Morgunblaðið - 05.11.1949, Síða 6

Morgunblaðið - 05.11.1949, Síða 6
6 MORGIJTSBLAÐIÐ Laugardagur 5. nóv. 1949. Framleiðsla á skóm, hönskum Bygging leíkskói- og föskum úr innlendu efni an"a rædd'bæjar' sliorn Leðurgerðin og Þér fá ný húsakynni. LEÐURGERÐIN h.f. og Skó- væru fluttir inn skór erlendis steinþór GUÐMUNDSSON, bæjarfulltrúi kommúnista 'rjeðst harkalega á þá trjesmíða meistara, er tekið hafa að sjer verksmiðjan Þór h.f., hafa ný- lega flutt í ný, rúmgóð húsa- kynni í húsinu Laugavegi 105. Framleiðsla verksmiðjanna hef ir við húsnæðisbreytinguna færst í nýtt horf og buðu því forstöðumenn þeirra Fjárhags- ráði og Viðskiptanefnd, ásamt blaðamönnum að kynnast fram leiðsluháttunum, i gærdag. Um fyrirtækin Upphaf Leðurgerðarinnar h.f. er það, að árið 1937 var hafin framleiðsla á leðurhönskum af núverandi eigendum fyrirtæk- isins. Tveim árum síðar hófst framleiðsla á kventöskum og hefir starfssvið verksmiðjunn- ar verið bundið þessum fram- leiðslugreinum æ síðan. Skóverksmiðjan Þór h.f. komst á sömu hendur og Leð- urgerðin h.f. á síðastliðnu ári, en á þessu ári hefir fram- leiðsla þeirrar verksmiðju all- mikið breyttst, eftir að hún flutti í hin nýju húsakynni. — Framleiddir eru kvenskór og kvennstígvjel. Forstjóri beggja fyrirtækjanna er Arnbjörn Ósk arsson. Um framleiðsluvörurnar Megnið af efnivörunni í tösk urnar og hanskana er alinnlent efni, sútuð ísl. skinn. Fram- leiðsla þessara vörutegunda er mjög vandasöm og kostar margra ára þjálfun fyrir starfs fólkið að ná nauðsynlegu ör- yggi og leikni til þess að var- an verði nægilega vönduð. — Bera framleiðsluvörurnar þess órækan vott, að svo er, því að mikill mismunur er á því hve þær eru betri nú, en þegar fyrstu tilraunirnar voru gerð- ar. Margt af starfsfólkinu hef- ir unnið hjá verksmiðjunni frá byrjun. Stórum bætt húsa- kynni, betri áhöld og æfðari starfskraftar hafa komið fram- leiðslunni á Jsað stig, sem raun ber vitni um í dag. Skóverksmiðjan framleiðir eingöngu kvenskó og kvenstíg- vjel. Er það nýjung á sviði skó iðnaðar hjer á landi, að kven- stígvjelin eru gærufóðruð. Eru þau sjerstaklega hlý og henta vel ísl. veðurfari, enda mjög eftirsótt. Annað, sem til nýjunga má teljast, er það, að allir skór frá verksmiðjunni eru sólaðir með hrágúmmíi. sem þykir endinga betra öðrum sólum. Sólarnir eru innflutt vara, en yfirleðrin öll eru úr innlendum skinnum. Nokkuð er breytilegt eftir teg- undum skóanna eða stígvjel- anna, hve mikill hluti af verð- mæti efnivörunnar er innl. vara, en segja má að jafnaði sje 50—70% af efniverðmæt- inu innlent. Gja’devrissparnaður Af framangreindu sjest, að mikill gjaldeyrissparnaður er í því fólginn, að framleiðsla þessi fái nauðsynleg lífsskil- yrði. miðað við það að ella frá. Ef flutt væru inn erlend efni dð öllu leyti til skógerðar- innar, myndi það að vísu vera gjaldeyrissparnaður, en þó eng an veginn á borð við það, ef notuð eru innlend efni í jafn ríkum mæli og þessi verksmiðja hefir notað. Hinsvegar er sá annmarkinn, að innl. efni eru að jafnaði töluvert dýrari, en þó mun það vera hagkvæmara frá þjóðhagslegu sjónarmiði sjeð að nota innlendu efnin, svo langt sem þau hrökkva til. Með því að nota innlendu efn in og framkvæma sem mest af vinnunni í landinu