Morgunblaðið - 18.12.1949, Side 9

Morgunblaðið - 18.12.1949, Side 9
Sunnudagur 18. des. 1949. MORGUNBLAÐIÐ 9 R E Y K Útgerðin og stjórnmálin SÍÐASTLIÐINN fimmtudags- xnorgun var lokið aðalfundi Landssambands ísl. útvegs- manna. Hafði fundurinn þá kosið nefnd manna, til þess að annast samninga við ríkis- stjórnina, fyrir hönd útvegs- manna, um það, hvernig haga skuli aðstoð ríkisvaldsins til útgerðarinnar, svo bátaflotinn kæmist á veiðar eftir ára- mótin. Blaðið hefur á þessu stigi ekki frjett, hvað líði þessum sammngum. En allir þjóðhollir menn eru að sjálfsögðu á einu máli um, að óska þess, að sam- komulag takist í tæka tíð, með þessum aðalbjargræðisvegi þjóðarinnar annarsvegar, og stjórn og þingi hinsvegar. Hin fjarstýrða flokksdeild kommúnista hefur á hinn bóg- ínn látið í ljósi ósk um það, að samningum þessum yrði hætt og bátaútgerðin leggist með því niður, um það bil, sem ver- tíð ætti að byrja. Eru þær óskir kommúnista eðlilegar, þegar tekið er tillit til hvaða stefnu flokksdeild þessi hefur, hina sömu og aðrar deildir komm- únistaflokksins vestan Járn- tjalds eru látnar hafa. Samkvæmt fyrir- mælum að austan KOMMÚNISTAR, íslenskir, sem aðrir, eru gerðir út af miðstjórn sinni, til þess. eftir fremstu getu, að koma í veg fyrir, að atvinnuvegir þjóð- anna komist á heilbrigðan grundvöll. — Deildarstjórnir flokksins, bæði hjer og ann- arsstaðar, vilja að sjálfsögðu ekki viðurkenna þessa stefnu þeirra eða hlutverk í orði. En allir starfandi menn flokks- deildanna viðurkenna þetta þeim mun betur í verki. Um leið og núverandi ríkis- stjórn var í þann veginn að hefja samninga um, að aðal- atvinnuvegur landsmanna fengi skilyrði til þess að halda áfraín, gaf flokksdeild komm- únistaflokksins til kynna, að hún óskaði eftir aðstoð hinna þingflokkanna, til þess að stöðva framleiðsluna með því að taka fram fyrir hendur stjórnarinnar, og fella hana tafarlaust í þinginu. Ekki er kunnugt að þessari málaleitun hinna Moskvasinrí- uðu hafi verið svarað enn. Samtímis því, sem kommún- istar reyna að koma í veg fyrir lausn atvinnumálanna, með því að bera eld að flokkadeil- um og sundrungu í landinu, blasa úrlausnarefnin við á haf- inu fyrir utan strendur lands- ins. Úrlausnarefnin, sem ekki verða leyst fullnægjandi nema þjóðin beri gæfu til þess að standa saman um þau átök. ^Fjársjóðir hafsins EINS og allir vita, gefur eng- inn ríytjafiskur fljótteknari gróða en síldin þegar til hennar næst. í því efni hafa gerst þýð- íngarmeiri hlutir á þessu hausti en e.t.v. nokkru sinni áður í J A Ví sögu fiskveiða okkar,. Ekki þannig að skilja, sem kunnugt er, að hjer hafi orðið land- burður af afla. Heldur það, að með bergmálsdýptar-mælum fiskiskipanna hafa menn kom- ist að raun um, sama sem sjeð það með eigin augum, að hjer úti fyrir ströndum eru þau ó- grynni af síld, sem engan hef- ur grunað áður. Hægt er að fylgjast með þvi frá degi til dags, hvernig þess- ir ónumdu fjársjóðir flytja sig til í sjónum, og eru mismun- andi djúpt undir sjávarfletin- um. Skipakost eiga landsmenn til að færa þetta „silfur hafs- ins“ frá miðunum til lands. Og hjer bíða öflugar verksmiðjur, til þess að vinna