Morgunblaðið - 23.03.1950, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.03.1950, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 23. mars 1950 MORGUNBLAOIB 3 Frá ljósmyndasýningunni. Þessi skemmtilega barnamynd er úr Svíþjóðardeildinni á Ijósmyndasýningunni. MOHIÆM LJOSMYNM- SÝISIIIMG OPNUÐ í GÆR Rúmlega 400 myndir eru spdar þar. í GÆR var opnuð hjer í Reykjavík í Listamannaskálanum fyrsta ljósmyndasýning norrænna atvinnuljósmyndara. Hefur sýning þessi áður verið í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og Hels- ingfors. Verður sýningin opin fram til mánaðamóta. Rúmlega 400 Ijósmyndir eru á henni og hefur hvert land sína deild. ------------------------ Mesí mannamyndir. Danir og Svíar eiga flestai myndir á sýningunni, en við ís- lendingar fæstar. Færeyingac taka ekki þátt í sýningunni. —- Mannamyndir eru í mjög mikl- um meirihluta, enda munu slíkar myndir vera eitt erfið- asta viðfangsefni Ijósmyndar- ans. Einnig er allmikið af Iands- lagsmyndum. Tilgangurinn. Sigurður Guðmundsson ljós- myndari, formaður Ljósmynd- arafjelags íslands, opnaði sýn- ínguna. í ræðu sinni vjek hann að því hver tilgangurinn væri með þesSari ljósmyndasýningu norrænna ljósmyndara. Sagði bann sýninguna hafa einkum tvíþættan tilgang: í fyrsta lagt að veita sýhingargestum tæki- færi til þess að kynnast því, á hvaða stigi atvinnuljósmyndar- ar standa í dag, í hinum fimm norrænu löndum. í öðru lagi að gefa ljósmyndurunum sjálfum kost á að athuga vinnubrögð og leikni starfsbræðra sinna og listrænan skilning þeirra og að gera samanburð á sjereínkenn- um hinna ýmsu landa. Gömlu Ijósmyndastofurnar. Á sýningunni er brugðið upp mynd af ljósmyndastofum í Reykjavík, eins og þær voru um aldamótin. Eru þar sýndar gamlar ljósmyndavjelar, sem sannarlega eru hinar merkileg- ustu, svo og önnur tæki er við Ijósmyndagerð voru notuð í þá daga, er alla ljósmyndavinnu varð að vinna meðan bjart var af degi, og vegna skammdegis- íns lá niðri um há vetrarmánuð- ína. Þar eru sýndar með allrp elstu Ijósmyndum, sem hjer hafa verið teknar. Loks má geta þess, að nokkr- ir umboðsmenn ljósmyndavjéla og tækja í sambandi við ljós- myndun almennt, sýna þarna vörur sínar. Hljómleikar Jass- blaðsins vökfa óskerfa hrifnirtgu JASSHLJÓMLEIKAR þeir er Jassblaðið efndi til í fyrrakvöld í Austurbæjarbíó, eru vafalaust fjölmennustu hljómleikar sinn- ar tegundar, sem haldnir hafa verið hjer í bænum. Sýndu þeir ótvírætt vinsældir jassins meðal Reykvíkinga, yngri sem eldri. Er hljómleikarnir hófust var hvert sæti hússins skipað, auk þess, sem margir urðu að láta sjer nægja að standa. Hljómleikarnir hófust með leik hljómsveitar Jan Moravek, en auk hans komu fram sextett Kristjáns Kristjánssonar, tríó Gunnars Omslev. Steinþór Steingrímsson Ijek einleik á píanó og Ingþór Haraldsson ljek á munnhörpu. Haukur Mortens og Sigrún Jónsdóttir sungu nokkur dægurlög og að lokum var leikin Jamseession (8 menn). — Öllum atriðum hljóm leikanna var fagnað ákaflega af áheyrendum. Urðu bæði hljóm- sveitirnar og einstaklingar þeir er fram komu, að leika auka- lög. Sjerstaka hrifningu vakti þó einleikur Steinþórs Stein- grímssonar og munnhörpuleik- ru Ingþórs Haraldssonar, þvi eftir leik þeirra ætlaði fagnað- arlátunum aldrei að linna. — Svavar Gests, ritstjóri Jass- blaðsins var kynnir. Afhenti hann jafnframt verðlaunaskjöl til þeirra, sem flest atkvæði höfðu hlotið í kosningum blaðs- ins. '-— Svavar gerði sjer allt far