Morgunblaðið - 03.01.1952, Síða 1
39. árgangur.
1. tbl. — Fimmtudagur 3. janúar 1952.
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Stór fólaböggull
Amerísk stoínun hefur valið sér það göfuga hlutvcrk að annast og ala upp munaðarlaus börn víðs-
vegar að úr heiminum, sem misst hafa forcidra súia af vöMum heimssiyrjaldarinnar. Á jólaföstunni
eru amerísk börn látin útbúa jólagjafir handa jafnöldium sínum handan við hafíð, rem búa við
þrengri kost. Myndin hér að ofan er tebin þegar verið ér að opna eina slíka jólasendingu á barna-
hæli í Engiandi.
Rætt m alþjóðaher og refsi-
slprlr í StjóriniiáfanefiMÍmiii
VEshÍKsky tekisr tiS máis í dag
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
PARÍS, 2. janúar: — Fuiltrúar Bretlands, Bandaríkjanna og Ástr-
alíu tóku til máls í dag á fyrsta fundi Stjórnmálanefndarinnar eftir
jólaleyfið og hvöttu nefndarmenn til fylgis við hina nýju öryggis-
áætiun, sem fram er komin frá Vesturveldunum. Vishinsky tekur
til máls í ncfndinni á fimmtudag og er búizt við að hann veitist
að. hinum nýju tillögum þar sem hann hefur þegar gefið í skyn,
að hann telji þær fara í þága við sáttmála Sameinuðu þjóðanna
-------------------------------^
Trtim.an vill
ræðís Asíumál
LUNDÚNUM og Washington,
2. jan. — Upplýst hefur verið
í Washhigton, að Truman for-
seti hafi óskað þess, að á fundi
þeirra Churchills yrði rædd
afstaðan til kínversku ríkj-
anna tveggja og viðurkeming
Japans á stjórn Chiang Kai
Sheks. Kemur það mönnum á
óvart að forseíinn skuli vilja
ræða þetta viðkvæma deiUi-
mál Breta og Eandaríkjanna
nú, en Bretar hafa sem kunn-
ugt er þegar viðurkennt Pek-
ingstjárnma, sem lögmæta
stjórn Kína.
í Lundúnum var talið að
Churchill hefði í hyggju að
mótmæla við forsetann, að
Japanir viðurkenndu stjórn
Chiang Kai Sheks á Formósu.
Reuter-NTB.
ALÞJÓDA IIER
í tillögunum er gert ráð fyr-
ir að aðildarríki að sáttmála
Sameimiðu þjóðanna hafi tll
taks hersveitsr, sem myndi
eins konar alþ.ióðaher, sem
beitt yrði gegn árásarríkjum.
Ennfremur er gert ráð fyrir
öðrum tegundum refsiaðgcrða
á sviði efnahags og síjórnmála
til að lama athafnamátt árás-
arríkis.
Sérstök nefnd hefur unnið að
undirbúningi þessa máls og segir
í bráðabirgða skýrsu hennar, að
ef til vill eigi yfirstjórn þessara
mála að ve'ra i höndum Allsherj-
arþingsins, en ekki Öryggisráðs-
ins, þar sem með neitnuarvald-
inu sé unt að hindra slíkar ráð-
stafanir gegn árásarríki.
AFSTAÐA SVÍA
Sænski fulltrúinn lýsti því
vfir, að land hans gæti ekki tek-
ið þátt í áætlun, sem gæti leitt
Svía til þátttöku í heimsstyrjöld.
Gagnrýndi hann nokkuð íillög-
urnar og áskildi hann sér rétt
til að taka ákvörðun með eða
móti á síðasta stigi málsins.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
PANMUNJOM, 2. janúar: — Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna í Pan-
‘munjcm hafa lagt fram nýjar tillögur um fangaskipti milli stríðs-
aðila. í tillögunum er gert ráð fyrir að skiptunum verði hagað
þannig að maður komi fyrir mann og ennfremur gert ráð fyrir
■skiptum á óbreyttum borgurum, bæði þeim, sem í fangelsum eru
báðum megin víglínunnar og öðrum, sem kjósa að hverfa til heim-
kynna sinna.