úr aflanum er hann kemur. En fiskimenn- irnir hafa enn ekki í höndum stórvirk veiðarfæri, til þess að handsama þessa fjársjóði. Vera má, að ekki þurfi nema breyting á þeim veiðarfærum, sem til eru, til þess að þrautin sje leyst, fenginn sje sá eini hlekkur, sem nú er ekki fyrir hendi, til þess að hjer verði hægt að hefja stórfeldari síld- veiðar, en hjer hafa áður þekkst. Menn minnist þess, að hjer er öðru máli að gegna, en með norðlensku síldina, sem er lang förul og fer í felur. Hjer er um að ræða staðbundin síldar- stofn, serp heldur sig á sömu slóðum mestan hluta ársins. Það er engin furða, þó komm únistar nagi sig í handarbökin yfir því, að þeim skuli ekki hafa tekist, með rógi sínum og skemmdarstarfsemi, að k'oma í veg fyrir, að hjer við Flóann yrði komið upp tækjum til þess að vinna úr síldarafla 1 stór- um stíl. Stækkun landsins ÞEGAR þjóðirnar víkka yfir- ráðasvæði sín, gerast þeir at- burðir venjulega með ofríki og gauragangi. En smátt hefur verið til þess hugsað, að neitt slíkt gæti átt sjer stað, í sögu okkar fámennu eyþjóðar. — Þangað til brotið var upp á því máli, að við ættum að leitast við, að fá yfirráðarjett okkar viðurkenndan yfir landgrunn- inu. Þann 23. mars 1948 voru samþykkt lög á Alþingi, um vísindalega verndun land- grunnsins umhverfis Island. Þar er m.a. kveðið svo á að sjávarútvegsmálaráðuneytið skuli ákveða takmörk verndar svæða við strendur landsins, og ákveða þær reglur, sem nauðsynlegar eru, til verndar fiskimiðunum. Engum hefur blandast hug- ur um, að það sje flókið og erfitt alþjóðarjettarmál, að fá þessi yfirráð okkar viður- kennd. En stórmerkum áfanga er náð, er fulltrúum okkar á þingi Sameinuðu þjóðanna tókst, að koma því fram, að sjer fræðingariefnd, sem rannsakar hin, ýrg.su svið þjóðrjettarins, skjuli .taka landhelgismálin til meðferðar á næstunhi, svo úr því verði skorið, af þessum að- K U R B ila hver er rjettur okkar til yfirráða yfir fiskimiðum land- grunnsins. Takist með lægni að koma þessu máli vel fyrir, má segja, að birti yfir framtíðarvegum þjóðarinnar. Kommúnistum er órótt ÖLL framkoma hinna íslensku kommúnistaforsprakka verður vesaldarlegri með hverri vik- unni, sem liður. Þeim er auð- sjáanlega orðið alvarlega ó- rótt, sem eðlilegt er. Vitneskj- an um stefnu þeirra og starf, verður öllum almenningi ljós- ari með hverjum degi. Þess- vegna bera þeir fram hinar í- trekuðu bænir um samvinnu við aðra flokka. Af þessu staf- ar jafnframt taugaæsingur þeirra, — hin æðisgengni of- stopi í öllum málflutningi og hin gersamlega máttlausu gíf- uryrði, sem þeir viðhafa í blaða skrifum sínum. Sjaldan hafa Þjóðviljamenn þó opinberað aumingjaskap sinn greinilegar en á föstudag- inn var, þar sem þeir fjarg- viðrast yfir því í blaði sínu að jeg, sem þessar línur rita skuii leyfa mjer að skreppa til út- landa við og við, og það án þess að spyrja hina lágtvirtu Moskvaleppa leyfis. Hræðslari skín út úr þessum mönnum eins og óknytta strákum, sem vita skömmina upp á sig, og eiga von á flengingum. Jafnskjótt og einhver and- stæðingur hinna íslensku kommúnista ferðast austur um haf, og nálgast „Járntjaldið“ verða Þjóðviljamennirnir skelk