Morgunblaðið - 19.01.1950, Side 5

Morgunblaðið - 19.01.1950, Side 5
Fimmtudagur 19. jan. 1950 MORGUNBLAÐÍÐ 5 Ræða Sigurðar Sigurðssonar Frh. af bls 2. Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins Eftir nokkra daga mun koma Öt stefnuskrá Sjálfstæðisflokks- ins fyrir næsta kjörtímabil. Er J>ar tekið fram, að flokkurinn muni beita sjer fyrir eftirfar- sndi framkvæmdum á sviði heilbrigðismála hjer í bæn- um: 1. Að bæjarsjúkrahúsinu verði komið upp svo fljótt, seni ^uðið er, og öllum framkvæmd Um hraðað. Þangað til bæjarsjúkrahúsið tekur til starfa vill flokkurinn beita sjer fyrir því, a) að aukið verði við sjúkra- Fúm Landakotsspítala, eftir þvi jEem húsnæði þar leyfir, b) að athugað verði, hvort heppilegt þyki að byggja við Hvítabandið, c) að efsta hæð Landspítalans yerði tekin til afnota fyrir sjúkl ínga, d) að ráðist verði í aðrar þær ÍBðgerðir, sem hentugar þykja, til þess að bæta úr sjúkrarúma þkortinum í bænum. 2. Að nýtt Farsóttahús verði foyggt, annað hvort í sambandi yið sóttvarnahús ríkisins, eða þem sjerstök stofnun. 3. Að byggingu heilsuvei'nd- BrstÖðvarinnar, sem byrjað er 'Ó, verði hraðað svo sem unnt er. 4. Að hraðað verði byggingu hjúkrunarkvennaskóla ríkisns. Allir þessir liðir skýra sig Bjálfir, þó skal það tekið fram. áð atriði þau, sem merkt eru með bókstöfum undir fyrsta lið eru aðgerðir, sem fljótlegt væri að framkvæma og bættu því úr brýnustu þörf meðan á bygg- íngu bæjarsjúkrahússins stæði. Hjúkrunarkvennaskóli Bygging hjúkrunarkvenna- bkóla sem nefnd er undir 4. íið, er bráðnauðsynleg. Sem ctendur búa hjúkrunarnemar Landsspítalans á efstu hæð jsjúkrahússins, sem auðvelt .væri að taka til afnota fyrir þjúklinga, ef húsnæði fengist fyrir hjúkrunarnema og kensJu þeirra. Sjálfstæðismenn í bæjar gtjórn líta svo á, að hjúkrunar- kvennaskóli ríkiisns skuli reist !Ur af því en hinsvegar verði bærinn að byggja sjerstaklega fyrir þá hjúkrunarnema, sem koma til með að starfa við hið nýja bæjarsjúkrahús og njóta .væntanlega verklegrar kennslu þar. En þar sem skortur hjúkr- .tmarkvenna er nú tilfinnanleg- .Ur og hjúkrunarnemar Lands- þpítalans búa í húsnæði, sem annars mætti nota fyrir sjúkl- Snga, er ekki nema eðlilegt og þjálfsagt að bærinn greiði fyiir því að lausn fáist sem fyrst á húsnæðisvandræðum Hjúkrun- srkvennaskóla ríkisins. f iAdeilur og stóryrði Jeg get eigi skilist svo við þetta málefni, að eigi sje með fáum orðum getið nokkurra timmæla andstæðinga blaða Bjálfstæðisflokksins undanfar- &ndi daga um sjúkrahúsmálefni Ibæjarins. Flest eru þau full af adeilum og stóryrðum utan um þann sannleikskjarna, sem allir flokkar hafa viðurkennt, sjúkra rúmaskortinn hjer í bænum, sem reynt hefur verið að ráða bót á og reynt er nú áfram. Það er t. d. fullyrt, að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi lofað bæj arsjúkrahúsi fyrir síðustu kosn ingar. Slíkt er tilhæfulaust. — Tillagan um það var flutt á bæjarstjórnarfundi þ. 7. ok.t. 1948. Þá er það staðhæft, að sjúkrahúsmálefnin