sjálfu, fæst langtum meira skómagn handa landsmönnum fyrir sama gjald 1 eyrismagn. Framleiðslugeta verksmiðjanna Skóverksmiðjan getur fram- leitt á ári hverju 24000 pör af skófatnaði. miðað við núver- andi húsnæði og vjelakost. Leðurgerðin mun geta fram- leitt árlega um 14000 pör af hönskum og 8000 kventöskur. Þrátt fyrir það, að veruleg- ur hluti af efnisverðmætinu er innlend efnivara, dregur það mjög úr afköstum verksmiðj- anna, að þær hafa ekki fengið gjaldeyris- og innflutningsleyfi nema af mjög skornum skamti. Þessvegna er langt frá því að ofan nefndri afkastagetu sje náð, eins og nú standa sakir. Verksmiðjurnar hafa mörgu starfsfólki á að skipa og greiða mánaðarlega um 84.000 kr. í vinnulaun. Magnús Jónsson formaður Fjárhagsráðs, þakkaði boðið fyrir hönd gesta og gat þess m. a. að fulltrúum Fjárhags- ráðs og Viðskiptanefndar væri nauðsynlegt og skylt að kynn- ast innlendum iðnaði eftir föngum. Bamaræningjar BELGRAD, 2. nóv. — Júgó- slavarar hafa nú tjáð sig reiðu búna til að senda heim þau grísk börn, sem skæruliðar hafa rænt og flutt inn yfir júgóslavnesku landamærin. — Verða börnin send heim, strax og óskir berast um það frá for- eldrum þeirra. Oft áður hefir verið skýrt frá því í frjettum, að grískir skæru liðar hafi rænt miklum fjölda barna í Grikklandi ög haft þau á brott með sjer til hinna kommúnistisku nágrannaríkja. Loforð Júgóslava um heim- sendingu slíkra barna staðfestir þetta nú. — Reuter. Ráðherra verður fyrir skoti TEHERAN, 4. nóv.: — Skotið var á einn ráðherra þjóðhöfð- ingjans í Persíu í dag, þar sem hann var við trúarathöfn. Talíð var að ráðherrann mundi hljóta bana af skotinu. að byggja leikskóla þá fyrir bæinn, sem nú eru í smíðum. Þetta gerðist á bæjarstjórnar- fundi í fyrradag. Steinþór bar menn þessa hin um þyngstu sökum, sagði þá nota fúatimour til smíði hús- anna og kvað þau sennilega aldrei myndi verða boðleg sem leikskólar. Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri varð fyrir svörum og kvaðst myndi láta tafarlaust fara fram rannsókn á því, hvort menn þeir, sem tekið hefðu smíði leikskólanna að sjer, hefðu gerst sekir um þau svik, sem Steinþór bæri á þá. Um leikskólabyg'gingar þess- ar sagði borgarstjóri, að hann hefði heyrt Oánægjuraddir um staðsetningu þeirra og gerð, en er rætt hefði verið um þessi mál, bæði í leikvallanefnd, bygginganefnd og bæjarráði, hefði engum mótmælum verið hreyft. Hann tók það að lok- um fram, að húsin væru bygð með það fyrir augum, að hægt yrði að flytja þau, ef þess gerð ist þörf. Tjarnarbíó sýnir þýskar kvikmyndir TJARNARBÍÓ hefir tekist að fá til landsins nokkrar þekkt- ar þýskar kvikmyndir frá síð- ustu árum, og munu þær verða sýndar á næstunni. — Verða myndirnar allar með sænskum skýringartaxta. ■— Þýskar kvikmyndir voru afar vinsælar hjer fyrr á árum. en undanfarinn áratug hafa þær varla sjest hjer á landi. Örfáar þýskar myndir hafa þó komið hingað eftir stríðið og hlotið mikla aðsókn, svo sem „Græna lyftan“ og ,,Leðurblakan“. Fyrsta þýska myndin, sem Tjarnarbíó sýnir nú, er „Gullna borgin“. Myndin er tekin. í Agfalitum, en þeir þykja bera mjög af. — Á næstunni verð- ur sýnd önnur litmynd, gaman mynd „Bæjarstjórafrúin baðar sig“, og ennfremur fræg stór- mynd um ævi Róberts