Morgunblaðið - 17.03.1950, Side 5

Morgunblaðið - 17.03.1950, Side 5
Föstudagur 17. mars 1950. MORGVTi BLAÐIÐ 5 Þ RÓTTI Undirbúningur þáittiku Islands í EM I liússel hofinn Landsbeppns vi Ðani verður fynf í júlí. vel möguleika á að ná fyrsta Frá Hoimenkoliefl f EINS og áður hefir verið skýrt frá í blaðinu, var Ari Guðmunds- son frá Siglufirði meðal keppenda í stökki á Holmenkollen- mótinu. Fyrra stökk hans var ekki gott. Hann kom með ,.saks'‘ út í svifið og náði ekki að lagfæra það. Stökklengdin var 56 m. og stíleinkunn Ijeleg. — Myndin er tekin af Ara í fyrra stökk- ;ínu. — Síðara stökk hans var aftur á móti gott. Hann stökk 64 m. og fjekk 16 — 16,5 og 17 í stíl. Lengsta stökk keppn- innar var 68 m. UNDIRBÚNINGUR þátttöku ís- lenskra íþróttamanna í Evrópu- meistaraiíiótinu í frjálsíþrótt- um, sem fram fer í Briissel 23. ■—27. ágúst næstkomandi, er haíinn fyrir nokkru. — Hefur Frjálfeíþróttasamband íslands skipað nefnd manna til þess að annast hann. Er Erlendur O. Pjetursson, formaður hennar, en aðrir nefndarmenn: Konráð Gíslason, Ólafur Sveinsson, Bragi Kristjánss., Oliver Steinn, Jón Mathiesen og Garðar S. Gíslason. Nefnd þessi ásamt Brynjólfi Ingólfssyni, varaformanni FRÍ, áttu tal við blaðamenn í gær. 27 þjóðiim boðin jþátttaka Alls hefur 27 þjóðum verið feoín þátttaka í mótinu í Briiss- el og mikill undirbúningur haf- inn þar. í málgagni frjálsíþróttasam- bandsins belgiska, er nýlega skýrt frá besta árangri í álf- unni í frjálsíþróttum. Þýska- íand er þar þó ekki talið með, en Þjóðverjum hefur ekki verið boðin þátttaka í mótinu. Átta íslendinga er getið í afrekaskrá þessari. íslendingarnir á afrekaskránni Gunnar Huseby er efstur á felaði í kúluvarpi með 16,41 m., en næstur honum eru Eistlend- ingurinn Lipp (16,38) og Sví- inn Roland Nilsson (16,00). Örn Clausen er með fjórða besta árangurinn í tugþraut, 7259 st., Lipp er með 7539 st., Rússinn Denisenko 7287 og Frakkinn Heinrich 7271. Örn er einnig á skránni í grinda- hlaupi, með 15,0 sek. Þrír íslendingar eru með í spretthlaupunum, Finnbjörn Þorvaldsson og Haukur Clau- sen í 100 og 200 m. og Guð- mundur Lárusson í 200 m. og 400 m. — Finnbjörn er í 1.—5. sæti í 100 m., með 10,5 sek. — Haukur er einn af 9 bestu í 200 m., með 21,6 sek. Torfi Bryngeirsson er í 6.— 8. sæti í langstökki með 7,24 m., og í stangarstökki er hann í 11. sæti með 4,12 m. Jóel Sigurðsson er í hópi foestu spjótkastaranna. Taldir eru allir, sem köstuð yfir 65 m., en Jóel kastaði 66,99 m. Skúli Guðmundsson er í 10.— 15. sætí í hástökld með 1,95 m. I þessu sambandi er rjett að geta þess, að helsta frjálsíþrótta felað Bandaríkjanna álítur Örn Clausen þriðja besta tugþraut- armann heimsins, ganga næstan Bob Mathias og Heino Lipp, og Huseby telur það næst á eftir átta Ameríkönum og Lipp. — Einnig bendir það á íslensku spfétthlaupárána. í fremstu röð Á þessu, sem hjer hefur verið sagt, sjest, að íslendingar eiga iiú nokkra frjálsíþróttamenn, Sem standa í röð þeirra fremstu í álfunni, menn, sem hafa jafn- sæti. Tækifæri íslendinga á mót- um sem þessu aukast mjög, þeg ar Ameríkumenn eru ekki með, þar sem íslendingar eru yfir- leitt sterkastir í þeim greinum, sem Ameríkumennirnir bera af í, eins og spretthlaupum, kúlu- varpi og stökkum. Góð byrjun í Oslo Mótið í Brússel er fjórða Evrópumeistaramótið, sem hald ið er. Það fyrsta var ■ í Torino á Ítalíu 1934, annað í París 1938 og hið þriðja í Oslo 1946. ís- lendingar voru þá í fyrsta sinn með. Gunnar Huseby varð Evrópumeistari, eins og menn muna og Finnbjörn Þorvalds- son komst í úrslit í 100 m. hl. Lágmarksárangur. Ákveðinn hefir verið lágmarks -árangur, sem menn þurfa að ná í stökkum og kÖstum til þess að komast í aðalkeppnina. Þó Verða þar aldrei færri en níu menn. Lágmarkið er