Morgunblaðið - 26.03.1950, Blaðsíða 16
TEÐURÚTUTH). FAXAFLÓI:
All-hvass suðaustan._—- Rign-
ing. —___________
rauitblaöii*
71. tbl. — Sunnudagur 26. mars 1950.
REYKJAVÍKURBRJEFIÐ erj*
blaðsíðu 9. —
Yogararnir ná hagstæðum Lj
sölum á litlu aflamagni
Nú eru 14 togarar á saltfiskveiSum,
FRÁ ÞVÍ á fimmtudag, og þar til í gær, seldu níu íslenskir
togarar ísvarinn fisk á markað í Bretlandi. Náðu þeir allir með
tölu hagstæðum sölum, miðað við aflamagn það sem þeir voru
tneð. — Lægsta salan hjá nýsköpunartogara var rúmlega 9000
punda sala, en sú hæsta rúmlega 10.300 punda. Samtals seldu
þessir togarar fyrir um 2,1 millj. kr.
Undanfarið hefir verið tregur'
afli hjá togurunum og þessir
níu togarar; er selt hafa nú síð-
ustu daga, eru hvergi nærri
með fullfermi. Alls lönduðu
þeir um 1680 tonnum.
Síðustu sölur
ísborg var með 182 tonn af
fiski, og seldi fyrir 9090 pund.
Maí 139 tonn og náði 7347
punda sölu, þá Venus með 128
tonn og seldi fyrir 6463 pund.
Báðir eru þetta gamlir togarar,
sem fóru á veiðar í sambandi
við verkfallið á breskum togur-
um í Grimsby. — Þá seldi
Bjarni Ólafsson 209 tonn fyrir
9609 pund. Jón forseti 227
tonn fyrir 10833, Surprise 190
tonn fj'rir 9520, þá Gylfi 217
tonn fyrir 10401 pund. Röðull
£20 tonn fyrir 10322 pund og
svo Bjarni riddari 205 tonn fyr
ir 10358 sterlingspund.
Á útleið og heimleið
Nú um helgina og fram á
þriðjudag, munu fara hjéðan á-
leiðis til Bretlands . með fisk,
íimm togarar. Nú eru á leið-
inni þangað fimm togarar.
Allmargir togarar eru á salt-
f-iskveiðum og munu þeir vera
nú alls 14 að tölu.
AðaHundur Fjclegs
FJELAG bifreiðasmiða hjelt
aðalfund sinn miðvikudaginn
8. mars síðastl. ög var fundur-
irm mjög vel sóttur.
í stjórn fjelagsins fyrir næsta
kjörtímabil voru eftirtaldir
jnenn kjörnir: Form. Tryggvi
Á.rnason, Bergþórug. 53, ritari
Magnús Gíslason, gjaldkeri
Guðjón Jónsson. Varastjórn er
skipuð eftirtöldum mönnum:
Varaform. Gunnar Björnsson,
vararitari Gísli Guðmundsson,
varagjaldkeri Hjálmar Hafliða-
son. <*
Ýmis áhugamál fjelagsins
voru rædd á fundinum, þar á
ineðal vöntun á erlendum fag-
Jitum varðandi iðnina og ríkti
mikill áhugi á að afla víðtækari
} ekkingar á tæknilegri þróun
e.ipaðra faga erlendis.
ííðasla umferð Skák
þingsins er í dag
BIÐSKÁKIR í meistaraflokki
Skákþingsins hafa nú verið
tefldar. Baldur vann Guðm.
Ág., Benóný vann Árna, en
jafntefli varð hjá Árna og
Sveini, Gilfer og Benóný og
Friðrik og Guðm. Ág.
Staðan er nú þannig, að
Guðm. S. Guðmundsson er efst
ur með 6 vinninga. Baldur
Möller er næstur með 5 vinn-
inga. Árni Snævarr, Sveinn
Kristinsson, Guðjón,M. og Lár-
us Johnsen eru með 4 vinninga.
Eggert Gilfer og Guðm. Ágústs-
son hafa 312 v. og Benóný Bene
diktsson og Friðfik Ólafsson 3.
Síðasta umferðin verður
tefld í Þórscafé og hefst kl. 1.
Þá tefla Árni og Lárus, Guðm.
S. og Benóný, Guðjón og Bald-
ur og Gilfer og Friðrik.
Guðm. S. hefir mikla mögu-
leika til að verða Reykjavíkur-
meistari að þessu sinni. Aðeins
Baldur Möller getur einnig
komið til greina, þ. e. a. s. ef
Baldur vinnur sína skák í dag
en Guðmundur tapar sinni. —
Verða þeir þá jafnir að vinn-
ingum og verða að heyja ein-
vígi um titilinn.
700 hafa skoðað
andlifsmynda-
sýníngtma
ANDLITSMYNDASÝNING-
UNNI í sýningarskálanum við
Freyjugötu verður lokað i
kvöld.
Hún hefir verið opin s. 1. viku
og hefir aðsókn verið mjög góð.
Talið er að um 700 manns hafi
skoðað hana. — Búist er við
að margt manna muni skoð.i
sýninguna í dag, því að eins og
áður er sagt, er þetta síðasti
dagurinn, sem hún verður op-
in.
Pofna verkalýðssamband
ÍHNGAPORE, 25. mars: — Um
eitt hundrað verkalýðsleiðtog-
ar af Malakkaskaga komu í dag
.‘•kaganum. Það mun vera ætlun
fíc-ifra að stofna allsherjar
bandalag verkalýðssamtaka á
skaganum. Þð mun vera ætlun
in, að bandal. þetta gangi í and (
i .-'mmúnistíska alþjóða verka-
L Lstofnunina. — Reuter.
