Morgunblaðið - 22.01.1952, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.01.1952, Blaðsíða 6
/ / MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. jan. 1952 Útg.: H.Í. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Steíánsson (ábyrgCarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3049. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjóm, auglýsingar og afgreiOsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 18.00 á mánuði, insanlands. lausasölu 1 krónu eintakiS. Kr. 1,25 með Lesbók. Vnr Mnsoryk, utnnríkisrnðkerrn Tékkó-Slóvnkíu, myrtur ? íslenzkur ríkisborgararéttur JAN MASARYK, utanríkisráð- herra Tékkó-Slóvakíu, Ijezt 10. marz 1948. Margir hafa glímt við þá ráðgátu, með hverjum hætti dauða hans bar að höndum. MORÐ EÐA SJÁLFSMORÐ Það hefir aldrei verið dregið í efa, að Jan Masaryk hafi fundizt ALÞINGI ÞAÐ, sem nú er að ljúka störfum, mun sennilega í dag samþykkja lög um veitingu ríkisborgararéttar. Samkvæmt þeim er 37 mönnum, konum og körlum, veittur íslenzkur ríkis- borgararéttur. Fyrir nær hverju þingi liggja írumvörp um veitingu borgara- réttar. Hin síðustu ár hefur Al- þingi farið nokkuð varlegar í þessum efnum en stundum hefur áður tíðkast. Yfirleitt hafa þeir umsækjendur, sem verið hafa af íslenzku bergi brotnir eða ætt- feðir frá Norðurlöndum verið látnir sitja fyrir mönnum frá fjarskyldari þjóðum. Enda þótt eðlilegt sé að þeir menn, sem uppfylla skilyrði laganna um ríkisborgararétt, m. a. um 10 ára búsetu hér á landi, og fest hafa'hér ræt- ur, fái íslenzkan ríkisborgara- rétt. Verður löggjafarvaldið þó að vera heldur íhaldssamt um slíka réttindaveizlu. Á það ekki hvað sízt við á tímum mikillar óvissu og óróa í al- þjóðamálum. Þá er ásóknin í að öðlast hér ríkisfang einnig meiri en ella. Það hefur því miður hent Al- þingi að haga ákvörðunum sín- um á þessu sviði of gálauslega. Það hefur komið fyrir að menn hafa fengið hér ríkisborgararétt með því að villa á sér heimildir og beita beinum prettum. Þegar þingið hafði samþykkt réttinda- veizluna hurfu hinir nýju borg- arar úr landi í skjóli hennar. í því tilfelli, sem hér um ræð- ir, hafði þingið að vísu verulegar afsakanir. En það breytir ekki þeirri staðreynd að það var herfi- lega blekkt. Veiting ríkisborgararéttar er þess eðlis að um hana verður að gætu fyllstu varfærni. Engin þjóð getur áhættulaust opnað all- ar gáttir um veizlu slíkra rétt- inda án þess að skapa sér ýmsa áhættu. Samkvæmt tillögu Björns Ólafs sonar menntamálaráðherra, hefur Alþingi nú sett það ákvæði í lög, að þeir sem heita erlendum nöfn- um skuli ekki öðlast íslenzkan ríkisborgararétt fyrr en þeir hafa tekið sér íslenzk nöfn sam- kvæmt hérlendri löggjöf um mannanöfn. Við verðum þá að kunna að greina á milli þess fólks, sem raunverulega hefur tengst ís- landi traustum böndum og vill lifa hér og starfa áfram sem íslendingar, og manna, sem ætla sér að nota íslenzkan borgararétt til þess eins að komast eitthvað annað í skjóli hans. Okkur getur verið mikill fengur í að hingað flytji traust og gott fólk af erlendum upp- runa. En okkur ber að gjalda varhug við lausingjalýð, sem kann að skola hér að Iandi. Yfirleitt má segja að Alþingi hafi ratað meðalveginn í þess- um efnum, þó undantekningar hafi þar á orðið eins og áður var að vikið. Verður að vænta þess að hann verði einnig þræddur framvegis. Stór áföll Á HINNI nýbyrjuðu vertíð hefur . verið skammt stórra högga í milli í garð íslenzkrar sjómanna- stéttar. Fyrstu daga hennar fórst vélbátur frá Akranesi með 6 manna áhöfn. Næst sökk vélbát- ur frá Bolungarvík norður af ísa- ' fjarðardjúpi. Af skipshöfn hans ' fórust tveir menn en þrír björg- ! uðust. S. 1. föstudag fórst svo véi- báturinn Grindvíkingur í ofsa- ' veðri í nágrenni heimahafnar 1 sinnar með fimm ungum mönn- 1 um. Þannig hafa á örskömmum tíma farizt 13 ungir og dugandi sjómenn. Auk þess hafa menn lent I hrakningum og týnzt á landi. Bezti flóabátur landsins, vélskipið Laxfoss, hefur strandað og er ekki að vita hvort honum verði bjargað. Þetta ákvæði er sjálfsagt og eðlilegt. Með því er komið í veg fyrir að erlend ættarnöfn flæði inn í tunguna og valdi hér marg- víslegum ruglingi og ósamræmi. En allmikil brögð hafa verið að slíku á