þetta: Kúluvarp 15 m., kringlukast 47 m., spjótkast 65 m., sleggju- kast 52 m., langstökk 7,15 m., þrístökk 14,50 m. stangarstökk 4,00 m. og hástökk 1,90 m. Einnig íer fram kvenna- keppni í Bi ussel. Er Islending- um boðin þátttaka í henni, íþróttamennirnir æfa vel. Frjálsíþróttamennirnir æfa nú vel. FRÍ hefir ráðið Bene- dikt Jakobsson sem þjálfara sinn, og æía nú hjá honum 40 ■—50 menn, sem sjerstaklega hefir verið boðið það. Einnig hefir íþróttamönnum úti á landi verið gefinn kostur á að hafa brjeflegt samband við hann, fá hjá honum æfinga- seðil og ráðleggingar. Landskeppai við Dani. Þessi þjáifu.n er að sjálfsögðu ekki eingöngu miðuð við þátt- tökuna í F.vrópumeistaramót- inu. Hún er ekki síður með landskeppnina við Dahi fyrir augum. Fer hún fram í byrjun júlí hjer í Re^^kjavík. Einnig hefir komið til tals, að Islend- ingar keppi við Skota í lands- keppni, en ekkert er ákveðið um það ennþá. Áhorfendur til Brussel. Brussel-nefndin mun að sjálf -sögðu fyrst og fremst sjá um þá íþróttamenn, sem taka munu þátt í Evrópumeistaramótinu, en hún mun einnig aðstoða á- horfendur, sem þangað hugsa sjer að fara og gefa þeim upp- Iýsingar. En nefndin getur skiljanlega enga gjaldeyrisað- stoð veitt þeim. SÍÐARI hluti íslandsmótsins í handknattleik (innanhúss) er nú hafinn, en lokið er keppni í meistaraflokki karla. í kvöld fer fram leikur í meistaraflokki kvenna milli Fram og KR. í II. fl. kvenna keppa Haukar og Ármann. í II. flokki karla Haukar FH og Vík- ingur og ÍR, og í II. flokki karla Ármann og Fram og KR og Víkingur. STJÓRN íþróttasambands ís- lands, hefir samþykkt þessi landsmót og milliríkjakeppni sumarið 1950. Milliríkjakeppni: í hand- knattleik íslands — Finnland 25. maí til 5. júní, Reykjavík. Millíríkjakeppni: í frjálsum Iþróttum ísland — Danmörk. 2.-7. júlí í Reykjavík. Olympíudagurinn 1950, verð- ur sunnudaginn 16. júlí. — í Reykjavík verða Olympíudag- arnir tveir, laugardaginn 15. júlí verður sundkeppni í sjó en sunnudaginn 16. júlí leikvangs íþróttir. Hefir Olympíunefnd íslands, kjörið sjerstaka fram- kvæmdanefnd í Reykjavík, en gert er ráð fyrir að hjeraðs- samböndin hafi framkvæmdir dagsins utan Reykjavíkur. Meistaramót íslands í frjáls- um íþróttum. Þann 10.—14. ágúst, en Tugþrautarkeppnin þann 22. og 23 júlL Mótið fer fram í Reykjavík. FRÍ ráðstaf- ar mótunum. Golfmeistaramót íslands, þ. 7. til 9. júlí. Mótið fer fram i Reykjavík. G. S. í. ráðstafai mótinu. Handknattleiksmeistaramót íslands, fyrir karla (utanhúss) Þann 18.—25. júní. Mótið fer fram á Akureyri. Í.B.A. sjer um mótið. Handknattleiksmeistaramót Islands fyrir'konur (utanhúss) Þann 25. til 31. júlí. Mótið fer fram í Hafnarfirði. í. B. H. sjer um mótið. Knattspyrnumót: Knattspyrnumót íslands :t meistaraflokki þann 5. til 26 júní. — Knattspyrnumót íslands í X aldursflokki þann 28. júní til 8. júlí. Knattspyrnumót íslands í II aldursflokki þann 15. til 25. ágúst. Knattspyrnumót íslands í III aldursflokki þann 1.—10. ágúst Öll knattspyrnumótin fara fram i Reykjavík á vegum K. R. R. landskeppni í bad- miniofl í SifNftish. LANDSMÓTIÐ í badmínton fer að þessu sinni fram í Stykkis- hólmi og hefst miðvikudaginn 5. apríl. Sjer Umf. Snæfell um óað. Keppt verður í einliða og tvi iðaleik karla og kvenna, tví- liðakeppni karla og k%ænna ogr tvendarkeppni (parakeppni). Væntanlegir þátttakendui’ gefi sig frám við Þorgeir Ibíen,. skólastjóra í Stykkishólmi fyr-« ir 25. mars. j í NORRÆNU landskeppninni í Stokkhólmi s. 1. ár, hlaut Finnbjörn Þorvaldsson þrenn fyrstu verðlaun, í 100 og 200 m. og 4x100 m. boðhlaupi. Myndin hjer að ofan er úr 100 m. hlaupinu. — Finnbjörn hefur tekið forystuna. Norðmaðurinn Peter Bloch er annar en Svíinn Áke Johannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.