Morgunblaðið - 09.01.1952, Síða 12

Morgunblaðið - 09.01.1952, Síða 12
Veðurátíli í dag: N oj XV kaldi, É1 en bjart á milli. ttttblitfóD tbl. — Miðvikudagur 9. janúar 1952 Græníandsveigar Sjá viðtal við Óskar Halldórs- son á bls. 2. Fylkír með þýzkan nýsköp- unarfogara á leið fif hafnar - Þór með Imuveiððra TOGARINN FYLKIR og varðskipið Þór eru nú á leið hingað til Reykjavíkur með tvö erlend fiskiskip, sem brutu stýrið í ofviðri út af suðurströnd landsins í fyrradag. — Er annað þessara skipa linuveiðari en hitt þýzkur nýsköpunartogari. Togarinn Fylkir er með þýzka^ togarann. — Vegna storma og | stórsjóa sóttist ferðin, seirjt í gær. Þá fór Fylkir til jafnaðar mcð tveggja sjómílna hraða. Var( vindur norðvestanstæður, sjö til níu vindstig og stórsjór. 3 KLST SÍÐAR LAGT AF STAÐ Fylkir kom hinum þýzka tog- ara til hjálpar um klukkan sex í gærmorgun. Var togarinn þá á reki fyrir vindi og sjó um 45 sjómílur suðvestur af Vest- mannaeyjum. — Það var erfitt að undirbúa um borð í Fylki að koma vírum á milli, eins og veð- ur og sjór var. En um klukkanj níu mun Fylkir hafa lagt af stað j með togarann. Auðunn Auðunsson skipstjóri er ekki með Fylki nú, en togar- inn er að koma úr söluferð frá Bretlandi. Fyrsti stýrimaður, Sigurjón Stefánsson er með Fylki. Mjóik ekki skömmtu? í dag SAMKVÆMT upplýsingum er blaðið fékk hjá Mjólkursamsöl- unni í gærkvöldi, verður mjólk ekki skömmtuð í dag, þar eð svo nægjanlegt magn barst til bæj- arins í gærkvöldi. EINN VIR Einn trollvír er á milli skip- anna, en vegna veðurs hafði ekki í gærkveldi verið hægt að koma fleiri vírum á milli. Varð því að gæta fyllstu varúðar og sigla hægt, því ef vírinn slitnar get- ur verið miklum erfiðleikum bundið að koma vírum á milli á ný. Verður því siglt eins var- lega og hægt er. í gærkveldi var spáð minnkandi nprðvestan átt á þessum slóðum. Ógerningur er að segja með nokkurri vissu hve- nær Fylkir er væntanlegur, en tæplega verður það þó í dag. nýsköpunartogari Þýzki togarinn heitir Baxter. Hann er byggður 1950, 520 rúml. og um 170 feta langur með rúm- lega 20 manna áhöfn. Fylkir er 674 rúml. og rúmlega 180 feta langur. ÞÓR VÆNTANLEGUR í OAG Varðskipið Þór er væntanlegt með morguni í dag með línuveið- arann Hetty, sem braut stýrið suður í Grindavíkursjó. Vegna veðurs og sjó, tvíslitnuðu anker- isfestar línuveiðarans í gær en í þær er dráttarvírinn frá varð- skipinu festur. — Skipverjum á Þór gekk all- greiðlega að koma vírum á milli á ný. Hefur ferðin gengið vel. Háspennuiínan frá Skeiðfossi bilað! SIGLUFJÖRÐUR, 8. janúar: —- Síðastliðinn laugardag brast hér á stórviðri af suðvestri, eitt með hörðushttveðrum sem hér koma. — Veðurhæðin vai' mest um hádegis- bilið. Var þá með öllu óstætt á götunum í mestu hryðjunum. — Skemmdir urðu þó ekki tilfinnan- legar. Plötur tók af húsþökum og gluggarúður brotnuðu. Vitað er um einn mann, sem fótbrotnaði. Hann var í stiga utan á húsi sínu við að loka glugga, er vindhviða feykti stiganum með manninum um. Einn trillubátur sökk hér i höfn- inni við bryggju. — Vegfarendur urðu að halda sér í staura og girðingar, þegar vindbyljirnir gengu yfir, en flughálka var á götuniii. Á sunnudaginn bilaði háspennu- línan frá Skeiðfossvirkjun, svo að bærinn hefur nú rafmagn frá síld- arverksmiðjunum á meðan. Við- gerð mun fara fram strax og veður lægir og fært þykir. •—Guðjón. Úigerð véibáiaflof- ans að hefjasf ÚTGERÐ vélbátaflotans byrjar óvenju snemma þessa vertíð hérl við Faxaflóa og Grindavík. Flestir aðkomubátar