í ATHUGUN ®----------------------------
Kommúnistar hafa nú tillögurn
ar tii athugunar, en talsmaður
þeirra í Panmunjom sagði í dag,
að í þeim væru atriði, sem þeir
gætU'ekki fallizt á af stjórnmála-
legum ástæðum.
RAUÐI KROSSINN
Gert er ráð fyrir að þeir fang-
ar, sem ekki kjósa að hverfa heim
verði einnig látnir lausir, en
þeim bannað að bera vopn í fram
tíðinni.Fulltrúar Alþjóða rauða
krossins eiga að kynna sér vilja
hvers einstaks fanea varðandi
framtíðardvalarstað hans.
Enginn árangur náðist í dag
nefnd þeirri, sem ræðir eftirlit
sambandi við vonnahlésskilmál-
ana og cndursmíði flugvalla. —
Enqin veruleg átök hafa átt sér
stað á vígstöðvunum síðastliðinn
sólarhring.
ISMAILIA, 2. jan. — Allt var
með kyrrum kjörum á Súez-eiði síð
astliðinn sólarhring.
Aðstoðarforstjóri Alþ.ióða vinnn
málasto’fnunarinnar í Genf er nú
kominn til Súez til þess að rann-
saka hvort kærur Egypta á hend-
ur Bretum um nauðungarvinnu við
Súez-skurð, hafi við rök að styðj-
#st. —Reutcr-NTB.
BONN, 2. jan. — Upplýsinga-
blað eitt um hermál, sem gef-
ið er út í Þýzkalandi, sagði
frá því fyrir skömmu, að
Bandaríkjamenn væru að
smíða „fljótandi eyju“, sem
komið yrði fyrir úti á miðju
Atlantshafi. Á hún að vera
þannig úr garði gerð, að flug-
vélar og skip geti haft þar
viðstöðu. Segir blaðið að eyjan
verði tilbúin í sumar.
Frá 1. þ. m. kostar Morgun-
blaðið kr. 18.00 á mánuði.
□-
-□
Gráðug
ÓSLÓARBORG — I Glomma við
Sarpsborg veiddist nýlega 98 sm
löng gedda, en í maga hennar var
önnur 63 sm löng, sem hún hafði
gleypt. Var hún ný og óskemmd.
Fléllameiin þyrpast snður fyrir víglínuna.
WASHINGTON 29. des. — Amerískur herprestur, Roy H. Parker,
hershöfðingi, er nýkominn úr mánaðar ferðalagi um Japan og
Suður-Kóreu. Sagði hann fréttamönnum hér á fimmtudag, að
mikil brögð væru að því í fangabúðum Sameinuðu þjóðanna í
Suður-Kóreu, að stríðsfangar væru ófúsir að hverfa aftur norður
fyrir víglínuna. Mikill fjöldi þeirra hefur beinlínis farið fram á
það við herstjórn S. Þ. að þeir yrðu ekki sendir til Noiður-Kóreu
eða Kína, ef til fangaskipta kæmi.
MOSKVU, 2. jan.: — Um áramót-
in lézt hér í borg Maxim Litvin-
ov, fyrrverandi utanríkisráðherra
Sovét-Rússlands og var hann
greftraður með viðhöfn í dag að
viðstöddu fjölmenni. Varð hann
75 ára gamall.
Litvinov var um skeið sendi-
herra Rússa í Lundúnum og síðar
í Washington. Árið 1929 var hann
skipaður utanríkisráðherra og
gegndi því starfi til ársins 1939
er Molotov tók við. Stefna hans
í utanríkismálum þótti mótast af
viðleitni til nánari samvinnu við
þjóðir Vestur-Evrópu.
