Morgunblaðið - 08.01.1950, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.01.1950, Blaðsíða 7
Sunnudagur 8. janúar 1950. MORGUNBLAÐIÐ 7 KAUPTAXTI Landssambands ísl. útvegsmanna um kaup og kjör yflrmanna á vjelskipaflotanum Með hliðsjón af kauptaxta þeim, sem Far- manna- og fiskimannasamband íslands auglýsti hinn 31. desember 1949 — vill Landssamband íslenskra útvegsmanna lýsa yfir því, að f jelögum sambandsins er óheimilt að skrá á skip sín eítir þeim kauptaxta, þar sem Landssambandið hef- ur mótmælt honum, og jafnframt ákveðið að auglýsa eftirfarandi taxta um kaup og kjör fyrir meðlimi F. F. S. í. sem vinna á skipum fje- lagsmanna L. í. Ú.: 1. gr. Kauptaxti þessi gildir fyrir öll önnur skip en botnvöruskip innan F. í. B., sem gerð eru út með herpinót, hringnót, línu, botnvörpu, Ragnót, reknetum, svo og flutningum innan- lands á fiskiskipum, og með ísaðan fisk til út- landa á fiskiskipum og tekur til allra slíkra skipa, sem’útgerðarmenn er að kauptaxta þess- um standa, eiga, leigja eða hafa að öðru leyti útgerðarstjórn á. Þó skal kauptaxti þessi ekki upphefja þá samninga, er í gildi kunna að vera milli nefndra aðila, eða einstakra sambands- fjelaga þeirra. , 2. gr. Á skipum allt að 70 rúmlestir, sem stunda síldveiði með herpinót, skal greiða þannig: a) Skipstjóri skal hafa 7 % aL*brúttóafla skips- ins, enda hvíli sú kvöð á honum, að hann sje veiðistjóri, auk þess greiðist honum kr. 100,00 — eitt hundrað krónur — pr. mán. meðan skipið stundar veiðar. b) Stýrimaður skal hafa 4% af brúttóafla skipsins, auk þess kr. 100,00 — eitt hundr- að krónur — pr. mán. meðan skipið stund- ar veiði. c) Skipstjóri og stýrimaður greiði sjálfir fæði sitt. 3. gr. Á skipum 70 rúmlestir og yfir, sem stunda síldveiðar með herpinót skal greiða þannig: a) Skipstjóri skal hafa 6*4% af brúttóafla og kr. 200,00 — tvö hundruð krónur — pr. mánuð auk þess frítt fæði. b) Stýrimaður skal hafa 3 Vz % af brúttóafla og kr. 120,00 — eitt hundrað og tuttugu krónur — pr. mán., auk þess frítt fæði. c) 1. vjelstjóri skal hafa 4,5% af brúttóafla og 2. vjelstjóri 3,3% af brúttóafla, enda greiði þeir sjálfir fæði sitt. 4. gr. Á skipum, sem stunda síldveiðar með hringnót og eru allt að 40 rúmlestir greiðist þannig: a) Skipstjóri skal hafa 9% af brúttóafla skips- ins, auk þess kr. 100,00 ■— eitt hundrað krónur — pr. mán. b) Stýrimaður skal hafa 5% af brúttóafla skipsins, auk þess kr. Ku OO — eitt hundr- að krónur — pr. mán. c) Skipstjóri cg stýrimaður greiði sjálfir fæði sitt. 5. gr. Á skipum, er stunda síldveiðar með hringnót og eru að st.ærð frá 40—75 rúmlestir greiðist þannig: a) Skipstjóri skal hafa 8% af brúttóafla skipsins, auk þess kr. 100,00 — eitt hundrað krónur — pr. mán. b) Stýrimaður skal hafa IVa háseta hlut auk þess kr. 100,00 — eitt hundrað krónur — pr. mán. c) Skipstjóri og stýrimaður greiði sjálfir fæði sitt. 6. gr. Á skipum upp að 70 smálestum, er stunda reknetaveiðar, skal greitt þannig: a) Skipstjóri hafi 2 hásetahluti og auk þess kr. 100,00 — eitt hundrað krónur — pr. mán. b) Stýrimaður hafi 1 Vá hásetahlut og auk þess kr. 100,00 — eitt hundrað krónur — pr. mán. c) Á þeim skipum, er hafa það stóra vjel, að á þeim þurí'a að vera vjelstjórar með meira vjelstjórapiófi, þá skal þeim greitt þannig: 1. vjelstjóri hafi 1*4 hásetahlut og auk þess kr. 50,00 — fimmtíu krónur — pr. mán. 2. vjelstjóri hafi IV4 hástahlut og auk þess kr. 50,00 — fimmtíu krónur — pr. mán. d) Skipstjóri, stýrimaður og vjelstjórar greiða sjálfir fæði sitt. 7. gr. Á- skipum er stunda línuveiðar, skal greiða þannig: a) Skipstjóri hafi 2 hásetahluti og auk þess kr. 100,00 — eitt hundrað krónur — pr. mán. b) Stýrimaður hafi 1V2 hásetahlut, ef um úti- legubót er að ræða, en á þeim landróðra- bátum, sem lögum samkvæmt eru skyldir að hafa stýrimann, hafi hann 1V4 háseta- hlut, auk þess kr. 100,00 — ertt hundrað krónur —- pr. mán. c) Á þeim