðir urðir heiða. Barstu glæsti Breiðfirðingu byggðar þinnar merki hátí. Fast þú sóttir sæ og' íengi, sigldir hátt við auðnugengi, aldrej. brugðust nappahondrm hagleikstök við reiðun sjó. Hættum varð ei hugur sleg! .1, horfðir djaríur fram á ve m, þó að risi þrautabára þá var ekki slakað kló. Góðum málstað vörn þu ve vits og kapps að fullu neyt , ef að þreyttir orðasennu, áttir hvassast stálið máis. Aldrei var þín sæmd til sök sinni ei skift við annars tölv gjörði Ijett um leiðarvalið lundin traust og andi frjáis. Ráðaholiur, góður grönnum, greiddir veginrv þurfamönnun , Höfðingsmaður heim að sæl " hátt þitt drengskapsmerki be , Varma glæddi glaðvært sinni, gott var að binda við þig kynr." , hvar sem fórstu var sem væii vorið bjart í fylgd með þjer. Bestu þakkir þjer eg færi, þegið fyrir, vinur kæri, muninn þína minning geymi; meðan ekki þrjóta spor. Greinast leiðir, gamli vinur, góðar stundir, aldni hlynur. Manndómsgöfgi gefst að launun. guði signað eilíít vo.:. Sunnuvegi seglum þöndum siglir gnoð frá heimaströndurn_, yfir hafið ystu hafa, óskaleiðir fleyið ber. Er á stjórnvöl örugg höndin uppi hyllir vona iöndir.. Bjarta heima Breiðifjörður breiðir faðminn móti þjer. Markús Ilallgrímsson Útflutningur hrísgrjóna. í skýrslum bandaríska land- búnaðarráðuneytisins er sagt frá því, að síðari hluta ársins 1948 hafi hrísgrjónaútflutningur frá Bandaríkjunum numið 407 þús. smálestum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.