utan af i landi, sem hafa viðlegu í Sand- gerði og Keflavík, eru komnir. Undanfarin ár hefir staðið víða í kaupdeilum, sem ekki hafa verið leystar fyrr en í janú- ar og jafnvel ekki fyrr en í febrúar, — svo sem í Grinda- vík á s. 1. vertíð. Nú hafa eng- ar kaupdeilur verið. Fiskverð hefir í nokkur ár ekki verið ákveðið jafn snemma og nú, og hefir það ýtt undir að útgerðarmenn hefja vertíð svo snemma. Þess má einnig geta, að bank arnir hafa veitt útgerðarlán til jsátaflotans íyrr en undanfarin fir. ~ i 107 réif svör við jólagetrauninni GÓÐ ÞÁTTAKA var í jólaget- rauninni ,sem íslendingasagnaút- gáfan efndi til fyrir jólin. Alls sendu 107 rétta úrlausn og voru 48 þeirra úr Reykjavík og ná- grenni. Á Þrettándanum var dregið í getrauninni og hlutu þessir verð- laun: 1. verðlaun, kr. 300.00, hlaut Jón Þorsteinsson, Barónsstíg 12, Rvík. — 2., 3., 4. og 5. verðiaun, sem var Þiðreks saga af Bern, hlutu: Óskar Jónsson, Vík í Mýr- dal, Oddný Kristjánsdóttir, Snorrabraut 42, Rvík, Dagur Tryggvason, Laugabóli, Reykja- dal, Suður-Þing. og Friðrik Hjartar, Akranesi. Amr Pasha Enn i gær urðu bilanir á Hafnarfjarðarlínunni Unníð er sleitulausf að viðgerðum. í FYRRINÓTT er viðgerð lauk á háspennulinunni til Hafnarfjarðar, en þá var komið fram undir morgunn, kom enn bilun í ljós. Varð Hafnarfjörður straum'aus klukkan rúmlegá sex í gærmorgun. Var bærinn rafmagnslaus í allan gærdag. Akranesfogaramir losa afla si Amr Pasha var til skamms tíma sendiherra Egypta í Lundúnum, en hefur nu verið kvaddur heim og skipaður ráðunautur Farúks konungs í utanríkismálum. Amr er kunnur af vinsexnd í garð Brcta. Gróðurhúsið SAUÐÁRKRÓKUR, jan.: — AKRANES, 8. janúar: — Togar- inn Bjarni Ólafsson, sem varð að fara héðan á laugardaginn til Reykjavíkur vegna fárviðrisins, en hann var þá að koma af veið- um, kom hingað í gær. Vinna hófst þegar við losun afl- ans og var henni lokið nú í kvöld. Togarinn var með 160 tonn af fiski og fór hann í frystihúsin hér. 1 dag er Akurey væntanleg með um 220 tonna afla. Hefur Akurey vei;ið í Reykjavík, eins og Bjarni Ólafsson, beðið eftir að veðrið lægði, *—Oddur. -^SJÁVARSELTA , VELDUR RILUN Við athugun kom í ljós fjórar bilanir á háspennulínunni. Vom það slit og einangrunarbilanir. Var auðvitað strax hafin viðgerð og unnið sleitulaust unz viðgerð var lokið um kl. 10 í gærkveldi. Höfðu þá verið gerðar ráðstaf- anir til að bræða allan sjó af vírunum. Þá hafa athuganir verk fræðinga Rafmagnsveitunnar leitt í Ijós að sjávarselta hefur setzt á háspennulínuna frá Sogi og eins til Hafnarfjarðar og hef- ur seltan haft í för með sér að bilanir hafa orðið í einangrun, þannig að skammhlaup hefur myndast. Engar teljandi skemmdir urðu hér í fárviðrinu. Að Lundi, en þar býr Sigurpáll Árnason, garðyrkjubóndi, brotn- uðu um 100 rúður í gróðurhúsi — Talsvert mun hafa fokið af heyjum, en einkum urðu Hegranesbændur fyrir heytjón- inu. Niður á láglendinu urðu litl- ar truflanir á mjólkurflutningun- um hingað til Sauðárkróks, þrátt fyrir versta vcður undanfarna daga. — Jón. Hokkurf ijón varð i Kjosinm Tvær íkveikjur í GÆRDAG var slökkviliðið kallað tvisvar út, en ekki var um alvarlegan eldsvoða að ræða og skemmdir ekki teljandi. Heimtaug að húsinu Granda-j vegur 27 hafði bilað og orsak- að íkveikju og urðu skemmdir á húsinu ekki miklar. Þá var slökkviliðið kállað að húsinu Hraunteigur 9. Þar hafði kviknað í sóti í reykháfi. VALDASTÖÐUM, 6. jan.: — í fyrrinótt gerði hér aftakaveður af aust-suð-austri. Gekk síðan með