Morgunblaðið - 26.10.1950, Side 12
12
MORGUTSBLAÐIÐ
Fimtudagur 26. okt. 1950.
Fimmfugur í dag:
GuSntundur Þ.
Magnússðn kaupm.
Hafnarfirði
Guðmundur 1». Magnússon.
í DAG á Guömundur Þ. Magnús-
son kaupmdur í Hafnarfirði
fimmtugsafmæli. Hann er fædd
ur að Hvaleyri við Hafnarfjörð,
sonur hjónanna Guðbjargar Þor
kelsdóttur og Magnúsar Benja-
mínssonar bónda þar, og er því
Guðmundur af hinni svokölluðu
Bergsætt, sem mörgum er kunn.
Guðmundur ólst upp í heimahús
um ásamt bræðrum sínum, ekki
við iðjuleysi og bókalestur, en
l'yrst og fremst, við vinnu, og
munu þeir, er þ»kktu dugnað
Magnúsar á Hvaleyri geta gert
sjer í hugarlund að hann sæi
ógjarnan drengi sína sitja auð-
um höndum.
Þá er í'ram liðu stundir, fór
Guðmundur að leita atvinnu á
öðrum slóðum, og var meðal ann
ars til sjós um tímabil, en straks
og Guðmundur náði tilsettum
aldri, tók hann bifreiðastjórapróf
og byrjaði að vinna hjá bróður
sínum, B. M. Sæberg, við bif-
reiðaakstur, og munu margir
minnast Guðmundar með hlýj-
um hug fyrir. hjálpfýsi hans og
lipurð, öll þau ár sem hann
keyrði milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur.
Enginn vafi leikur á því að
Guðmundur ætlaði sjer ekki að
vera annara þjónn allt sitt líf,
enda byrjaði hann, stuttu efti: að
hafa eignast eigið hús, verslun
á Kirkjuvegi 16 í Hafnarfirði, en
eins og oftar, fyrst í smáum stíl,
en á fáum árum var verslun hans
orðin mjög umfangsmikil, og
rak hann jafnhliða þessu, slátur-
hús. Er nú þessi atvinnurekstur
Guðmundar einhver hinn stærsti
í Hafnarfirði, á þessu sviði. Um
nokkra ára skeið átti Guðmund-
ur góða bújörð austan fjalls, og
rak þar all-myndarlegan búskap,
en annir hans heima fyrir voru
orðnar það miklar, að þess voru
ekki lengur tök.
Guðmundur hefir á liðnum ár-
um verið f^umkvöðull ýmissa
framkvæmda í Hafnarfirði, bæði
til lands og sjávar, sem hjer er
ástæðulaust að telja upp, og
vafalaust munu margir Hafnfirð
ingar minnasí Guðmundar í dag
með þakklæti og vinarhug á þess
um tímamót.i m ævi hans.
Guðmundur er giftur Ragn
heiði Magnúsdóttur frá Stardal,
og á hún sem eigir.kona og ráð-
sett húsmóðir, sinn þátt í góðri
afkomu og ástríku heimilislífi. —
Þau hjón eiga fimm börn sem
flest eru en í heimahýsum, og
hafa þau ávalt með áhuga og
dugnaði gert sitt til þess að Ijetta
undir störfum foreldra sinna.
B.
■tllliiiMltiiMliiiiiim;.- «tHtMiiiiiii»iHiimiimitiHiiiiiiii
Heyþurkunaraðferð Hvanndals
ÓLAFUR J. HVANNDAL prent
myndasmíðameistari, boðaði
blaðamenn og útvarpsfrjettarit-
ara á Akureyri á fund sinn, og
sýndi þeim heyþurrkunarhjall,
sem hann hefur út'búið með það
fyrir augum, að þurrka í hey á
óþurrkasumrum. Einnig má
þurrka mó crg skán, að vorinu,
og jarðávexti, þegar þess þarf
með. Hvanndal st.ýrði ítarlega,
hvernig þurrkhjallurinn skyldi
notaður. Bygging hjallsins er
mjög einföld, og öll gerð hans
þannig, að auðvelt er að setja
hann upp og taka hann niður á
skammri stundu. Grind hjalls-
ins eru tvær hliðar tengdar sam
an með 4 langböndum, sem falla
í gróp. Önnur hlið hjallsins er
nokkru hærri, og er þar komið
fyrir renniskýlu, sem draga má
upp og niður, og myndar hall-
andi þak, er skýlir því, sem
þurrka skal, fyrir regni. Þegar
þurrviðri er, er skýlan dregin
upp. Grindur eru í hjallinum,
sem auðvelt er að taka út og
renna inn á þverlistum, og á
þær er heyið látið. Ein auka-
grind fylgir, og þegar snúa þarf
'falt og vandalaust að fara með.