sjeu nú á sama stigi og 1946. Það er stað- reynd, að unnið hefur verið að undirbúningi byggingar bæjar- sjúkrahússins nú á annað ár og fjárhagsgrundvöllurinn fenginn til framkvæmdanna. Þá hefur því verið haldið fram, að sjúkra húsinu sje nú lofað fyrir 1952. Einnig þetta er rangt. Því hef- ur verið lofað, að framkvæmd- um öllum verði hraðað, svo sem auðið er. Sem dæmi upp á það eymdarástand, er hjer ríki í þessum efnum, þá er þess get- ið, að börnum með mismunandi sjúkdóma sje hrúgað saman í smáherbergi sjúkrahúsanna. — Þrátt fyrir það, þó jeg haf, unnið lengi á sjúkrahúsum og meðal annars barnasjúkrahús- um, þekki jeg ekki þess dæmi að börn sjeu greind eingöngu eftir sjúkdómum á stofur sjúkrahúsanna, nema um far- sóttir sje að ræða eða aðra smitandi sjúkdóma. Þá hefur verið langt gengið í því að bera sjúkrahúsakost ann arra bæjarfjelaga saman við Reykjavík, án þess að nokkuð tillit væri tekið til þeirrar sjc-r stöku aðstæðna, sem Reykjavík hefur, þar sem bæði ríkis og einkasjúkrahús eru fyrir hendi. Hefur þessi samanburður geng- ið svo langt, að flestir, sem andstæðingablöðin lesa, mega ætla, að hinar nýju sjúkrahúss- byggingar .á Akureyri, Akranesi og í Keflavík sjeu þegar teknar til starfa. Svo er þó eigi, því miður, og er sums staðar all- langt í land. Sem dæmi upp á sanngirni þessa samanburðaL skal meðal annars nefnt, að því hefur verið haldið fram, að til þess að standa jafnfætis Akur- eyringum árið 1872, ætti Reykjavíkurbær að eiga 560 rúma sjúkrahús. Húsið, sem Akureyrarbæ var gefið 1872, rúmaði '8 sjúklinga, en þá var íbúatalan þar milli 300 og 400 og eigi önnur sjúkrahús til í Norðlendingafjórðungi. Aft.ur á móti hefur því ekki verið hald ið fram, að bæjarsjúkrahús vantaði í Hafnarfirði og Stykk- hólmi, en á báðum þessuin stöðum eru rekin all stór einka sjúkrahús. Ef farið væri eftir kröfum blaðanna í þessu efni og bæjarsjúkrahús byggt, sem samsvaraði því, sem best er hjá öðrum bæjarfjelögum hjerlend- is, þar sem ekki eru rekin önn ur sjúkrahús, þá er hætt við að gagnrýninni yrði beint að óhæfilegri fjármálastjórn „í- haldsins11 í Keykjavík, þar sem ekkert tillit væri tekið til þeirra sjúkrahúsa, sem fyrir væru í bænum, en lagður þannig þung ur skattur á bæjarbúa að ó þörfu. Slík gagnrýni sem þessi er neikvæð og naumast svara verð. Tveir bændur slasast er dráttarvjel hvoliir Á ÞRIÐJUDAGSMORGUN vildi það slys til austur í Vopnafirði að dráttarvjel hvolfdi, er á voru þrír bændur. Tveir þeirra stór- slösuðust og voru þeir fluttir til Akureyrar í sjúkrahús. Bændur þessir eru Páll Metu*’ salemsson að Refstað, Sæmund ur Grímsson, Egilsstöðum og Björn Metusalemsson að Svína brekku. Þeir eru bræður Björn og Páll og ók Páll dráttarvjel- inni, sem er af Ferguson-gerð. Þeir Sæmundur og Björn sátu á vjelinni fyrir aftan Pál. Rann stjórnlaus út af veginum. Bændurnir voru á leið til kauptúnsins og áttu eftir um kílómeters leið, er dráttarvjel- in rann út af veginum, sem var mjög svellaður. — Mennirnir