um að vera sem skemmti- Frh. á bls. 12. ússor liifi komi fim her i npp öfl landi Eftir Hansjuergen Schubert, frjettamann Reuters. BERLÍN — ,,AlþýðulögregIan“, sem er á hernámssvæði Rússa í Þýskalandi hefir smám sam- an komist í horf öflugs hers. Og her þessi er vel búinn ný- tísku vopr.um frá Rússlandi, Póllandi, Tjekkóslóvakíu og jafnvel bandarískum skriðdrek -um, sem fengist hafa við láns- og leigukjörum. Hafa sett á stofn her. Þessar upplýsingar hefi jeg frá liðsforingja í „alþýðulög- reglunni“. Maður þessi, sem ekki vill láta nafns síns getið, tjáði mjer í viðtali, að endur- vopnun á hernámssvæði Rússa í Þýskalandi værf ekki ný bóla. Hófst hún þegar á árinu 1946 og hefir vexið eftir því, sem tímar liðu. Liðsforinginn skýrði svo frá, að ,,alþýðulögreglan“ teldi nú 180.000 manns. Nálega 120.000 þeirra, sem eru á aldrinum 18 til 40 ára, dveljast í herbúðum. Rússneskir og þýskir þjálfarar | veita þeim alla þá þjálfun, sem frekast er veitt í her. Enn eru | svo 60.000. er stunda venjuleg löggæslustörf 120.000 manna, sem eru í þessum leynilega her Austur- Þýskalands, er skipt í deildir, og telur hver þeirra rúml. 1200 manna. Stjórnendurnir eru ým- ist fyrrverandi býskir liðsfor- ingjar, sern hlotið hafa nú sjer- stakt uppcldi. í Rússlandi, svo að þeir verði vaxnir þessu sjer- staka starfi sínu, eða þeir eru ,,öruggir“ kommúnistar, sem öfluðu sjer reynslu í spænsku borgarastyrjöldinni eða með rússnesku herjunum í heims- styrjöldinni En það eru fleiri en stjórn- endur hverrar herdeildar, sem eiga hlut að samheldni hennar og uppelai Með hverjum flokki er rússneskur foringi. sem hef- ir það eitt með höndum, að hafa eftirlit mcð hevnaðarlegri og stjórnmálalegri einingu flokks- ins, enda þótt ekki sje látið neitt uppi tim það. Þessir rússnesku foringjar tala þýsku mætavel, klæðast einkennisbúningi þýskra lög- reglumanna og undirrita öll meiri háttar skjöl ásamt hin- um þýska stjórnanda flokks- ins. Fótgöngu- stórskortaliðs- og skriðdrekasveitir Það eru um 90 þessara deilda víðsvegar um A.-Þýskaland. Hverri þeirra um sig er aftur skipt niður í eiiúngarnar „A“, ,,B“ og ,C“ efrir því, hvaða vopn þær nota. ,,A“-deildirnar eru venju- lega fótgönguliðssveitir. Eru þær búnar ýmsum tegundum byssna frá Þýskalandi, Rúss- landi, Póllandi og Tjekkóslóva- kíu. Stórskotaliðsdeildirnar eru merktar ,.B“. I svip eru þær ekki búnár þungum vopnum. Æfingar fara fram með Ijettum skriðdrekavarnabyssum, loft- varnabyssum og litlum fall- byssum af rússneskri, pólskri og tjekkneskri gerð. £iðsfioBringfar „alþýðu- lögreglunnar" eru þjáliaðir i Rússlandi Þá eru ,,C“-deildirnar eða skriðdrekadeildirnar. Þær eru ekki nema 6, og er ein þeirra í Grossenhain í Saxlandi. Hún er búin 34 skriðdrekum frá Bandaríkjunum, en Rússar fengu þá með láns- og leigu- kjörum á styrjaldarárunum. Hinar skriðdrekadeildirnar 5 munu búnar skriðdrekum af rússneskri gerð. Stjórnarfulltrúar að russneskri fyrírrnynd. Aginn t þessum lögreglu- sveitum er afar strangur og á borð við þann. sem ríkti í gamla þýska herr.um sællar minning- ar. Skipan þessa hers er mjög að fyrirmynd þess þýska, en stjórnarfuUtrúamir, sem hon- um fylgja' eru rússneskir að uppruna. Hver herdeild og hver þeirra 8 lögregluskóla, sem starfa, hefir sirih eigin stjórn- arfulltrúa, sem gognir því hlut- verki að sjá um stjórnmálalega þjálfun herdeildanna. Stjórnarfulltrúar þessir eru venjulega gamlir kommún- istar og gegnir, sem hafa hald- góða reynslu