Morgunblaðið - 03.01.1952, Qupperneq 16
Veðurúllif í dag:
Þykknar upp með SA og A
átt. Allhv. cg sumsst. snjók.
Áramélaávarp
forseta ístands er á bls. 9.
Fimmtudagur 3. janúar 1952.
fiifsstaðir í Hálsahreppi brenna
— Fóikið komst nauðulega út
BORGARNESI, 2. janúar: — íbúðarhúsið að Úlfsstöðum í Hálsa-
sveit brann á nýársdag, án þess að nokkru yrði bjargað. Heimilis-
fólkið komst nauðuglega út og brenndust húsmóðirin og dóttir
hennar. Bóndinn, Þorsteinn Jónsson, komst og nauðuglega út
vegna reyks.
ELDURINN BREIDDIST "
HRATT ÚT
Eldurinn kom upp milli klukk-
an fjögur og fimm um daginn.
Var Þorsteinn bóndi þá nýlega
kominn inn frá gegningum og var
að skipta um föt. Var hann ekki
kominn í sokkana og gafst hon-
um eigi tóm til að fara í þá.
Eldurinn var kominn í inn-
byggðan klæðaskáp og reyndi
fólkið að kæfa eldinn með því að
ausa á hann vatni. En við það
varð svo mikill reykur, að fófkið
varð að hraða sér út, þar eð
hættulegt gat verið að dveljast
þar frekar. — Þorsteinn bóndi
komst nauðuglega út úr húsinu
vegna reyks og berfættur var
hann og hafði skorið sig á gler-
brotum. — Kona hans, Áslaug
Steinsdóttir og dóttir þeirra,
brenndust báðar, því eldurinn fór
með leifturhraða um allt húsið í
einni svipan. Þær skáru sig og á
glerbrotum. Dóttir hjónanna
mun hafa brennst meira. Syni
og aldraðri móður Þorsteins
bónda tókst að komast út ómeidd.
Þegar fólkið kom út, hafði ein-
hverjum tekizt að bjarga með
einni sæng, en það var allt og
sumt. Húsið, sem var nýlegt, var
úr steini en loft og þiljur úr'
timbri. Brann það allt á skömm-
um tíma.
DÝRMÆTT BÓKASAFN
BRANN
Þorsteinn bóndi, sem er al-
kunnur fræðimaður, missti í
brunanum bókasafn sitt, sem var
hið bezta hér um slóðir í einka-
eign. Voru í því margt ágætra og
fágætra bóka. Þá hafíji Þorsteinn
nýlega keypt píanó handa dætr-
um sínum og brann það sem
annað.
Innbú og hús var alls vátryggt
fyrir um 30 þús. kr.
Heimilisfólkið að Úlfsstöðum
fór heim í Reykholt. — Mun nú
vera í athugun hvort hægt sé að
'gera gamla bæinn að Ulfsstöðum
íbúðarfæran svo hægt sé að hugsa
um skepnurnar. — Frá Reyk-
holti að Úlfsstöðum er um 5 km
leið.
Snjóaiög mikii
á
VEGNA snjóa eru nú meiri sam-
gönguerfiðleikar hér sunnanlands
en voru nokkru sinni í fyrravet-
ur. -—- Frá því á gamlársdag má
segja að allir vegir út frá bæn-
um hafi verið ófærir. ■— 1 gær-
kvöldi hafði vegagerðarmönnum
og vélum tekizt að ryðja svo Krýsu
víkurveginn að fært var fyrir áætl
unarbíla allt til Selfoss.
Aðaláherzla hefur verið lögð á
að gera Krýsuvíkurleiðina færa
bílum, vegna mjólkurflutninga. •—•
Dreng bjargað frá drukkn-
un í Sundlaugunum
SJÚKRALIÐSMENN og læknar lífguðu í gærdag níu ára dreng,
ósyndan, er fallið hafði í dýpri laug Sundlauganna og var dreng-
urinn að drukknun kominn er honum var bjaiígað.
Forseti íslands
heiðrar 7 fslsruíinga
ÞANN 30. desember s. 1. andaðist
að heimili sínu hér í Reykjavík
Finnur Jónsson alþingismaður.
Hann kenndi á s. 1. sumri sjúk-
dóms þess, sem leiddi hann til
bana. Var hann þá i ferð um
Var á löngum köflum mjög erfitt Bandaríkin með nokktum leiðtog-
yfirferðar fyrir mjólkurbílana, um íslenzkra verkalýðssamtaka.
jafnvel þó þeir nytu aðstoðar. Nokkru eftir að hann kom heim
Hvalfjörðurinn er ófær og Kjal- úr þeirri ferð lagðist hann inn á
arnesið sumstaðar illfært. Mos- Landsspitalann og voru gerðir þar
fellsheiðin er ófær en komast má á honum uppskurðir. Skömmu áð-
upp undir Seljabrekku. — Á
gamlársdag var ófsert til Kefla-
víkur og Grindavíkur en vegurinn
var ruddur þá um daginn.