munu ekki hafa losnað við vjel ina og munu Sæmundur að Egilsstöðum og Páll að Refsstað báðir hafa orðið undir vjelinni, því báðir stórslösuðust þeir. Var Páll einkum slasaður um mjaðmir, en Sæmundur á baki og síðu. Þar sem dráttarvjelin kom niður er all-grýtt. Björn geiir aðvart. Engir sáu er slys þetta varð. Björn Metusalemsson, er slapp ómeiddur gekk til kauptúnsins og gerði þar aðvart um slysið. Brugðu menn þar skjótt við og sóttu hina slösuðu menn. Fiuttir til Akureyrar. Um kl. 9,30 um morguninn hafði verið búið um þá í köss- um. Kom þá vitaskipið Her- móður inn á Vopnaijörð og tók mennina báða og flutti til Akur eyrar, en þangað kom skipið í fyrrinótt. Páll Metusalemsson og Sæ- mundur Grimsson eru báðir um fimmtugt. Voru þeir illa haldn ir er þeir voru futtir út í vita- skipið. — „IJrræði44 kommúnisla 99 Frh. af bls. 1. stofnuninni fyrir hinum er- lenda kostnaði. En kommún- istar hafa hamast gegn þátt- töku okkar í efnahagssam- vinnu Evrópuþjóðanna á grundvelli Marshalllaganna og þar með gegn þeirri stór- felldu atvinnuaukningu, sem leiðir af byggingu hins mikla raforkuvers. Ef þeir hefðu mátt ráða yrði engin Sogs- virkjun framkvæmd hjer á næstu árum. Vilja banna einstakling- unum að byggja yfir sig I einu stærsta hagsmunamáli Reykvíkinga, húsnæðismálun- um, hefui úrræðaleysi. flátt- skapur og skemmdarstarfsemi kommúnista komið hvað best í ljós. Langstærsta átakið til þess að bæta úr húsnæðisvandræð- unum eru byggir.'gáíramkvæmd ir einstaklinga. Sjálfstæðis- menn hafa sýnt í verki að þeir vilja hjálpa efnalitlum einstak- lingum af stað með því að steypa upp fyrir þá húsin. Síð- an taka þeir við og fullgera byggingarnar og eignast. þær. En hvað vilja kommúnist- ar gera? Það á að banna einstakling unum að byggja. Það er þeirra stefna. Svo langt er gengið að „fulltrúi æskunn- ar“ á lista kommúnista, Ingi R. Helgason, lýsir því vfir í Þjóðviljanum fyrir skömrmi að leggja verði blátt bann við því að einstaklingar fái að byggja yfir sig. Allir eiga að búa í leiguíbúðum eða vera húsnæðislausir ella. Þessi kenning „æskulýðs- fulltrúa“ kommúnista er háskaleg skemmdarstarfsemi í húsnæðismáiunum og hlyti að leiða til þess, ef fram- kvæmd yrði, að ónotað yrði með öllu hið mikla framtak efnaíítilla einstaklinga, sem vilja leggja fram sína eigin vinnu til þess að komast yfir eigin íbúðir. Heimtuðu leigu fyrir braggana I þessu sambandi má einnig minnast þess að komm únistar eru þeir einu, sem lögðu til að fólkið, sem út úr neyð verðiir að bvia í brögg- um. yrði látið borga leigu fyr ir þetta ófullkomna og lje- lega húsnæði. Sjáífstæðis- menn tóku slíkt ekki í mí|t og var svi firra kommúni-ía: þar með kveðin niður. Vildu nota sama fjeð tvi&var Það ber einnig ráðslagi komm únista gott vitni er þeir heimt-; uðu að sama fjárveitingin yiði; bæði notuð til útlánastarfsemi' og til bæjarbygginganna!! Ef að því ráði hefði verið hoiíið að verja þessu fje til útlána- hefðu byggingarnar við .Bú- ‘ staðaveg stöðvast