Morgunblaðið - 21.02.1950, Síða 5
Þriðjudagur 21. febr. 1950
MORGUNBLAÐIÐ
5
Olíustöðin í Laugarnesi.
Fyrsti farmurinn í ný|u
olíustöðina í Laugarnesi
okhonna á Ahranesi
SÍÐASTLIÐINN föstudag var á bæjarstjórnarfundi á Aira-
nesi gengið til kosninga um bæjarstjóra, og var ungujj dög-
fræðingur, Sveinn Finnsson, kjörinn bæjarstjóri me'ð 6 £ttvæ'ð-
um. Umsækjendur um starfið voru einungis tveir og haut hinn
umsækjandinn, Jón Guðjónsson, fyrrum bæjarstjóri á Ís&íirði
3 atkvæði.
-------------------5>
I GÆRMORGUN kom til
Reykjavíkur clíuskip með
.fyrsta farminn af „fluel olíu“
(brenslu-olíu) sem fluttur hef
ur verið hingað til landsins af'
olíufjelögunum, Olíuvexslun ís-
lands h.f. og h.f. Shell“ á ís-
iandi. Olíuskipið sem farminn
flytur, heitir ,,Clam“ og er eign
The Shell Petroleum Co. Ltd.,
London. Kemur það frá eyjunni
Ouracao, sem er eign Hollend-
inga liggur öti fyrir ströndum
'Venesúela í Suður-Ameríku. —
Prá Curacao til Reykjavíkur er
um 20 daga bein sigling.
Hjer mun olíunni verða dælt
upp í geyma í hinni nýju olíu-
stöð Olíuverslunar íslands h.f.,
í Lau.garnesi, og er þetta fyrsti
olíufarmur, sem þangað kem-
ur. Frá Laugarnessstöðmni verð
ur olían síðan afgreidd á bíl-
um til verksmiðja og annarra
viðskiftamanna úti á landi, en
til skipa í gognum leiðslur út
á bryggjur í Reykjavikurhöfn.
Hefur Olíuverslun íslands h.f. í
sumar, látið vinna að lagningu
á leiðslu frá Laugarnesstöðinni
niður á olíustöð fjelagsins á
Klöpp. Verður sú stöð notuð
sem millistöð, en þaðan síðan
afgreitt til skipanna.
H.f. ,.Shell-; hefui samið við
Olíuverslún íslands h.f. um
geymslu á sínum hluta af hinni
nýju olíu á Laugarnessstöðinni,
og um afnotarjett af afgreiðslu
kerfifjelagsins.
Minningarsjóður
Landsspífala íslands
styrkli 31 siúkling
s.l. ár
MINNING AG J AFAS J ÓÐUR
Landsspítala íslands er styrkt-
arsjóður, er ísienskar konur
stofnuðu um líkt leyti og Lands
spítali íslands tók til starfa.
Hefir sjúklingum, er dvelja á
Landsspítalanum og eru ekki í
sjúkrasamlagi nje njóta styrks
úr öðrum sjóðum, verði úthlut-
aðar nokkrar upphæðif úr sjóðn
um og birtir stjórn hans árlega
endurskoðaðan reikning Minn-
ingagjafasjóðsins í Lögbirtinga
blaði íslands, eða í B-deild
Stjórnartíðindanna Tala sjúkl-
inga, er styrk fengu síðastliðið
ár, voru 31 — konur 22, en
karlmenn 9. Eftir dvalarheim-
ilum skiftust styrkþegar þessir,'
(sem hjer segir: Barðastranda-
sýsla 3, Dalasýsla 8, Múlasýsla
1, Reykjavík 7, Skagafjarðar-
sýsla 1, Skaftafellssýsla 3, Snæ-
fellsnessýsla 3, Strandasýsla 2
og Þingeyjarsýsla 3 — Öll var
upphæðin, sem úthlutað var,
>.um 35 þúsundir króna (34.944)
og er það hæsta tala, síðan far-
ið var að veita úr sjóðnum.