í sveitunum austan fjalls eru
mjög snjóþungir vegir, og sumir
alófærir. •—■ Er því erfiðleikum
bundið að koma mjólkinni í Flóa-
búið. — 1 dag munu ýtur verða
sendar á vegina sem verið hafa á
Krýsuvíkurvegi.
Vegagerðin lét þess getið, að
hætt væri við að allt myndi tepp-
ast á skömmum tíma ef hvessa
myndi með frosti, traðirnar fyll-
ast þá á svipstundu.
Ársreikningur
Búnaðarbankam
BEIKNINGUR Búnaðarbankans
fyrir s. 1. ár hefur nú verið sendur
út fullgerður. — Er það föst regla
bankans að ljúka jafnan ársreikn-
ingi sínum þegar að loknu reikn-
ingsári.
Mun það all fátítt að jafn stórar
etofnanir og Búnaðarbankinn er
nú orðinn geri svo fljót reiknings-
fikil.
Ekki er ástæða til að geta hér
um einstakar niðurstöður úr þess-
um bankareikningi, þar sem hann
liggur nú frammi almenningi til
sýnis, en ljóst er, að rekstursaf-
koma bankans á s. 1. ári hefir ver-
ið hin hagstæðasta og er hagur
hans allur með miklum blóma, en
samanlagður hreinn hagnaður
allra deilda bankans á árinu er
kr. 3.589.603,54.
Skauiasvell gerf
á Tjörninni
í GÆR var byrjað að hreinsa
snjóinn af Tjörninni til þess að
gera þar skautasvell. Voru tvær
ýtur notaðar við það verk. Er
ætlunin að gera þar svæði fyrir
almenning og einnig hlaupabraut.
Er það Skautafélag Reykjavíkur,
sem gengst fyrir þessu.
Ekki var í gær hægt að segja
með vissu, hvenær þessu verki
yrði lokið, en sennilega verður
það í kvöld eða á morgun.
ur en hann lézt var hann fluttur
heim á heimili sitt.
Finnur Jónsson var fæddur 28.
september árið 1894. Varð hann
því aðeins rúmlega 57 ára gamall.
Hann hafði víðtæk afskipti af
opinberum málum. Þingmaður Isa-
f jarðarkaupstaðar var hann kjör-
inn árið 1933 og átti sæti á Al-
þingi frá þeim tíma. Þing það,
sem nú stendur yfir gat hann ekki
sótt sakir sjúkleika síns. Hann
var dómsmála- og félagsmálaráð-
herra árið 1944—1947. Á ísafirði
átti hann sæti í bæjarstjórn í
fjölda ára og hafði þar einnig
mikil afskipti af atvinumálum.
Þar lét hann einnig verkalýðs-
mál mjög til sín taka.
1 dag mun forseti Sameinaðs
Alþingis minnast Finns Jónsson-
ar á fyrsta fundi þingsins eftir
fundahléð um hátíðarnar.
FORSETI íslands hefur í dag
sæmt þessa menn riddarakrossi
fálkaorðunnar:
Henrik Sv. Björnsson, sendi-
ráðunaut, París.
Ingimar Jónsson, skólastjóra,
Reykjavík.
Síra Jóhann Kr. Briem, sókn-
arprest að Melstað.
Jón Gíslason, bónda, Ey, Vest-
ur-Landeyjum.
Frú Kristínu Jónsdóttur, list-
málara, Reykjavík.
Síra Sigtrygg Guðlaugsson,
Núpi í Dýrafirði,
Valgeir Björnsson, hafnarstjóra
Reykjavík.
Forsetaritari, 1. jan. 1952.
19 íönd taka þáfi í
íu-
^FANNST Á BOTNI
LAUGARINNAR
Þetta gerðist um kl. 3,30. —*
Drengurinn heitir Hartvig Aðal-
steinsson, Sörlaskjóli, 70. Hann
hafði farið inn í Sundlaugar með
eldri bróður sínum, sem er synd-
ur. Ekkí er vitað með hve löngu
millibili Jæir bræður fóru upp úr
laugunum. En þegar eldri bróð-
irinn kemur inn í klefan þar sem
baðgestir klæðast var Hartvig
þar ekki. Fór hann þegar að spyrj
ast fyrir um drenginn og fór úl
að lauginni aftur.
f sömn andránni fann ein-
hver er þar var á súndi, dreng-
inn litía. Hann lá á botninum 5
djúpu lauginni.
FRESTUR til þátttökutilkynning
ar í Vctrar-ÓIympíuleikunum í
Osló, sem fram fara í febrúar,
var útrunninn um áramótin. —
Höfðu þá 29 þjóðir tilkynnt þátt-
töku.
Jólin voru „svört“ í Osló og ná-
grenni, en á milli hátíðanna xór
að snjóa, þannig að Norðmenn
þurfa vart að óttast að snjóleysi
valdi erfiðleikum við xram-
kvæmd Ólympíuleikanna. — GA.
Alþingi kemur
saman í dag
JÓLALEYFI þingmanna er nú
lokið. Hefjast fundir aftur á Al-
þingi eftir hádegi í dag með fundi
í Sameinuðu þingi.
erist a!
sprengjulcðsti í Austurstræli
Eftirmaður Slanskys
PRAG — Gottvald, forseti Tékkó
slóvakíu, hefur nú skipað dr.