Kock. Ennfremur eru væntanlegar söngmyndir eins og „Nótt í Feneyjum“ og auk þess gaman myndir. Allar þessar myndir eru þeg- ar komnar til landsins. Effirllf ráðningu verkafólks LONDON, 3. nóv.: — Samkv. reglugerð, sem gefin hefir ver ið út í Bretlandi má ekki ráða verkamenn til starfa nema fyr- ir atbeina opinberrar vinnu- miðlunarskrifstofu. Nú hefir verið tilkynnt, að þessi reglu- gerð komi ekki til fram- kvæmda fyrr en um áramótin 1950—’51. Reglur þessar taka til karla á aldrinum 18 til 50 ára og kvenna á aldrinum 18 til 40 ára. — Reuter. Iðnrjeltindi íslenskra mjólknrfræðinga FLEST ÖLL stjettafjelög er teljast til fagfjelaga, hafa full iðn rjettindi að lögum, og geta því menn numið flest allar iðngrein ar hjerlendis. Mjólkurfræðinga- fjelag Islands hefir haft það eitt af sínu aðalmáli — að fá iðnrjett indi — eða með öðrum orðum, að Islendingar geti numið mjólk urfræði á íslenskum mjólkurbú- um. En hingað til hefir þessi við- lertni fjelags vors engan árangur borið. Og skal hjer geíin skýring á öllum rnálavöxtum. Fyrir fjórum árum stofnuðu mjólkurfræðingar til fjelagssam taka, og eins cg að framan grein ir var eitt aðalmál fjelagsins að fá iðnrjettindi. Fyrst var leitað á náðir Landssambands iðnaðar- manna og samþykktu þeir upp- kast vort viðvíkjandi námstíma o. fl. og var því mál þetta að íullu afgreitt frá landssamband- inu. Ur því sem komið var, vantaði aðeins undirskrift ráðherra, og voru því skjöl vor send frá Landssambandi iðnaðarmanna, upp í Iðnaðarmálaráðuneyti. — Manni virtist þó vera seinagang- ur á afgreiðslu þessa máls frá iðnaðarmálaráðuneytinu, því að 10 mánuði samfleytt heyrði mað- ur ekkert frá þeim. Við ákváð- um því tveir úr stjórn fjelags- ins að gera okkur ferð upp í iðn- aðarmálaráðuneyti og fá áheyrn ráðherra og skýringar á töf þessa máls. Við höfðum því tal af Emil Jónssyni, sem sagðist harma það mjög, hvað þetta mál hefði legið lengi óafgreitt hjá sjer, en ástæð- an væri sú, að sig hefði vantað skýringar á ýmsum atriðum og einhig þyrfti að breita svolítið orðalagi í einstökum tilfellum. Eftir að við hofðum rætt málið um stund, urðum við þó sam- mála að lokum, og fórum við af fundi ráðherra, fullvissir um að ráðherra undirskrifaði, er búið væri að breita orðalagi, eins og hann vildi. En það skal tekið fram að skrifstofustjóri Lands sambands iðnaðarmanna, Guð- mundur Þorláksson hafði tjáð oss, að hann hefði tekið það skýrt fram við ráðherra, að ef eitthvað væri ábótavant við uppkastið eða breytingar þyrfti að gera, gæti hann gert sjer að- vart (sambr. samvinnu þessara aðila um þetta mál). En það kom aldrei nein umkvörtun um,neitt slíkt frá ráðherra eða Iðnaðar- málaráðuneytinu. Nokkru seinna eftir samtal vort við Emil Jónsson, tilkynnti skrifstofustjóri Landssambands iðnaðarmanna okkur að ráðherra hefði óskað eftir umsögn Bún- aðarfjelags íslands um málið. — Þetta tiltæki ráðherra olli okkur miklum vonbrigðum, en háttvirt búnaðarþing átti þó eftir að gera það betur. ■— Hjá búnaðarþingi var ekki farið með þetta mál, sem önnur mál, er lágu fyrir þinginu, og aldrei heyrði jeg þess getið í þingtíðindum að mál þetta hefði, verið á dagskrá. Þó varð það úr að :nál betta ' 'ar : fgreitt Svo eftirminnilega e ^°ð mikl- um flýti, án þess