innan vjebanda Kominforrr. að baki. Þeir halda nokkra fyrirlestra vikulega þar sem atburðir líðandi stundar eru skýrðir í ljórí kommúnista, og er nemendunum þannig haldið í snertingu við komm- únistaflokl’inn og stefnu hans, ef svo mætti segja. Það gefur því auga leið, að stjórnarfull- trúarnir hafa geysiáhrif á skoð- anir og skipan í hverri deild. Hreinsun í forignjaliðinu. Heimildarmaðar minn, liðs- foringmn sagði mjer, að farið hefði fram miklar hreinsanir í foringj aliði ,, alþýðulögreglunn- ar“ að undanförnu. Mikill hluti þeirra foringja, sem gengu í lögregluna í endaðan ófriðinn, hefir nú verið látinn sigla sinn sjó, til að koma mætti öðrum nýjum i þeirra stað. Ennfrem- ur hafa allir þeir liðsforingjar, sem verio hafa herfangar í Vestur-Þýskalandi eða eiga þar nána ættingja, verið látn- ir fara cg kallaðir „óáreiðan- legir i stjórnmálum“. Smám saman koma í þe'rra stað ,hrein -ræktaðir“ kommúnistar eða fyrrverandi foringjar úr herj- um nasista er þeir hafa hlotið viðhlítandi uppeldi í Moskvu. I lögregluskóla í miðjú A,- Þýskalandi hljóta nú þjálfun sína hundruð hinna nýju for- ingja a-þýska lögregluhersins. Um 30 % þeirra, sem þarna fá æfingu og fræðslu. eru hat'ram- ir ungkommúnistar, sem vald- ir hafa ven.ð úr hinni svonefndu „Frjálsu býsku æsku“, en það er æskulýðsfylking kommún- ista þar. Þá haía 20% þeirra verið teknir úr hópi þeirra, er kalla má ,övugga“ kommún- ista og loks sá helmingurinn, sem eftir er, liðsforingjar ríkis- hersins, en áður Pafa þeir verið þjálfaðir og í þá stappað stál- inu í Rússlandi. Skóla þessum veitir forstöðiT J. von Witzleben, sem áður var þýskur herráðsforingi. Þar eriií 70 vinnustundir á hverri viku: Er 30 þeirra varið í stiórnmála- fræðslu og þá sjerstakíega i fræðslu um sögu kommúnista- flokks Rússlands. Hins vegar er 10 stundum varið á viku hverri'. í nám hverra fjögurra grerr.a hernaðarlistarinnar. Varasöm fylking. Liðsforingjinn, sem jeg be:í:i fyrir mje: í þessu, segir, a'S þessi a-þýski her hafi nóg að bíta og brenna, sje búinn góð- um klæðurn og vopnum. I svip telur hann, að V.-Þýskalandi stafi engin bráð hætta af „al- þýðulögreglunni“, en ef þrótm- in heldur áfram á sömu brai.it og undanfarið, þá má gera ráð fyrir, ýinsum þejm atburðum,. sem best væri að sneiða hjá. Og , liðsforinginn segir að loknm: „Það er margt, sem bendir til, að roskið fólk A.-Þýskalands verði kommúnlstunum ekki auðunnM 1-ráð. Á hitt ber svö að líta, að innan fárra á a munu hersveitirnar nær ein- göngu vera skipaðar ungum kommúnistum, sem vaxið hafst upp undir handarjaðri þeirra pg eru þeim auðsveipir í hvi- vetna“. Övíss úrsltt í meisf- araflolái kvenna Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLD fó- r.i leikar þannig í meistaraflokkt kvenna á íslandsmótinu í hanð knattleik, að ÍR vann KR rneð 3:0, en Fram og Ármann gerðu jafntefli, 2:2. Staðan er nú þannig: L St. Mrk. Fram ........... 3 5 14 5 Ármann ......... 2 3 5:3 í. R............ 1 2 3:0 K. It........... 2 0 3 3 Haukar ......... 2 0 1:3 Q SBR leikur með í mótinu serct gestur, og eru leikir fjeíagsins því ekki taldir með við stiga- reikninginn. Á þriðjudaginn fóru leikar svo í Ill.-flokki karla, að Ár- mann vann KR með 3:2 og Val- ur FH með 4:3. — í þessum fl. er Ármann með 5 stig, Valur 4, KR 3, Víkingur 2, FH b og Fram 0. í II. flokki karla (A-nKi) vann KR val með 6:5. en i B- riðli vann .Ármann Fram ,veð 11:3.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.