Jaromir Dolansky í embætti vara
forsætisráðherra í stað Slanskys,
pr féll i ónáð fyrir skömmu.
Á GAMLÁRSKVÖLD var heima-
tilbúinni sprengju varpað að lög-
reglumönnum er voru á varð-
göngu í Austurstræti. — Sprakk
sprengja á fæti eins lögreglu-
mannanna og slasaðist hann svo
að hann er rúmliggjandi.
Lögreglumennirnir voru fyrir
utan dyr afgreiðslu Morgunblaðs-
ins er sprengjunni var varpað.
Kristinn Finnbogason heitir lög-
reglumaðurinn sem fyrir sprengj-
unni varð. — Hlaut hann djúpan
skurð á fæti rétt fyrir neðan hné.
Líðan hans var slæm í gærdag.
í fyrrinótt hafði hann mjög mikl-
ar þrautir í fætinum og varð eigi
svefnsamt.
EKKI ÓVITAR AÐ VERKI
Það tókst að handsama piltana
sem sprengjunni köstuðu. Þeir
segjast hafa gert þær sjálfir og
varpað fjórum sprengjum að lög
reglumönnum að yfirlögðu ráði,
hverri á fætur annari. — Ekki
voru hér að verki neinir óvitar.
— Annar þéirra Guðmundur
Eiríksson frá Sigiufirði er 14 ára
en hinn Rafn Valdimarsson héð-
an úr bænum er um tvítugt.
Einnig var blysi varpað að
dreng er stóð á Landsbókasafns-
tröppunum. Ekki mun blysið hafa
hæft hann, en honum brá svo að
hann datt niður af þeim, en mun
lítið hafa meiðst.
Loks fannst maður á Hverfis-
götunni, sem talið er að muni hafa
dottið af svölum húss þess er hann
var gestur í. Hann mun hafa
meiðst talsvert, beinbrotnað og
skaddast á höfði. Hann var flutt-
ur í sjúkrahús.
DRENGURINN
LÍFGAÐUR VIÐ
Sjúkrallði og læknum var þeg-
ar gert aðvart, en drengurinn var
hættur að anda er hann var tek-
inn upp úr. Komu læknar og
sjúkralið fáeinum augnablikum
síðar og hófu þegar lífgunartil-
raunir og tókst brátt að lífga
drenginn.
Talið var að drengurinn muni
hafa dottið út í laugina, er hanrg
gekk eftir barmi hennar, en þat'
er eðlilega sveil í frostinu. Mikla
gufu lagði upp úr lauginni, svö
aðeins sá lítið eitt framundan sér.
Mannijéfl í
Kóreu
WASHINGTON — Bandaríkin
hafa nú rnisst samtals yfir 100,
000 hermenn í Kóreustríðinu. Eru
þá meðtaldir særðir menn oj£
fangar.
Amerískir stúdentar keppa í
körfuknattleik ú Hálogalaiuli
I KVÖLD fer fram að Hálogalandi sýningarleikur og keppni í
körfuknattleik. Það er amerískt lið, „Eagles“, frá American Uni-
versity, sem sýnir körfuknattleik, en að sýningunni lokinni leikur
liðið kappleik við íþróttafélag Reykjavikur, sem styrkt hefur lið
sitt.
SKOÐAR BORGINA | fara héðan ósigrað, en sýning
Bandaríska liðið er hingað þess og keppni ætti að verða
komið undir stjórn þjáifarans hinni ungu íþróttagrein til mikils
Stafford H. Cassel. Liðið kemur gagns.
hingað til bæjarins í boði í. R.
árdegis í dag. Skoðar þá borgina
og m. a. háskólann, þar sem
rektor Alexander Jóhannesson
tekur á móti hinum amerísku
stúdentum. Þá verður Hitaveitan
skoðuð auk annarra mannvirkja.
í kvöld kl. 8,30 hefst sýningar-
leikurinn, en strax að honum
ioknum kappleikurinn. Lið í. R.
verður þannig skipað: Finnbjörn
ÞorvaldsSön, Helgi Jóhannesson,
Jón Björnsson, Gunnar Bjarna-
sön, Ingi Þ. Stefánsson, Gunnar
Þorleifsson, Sig. Pálmar Gíslason
og auk þess tveir ameríkumenn,
sem búsettir eru hér í bænum og
hafa æft með í. R. að undanförnu.
Liðið „Eagles“ er mjög sterkt
og sigursælt lið. Það hefur notið
þjálfunar Mr. Cassels um 1Ó ára
skeið og margoft á þessum tíma t
borið sigur úr býtum í keppnum SÖt 1
háskólanna amerísku, m. a. nú síðustu 2 árin. i
SIGRAÐI í KEFLAVÍK Liðið hefur sýnt körfuknatt- WPfl 'm?/// 1 é - L. <✓ J
leik á Keflavíkurflugvelli og
keppti þar í gær og sigraði þá
sterkt lið ameríkumanna þar með
83:37. Liðið mun því að líkindum