Morgunblaðið - 03.01.1952, Qupperneq 11
f Fimmtudagur 3. janúar 1952
MORGUNBLAÐIÐ
11
Eiríkur Einarssore aiþm,
J-ANTI 21. nóv. s. 1. var Eiríkur ]
Einarsson jarðsunginn nð Stóra-
Núpi að viðstöddu fjölmenni.
Frestunum sagðist vel og öll at-
höfnin var virðuleg og saknaðar-
tilfinning fólksins mótuð áhrifa
frá þeim góða dreng, sem menn
kvöddu þarna í síðasta sinn. Mönn-
um varð allt í einu ennþá ijósara
en áður hvað þessi maður hafði
í raun og veru verið þeim, hvað
hann hafði viljað vel, hvað hann
hafði verið glöggskyggn á ieiðir
sem miðuðu til betri vegar, bættra
lífskjara, að hann hafði ýmsa góðu
komið fram, en oft minna og
seinna en þurft hefði vegna sljó-
Jeika og fylgisleysis þeirra sem
áttu að njóta. Það er nokkuð r.att:
„Að einginn veit hvað átt hefir
fyr en misst hefur“. Eiríkur var
dulur í skapi í eðli sínu og ekki
harðskeittur málafylgjumaður. 1
fari stjórnmálamanns veröur sú
skapgerð kölluð merki ónytjungs-
háttar. Hinir vinna meira.augna-
fcliksfyigi sem meira berast á, þó
minna vit standi bak við. Þanmg
hafa á öllum tímum margir vitr-
nstu og beztu mennirnir verið mis-
skildir eða vantreyst af samtíó
sinni. Ekki átti þetta að öllu við
tim Eirík. Hann hafði alltaf :iokk-
tið persónutraust, en þó ekki eins
og hann hafði verðleika til.
Eiríkur var einn þeirra tiltölu-
lcga fáu manna, sem gleymuu
sjálfum sér; setti sjálfan sig a
hakann með allar nauðþurftir
þessa lífs, sem hann gat án verið, I
til þess að aðrir gætu heldur notið
einhvers góðs fyrir hans spar- ,
Jieytni. Þetta gilti bæði gagnvart
einstaklingum og heildinni. Hann
unni sér ekki hvíldar þegar hon-
tm að réttu lagi bar að hvílast,
þegai' einhver var kominn og bað
hann ráða eða úrlausnar, sem oft
var og margháttað. Hann sást lítt
fyrir um sinn eigin hag, þegar
hann vissi vini í nauð, eða þegai'
þurfti að leggja góðu málefni lið.
Eiríkur var um allmörg ár bú-
settur hér á Selfossi, og tók þá
mikinn þátt í lífi og kjörum héraðs
fcúa. Hafði verið settur cýslumað-
IU' og kosinn þingmaður, og var
Jiú forstjóri útibús Landsbankans i
á Selfossi, sem þá var nýlega sett
þar. Hann var því allra manna
kunnugastur högum og háttum
fólksins. Það var ekki vandalaust
að sigla milli skers og báru í út-
lánastarfsemi útibúsins. Vita
nauðsyn bænda á bættum aðstæð-
nm, bættum húsakynnum og auk-
inni ræktun, og svo fjárþröngina,
og tekjurýrðina til að geta staðið
undir lánum. En fangaráð margra
Varð að biðja um lán, og Eiríkur
átti erfitt að neita. Sjálfsagt gekk
þetta svo langt sem það mátti, cn
ekki varð af því tjón, og krónurn-
ar sem þannig dreifðust báru góð-
an ávöxt mörgum einstaklingum
og héraðinu í heild.
Um þetta leyti kom hreyfing á
lim það að breyta rjómabúunum
j mjólkurbú til þess ef unnt væri
að fá nokkra aura fyrir undan- j
rennuna til viðbótar þeim sem
fengust fyrir fituna. Til þess
þurfti samlagsbú, helst nokkuð
stórt. En þá var sem oft vill verða I
aö sitt sýndist hverjum. Svo þó
jnargir hefðu trú á fyrirtækinu J
voru aðrir jafnákveðið með ótrú
á þvi. Töldu rjómabúin það bezta 1
sem þá væri að fá. Enginn maik-
aður væri til fyrir osta eðu. skyr, ]
og gömul crú að það væri vis von'
til hungurs og búsveltu að lácu alla J
mjólkina burtu af heimininu, Um !
