Morgunblaðið - 26.10.1950, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.10.1950, Blaðsíða 1
16 síður 37. árgangm 249. tbl. — Fimtudagur 26. október 1950. Prentsmíðja Morgunblaðsins Þeir ætla að „frelsa“ þrjár mill|ónir undan oki heimsveldissinna Tiikynning Kínakomma um innrásina í Tíbei Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. BOMBAY, 25. október — Indverskur frjettamaður símaði í kvöld frá Peking, að kínverska kommúnistastjórnin hefði gefið út opinbera tilkynningu þess efnis, að hersveitum hennar hefði verið fyrirskipað að sækja inn í Tíbet, „til þess að frelsa þrjár fmilljónir Tíbetbúa undan oki heimsveldissinna.“ Frjettamaðurinn bætir við. að ; það hafi fylgt þessari tilkynn- ingu, að kínverska stjórnin hyggðist „treysta varnirnar á vestur-landamærum Kína.“ Með fregn þessari eru stað- festar fyrri fregnir, sem hafðar voru eftir útvarpi kommúnista. 'BÍÐA EFTIR STAÐFESTINGU Þrátt fyrir þetta, hafa ind- verskir embættismenn enn ekki fengist til að segja álit sitt á málinu. Segja þeir, að þeir hafi enn ekki fengið staðfestar fregn ir um raunverulega innrás. Þá' hafi og engar fregnir borist af árásum á „ystu varnarvirki í; Tíbet“, nje heldur um „and- ■stöðu af hálfu hersins í land- TRÚIR EKKI Leiðtogi samninganefndar þeirrar, sem í ráði hefur verið að hjeldi til Peking frá Tibet — og nú er stödd í Calcutta — neitaði og í dag að trúa innrás- .arfrjett kommúnistaútvarpsins. Taldi hann ólíklegt, að komm- únistar hefðu gripið til slíkrar .árásar, á meðan samningaum- ræðum væri ekki lokið (!!) Bunche próf, við Harvardháskóla CAMBRIDGE, 25. okt. — Dr. Ralph Bunche fyrrverandi sátta -semjari Sameinuðu þjóðanna í Palestínu, hefur verið skipaður prófessor við Harvardháskóla í Bandaríkjunum. Hann er fyrsti negrinn, sem fær prófessorsembætti við skól- ann. Bandarísk flugvjel verður fyrir skoi- hríð Kínakomma WASHINGTON, 25. okt. — Talsmaður bandaríska flugliers ins skýrði frá þ\ú hjer í dag, að bandarísk orustuflugvjel hefði í gær orðið fyrir skothríð úr kínverskum loftvarnarbyssum við landamæri Kóreu. í SJÓINN Flugvjelin hrapaði. í sjóinn, en einu af herskipum Samein- uðu þjóðanna tókst að bjarga flugmanni num. Talsmaðurinn bætti því við, að orustuflugvjelin hefði verið þrjár mílur frá kínversku landa mærunum, er skothríðin var hafin á hana. S.L. MÁNUDAG Þetta er í annað skipti, að skýrt er frá því, að "Kínverjar hafi skotið á bandaríska flug- vjel. Fregnir frá Kóreu hermdu í gær, að kommúnistárnir kín- versku hefðu s.l. mánudag skot- ið á tvær bandarískai’ flugvjel- ar. Hvorug varð þó fyrir skoti. Brefar efla flofa sinn LONDON, 25. okt. — Skýrt vrar tfrá því í breska þinginu í dag, að sex 'ný' flugvjelaskip mundu bætast í breska flotann fyrir 1954. — Reuter. Tillögur Rússa rsddar LAKE SUCCESS, 25. okt. — Stjórnmálanefnd allsherjar- þings S. Þ. byrjaði í dag á ný að ræða tillögur Rússa viðvíkj- andi atomorku og afvopnun. — Reuter. 300 þús. manna kínverskur her við landamæri Koreu Einkaskeyti til Mbl. frá Reutei HONG KONG, 25. október — Samkvæmt kínverskum heim ildum hjer í Hong Kong, hafa kommúnistar í Kína safnað sam- an 300 þúsund manna her við landamæri Manchuriu og Kóreu. Líklegt að Suður Kóreu menn komist í dag að Eandamærum IVIanchuriu Lótlaus sókn S. Þ. ó öllum vígstöðvum Enn fjölgar föngum lýðræðisherjanna Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTB. TOKYO, 25. október — Einn af talsmönnum áttunda hersins bandaríska í Kóreu skýrði frjettamönnum svo frá i kvöld, a<S búast mætti við því, að