fyrir aðgerðirj kommúnista Þannig er allt á sömu bókina lært hjá þessum óraunsæju æsingasnápum. Stærsta yfirboðið I þessu endemis úrræða- og umkomuleysi sínu grípa konrm únistar til þess að „slá upp“ fáránlegum yfirboðum. Nú bjóð ast þeir til að byggja þau feikn af íbúðurn að bygging þeirra myndi gleypa nær allan gja'Jd- eyri landsmanna á næstu ár- um og ekkert verða eftir af honum til þess að fæða og klæða fólkið fyrir. Þessir sömu lodd- arar kóma svo og hneykslasí yf ir skorti á neysiuvörum, mat- vælum, klæðnaði og búsáhöid- um!! Hvernig líst fólki á þennan skrípaleik? Hver treystir ’Jof- orðum slíkra gasprara? Ekki einn einasti maður með heil- brigða skyns§mi og dómgreind. Svo gjörsamlega hafa komm- únistar afhjúpað fíflskap sinn og yfirborðshátt. Þeim getur enginn treyst til þess að leysa þau vandkvæði, sem við er að etja, hvorki í húsnæðismálum nje nokkru öðru máli. Reykvíkingar kjósa raunhæfar framkvæmdii- Reykvíkingar kjósa ekki skrum og yfirboð komrmínn- ista. Þeir kjósa hina rawn- hæfu umbótastefnu SjáSf- stæðisflokksins. Þeir vita ;h1 kommúnistar eru hvorki „parat“ með lirræði ■ atvinna málum nje öðrum málunm. Þeim er ljóst að ef þeim er einskis að vænta annars en hringlandaháttar og úrræða- leysis. Þessvegna mun al- menningur í Reykja\:ík- tryggja Sjálfstæðisflokknum úrslitasigur í bæjarstjórnar- 1 kosningunum þann 29. ja:n. næstkomandi. Um 30 sýitingar á Mýrarkohslelpunni SÆNSKA kvikmyndin, Mýrar- kotsstelpan sem Austurbæjar- bíó hefur sýnt undaníarið og var nýársmynd þess, hefur ver- ið sótt svo vel, að nú hafa ver- ið hafðar 30 sýningar á mynd- inni, og er hún nú í tölu þeirra mynda sem mesta aðsókn hafa haft. Enga mvnd hefur Austur- bæjarbíó sýnt jaínoft sem þessa. I gær auglýsti Austurbæjar- bíó, að myndin yrði þá sýnd í síðasta sinn. Miðar allir seld- ust upp á ikammn stundu. sem fyrri daginn. í kvöld verður allra síðustu sýningar á mynd- inni og vcrða þær þá tvær. Hjálparstöð fyrir áfengissjúklinga BÆJARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær tillögu frá borg- arstjóra um kaup á húsinu Valhöll við Suðurgötu, til þess að koma þar upp hjálpar- og lækningastöð fyrir áfengissjúklinga. Fyrir skömmu barst borgar-' stjóra brjef frá áfengisvarnar- nefnd kvenna í Reykjavík og Hafnarfirði, Stórstúku íslands, j áfengisvarnarnefnd Reykjavik- ( ur og samvinnunefnd bindind- ismanna, þar sem þess var ósk- að að bærinn leitaði eftir kaup- um á Valhöll í þessu skyni. — Hefur Alfreð Gíslason læknir,! sem manna mest hefur starfað að umbótum í áfengismálunum, gert um það tillögu, að slíkri stofnun verði komið á íót,. og telur hann Valhöll henta vel til þeirrar starfsemi. Borgarstjóri Ijet þegar hefja viðræður við eigepdur hússins, ljet fram fara skoðunargerö á því, og hafði samráð við lækna um málið, einkum Alfreð' G ísla son. Að athugunum þessum )okn- um, lagði borgarstjóri fram til- lögu þá, sem áður var getið og bæjarráð samþykkti í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.