25 bús. hafa sjeð
„Síðasta bæinn
í dalnim"
UM 25 þús. manns hafa nú
sjeð kvikmynd Óskars Gíslason
ar „Síðasti bærinn í dalnum“,
sem sýnd hefir verið í Austur
bæjarbíó að undanförnu.
Síðustu sýningar myndarinn-
ar hjer í Reykjavík eru í dag,
en síðan verður hún send út
á land og sýnd þar á ýmsum
stöðum.
Rauðu skórnir heitir þessi mynd, sem er á ijósmyndasýn-
ingunni í Listamannaskóianum. Ilún er eftir A. Thorsrud
Noregi. (Sjá grein á bis. 6).
¥dfnr allf á afsfððu Frjáiilynda fiokksins.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
BRUSSEL, 25 márs. — Kaþólski flokkurinn í Belgíu, sem er
stuðningsflokkur Leopolds konungs, lýsti því yfir í dag, að
hann væri reiðubúinn að mynda eins flokks stjórn í landinu.
Þar sem flokkurinn hefur ekki meirihluta í fulltrúadeild þings-
ins, er talið, að þetta tákni, að hann vilji rjúfa þing og efna
til nýrra þingkosninga í Belgíu. Þar sem ekki er mögulegt að
mynda ríkisstjórn í Belgíu án þátttöku kaþólska flokksins ec
talið að samkvæmt þessarri yfirlýsingu muni Karl ríkisstjór:
á morgun fela einhverjum af foringjum flokksins stjórnar-
myndun.
Reiðubúinn gð mynda
eins flokks stjórn.
Kaþólski flokkurinn hefur 9
atkv. meirihluta í öldungadeild
belgiska þjóðþingsins, en í full-
trúadeildinni vantar hann tvö
atkv. til að hafa meirihluta. —
Fundur var haldinn í dag í mið
stjórn flokksins og var gefin
út yfirlýsing um að flokkur-
inn væri reiðubúinn til að
mynda eins flokks stjórn.
Vcrður þing rofið?
Því var einnig lýst yfir, að
það væri ætlun flokksins að
berjast fyrir því með öllum ráð
um að Leopold konungur fengi
að snúa heim. Ef eins flokks
stjórn þessi verður mynduð er
því talið að flokkurinn láti til
skarar skriða á þingi. Þá verð-
ur annað tveggja til, að
frjálslyndi flokkurinn klofni og
helmingur hans greiði atkvæði
með hcimkomu konungs, eða að
stjórnin fær ekki nægilegt fylgi
og ákveður þá að rjúfa þing og
efna til nýrra kosningu.
Allt veltur á Frjálslynda
flokknum.
Frjálslyndi flokkurinn á nú
crfitt val fyrir höndum. Ef
flæmski hluti hans ákveður að
greiða atkvæði með konungs-
komunni, þá klofnar flokkur-
inn. Það benda samt margar
líkur til að Flæmingjarnir í
flokknum ætli að taka þennan
kost frekar en að láta Vallón-
ana í flokknum kúga sig til and
stöðu við konunginn.. Albert
Deveze leiðtogi flæmska hluta
flokksins hefur setið í allan dag
á rökstólum með foringjum
kaþólska flokksins og er talið
að hann muni taka lokaákvörð-
un um afstöðu flokksbrots síns
um helgina.
VINARBORG, 25. mars: — Fljúg
andi diskar hafa undanfarið
sjest víða yfir Austurriki. Nokkr
ir hafa meðal annars sjest stefna
úr vestri og fara inn yfir her-
námssvæði. Rússa — inn fyrir
járntjaldið.
Iskulýðsvika
í Laugarneskirkju
ÆSKULÝÐSVIKUR K.F.U.
M. og K. eru kunnur og vin-
sæll liður í kristilegu starfi í
höfuðstaðnum. Nú taka fjelögin
upp þá nýbreytni að efna til
slíkrar viku í Laugarnessókn.
Deildir frá fjeiögunum hafa
verið stofrtaðar 1 sókninni. —•
Hefur unghngadeild fyrir stúlk
ur aðsetur í Kirkjunni, en
drengja- og piltastarf í húsi
við hornið á Kirkjuteig og
Reykjaveg<
Sjera Friðrik Friðriksson,
dr. theol. stofnandi þessara
fjelaga, vcrður fyrsti ræðu-
maður vikunnar. Auk hans tala
ýmsir aðrii. Sóknarpresturinn,
sjera Garðar Svavarsson, hefur
föstumessii á miðvikudags-
kvöld. Sjera Bjarni Jónsson,
vígslubiskup ta.ar á fimmtu-
dagskvöld.
Samkomúr þessar eru fyrst
og fremst fyrir ungt fólk, en
allir eru velkomnir.
a
WASHINGTON, 25. mars: —.
Hinar siharðnandi árásir repu-
blikana í Bandaríkjunum á Ac-
heson utanríkisráðherra valda
stjórnarvöldunum auknum á-
hyggjum.
Enda þótt litlar líkur sjeu
taldar fyrir því, að Acheson
verði látinn víkja, er óttast, a<$
aðstaða hans kunni að gera
bandarísku utanríkisþjónust-
unni erfitt um svif. Er ekki ó-
líklegt, að andstæðingar Banda-
ríkjanna kunni að reyna a<5
koma þeim orðrómi á kreik, a3
árásirnar á Acheson sýni veik-
leika bandarísku stjórnarinnar
í heild.
Eins og kunnugt er, er kosn-
ingabaráttan nú þegar hafin í
Bandaríkjunum, og er -talið, að
hinar pólitísku árásir á utan-
ríkisráðherrann eigi rót sína að
rekja til þeirrar staðreyndar.
— Reuter.