Morgunblaðið - 20.12.1951, Page 1
24 síður
38. árgangor.
295. tbl. — Fimmtudagur 20. desember 1951.
Prentsmiðja Margunblaðsins. |
Rætt við A. Harrimait
á leikvíknrfSugvelIi
TYLFTARNEFNEHN HEFUR LOKID STÖRFUM
Á FJÓRÐA TÍMANUM í gærdag kom til Keflavíkurflugvallar með
farþegaflugvél Bandaríkjahers, Averill Harriman, yfirmaður hinnar
gagnkvæmu öryggisáætlunar er leysa á Marshallhjálpina af hólmi
og formaður tylftarnefndarinnar, sem að undanförnu hefur setið
á rökstólum í París og fjallað um efnahagsvandamál og skiptingu
kostnaðar vegna vígbúnaðar og öryggis aðildarríkja Atlantshafs-
bandalagsins. Harriman og kona hans voru á leið til Bandaríkjanna
frá París og höfðu aðeins stutta viðdvöl á Keflavíkurflugvelli. í
fylgd með þeim var m.a. McNarney hershöfðingi.
12 MANNA NEFNDIN
LAUK STÖRFUM
Haukur Claessen, flugvallar-
stjóri og yfirmaður varnarliðsins
McGaw hershöfðingi tóku á móti
Harriman á flugvellinum.
Tíðindamaður Morgunblaðsins
náði tali af honum rétt í þann
mund, er flugvél hans var að
leggja af stað. Sagðist honum
svo frá, að tylftarnefndin hefði
nú lokið störfum að sinni og
gengið frá skýrslu sinni, sem
send yrði ríkisstjórnum aðildar-
ríkja Atlantshafsbandalagsins og
Atlantshafsráðinu, sem kemur
næst saman til- funda í Lissabon
hin 2. febrúar n.k. Sagði hann að
nefndin hefði kynnt’ sér eftir
föngum styrk og getu hvers ein-
Staks ríkis og hvað þau væru
megnug að leggja fram til sam-
eiginlegra varna og Öryggis. Taldi
hann að Atlantshafsþjóðirnar
settu að efla samvinnu sín á milli
eftir fremsta megni, þá gætu þær
vænzt þess að viðleitni þeirra
bæri árangur.
KYNNTIST PÉTRI
BENEDIKTSSYNI í MOSKVU
Stjórnarfundui1
um Parísarför
LUNDÚNUM, 19. des. — Eftir
komu sína til Lúndúna frá París
hélt Churchill fund með ráðu-
neyti sínu og stóð hann í 2 stund
ir samfleytt. Talið er að þeir
Churchill og Eden hafi þar skýrt
frá árangrinum af viðræðum sín-
um við Pleven forsætisráðherra
og Schuman utanríkisráðherra.
Fróðir menn álíta í Lundún-
um, að hið hátíðlega loforð Churc
hills um að Bretar muni hafa
eins náið samband við Evrópu-
herinn og framast sé unnt, sé
mjög til þess fallið að greiða
fyrir viðræðum og samkomulagi
með þeim Truman og Churchill,
er þeir hittast í Washington eft-
ir áramótin. Bandaríkjamenn
leggja, sem kunnugt er, mikla á-
herzlu á, að hugmyndinni um
Evrópuher verði hrundið í fram-
kvæmd hið fyrsta.
■—Reuter-NTB.
- *-----—*
Averill Harriman á Keflavíkur-
fiugvelli. (Ljósm. Mbl. Ó. K. M.).
Samgöngur siöðvasi
í Yesiur-Berlín
BERLÍN, 19. des. — Um 20 þús.
starfsmenn við sporvagna, strætis
vagna og neðanjarðarbrautir Vest
ur-Berlínar hafa boðað til verk-
falls á fimmtudagsmorguninn.
Krefjast þeir hærri launa.
Staðið hafa samningar dögum
saman, en ekkert hefir gengið.
Þetta verður alvarlegasta umferð-
arstöðvun, síðan farbann Rúss-
anna.
Enn hefir verið kallaður saman
fundur til viðræðna á morgun, og
verður allt gert, sem unnt er til
að deilan verði leyst fyrir jólin.
Handritin eru ísienzk-
ir þjóðargripir
KAUPMANNAHÖFN, 18. des. — í forystugrein í Berlingske Tid-
ende er álit handritanefndarinnar dönsku og handritamálið gert
að umtalsefni. Segir í greininni, að álitið sé merkilegt mjög, kunn-
áttuhöndum sé farið um málið og það vel reifað.
«------------------
Harriman minntist á það að
hann hef ði átt nána samvinnu við
Pétur Benediktsson sendiherra í
sambandi við starf sitt, en sendi-
herranum hefði hann raunar
kynnzt áður, er hann var stadd-
ur í Moskvu fyrir allmörgum ár-
um.