aðir, óttast að nú kunni eitt- hvað að komast upp, sem al- menningur hjer á landi með engu móti má fá að vita. Það eru ekki allir eins þag- mælskir og Einar Olgeirsson, um ástandið fyrir austan „tjaldið“. „Vegurinn til sigurs“ SÍÐASTA áhyggjuefni Þjóð- viljamanna er, að hjer í blaðinu skuli hafa verið sagt frá einni af þeim kennslubókum, sem notaðar hafa verið í ofbeldis- skólunum austur í Mos)cva. Bókin heitir „Vegurinn til sig- urs“ og er eftir kommúnista- foringjann Ture Lehén. Sve vendilega hafa kommún- istar vakað yfir því, á undan-t förnum árum, að kennslubók þessi kæmist ekki út fyrir vje- bönd flokks þeirra, að talið er, að ein tvö eintök sjeu í hönd- um utanflokksmanna. Annað þeirra er í eigu Herberts Ting- sten ritstjóra frjálslynda blaðs- ins „Dagens Nyheter“ í Stokk- hólmi. Hann er einn einbeitt- asti forystumaður lýðræðisins meðal Svía, svipar á sinn hatt til hins látna ritskörungs Torg- ny Segerstedt, er lengi var lit- stjóri „Göteborgs Handels og Sjöfartstidning“ og álíka mikið hataður meðal kommúnista, eins og Segerstedt v^r hataður af einræðissinnum þeim, sem mest kvað að, meðan hans naut við. R JE F Þegar minnst er á efni þess- arar kennslubókar hjer í blað- inu, hafa Þjóðviljamenn ekki annað ráð, en að fullyrða, að kennslubókin sje ekki til(!) Og höfundur hennar ekki held-' ur(!) Til svo bjálfalegrar rit- mennsku sem Þjóðviljans í þessu tilfelli, grípa valdamenn í einræðislöndum, þar sem mál- fielsi er afnumið, og yfirvöld landsins geta logið öllu því að almenningi, sem þeim dettur í hug, og hentugt er fyrir of- beldisflokk, sem öllu ræður. En að taka upp sama hátt í landi, sem frjáls hugsun og frjetta- flutningur er,' ber vott um að menn sem til þess grípa, viti ekki lengur sitt rjúkandi ráð. Þeir eru hættir að reyna að bera hönd fyrir höfuð sjer, hættir að verja flokk sinn, stefnu sína. Eina ráðið, sem þeir eygja, er að þræta eins og afbrotamenn, sem staðnir eru að verki, og eiga sjer engrar undankomu auðið. Fyrir síðustu bæjarstjórnar- kosningar voru kommúnistar í vandræðum með ódeilurit Köstl ers. Gripu þeir til þess nokkuð einfalda, en miður skynsamlega ráðs, að segja, að hinn heims- frægL rithöfundur Ai'thur Köstler væri ekki til og hefði því aldrei sagt það, sem eftir honum er haft (!!) Hvað sem líður sigurvonum kommúnista á meginlandi Evrópu, þar sem þeir hafa nú 2—3 miljónir manna undir vopnum, þá ér eitt víst, að ritháttur Þjóðvilj- ans og háttalag alt leiðir eng- an flokk í lýðræðislandi til sig- urs. » Ðómur Times ÞANN 8. des. er komist svo að orði í forystugrein í breska stórblaðinu ,,The Times“. Enginn atburður hefir gerst i Austur Evrópu eftir styrjaldar- lokin, sem sýnt hefir eins mikla lítilsvirðingu fyrir dómgreind manna, eins og málareksturinn gegn hinum fyrrv. varaforsæt- isráðherra Kostov í Búlgaríu. í hinu langa ákæruskjali gegn Kostov og fjelögum hans, er ekki gerð hin minsta tilraun til þess að færa sönnur á kærip-nar á hendur honum. Hjer er um feimnislaust of- beldisverk að ræða, sem sprott- ið er af því einu, að Moskvar stjórnin vill sýna heiminum, að enginn kommúnisti, í hvaða stöðu sem hann er, getur ver- ið óhultur