þetta urðu mikil átök. t?vo íót þó
að ailir bændur í Hraui:gerðis- j
hreppi og alimargir úr öðrum nær-
sveitum ákváðu að koma upp Sam-
vinnu mjólkurbúi. Eiríkur Einars 1
son var éinróma valinn formaður
fyrirtækisins, en það var hreint
ekki vandalaust verk. SHk fram-1
kvæmd var algjörlega nýmæli og
jiývirki hér á landi. Örðugleikar
og mótspyrna á marga vegu:
1. Tvískifting bændanna cjálfra
cins og sagt Itefir verið.
2. Harðvitug mótstaða mjólk-
urframleiðenda eunnan Heiðar.
3. Algjört stofnfjárleysi.
Auk margvislegra vandamála
með fólk og flutninga.
Þarna leysti Eiríkur svo vel af
hendi vandasamt starf, að vafi er
hvort það varð betur gjört. T. d.
neytaði Landsbankinn algjörlega
um lán til fýrirtækisins. En á það
liöfðu bændur treyst, og buðu
tryggingu í framleiðslunni. En það
tók bankinn ckki gilt. Þetta var
beiskur biti að bíta í fyrst og
fremst fyrir þessa bændur, sem
voru á annað hundrað tilbúnir að
byrja, einnig fyrir bændur yfir-
leitt, sem sáu þarna skilning og
virðing bankastjórnarinnar á
bændastéttinni. Það var því ekki
annað sýnna en fyrirtækið strand-
aði á þessu, cn þá hitti Eiríkur
mann á götu í Reykjavík sem eft-
ir nokkurt samtal lánaði 30 þús.
krónur til bússtofnunarinnar. En
það var sú upphæð sem bankinn
neitaði að lána. Maður þessi var
Jón Ólafsson frá Sumarliðabæ,
síðar bankastjóri Otvegsbankans.
Hamingjan gaf að Jón hafði eng-
an halla af þessu drengskapar-
bragði.
Á þessum árum höfðu bændur
hér mörg mál og stór á prjónun-
um; það voru áveiturnar, mjólk-
urbúin og vegaþörfin um sveitirn-
ar m. a, til þess að geta komið
mjólkinni til búsins. Bændur kusu
því 5 manna nefnd, sem kölluð
var „Framkvæmdanefnd Flóa-
áveitunnar“. Formaður þessarar
nefndar var alla tíð sem hún starf-
aði, en það skifti árum, Eiríkur
Einarsson. Hann var aðalmaður-
inn ráðhollur og laginn að koma
málum fram. Á þeim tímum voru
þetta stórmál, alls ekki auðleyst,
þó nú séu þau komin heil í höfn,
og þykir sem þau hafi verið sjálf-
sögð. Nú eru á dagskrá ný mál
og viðfangsefni, þau voru einnig
Eiríks áhugamál. Eftir v.okkur ár
verða þau verkefni leyst og þykja
sem sjálfsagðir hlutir. En til að
sjá þessi verkefni og berjast fyr-
ir framgangi þeirra, þarf sjáandi
menn og djarfhuga, sem hafa
vilja og vit fyrir hina sem Htið
sjá og ekkert vilja á sig leggja,
eða fylgja blindandi pólitískuin
leiðtogum sínum.
Eiríkur var framámaður í
hverju nýju "ramfáramáli þessara
héraða alla sína tíð. Ást og tryggð
hans á sveit og sýslu hefir veiið
réttilega !ýst.
Hnittin orð og skarpleg tilsvör
lífguðu upp hverja stund cr við
höfðum með honum. Nú heyrist
að von sé kvæða eftir hann. Þau
viljum við ciga, cins og lausavísur
hans, og lifa þar með honum
áfram. Dagur Brynjúlfsson.
— Fíugnísaur!nn
Framh. af bls. 8
— En cf Rússarnir ráðast á
okkur?
— Þá er ekki um tvo kosti að
velja. Við verðum að verjast, en
þó í anda sáttmála Sameinuðu
þjóðanna og Atlantshafssáttmál
ans, sem gerour er í varnarskyni
ef til árásar skyldi koma.
Eg get með engu móti trúað
öðru en hver einasti hugsandi mað-
ur óski annars en friðar og ég
trúi því, að hægt sé að skapa
frið í heiminum, ef við getum
fengið forystumenn þjóðanna til
að skilja, að aðalatriðið er ekki
að fá úr því skorið, hver hafi
í'étt fyrir sér, heldur hvað sé hið
rétta.
Þetta er saga Joseph Goldyn.