FÁ SÖMU MESFER3
Roy sagði ennfremur, að sjúk-
ir og særðir fangar fengju ná-
kvæmlega sömu meðferð og að-
hlynningu og hermern Samein-
| uðu þjóðanr.a. Aðbúnaður
| þeirra væri nú betri en þeir
jhefðu nokkru sinni átt að venjast
fyrr á ævi sinni og margir þeirra
hefðu rú aftur snúizt til krist-
innar trúar unöir handleiðslu
herpresta Sameinuðu þjóðanna.
j 170 ÞÚSUND FANGAR
í fangabúðum Sameinuðu þjóð
anna í Kóreu eru nú um 127
þúsund herfangar. Af þeim eru
106 þúsund Norður-Kóreumenn
'og um 20 þúsund kínverskir
kommúnistar, en auk þess sitja
í fangabúðum um 33 þúsund ó-
breyttir borgarar, fyrir ýmis af-
• brot.
ÓBREYTTÍR BORGARAR
FLÝJA TIL SUÐURS
Norður-kóreskir bændur leita
nú í stórhópum suður fyrir víg-
línuna frá býlum sínum þar sem
ættir þeirra hafa búið um alda-
raðir.
Á einum stað hafa að undan-
förnu yfir eitt hundrað flótta-
menn brotizt suður fyrir víglín-
una að meðaltali í viku hverri.
Menn þessir óttast hungursneyð
meðal óbreyttra borgara í Norð-
ur-Kóreu, þar sem kommúnistar
hafa ekki ætlað þeim nægar
birgðir korns til þess að þeir og
fjölskyldur þeirva gætu dregið
fram lífið yfir veturinn. Hafa þeir
haft spurnir af lífsafkomu fólks í
Suður-Kóreu, þar sem Samein-
uðu þjóðirnar og hjálparstofnan-
ir þeirra sjá nauðstöddum borg-
urum farborða.
mmm í máli
NEW YORK, 2. jan. — í ára-
mótahefti bandaríska vikublaðsinsí
Saturday Evening Post birtist
grein um olíumálið eftir Henry
Grady fyrrverandi sendiherra
Bandaríkjanna :í Persíu.
Grady er ekki myrkur í máli og
veitist harkalega að stefnu Breta
og Bandaríkjanna í Persíu. Tel-
ur hann að mistökum Breta einum
sé um að kenna hvernig komið er
málum í Persíu en einnig gagn-
rýnir hann harðlega framkomu
Bandaríkjanna í málinu, og segir
að heimurinn geti átt von á því
hvenær sem er að Persía hverfi
inn fyrir járntjaldið. Fyrir til-
verknað Breta og Bandaríkjanna
séu aðstæður hinar ákjósanlegustu
til kommúniskrar byltingar.
Grady ávítar stjórnvöld Banda-
ríkjanna fyrir að hafa ekki bent
Bretum á þær hættur, sem stefna
Ensk-íranska olíufélagsins hefði
liaft í för með sér. —Reuter-NTB.
Stórviðri á hafimi
LUNDÚNUM, 2. jan. — Eftir
nokkurra daga hlé geisar nú aft-
ur stórviðri víða í Vestur-Ev-
rópu og á hafinu suðvestur af
Bretlandseyjum.
Margar fregnir hafa borizt um
skipstöp og risaskip komast vart
leiðar sinnar fyrir stórsjó.
Um 500 sjómílur suðvestur af
írlandi er statt skipið Flying
Enterprise, en skipstjórinn er
einn um borð í skipinu og neitar
að yfirgefa það. — 5 dagar eru
liðnir síðan aðrir skipverjar forð-
uðu sér. Dráttarbátur er nú lagð-
ur af stað frá Englandi og mun
hann freista þess að draga skipið
■ til hafnar. —• Reuter-NTB.