Formaður sjóðsins, ungfrú
Inga Lára Lárusdóttir, dó í nóv
ember síðastl. haust. Hafði hún
verið formaður Minningargjafa
sjóðsins fiá því í október 1941,
er Ingibjörg H. Bjarnason,
ljest. Hafði Inga Lárusdóttir
setið í stjórn sjóðsins frá stofn-
un hans og unnið þar mikið
og gott starf. Stjórn sjóðsins
skipa eftirfarandi konur: Ragn-
heiður Jónsdóttir, gjaldkeri,
Laufey Vilhjálmsdóttir, ritari,
Laufey Þorgeirsdóttir, vara-
ritari og Lára Arnadóttir, for-
maður.
Verkföllln rjens ekki
í Bandaríkjum
PITTSBURG, 20. febrúar. —
Þeir 370,000 kolanámumenn,
sem eiga í verkfalli í Banda-
ríkjunum, sátu í dag við sinn
keip og sneru ekki til vinnu,
enda þót.t forseti stjettarsam-
bandsins, John Lewis, skoraði
á þá að taka upp vinnu á ný.
Dómstóll kvað í dag þann
öirskurð upp, að verkamennirnir
ættu að hverfa til vinnu á ný.
Fyrir nokkrum dögum síðan
kvað sami aðili upp úrskurð
svipaðs eðlis, en verkmennirn-
ir sinntu honum ekki heldur.
Munu þeir ekki hef ja vinnu fyrr
en kjaradeila þeirra við atvinnu
rekendurna hefir verið til lykta
leidd og nýir samningar tek-
ist. — NTB
Blaðamannafjelagið
kveðjuhóf
BLAÐAMANNAFJELAG ís-
lands hjelt Ólafi Hvanndal
prentmyndagerðarmeistara,.
kveðjuhóf á sunnudaginn að
Hótel Borg.
Ólafur Hvannclal.
Á síðastl. sumri fluttist
HvanndaL hjeðan úr bænum,
með prentmyndagerð sína, er
hann hafði starfrækt hjer í
um 30 ára skeið. Settist hann
að á Akureyri og setti þar upp
starfsemi sína og er það fyrsta
prentmyndagerðin þar nyrðra.
Formaður Blaðamannaf jelags
íslands, Thorólf Smith, bauð
heiðursgestinn velkominn, en
því næst tók til máls Vilhjálm-
ur S. Vilhjálmsson, er var ald-
ursforseti blaðamanna á sam-
komu þessari, en aðrir ræðu-
menn í hófinu voru Bjarni Guð
mundsson, Jón H. Guðmunds-
son, Sverrir Þórðarson og In.g-
ólfur Kristjánsson.
Ræðumenn þökkuðu Ólafi
Hvanndal samstarf hans við
blöðin. Minntust skemmtílegra
atvika í því sambandi, en það
sem var rauði þráðurinn í ræð-
um þeim er fluttar voru,;
var hve mjög öllum var hlýtt til
Hvanndals, enda var margt vel
um þann heiðursmann sagt, en
ckkert ofmælt. Var Ólafi árnað
allra farsældar í framtíðinni.
Áður en hófinu var slitið
kvaddi Ólafur sjer hljóðs og
þakkaði blaðamönnum góð
kynni og sagðist vilja nota
tækifærið til að gefa Blaða-
mannafjelaginu íyrstu bók í
væntanlegt bókasafn þess.
Bók þessi er eftirprentun af
fyrstu sálmabók, sem hjer hef-
ur verið gefin út. Var sálma-
bókin upphaflega prentuð að
Hólum árið 1589, í tið Brynj-
ólfs biskups og við hann kend.