fyrir Moskvavald- inu, í sama augnabliki og hann hikar við, að framkvæma þær fyirskipanir, sem fyrir hann efu lagðar frá valdamönnun- um í Kreml. Það sem Moskvamenn fundu Kostov til foráttu var, að hann í vor sem leið, neitaði að gefa rússneskum verslunarerindrek- um einhverjar upplýsingar um vörur, er Rússar heimtuðu að fá keyptar. Þ.e.a.s. Kostov vildi ekki, að hinar búlgörsku vör- ur yrðu seldar Moskvastjórn- inni fyrir eins lágt verð, og Valdamennirnir í Kreml heimt- uðu, segir blaðið. Engin furða þó Einar Ol- geirsson & Co. leggi áherslu á, að íslensku utanríkisvérslun- laugardagur !7. desember inni verði aðallega fceint aust- ur-þangað. , íslenska kommún- istadeildin einhuga ÞEGAR það er orðið lýðum Ijóst, að hin fullkomna undir- gefni er ófrávíkjanleg krafa Moskvavaldsins, sem ailir kommúnistar og áhangendur þeirra verða að hlíða, þá -er ekki að furða, þó ókyrð komi upp meðal flokksdeilda komrn- únista í álfunni. Að allmarg- ir, sem hafa verið sannfærðir fylgismenn kommúnistaflokk;;- ins, fari að sköða huga sinn nO nýju og komist að þeirri nið- urstöðu, að rjettast sje, að yfir- gefa sem fyrst þessa hjörð, Vil;i*i lausra og kúgaðra föðurlands- leysingja. Ekki síst þegar hjer við bæt- ist, að foringjar kommúnista 4 Vestur Evrópulöndum hafa hver af öðrum lýst því yfif, að þeir sjeu reiðubúnir til þesn, „hvenær, sem kallið kemur", að berjast gegn frelsi þjóða sinna. Nýlega birtist t. d. í norsk - um rjettarskjölum . yfirlýsing frá einum kommúnistaforingj- anum þar, Strand-Johansen, þar sem hann segir berum or ð- um, „að flokksmennirnir berj- ist fyrir „sigri sósíalismans, hvað sem það kosti. Allt annatf sje fyrir þeim aukaatriði, einn- ig frelsi þjóðarinnar“. Hin norska flokksdeL<#‘ kommúnista er nú sem kunnugt. er að molna niður, vegna ósaro- lyndis og mismikillaf auð- sveipni flokksmannanna gagn- vart Moskvavaldinu. Sama sag- an gerist í öðrum löndum Norð- urálfu. Nema hjer. Hjer ríkir eining andans í Kommúnista- flokknum. Einn hirðir, ein sal, sál auðsveipninnar gagnvart ofbeldisstjórninni. Hin konimúnistisknv „vísindi“ Naumast er hægt að hugsa sjer stjórnmálaflokk, sem er ver á vegi staddur og aum- legar á sig kominn en komm- únistar. Þeim kemur ekki tiK hugar að reyna að bera í bæti- fláka fyrir flokk sinn, stefnm hans og starfsemi eins og hún* er i eðli sínu eða þær fyrir- skipanir, sem flokkur þeirra; hlýðir og fer eftir. Eina vonin til þess, að nokk- ur maður með íslenskt blóð í æðum geti fylgt flokki þessum er, að flokkurinn leyni tilgangi sínum, að hann bregði hul- iðshjálmi yfir vilja sinn og stefnu og þykist vera allur ann- ar en. hann er. Með öðrum orðum. Fáfræði þess fimta hluta þjóðarinnar, sem greitt hefur flokki þessum eða flokksdeild atkvæði, er eina hálmstrá eða lífsbjargar- von flokksins. Og þegar nýjar URplýsingar koma í dagsins ljós, um störf og stefnu komm>- únista, þá er eina ráð þeirra. að þræta, eins og fyr segir, og byggja síðan „vonir sínar á, að forheimskun flokksmannanna reynist svo haldgóð, að það takist að forðast það, að flokk- urinn hrynji í rúst, eins og Framhald á bls.12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.