HEFUR KOMIÐ IIÉR ÁÐUR
Að lokum sagði Harriman að
hann hefði komið á Keflavíkur-
flugvöll nokkrum sinnum að und-
anförnu vegna starfs síns í Ev-
róþu og Asíu, en hann var sem
kunnugt er sérstakur sendimaður
Trumans forseta og vann um
skeið að sáttatilraunum í olíu-
deilunni.
Kvaðst hann jafnan hafa verið
svo óheppinn, að koma hér að
kvöldlagi eða næturþeli, þannig
að hann hefði lítið eða ekkert af
íslandi séð. Hins vegar hefði
hann heyrt mikið um ísiand m.a.
frá einkaritara sínum ungfrú
Hildigarde Blanken, en hún
starfaði um 2 ára skeið við sendi-
ráð Bandaríkjanna á íslandi.
Harriman færði varnarliðinu
og íslendingum jóla- og árnað-
aróskir. Kvaðst hann vera á leið
til heimilis síns í Washington,
þar sem hann hyggst að dvelja
um hátíðarnar eftir 2 mánaða
fjarveru í Evrópu.
Enginn stuðningur veittur
LONDON: — Ólympíunefnd
Nýja-Sjálands hefur lýst yfir að
hún muni ekki viðurkenna skíða-
'menn þá, sem fara til Oslóar, sem
' þátttakendur Nýja-Sjálands,
vegna þess að þeir eru ekki nógu
góðir. . ____
GREINARGOTT
NEFNDARÁLIT
„í fyrsta skipti gefst nú leik-
mönnum kostur á að sjá, um hvað
er að ræða. Ef álitið hefði legið
fyrir, þegar er málinu var fyrst
hreyft opinberlega, þá hefðum
við sannarlega losnað við mikinn
lítt rökstuddan vaðal þeirra
Dana, sem hafa mælt með, að
handritunum yrði skilað skilyrð-
Islaust.
MÁLIÐ EKKI ÚTKLJÁÐ
I FLÝTI
En lausn þessa máls er enn
langt undan.
Háskólinn verður að sam-
þykkja afhendinguna, og er þó
hæpið, að háskólinn geri það. —
Auk þess þarfnast tillaga nefnd-
arinnar, um að hluta handrit-
anna verði skilað, nánari skýr-
greiningar. Þá kemur og til kasta
íslendinga, hvort þeir fallast á
skilyrðin, sem sett eru, að lausn
málsins sé endanleg, svo að engar
nýjar kröfur verði nokkru sinni
fram bornar seinna.“
LAGALEGI RÉTTURINN
ER DANA
Socialdemokraten segir svo um
málið í dag: „Handritanefndin
Framh. á bls. 12.
Gröfin fundin
RÓMABORG, 19. des.: — Forn-
leifafræðingar í Vatikanríkinu í
Rómaborg afhentu Píusi páfa í
dag álitsgerð, þar sem þeir telja
vísindalega sannað að gröf Pét-
urs postula, sé undir háaltari
Péturskirkjunnar.
Fræðimennirnir hafa unnið að
þessum rannsóknum um margra
ára skeið og var skýrslu þeirra
beðið með mikilli eftirvæntingu,
ekki sízt meðal kaþólskra manna.
— NTB-Reuter.
Engin miskunn
PARÍS 19. des. — Vishinsky hélt
ræðu í Stjórnmálanefndinni í dag
og gaf þar í skyn, að bandarísku j
flugmönnunum, sem neyddir
voru til að lenda í Ungverjalandi
mundi ekki verða hlíft og jafn-
vel leiddir fyrir herrétt. Hélt
hann því fram að flugvélin hefði
verið í njósnaferð. Ennfremur
sagði hann, að svo mundi séð
fyrir þessum málum, að banda-
rískir flugmenn misstu alla
löngun til að hætta sér í slíkar
ferðir. — NTB-Reuter.
r >^|
Urskurður Haag-dómsfðlsins
fiefir áhrif víða um heim
'M
iafnvei Brefar munu rýmka landhelgi sína
NEW YORK, 19. des.: — Úrskurður alþjóðadómsins í landhelgis*
þrætu Norðmanna og Breta hefir vakið mikla athygli í Bandaríkj-
unum. Hefir utanríkisráðuneytið látið sendiherra Bandaríkjanna í
Haag senda sérstakan sendiboða loftleiðis með dómskjölin.
^DEILT UM OLÍURÉTTINDI
MESTA SÍLDARÁRIÐ
í NORDUR-NOREGI
OSLÓ, 19. des.: — Talið er að
þetta ár verði metár í sögu
síldveiða við Norður-Noreg.