skipum, er hafa það stóra vjel, að á þeim þurfi að vera vjelstjói'i með meira vjelstjóraprófinu, þá skal þeim greitt þannig: 1. vjelstjóri hafi lt4 hásetahlut og auk þess kr. 50,00 — fimmtíu krónur — pr. mán. 2. vjelstjóri hafi IV4 hásetahlut og auk þess kr. 50.00 — fimmtíu krónur — pr. mán. d) Skipstjóri, stýrimaður og vjelstjórar greiða sjálfir fæði sitt. 8. gr. Á skipum er stunda botnvörpu- eða dragnóta- veiðar skal greitt þannig: a) Skipstjóri hafi 2 hásetahluti og auk þess kr. 100,00 — eitt hundrað krónur — pr. mán. b) Stýrimaður hafi 1 V2 hásetahlut og auk þess kr. 100,00 — eitt hundrað krunur — pr. mán. c) Á þeim skipum, er hafa það stóra vjel, að á þeim þurfa að vera vjelstjórar með meira vjelstjóraprófinu, þá skal þeim greitt þannig: 1. vjelstjóri hafi 1 V2 hósetahlut og auk þess kr. 50,00 — fimmtíu krónur — pr. mán. 2. vjelstjóri hafi lVt hásetahlut og auk þess kr. 50,00 — fimmtíu krónur — pr. mán. d) Skipstjóri, stýrimaður og vjelstjórar greiða sjálfir fæði sitt. 9. gr, Á skipum er stunda innanlandsflutninga skal greiða þannig: a) Skipstjóri hafi kr. 1130.00 — ellefu hundr- uð og þrjátíu krónur — pr. mán. auk þess frítt fæði. b) Stýrimaðui hafi kr. 900,00 — níu hundruð krónur — pr. mán auk þess frítt fæði. Ef 2. stýrimaður er á slíkum skipum, skal honum greitt kr. 725 00 — sjö hundruð tuttugu og fimm krónur — pr. mán. c) 1. vjelstjóri hafi kr. 1106,00 — ellefu hundr- uð og sex krónur — pr. mán. og 2. vjel- stjóri kr. 1.94,00 og fjórar krónur fæði. átta hundruö níutiu pr. mán. svo og frítt b) 10. gr. Á skipum er sigla til útlanda með ísvarinn fisk skal greitt þannig: a) Skipstjóri skal hafa sama mánaðarkaup og á innanlancsflutningum og auk þess 0,5% af brúttósölu. Stýrimaður skal hafa sama mánaðarkaup og á innanlandsflutningum og auk þess 0,3125% af brúttósölu. Ef 2. stýrimaður er á slíkum skipum skal hann hafa sama mán- aðarkaup og á innanlandsflutningum óg auk þess 0,25% af brúttósölu. 1. vjelstjóri skal hafa sama mánaðarkaup og á innardandsflutningum og auk þess 0,375% af brúttósölu. 2 vjelstjóri skal hafa sama mánaðarkaup og á innanlandsflutn- ingum og auk þess 0,25% af brúttósölu. Skipstjórar, stýrimenn og vjelstjórar skulu hafa frítt fæði. c) d) 0 0 I^> «$> <$> <$> ■<$> <$» $> <$> 11. gr. Útgerðarmaður tryggir skipstjóra stýrimanni og vjelstjóra mánaðarlega greiðslu á veiðitíma- bilinu uppí hundraðshluta afla hans frá lög- skráningardegi til afskráningardags, með kr. 578,00 á mánuði til hvers, enda greiði þeir sjálf- ir fæði sitt. Fari einhver þessara manna úr skiprúmi á veiðtímabiiinu án lögmætra orsaka að dómi skip- stjóra fellur trygging hans niður. 12. gr. Meðlimir Landssambands ísl. útvegsmanna skuldbinda sig til þess, að láta meðbmi stjettar- fjelags innan Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands ganga- fyrir atvinnu. enda sjeu þeir fullgildir menn til þess starfa. 13. gr. Skylt skal útgerðarmanni að gjöra skriflegan samning við aðila kauptaxta þessa, ef þeir óska eftir slikum samningi, enda sje þar ekki vikið frá kauptaxta þessum. 14. gr. Þegar skipstjórar, stýrimenn eða vjelstjórar vinna við skip milli veiðitímabils, skal þeim greitt kr. 3,68 á klst., þegar þeir vinna við skipið. 15. gr. Þegar fiskiskip, sem um ræðir í kauptaxta þessum, liggja með farm í höfn skal skipstjóri eða stýrimaður ásamt öðrum hvorum \jelstjór- anum vera um borð í skipinu. 16. gr. Þar sem talað er 4*11 mánaðarkaup í kaup- taxta þessum er átt við grunnkaup og skal verð- lagsuppbót samkvæmt lögbundinni verðvísitölu greiðast þar á. 17. gr. Með kauptaxta þessum er úr gildi fallin á- hættuþóknun samkvæmt eldri samningi í inn- an og utanlands siglingum. 18. gr. Kauptaxti þessi gildir frá 1. jan. 1950 þar til öðruvísi verður ákveðið. Reykjavik, 7. janúar 1950. F. h. Landssambands ísl. útvegsmanna .T. V. Hafstein. <$> «$> «$> <§> ^>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.