Frh. á bls. 12
Því hafði verið spáð Ljer í
blaðinu eftir úrslit bæjarstjórn-
arkosninganna á Akrar > si og
þegar þríflokkarnir, kratar,
kommar og Framsókr, höfðu
• myndað með sjer meirihluta um
bæjarmálin, að upplausnar-
ástand myndi sigla í kjölfar
þess og fyrirsjáanlegur glund-
roði myndi einkenna úrlausn
f
bæjarmálanna þar. Þessi .spá-
dómur hefur nú rætst rækilega
strax við afgreiðslu fyrsta meg-
inmálsins, sem var kosning bæj
arstjórans. Þríflokkamir höfðu
skriflega samið með sjer um
að kjósa Jón Guðjónsson fyrir
bæjarstjóra og mun þegar hafa
verið búið að tjá Jóni þtfsa á-
kvörðun, áður en bæjars'*jörn-
arfundurinn var haldinn. Þog-
ar á hólminn kom brásf :;ið-
ferðisþrek kommans og íYamj
sóknarmannsins, svo se,i id
mátti Lúast og strax i íyrsttf
atrennu um kjör bæjar£t|ói an^
brást Framsóknarmaðurám og
skilaði auðu. Komm J..- :iur|
hjekk þá á „línunni" ogCjt-kM
Jón því 4 atkv. eftir fyraiu atJ
rennu. í annarri atreni'. i (5
mín-.‘ síðar) höfðu báðar ••• rnp-
urnar, Framsóknarmac, og
kommi, skipt um skoðuny') og
kusu þeir báðir Svein, eniSjálf-
stæðismenn, sem við fyis!u at-
rennu sáu hvað hafði erst,
tóku þann kostinn, að elja
þann manninn, sem þeir á'Jitu
efnilegri bæjarstjóra af þeirn
tveim, sem um var að ra * a og
kusu þeir Svein. Er sarnstarf
þriggja vinstri flokkanj,;a nu
farið út um þúfur strax j app-
hafi og-er búist við því é t verju
augnabliki, að Hálfdán S -ei.ns-
son segi af sjer sem forseti bæj-
arstjórnarinnar.
Guðlaugur Einarsson hæjar-
stjóri hafði lýst því yfir fyúr
bæjarstjórnarkosningam; • 29,
jan. að. hann myndi alls ekki
verða áfram bæjarstjói: nema
með stuðningi hreins meiri-
hluta Sjálfstæðisflokksim. Sótti
hann þessvegna ekki i;;n bæj-
arstjórastarfið nú.
Hergagnahjálp tið
fianda Norðmönnum
OSLO, 20. febrúar Daníelsen
flotamálaráðherra er kominn
heim til Noregs úr vikuheim-
sókn til Bandaríkjanna, þar
sem harin tók þátt í viðræðum
um hermál.
Gefin hefur verið út tilkynn-
ing um hve miljillar hernaðar-
aðstoðar Noregur getur vænst
vegna Atlantshafssáttmálans. -
Sagt er m. a , að Nurðmönnum
verði gefinn kostur á tveimur
breskum tundurskeytabáVi.rn og
bandarískum þriggja þumlunga
fallbyssum. — NTB.
Olíuflutningaskipið „Clam“.
Verslunaratvinna
Oss vantar m'i þegar eða 1. mars tvær stúlkur vanar
afgreiðslustörfum. Meðmæli æskileg.
Nánari upplýsingar á skrifstofu vorri.
Kaupfjelag Suðumesja
KEFLAVIK
i««1
Verkstjóra og matsvein
vantar í frystihús frá o. k. mánaðarmótum. — Upplýs-
ingar hjá Sölumiðstöð hi aðfrystihúsanna og Fiskimatinu.
Hagkvæm Viðskifti
Get útvegað á rjettu verði þakjárn, þakpappa, gólfdúk
og gúmmídúk, ennfremur gólfteppi og ritvjel, þeim, sem
getur leigt éðn útvegað tveggja til fægurra herbergja
íbúð 1. til 14. maí næstkomandi. Tveir til fjórir full-
orðnir í heimili. — Tilboð merkt: „Hagkvæm viðskifti
— 0094“, sendist afgréiðslu Morgbl. fyrir 24. þ. m.
fc>«»
hcldur 01. Hvaimdal