Eins þeirra manna, sem missti
sjónina í stríðinu, en þeir voru
í Bandaríkjunum einum 16.000
að tölu.
Hann hcfur sæít sig við örlög
sín. Hann æskir aðeins, að vera
i'uIHrúi þeirra, sem rcynt liafa
hvað styrjöid er, og í'ulltrúi
þeirra, sem stríðið færði eilíft
myrkur.
Enska knattspyrnan
EFTIR 3 leiki á 5 dögum fer iðu-
lega svo að meiðsli taka stóran
toll af flestum liðanna ensku og
þegar stilla skal upp í 4. leikinn
á 8 dögum er oft ekki mikið eftir
af aðalliðinu. Það er því mikið
komið undir því að hafa sterkt
varalið, sem er reyndar óhjá-
j kvæmilegt, er einhver árángur ó
! að názt í deildarkeppninni. Ar-
senal er frægt fyrir sterka og
I reynda bakhjarla og í vetur hef-
i ur helmingur liðsins, sem vann
bikarinn fyrir hálfu öðru ári, leik
ið í varaliðinu. — I Sunderland
ltomu þessir leikmenn inn á laug
i ardag, því að báðir útherjarnir
| og miðframvörðurinn voru meidd
ir, og lengi vel tókst því að halda
í horfinu, en um miðjan síðari
hálfleik skoraði Sunderland og
Arsenal jafnaði svo til strax, en
I þá tók heimaliðið að lei'ka g!æsi-
lega og sérstaklega lék hægri inn
herjinn, Shackleton, sem mun
vera einn tekniskasti leikmaður
á Englandi núna, Arsenal-vörn-
ina grátt, skoraði tvisvar á þeim
15 mín., sem eftir voru, og lagði
upp þriðja tækifærið fyrir mið-
framherja, 4:1.
Burnley þakkaði einnig Midd-
lesbro, sem sigraði 5:0 í haust,
fyrir síðast, og það var aðeins
frammistöðu markv. Middlesbro,
að mörkin náðu ekki tvöfaldri
tölu. Á fyrsta stundarfjórðungi
skoraði miðfrh., Holden, 3 mörk,
en lokaúrslit urðu 7:1.
Manch. Utd náði íorustunni
með sigri yfir Bolton, 1:0, vegna
jafnteflis Portsmouth og Chelsea,
1:1, en á nýársdag fór Ports-
mouth aftur upp fyrir með því
að sigra Manch. City, 0:1. Sam-
tímis sigraði Burnley Preston,
0:1, en Sunderland og Wolver-
hampton skildu jöfn, 1:1.
Aðrir leikir í l.-deild:
HaRánatiletksmót Reykjgvíktir
Aston Villa 1 Manch. City 2
Charlton 3 — Fulham 0
Huddersfield 1 — Liverpool 2
Preston 1 - — West Bromwich 0
Stoke 3 — Derby 1
Tottenham 2 - - Newcastle 1
Wolverhampton 3 — Blackpool 0
Portsmouth 26 15 5 6 46:36 35
Manch. Utd 26 14 6 6 58:39 34
Arsenal 26 13 6 7 51:37 32
Preston 26 13 5 8 51:33 31
Newcastle 25 12 6 7 64:45 30
Bolton 25 12 6 7 41:39 30
Tottenham 26 13 '4 9 49:41 30
Liverpool 26 9 11 6 38:34 29
Charlton 27 12 5 10 49:46 29
Aston Villa 26 11 6 9 44:45 28
Manch. City 26 11 5 10 40:38 37
Wolves 25 9 8 8 56:42 26
Blackpool 28 10 6 10 42:43 26
Burnley 26 9 8 9 37:38 26
Derby 25 10 5 10 42:44 25
W. Bromw. 25 7 8 10 48:53 22
Sunderland 25 7 7 11 40:44 21
Chelsea 25 8 5 12 32:44 21
Stoke 26 8 3 15 33:58 19
Middlesbrö 24 6 4 14 37:57 16
Fulham 26 4 6 16 35:53 14
Huddersfld 26 4 5 17 30:56 13
2.-deild:
Brentford 1 — Cardiff 1
Bury 2 —- Notts. County 1
Coventry 1 — Blackburn 2
Doncaster 0 — Rotherham 3
Everton 2 — Lceds 0
Luton 1 — Leicester 2
Nottm. Forest 0 — Birmingham 1
Sheff. Utd 1 — Barnsley 2
Southampton 1 — Sheff. Wcdn 4
Swansea 2 — QPR 3
West Ham 2 — Hull 0
Á nýársdag sigraði Blackburn
QPR með 4:2, sem er 4. sigurinn
í 5 leikjum. Ennfremur nigraði
Bury Sheffield United, 1:0.