j Ef að farið er vel með hjallana,
jþeir geymdir í húsi yfir þann
tíma, sem þeir eru ekki notaðir,
geta þeir enst i tugi ára. —
H. Vald.
heyinu, er einhver grindin dreg-
in út, og aukagrjndinni hvolft
yfir heyið, en síðan er grindun-
um snúið við, að verður þá sú
hliðin, er niður vissi, ofan á, og
er henni síðan rennt inn aftur,
og verður þannig fyrrí grindin
laus til að snúa heyinu á hinum
grindunum líka. Nóg er að hafa
eina aukagrind til snúnings heyi
'þó að um marga hjalla væri að
' ræða á einum stað. — Hvanndal
gerir ráð fyrir að hjallarnir
verði af mismunandi stærðum.
Hjallur sá, sem smíðaður hefur
Jverið, er þriggja metra langur
,og einn og hálfur á breidd, en
þessum hlutfóllum má breyta
‘eftir vild. Eins og áður er sagt,
er auðvelt að taka hjallana sund
ur, og raða efninu svo, að lítið
jfari fyrir því. Hægt er að koma
.10—12 hjöllum á einn flutninga
bíl, ef þyrfti að flytja þá á milli
staða. Tengja mætti saman, þrjá
(hjalla, og spara með því tvær
i hliðar. —• Þessi þurrkhjallagerð,
sem Hvanndal hefrfr fundið
upp, virðist hafa margt til síns
ágætis, eins og allt sem er ein-
Norðmenn veiddu
alls um % þús.
lunnur sífdar
FISKIFJELAGI Islands barst í
gær símskeyti frá fiskimála-
skrifstofunni í Bergen um síld-
veiði Norðmanna við Island í
sumar. Heildaraflinn var 96.405
uppsaltaðar tunnur. Helmingur
af því magni var hausskorin
saltsíld og nál. þriðjungur
kryddsíld. '
Veiðiskipin voru 211 að tölu.
166 veiddu með reknetjum en
38 með herpinót. 6 skip höfðu
bæði herpinót og reknet. Skip-
in fóru eina ferð hvert.
Sumarið 1949 gerðu Norð-
menn út 254 skip til síldveiðar
við ísland og öfluðu þau 223.
700 tunnur. 7 skip fóru þá 2
ferðir hvert.
Embæffi skaffdómara
verði lagf niður
í DAG var útbýtt á Alþingi
lagafrumvarpi þess efnis, að
embætti rannsóknardómara í
skattamálum, sem sett var á
stofn 1942, verði lagt niður. Er
þetta í samræmi við þá stefnu
ríkisstjórndrinnar að draga úr
kostnaði við ýmiss konar opin-
beran rekstur.
Rannsóknarstörf þau er skatt
dómara voru ætluð, eiga að
falla undir hjeraðsdómara.
EINAR ÁSMUNDSSON
hœstaréttarlögmaður
SKBIFSTOFA:
TJunuiSti II. — Si
Rússneski úfflufnings-
bíllinn fær slæma dóma
STOKKHÓLMUR: — Bíllinn,
sem Rússar tengja mestar sölu
vonir sínar við erlendis, hefir
fengið harða dóma í Rússlandi
að undanförnu. Hjer er um að
ræða Muscovite bifreiðategund
ina, sem talsvert hefir verið
seld úr landi.
Tveir rússneskir verkfraíðing
ar gagnrýndu bílinn fyrir
skömmu í iðnblaðinu „Automo
bile“. Bentu þeir þar á „vissa
smíðisgalla".
Hjer eru dæmi, tekin úr
greininni:
Gluggarnir vilja opnast af
sjálfu sjer, þegar bíllinn er á
ferð. — Framrúðan er ekki
nógu þjett; vatn kemst stund-
um inn með körmunum.