Vikuna 11.—18. desember s.l.
veiddust samtals 53990 hl. og
gizkað er á að heildarsíldar-
magn ársins á þessum slóðum
verði 2,1 milljón hl., en verð-
mæti þess magns er um 20,
200,000 n. kr. — NTB.
Kóreufangar senda
jólakveðjur
TÓDÍÓ, 19. des.: — Enginn ár-
angur náðist á fundunum í Pan-
munjom í dag. Samningamenn
kommúnista lýstu óánægju sinni
yfir því, að fangalisti S.Þ. hefði
verið ófullkominn, þar sem ekki
hefði verið getið mannvirðinga
og herdeilda við nöfn hermann-
anna. Fulltrúar S.Þ. hafa heitið,
að gera nýjan lista fyrir jól.
Kyrrt var að mestu á vígStöðv-
unum í dag. Eina fréttin er
greindi frá árekstrum var frá
vestur-vígstöðvunum, þar sem
800 kínverskiru hermenn gerðu
misheppnaða árás. Bandarískar
flugvélar gerðu árangursríkar
árásir á olíugeyma í Norður-
Kóreu.
Kínverskir blaðamenn hafa
sagt frá því, að brezkum og
bandarískum herföngum í Norð-
ur-Kóreu verði leyft að senda
jólakveðjur ’heim til sín úr fanga-
búðunum. — NTB-Reuter.
Ný afvopnunaritefnd
PARÍS, 19. des.: — Stjórnmála-
nefnd S.Þ. samþykkti í dag að
setja á stofn nýja afvopnunar-
nefnd, skipaða 12 mönnum. — í
nefndinni eiga sæti fulltrúar
þeirra landa, sem eru í Öryggis-
ráðinu og fulltrúi frá Kanada að
auki.
Nefndin á að leitast við að
finna sameiginlegan grundvöll
undir allsherjar takmörkun og
eftirlit með kjarnorkuvopnum og
öðrum vígbúnaði. Er henni ætlað
að skila skýrslu til S.Þ. fyrir 1.
júní n.k. — NTB-Reuter.
Þykir ekki ólíklegt, að þessi
dómur geti haft áhrif á hina
langvarandi deilu milli stjórnar-
innar í Washington og ríkjanna
Texas og Kaliforníu um eignar-.
rétt að hinum miklu olíulindum,
sem eru neðan sjávar úti fyrir,
ströndinni.
DÓMSINS BEÐIÐ Á ÍSLANDI
Fregnritari New York Times í
Haag telur, að úrslitin muni víða
hafa áhrif, og þá fyrst og fremst
á íslandi, þar sem frestað hafi
verið að nokkru rýmkun land-
helginnar, unz dómur gengi í
Haag.
I
BRETAR MUNU RYMKA
LANDHELGINA
Þá er og ekki ólíklegt, að Bret-
ar færi sér sjálfir dóminn í nyt
með því að færa út landhelgi
sína úti fyrir ströndum Skot-
lands, segir fregnritari New Yorl?
Times.
45 : 6 J
PARÍS, 19. des.: — Stjórnmála-
nefndin samþykkti í dag tillög-
una um að skipa 5 manna rann-
sóknarnefnd til að kynna sér
möguleikana til frjálsra kosninga
í öllu Þýzkalandi, skipaða full-
trúum hlutlausra þjóða, þar á
meðal frá íslandi.
45 fulltrúar greiddu atkvæði
með tillögunni, 6 voru á móti og
8 greiddu ekki atkvæði.
Austur-þýzka stjórnin hefur
þegar lýst því yfir, að slík nefnd
fái ekki landvistarleyfi í Austur-
Þýzkalandi til að gera athuganir
sínar. i
Pólski fulltrúinn hefur enn-
fremur lýst því yfir að Pólland
muni ekki skipa fulltrúa í nefnd-
ina eins og ráð var fyrir gert í
tillögu brezka fulltrúans.
Nefndin á að skila skýrslu
sinni um málið fyrir 1. sept. 1952,
ef henni tekst að gegna hlutverki
sínu, en það þykir ekki sennilegt
nú eftir yfirlýsingar Austur-
Þjóðverja og Pólverja.
— NTB-Reuter. <
Hákarl drepur kappa
MELBOURNE. Úti fyrir strönd-
um Ástralíu varð meistari lands-
ins í sæskíðaíþróttinni hákarli að
bráð.
ÞEIR, sem ætla að fá birtar stórar auglýsingar
í blaðinu á morgun, eru vinsamlega beðnir að
skila handritum fyrir hádegi í dag, ef mögulegt er.
ATH. — Síðasta blað fyrir jól
KEMUR ÚT A SUNNUDAG