morgninum í suð-suð-vestur. Er þetta með meiri veðrum, sem hér hafa komið. Nokkurt tjón hefur það gert. — Hér á Valdastöðum tók af þak á tveim kvistherbergj- um og hefir ekki tekizt að lagfæra það enn vegna veðurs. í Eyjum fauk hey, sem búið var um úti. Eitthvað hefur fokið af járni af útihúsum á stöku stöðum. Hvergi mun mikið tjón hafa orðið það ég bezt veit. Rúður brotnuðu og sitthvað fleira gekk úr lagL__________________—-St. Sparnaður. Bretar eru nú farnir að loka ræðismannsskrifstofum sínum er lendis þar sem ekki er knýjandi þörf fyrir þær. Nýlega lokuðu þeir slíkri skrifstofu í Suður- Týról, í sparnaðarskyni. Tröilafoss bíður batnandi veðurs á Siglufirði SIGLUFJÖRÐUR, 8. janúar: — Hér er enn vonsku veður, storm- ur af suðvestan með fannkoma og skafrenningi. — Tröllafoss er kominn hingað til að lesta mjöl fi'á Rauðku, til Bandaríkjanna. — Ekki hefur verið hægt að ferma skipið vegna veðurs. —.Guðjón. Börn á sveitabæ skeras! af glerbrolum, sem fuku á þau SAUÐÁRKRÓKUR — Um hádegisbil á laugardag, er fárviðrið náði hámarki hér um slóðir, mölvaði grjótfok margar rúður í húsi einu og börn skárust af glerbrotum. Þetta gerðist heima hjá Halli^ Jónassyni mjólkurbílstjóra, er | býr skammt frá Varmahlíð. Grót- fokið buldi á suður- og \estur- hlið hússins. Allar rúðurnar í gluggunum á þessum -hliðum hússins brotnuðu. GLERBROTIN FUKU Á BÖRNIN Við glerbrotin, sem öll fuku undan veðrinu inn í húsið, skár- ust tvö börn Halls bílstjóra all- mikið á fótum. — Þriðja barnið sakaði ekki og eins slapp móðir þeirra, sem var ein heima með þau, ómeidd. Var Hallur í mjólk- urflutningi til Sauðárkróks er þetta gerðist. Konu hans tókst að koma boð- um til hans um síma, hvernig komið væri. Var Hallur þá á Sauðárkróki. Brá hann þegar við, náði í héraðslæknirinn og flutti hann heim, en hann gerði að sár- um barnanna. —Jón, Vor og sumarnám- skeið Brifish Council BRITISH COUNCIL gengst fyrir námskeiðum við ýmsa háskóla og sumarskóla í Englandi n.k. vor og sumar. Upplýsingar um námskeið þessi er hægt að fá í brezka sendiráð- inu hér í Reykjavík, eða með því að snúa sér beint til British Council. Utanáskriftin er: „The Director, Courses Department, British Counsil, 65 Davies Street, London W. l.“ Náðaðir. Brezka hernámsstjórnin í Þýzkalandi sleppti um jólaleytið 45 þýzkum stríðsglæpamönnum úr haldi. Var þetta gert vegna jólahátíðarinnar. AÐRAR LINUR Fyrir miðnætti í nótt mun Keflavík hafa fengið rafmagn. :—» Þá er enn unnið við Vífilsstaðar- línuna. I fyrrinött voru 15 staur- ar reístir. Kópavogsbyggð verðut* fyrsti áfanginn. — Eins er unnið við Lögbergslínuna og miðar þvx verki allvel áfram. Lokið er til fulls viðgerð á Reykjalínunni. Virðuleg og , menn útför Finns Jónssonar alþm. ÚTFÖR FINNS JÓNSSONAR alþingismanns og fyrrverandi ráð- herra fór fram í gær að við- stöddu fjölmenni. Hófst hún með húskveðju að heimili hins látna. Þar fluttí séra Jón Thorarensen bæn. 1 Dómkirkjunni flutti séra Sig- urður Einarsson prestur í Holti ræðu. Sungnir voru sálmarnir, Ó, blessuð stund, Lýs milda Ijós, Þú Kristur ástvin alls sem lifir og Son guðs ertu með sanni. í kirkju báru kistuna ráðherrar, forsetar Alþingis og þingbræður hins látna alþingsmanns, en úp kirkju þingmenn Alþýðuflokksins og samherjar hans. Öll fór útförin hið virðulegasta fram. Að athöfninni í Dómkirkj- unni lokinn, voru jarðneskar leifar Finns Jónssonar fluttar til kapelli unnar í Fossvogi til brennslu. Q!3&J

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.