Það er nærri ógerningur að
komast að farangursgeymsl-
unm.
Rúðuþurkarinn bilar þrá-
faldlega — en þegar hann er í
gangi, er engin leið að stöðva
hannl
Geymsluhólfið í mælaborð-
inu er búið til úr pappa og
„fúnar fljótlega“. — Reuter.
Tíbef
Framh. af bls. 9.
Kína innlimar Tibet í Kír.a-
veldi, þrátt fyrir mótmæli. hinn
ar friðsömu þjóðar, þá er það
enn ein sönnun þess, að kom-
múnistar hvorki geta nje vilja
lifa í friði við nágranna sína,
hversu friðsöm þjóð, sem land-
ið byggir. Telji kommúnistar
sjer hag að því að ráðast á hlut
lausa þjóð, gera þeir það misk-
unarlaust.
Kommúnistar geta hvergi í
heiminum lifað í friði við ná-
granna sína og þessvegna eru
þeir stöðugt ógnun við friðsam-
ar þjóðir. Innrásin í Tibet er
því ekki eingöngu innanríkis-
mál Tibet-búa, heldur allra
þjöða heims, sem eiga yfir höfði
sjer innrás, eða uppreisn af
hendi kommúnista.
Afmæliskveðja fil Jóhannesar S. Kjarvafs
Heill sje þjer! íslands ofurmenni.
Þina eilífðar myndsýn eg tilbið og kenni
af skuggum og litum frá eylandsins enni,
sem ótvírætt votta þín listatök. . —
Þar meistarans djúpskyggni þjóð vor þekkir
í þungbúnum risleik, sem dregur og hlekkir
fastan vorn huga, ef hjartað ei blekkir,
hraundragnar færa að slíku rök.
Sex nú og hálfan tug þú telur,
teinrjettur, djarfur, hafnar, velur.
Þú risamyndir í muna þjer elur,
um mannvit og snilli heldur vörð.
Reykjavík 15. okt. 1950.
Kristján Röðuls.
Finnamir fengu géðar
móffökur í Hew York
FINNSKI karlakórinn, sem hjer
var á dögunum söng í Carnegie
Hall í New York s.l. sunnudag.
Var þar fullt hús og söng Finn- "
anna tekið hið besta.
New York blöðin birtu góða
dóma um kórinn og hældu hon-
um fyrir góðan söng.
i Auglýsendur |
athugið! f
| að ísafold og Vörður er vinsæl- |
1 asta og fjölbreyttasta blaðið í |
E sveitum landsins. ICemur út \
l einu sinni í viku — 16 síður. \
IIIIIIIIIIIIIMIIKIMIIIMIIIIIIIIIIIIMIIIIIIMIMMIMMIIBI
Eggert Claessen
§ Gústaf A. Sveinsson
I hæstarjett; jlögmenn
; Oddfellowhúsið. Sími 1171
Allskonar lögfræðistörf.
3
IIHIIMIIIIIIHItlllllMIIMIMIMIMMIIMllll**MMIIIIMMIMMIlH
l»IIHmillllflllMIIIII»IIMIIIIIIIIIIIIIIItllillMIIIIIMIIIIII,llll
; Borðstofu-1
I
í
t
! 6 stóla, borð og skápur, til sölu
| á Laufásvegi ÍSA, efsta hæð.
IIIIIIIIIMIMMIIIMIIIIII ...........
(lítill) óskast til kaups.
SÍLD & FÍSKUR
Bergstaðastræti 37.
nimnnimn
Markúe
£
Eftir Ed Ðodd
3.J.U
MitHiuiiiiiii*i>i!iiiiiiiMHiniinMHmiiima
nniimiiniKiHiM(lnnffiM<
1) — Gamli brögðótti Börk-
ur skaut niður fimm úr þess-
um hópi. Það tókst vel, finnst
þjer ekki?
2) En á meðan kemst Mjall-
hvít norður í gamla hreiður-
hólmann sinn.
3) Og eftir nokkra daga hef-
ur hún lagað hreiðrið og verpt
fimm eggjum, sem hún elskar
mikið.
4) Jeg verð að bera bátinn
yfir þetta eiði milli vatnanna.
Næsta vatn heitir Bátsenda-
vatn.