hersveitir frá Suður-Kóreu kæmust at? landamærum Manchuriu á morgun (fimmtudag). Samkvæmfc síðustu fregnum frá vígstöðvunum, átti eitt af herfylkjum Suður Kóreumanna aðeins um 29 kílómetra ófarna til landamæranna fyrir miðjum skaganum. Þetta herfylki var þá komið til bæjar- ins Kojang. Neðri málstofan breska í nýjum fundarsal LONDON, 25. okt. — Hinn nýi fundarsalur neðri deildar breska þingsins verður tekinn í notkun á morgun, fimmtudag. Gamli fundarsalurinn eyði- lagðist i þýskri loftárás. Herfoginn af Edinborg VALETTA, 25. okt. — Hertog- inn af Edinborg kom til Malta í dag, eftir að hafa verið við- staddur skírn dóttur sinnar í Englandi. — Reuter. VIGGIRÐINGAR Það fylgir fregn þessari,: aS það sje óráðin gáta, hvort Kína- kommar ætli að nota her þenn- an til sóknar eða varriar. Fullyrt er, að unnið hafi ver- ið að því af kappi undanfarnar þrjár vikur að efla víggirðing- ar Kínverja við Iandamærin. Ný hegningarlöggjöf PRAG, 25. okt. — Tjekkneska þingið byrjaði í dag að ræða nýja hegningarlöggjöf sem vera á „í samræmi við“ þær breyt- ingar, sem gerðar hafa verið á framleiðslu og atvinnuháttum í landinu. — Reuter. Sáttafillagan miðar við núverandi gengi ÁSTÆÐA er til þess að taka það enn einu sinni fram að kaup og kjör togarasjómanna samkvæmt hinni nýju sáttatillögu eru miðuð við núverandi gengi. Ennfremur að hvíldartími sjómanna lengist samkvæmt kröfu þeirra á öllum saltfisksveiðum, hvort sem afia er landað í ís- lenskri eða erleridri höfn. Hinn lengdi hvíldartími nær einnig til ísfiskveiða þegar landað er hjcrlendis. Gildir hann því á öllum veiðum nema á ísfisksveiðum þegar siglt er með afla á erlendan markað. í grein á bls. 2 í blaöinu í dag er rætt nánar um sátta- tillöguna og lausn togaradeilunnar. Þarna fóru skriðdrekar S. Þ, yfir ENGIN ANDSTAÐA Talsmaðurinn sagði frjetta- mönnunum, að herfylkið virtist ekki'eiga neinni mótspyrnu að mæta, og ef það hjeldi jafrx hratt yfir og síðustu dagana, mundi það komast að Man- churiulandamærunum síðdegisi á fimmtudag. Hjer í Tokyo var og skýrt frá því í dag, að liersveitir Breta | og Bandaríkjamanna í Kórett hefðu fengið fyrirmæli um að hætta ekki sókn sinni fyrr ea, kínversku landamærunum væri náð. FJÖLDI FANGA TEKINN Það fylgdi fregn þessari, að herir Sameinuðu þjóðanna væru enn í látlausri sókn á öll- um vígstöðvum, að mikill fjöldí- fanga hefði verið tekinn síð- asta sólarhringinn og að þeip hefðu haft meðferðis mikið af vopnum. FRANSKIR HERMENN í dag.voru bresku hersveit- irnar, sem sækja norður Kóreu- skagann, komnar um 15 mílur norður yfir Chongchonfljót, en yfir það fóru þær í gær. Fyrstu frönsku hermennirnir sem sendir eru til Kóreu, lögðu af stað frá Marseilles í dag. STRÍÐINU í Kóreu er að ljúka. Hersveitir Sameinuðu þjóð- anna eiga örfáa kílómetra ófarna að landamærum Manchuriu. Myndin sýnir Suður-Kóreumenn, sem eru að ganga frá stíflu, sem skriðdrekar lýðveldishersins síðan lijeldu yfir á ferð sinni norður á bóginn. Kanadamenn senda Hollendingum vopn OTTAWA, 25. okt. — Kanad- iska stjórnin hefur samþykkt að send.a Hollendingum þegar í stað nóg vopn handa einu fót- gönguliðsherfylki. í Haag var skýrt frá því, að hollensku stjórnarvöldin hefðu þegist boð Kanadrimanna um að vopna og úlbúa að öllu eitt hollenskt herfylki. — Reuter. Rannsóknir LONDON, 25. okt. — Breska nýlendumálaráðuneytið tilkynti í dag, að Bretar hefðu varið 1 % milljón punda til rannsókna í nýlendum sínum á síðasta fjár -hagsári. — Reuter. ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.