S.aðan er:
Sheff Wedn 26 13 6 7 61:42 32
Firmingh. 26 12 8 6 37:30 32
Cardiff 25 12 7 6 43:28 31
Rotherham 25 13 4 8 55:44 30
Blackburn ?6 0 3 JJ4 32:43 21
Coventry 25 8 4 13 36:51 20
QPR 25 5 9 11 33:54 19
Hull City 26 6 6 14 34:44 18
HANDKNTTLEIKSMÓT Reykja
víkur í öllum flokkum nema meist-
araflokki karla fór fram að Há-
logalandi dagana 20.—20. nóvem-
ber s.l. í þessum síðari hluta
mótsins tóku þátt samtals 23. flokk
ar frá 7. íþróttafélögum bæjarins.
Þátttakan í mótinu var lík og
undanfarin ár, sem félögin sendu
að vísu færri flokka en vanalega
t. d. sendi íþróttafélag Reykja-
víkur aðeins 1 flokk. Knattspyrnu
félagið Þróttur ■ sendi nú í fyrsta
sinn flokka til keppni og þó sigr-
arnir hafi ekki orðið stórir að
þessu sinni, mega Þróttarar vera
ánægðir með frammistöðu sinna
, manna, sem án efa koma til að
standa keppinautum sínum á
sporði áður en varir.
I Þar sem of langt mál ýrði að
lýsa jafn stórri keppni sem þess-
, ari í smáatriðum, verður hér stikl-
að á stóru og reynt að fá sem
bezt heildaryfirlit yfir flokkana,
sem fram komu á mótinu og
frammistöðu þeirra.
KVENNAFLOKKAR
I meistaraflokki kvenna komu
fram 4 lið frá Fram, Ármanni, K.
R. og Val. Keppnin í þessum flokki
var ekki eins skemmtileg og oft
áður, til þess var styrkleikamunur
liðanna of mikill og leikirnir sjálf-
ir misjafnir. Yfirleitt var lítið
um góð markskot í leikjum allra
liðaanna, en þó sást þeim þó
bregða fyi'ir, en aðeins hjá liðum
Fram og Ármanns. Svo virðist,
sem öll liðin vanti skyttur, eða
þá að stúlkurnar eru ragari við
að skjóta en áður var og ættu
þjálfarar að taka þetta atriði til
athugunar. Fram stúlkurnar voru
tvímælalaust sterkasti flokkurinn
sem fram kom á mótinu, þó að
leikir þeirra væru nokkuð mis-
jafnir, t. d. fyrri hálfleikur við
Val, þar sem hinar ungu Vals-
stúlkur sýndu tvímælalaust betri
og ákveðnari leik. í síðari hálfleik
tókst Framstúlkunum að ná góð-
um og öruggum samleik og sýna
hvað í þeim býr. Beztarr í Fram-
liðinu voru þær Gyða, Olly '/g
Anny.
j Ármannsliðið lék vel saman, <:n
of mikið var lagt upp úr árar.g-
urslausum langskotum á murk
andstæðinganna í stað þess, að
freista þess, að leika nær mark-
i inu og skapa þannig betra og cr-
1 uggara færi á markið. Beztar í
! Ármannsliðinu voru Ragnheiður,
Beddý og Sigríður, sem ætti að
reyna að skjóta meira en hún
gerir.
I.ið K. R. og Vals eru bæði í
framför, en vantar bæði skyttur,
svo tilfinnanlega, að leikir þeirra
gefa ekki rétta hugmynd um styrk
leika þeirra.
1 2. flokki kvenna kepptu 4. lið
frá Ármanni, Fram, Val og Þrótti,
þátttakan í þesum flokki var nú
meiri en undanfarin ár og er það
ánægjuefni. Ármannsliðið bar sig-
ur úr býtum þriðja árið í röð og
vann þar með til eignar bikar, sem
Bókaverzl. Lárusar Blöndal hafði
gefið. Ármannsliðið vann alla sína
leiki og var greinilega einu sæti
fyrir ofan hin liðin. P’ramliðið
varð næst með 4. stig, Valur og
Þróttur fengu sitt stigið hvort.
I. FL. KARLA
1 fyrsta flokki karla tóku aðeins
þrjú lið þátt í keppninni, og er það
mun minni þátttaka en undanfar-
Skaut "öður : inn.