þ ' ð gefa full- trúum kost á því að : nnast öll- um málavöxtum, og fer hjer á eftir tillaga og greinargerð Bún- aðarþings: Tillaga „Búnaðarþingið telur að ekki sje, að svo stöddu nauðsyn á að mæla með því að mjólkuriðnað- ur verði lögfestur sem sjerstök iðngrein, með því líka að eng- ar óskir í þá átt liggja fyrir af háifu landbúnaðarins nje þeirra er hafa með höndum sölu á vör- um þeim, er framleiddar eru af þessum iðnaði. Greingargerð Það mun almennt' viðurkennt að nauðsynlegt sje að nægilega margir faglærðir menn sjeu fyr- ir hendi í landinu til starfa við mjólkuriðnað. Mætti meðal ann ars ætla að það tryggði vöruvönd un og meiri vinnuafköst. En eins og sakir standa nú, virðist skort ur á þessu vinnuafli ekki vera svo yfirvofandi að hætta sje á að tjón hljótist af. Að því er snertir mjólkuriðn- aðinri virðist sáralítil aðsókn vera þar til náms. Munu menn yfirleitt frekar kjósa að vinna við þann iðnað sem verkamenn heldur en iðnnemar. Þó skal ekk ert um það fullyrt nema að að- stæður kunni að breytast i þao horf, að nauðsynlegt megi telj- ast að lögfesta framannefnda iðn sem sjerstaka iðngrein þótt enn sje það ekki viðblasandi.“ Þorsteinn Sigurðsson, Sveinn Jónsson, Hólmgeir Þorsteinsson, Guðbjartur Kristjánsson, Þorst. Þorsteinsson, Guðmundur Er- lendsson. — Þannig var þó rökfærslan frá háttvirtum fulltrúum Búnaðar- ;þings, og vil jeg nú benda á, hvað allt er út í bláinn með þessa greinargerð. Fyrst viðurkenna þeir að nauðsynlegt sje að nægi- lega margir fagmenn sjeu fyrir hendi, en þeim virðist liggja í ljettu rúmi, hvort það eru inn- lendir menn eða erlendir er vinni að þessum framleiðslustörfum. Skýrslur fjelags vors sýna að 3/4 hlutar allra fjelagsmanna eru útlendingar og hafa þeir raunverulega haft forgangsrjett til vinnu hjerlendis í þessu fagi, þar sem innlendum mönnum er meinað að nema þessa iðn í sínu eigin landi. Og svo hin yfirlýs- ingin að menn vilji heldur vinna í mjólkurbúum sem verkamenn, en sem nemar, hefir ekki við neitt að styðjast, þar sem mjólk- urbúin engan löglegan rjett hafa til að taka nemendur, og engin ákvæði er tryggi nemandanum full rjettindi við námið. Aftur á móti get jeg sannað hvenær sem er að ekki mun standa á því að fá nemendur í þessa iðn, hvenær sem þeir eiga kost á því. Búnaðarþingsfulltrúar benda einnig á, að enginn skortur sje á vinnuafli. — Vitaskuld til fag- vinnu eiga þeir við. En á maður að taka þetta þannig að útiloka eigi innlenda menn frá þessu íagi, jafnframt eigi að flytja inn útlendinga í stórum stíl eins og hingað til hefir tíðkast, sem þess um aðilum finnist mikið hag- kvæmara og þetta eigi svo að fóðra þannig, að engir íslenskir mjólkurfræðingar sjeu til. Þetta eru því rökstuddar stað- reyndir, sem ekki þýðir að mæla í mót og það er einnig staðreynd, að eftir nokkur ár verður eng- inn íslenskur mjólkurfræðingur starfandi hjer á landi í þessari iðn, ef ekki fást iðnrjettindi, og þá kemur að því, að aðeins út- lendingar verða starfandi sem mjólkurfræðingar í íslenskum mjólkurbúum. Þetta er því órjettlát afgreiðsla, sem þetta þarfamál hefir hiotið og við getum ekki unað við það, að innlendir menn sjeu útilokað- ir frá því að nema þessa iðn Framh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.