ÞRIGGJA barnr, faðir í borginni
Wallingford í U.S.A. var skotinn
til bana af syni sínum 18 ára er
hann kom heim til sín frá vinnu
á aðfangadag. Hafði sonurinn
reiðst föður sínum fyrir að koma
of seint að matborðinu á jólun-
um.
in ár og er leitt til þess að vita,
að fleiri félög skuli ekki hafa
sent lið til keppni í þessum flokki,
eða er hér um afturkipp að ræða,
þannig að félögin eiga ekki mann-
skap til að tefla fram?
Liðin, sem fram komu á mótinu
voru frá Val, Ármanni og Þrótti.
Ármannsliðið bar sigur úr býtum
og fekk 3 stig. Valur fékk einnig
3 stig, en Ármanh hafði betra
hlutfall milli settra og fenginna
marka og sigraði því. Þetta er í
3. sinni í röð, er Ármann ber
sigur úr býtum í þesum flokki
og vann því til eignar bikar, sem
dagblaðið Þjóðviljinn gaf.
II. FL. KARLA
í öðrum flokki karla kepptu 7.
flokkar, sem skipt var í 2 riðla.
í A riðlinum voru: Ármann, Vík-
ingur, KR og Fram. 1 B riðli
voru Valur, 1. R. og Þi'óttur.
Keppnin í þesum flokki var tví-
mælalaust sú jafnbezta og skemmti
legasta, sem sézt hefur um langt
skeið, einkum í A riðlinum, þax-
sem seg.ja má, að hending ein hafi
stundum ráðið með það hverjir
skoruðu úrslitamarkið. Leikui*
allra liðanna í þessum flokki var
mjög hraður, sendingar og grip
örugg og gefa piltarnir meistara-
flokki karla lítið eftir hvað það
snertir, enda leika margir pilt-
anna er þarna koma fram einnig
með meistaraflokki.
I K. R. sigraði A riðilinn eftir
' að aukaleikur hafði orðið að fara
fram milli K. R. og Ármanns,
þar sem liðin höfðu að lokinni
keppni í riðlinum nákvæmlega
sama stigafjöllda og hlutfall milli
settra og fenginna marka, svo að
á þessu sést glöggt hve jöfn keppn
in var. í B riðlinum sigraði T. R.
og keppti því til úrslita við K.
R. Leikar fóru þannig, að K. R.
sigraði með 4 mörkum gegn 3,
eftir jafnan og skemmtilegan leik
og fékk að sigurlaunum bikai’, er
Tjarnarkaffi hefur gefið.
’ III. FL. KARLA
í 3. flokki karla var keppnin
fullt eins skemmtileg og í 2. fl.,
og sýndu þeir mun betri leik en
við höfum vanist að sjá hjá þess-
um flokki.
Skotharkan var engu síður hjá
þeim, en mörgum meistaraflokks-
manninum, en nokkuð bar mikið
á því, að allir vildu skora mark
og voru það því ekki alltaf þeii%
sem bezta aðstöðuna höfðu, sem
köstuðu á markið.
Knattspyrnufél. Rvíkur sigraði
í þessum flokki með 6 stigum og
tapaði ekki nema einum leik. —
Nokkuð voru félögin jöfn og lofa
góðu, ef keppnismennirnir halda
áfram á sömu braut.
Formaður l.B.R. Gísli Halldórs-
son afhenti öllum sigurvegurun-
um verðlauna gripi þá, er
keppt var urn. Auk þess fengu
meistaraflokkar karla og kvenna
sérstaka minnispeninga, sem nú
voru gefnir í fyrsta skipti.
Slcit hann síðan mótinu mcð
stuttri ræðu og minntist meðal ann
ars á það, að von væri um betra
húsnæði í framtíðinni vegna þeirra
framkvæmda, er búið væri að gera
í sambandi um þessi mál og á
Gísli þakkir skilið fyrir hans þátt
í þvi máli.
Dómararnir voru nokkuð mis-
jafnir, og sumir varla nothæfir
nema í neyð. H.
vær stöðvarvarðsrstöiiir
eru lausar til umsóknar. Laun skv. launalögum. — Um-
sækjendur skulu hafa óflekkað mannorð, vera heilsu-
hraustir og á aldrinum 22ja til 30 ára.
Umsóknir ásamt meðmælum og uppl. um umsækjend-
ur sendist skrifstofu minni fyrir 10. janúar 1952.
Siökkviliðsstjórinn í Reykjavík.