undaníörnum árum. Yfir- leitt verður að stefna að því, að koma í veg fyrir landnám er- lendra orða. Hvort sem um mannanöfn er að ræða eða önn- Ur orð. Tillaga menntamálaráð- herra um þessi efni er því fylli- lega tímabær. Við íslendingar verðum að vera þess minnugir, að gjörbreyting sú, sem gerzt hefur í samgöngu- málum, ásamt mikilli óvissu í al- þjóðamálum, hefur skapað ýmsar nýjar hættur fyrir þessa litlu þjóð, sem um aldir hefur notið skjóls fjarlægðar sinnar og ein- angrunar frá öðrum löndum. Einnig iöggjafinn verður að hafa þetta í huga þegar á hann er sótt árlega um ríkisborgararéttindi til handa fólki úr ýmsum átt- um. Þetta eru stór áföll og þung- bær, ekki aðeins fyrir þau byggð- arlög, sem horfa á eftir góðum jdrengjum í sjóinn, heldur fyrir þjóðina í heild. Það sætir þess- j vegna engri furðu, þótt ugg og (óhug setji að almenningi við íþessar hörmulegu slysfarir. Eng- j inn veit, hvenær næst brestur á ' ofviðri og hverjir þá verða á sjó. Þúsundir íslendinga eiga ástvini sína á sjónum allan ársins hring. Öllu þessu fólki og ótal mörgum öðrum verður hugsað til þess, hvað komið getur fyrir, þegar óveðrið skellur yfir, meira og minna að óvöru, eins og oft hendir. Það er auðvelt að segja, að ráðið til þess að koma í veg fyr- ir slysin, sé að fara varlegar í sjósókninni en við gerum yfir- leitt. En þótt veðurspár eigi að vera fullkomnar og sjómenn veð- urglöggir, verður þó aldrei spáð svo örugglega að ekki geti út af brugðið. Það sanna ótal dæmi úr siálfri reynslunni. En aukin var- færni er auðvitað sjálfsögð og fullkomnar veðurfregnir og ítrek- aðar aðvaranir þegar ofviðri eru fyrirsjáanleg, hljóta einnig að stuðla að auknu öryggi. Sem viðtækastar slysavarnir eru og mjög mikilvægar. Öll þessi atriði koma upp í huganum þegar við stöndum and- spænis slysunum og sárri sorg þeirra, sem misst hafa ástvini sína í sjóinn. Til þeirra streyma nú samúðarkveðjur frá gervallri hirrsi íslenzku þjóð. Masaryk utanríkisráðherra, sem talið er, að myrtur hafi verið. I dauður í garðinum úti fyrir íbúð t sinni, sem var á þriðju hæð utan- ríkisráðuneytisins. En menn hafa löngum spurt, hvort um morð eða sjálfsmorð hafi verið að ræða. j Stjórn kommúnista, sem heldur grímu launungarinnar yfir dauð- daga þessa manns, bjó Masaryk virðulega útför, en stendur á því I fastara en fótunum, að hann hafi framið sjálfsmorð af örvilnun, er átt hafi rætur sínar að rekja til þeirra ásakana erlendra vina hans, að hann hefði svikið hugsjónir sínar. i Margir vinir Masaryks i Vestur- löndum, bæði í Tékkó-Slóvakíu og utan, trúðu því, að hann hefði framið sjálfsmorð. Hefði hann viljað leiða athygli heimsins að hinni óhamingjusömu þjóð sinni á þenna hræðilega hátt. í En margir hafa líka allt af vísað hugmyndinni um sjálfsmorð á bug. Hefði slíkt aldrei getað hent Masaryk. Hann hafi ekki stokkið út um gluggann, heldur hafi honum verið varpað niður eftir að honum hafi verið mis- þyrmt. Þeir, sem halda, að hann hafi verið myrtur, hafa þó aldrei fært beinar sönnur á mál sitt, en nú hefir ritstjóri New York Times um utanríkismál, C. L. Sulzberger, veitt eftirtektarverða vitneskju í Gögnum, sem benda lil þess, hetur verið laumað úr landi. málinu. Segir hann, að óyggjandi sönnun um morðið hafi verið laumar úr landi. Hafi ýmsir sér- fræðingar Vesturlanda þegar far- ið höndum um þessi plögg. ATHUGANIR LÖGREGLU- LÆKNISINS Þetta er skýrsla dr. Teplys lög- reglulæknis, sem starfaði í Prag 10. marz 1948, þegar Masaryk lézt. Hann var kunnur sakamála- fi-æðingur og gaf skýrslu þessa fáum mánuðum eftir lát Masaryks og rétt fyrir dauða sinn. Nú hefir loks tekizt að koma skýrslunni til Vesturlanda. 1 henni segir dr. Teply, hvemig hann var vakinn upp kl. 5 að morgni. Það var síminn frá inn- anríkisráðuneytinu, sem fer með málefni leynilögreglunnar. Hann fékk fyrirmæli um að fara þegar í stað til utanríkisráðu- neytisins. Þegar þangað kom, var honum sýnt lík undir ábreiðu. Lögreglumaður dró brekánið til, og dr. Teply þekkti sér til skeff- ingar lík Masaryks, utanríkisráð- herra, klætt náttfötum. Og skýrslan heldur áfram: „Ég gaf lögreglumanni skipun um að hneppa náttfötunum frá líkinu, og sá ég þá víða á því áverka eftir högg og skrámur, sem greinilega stöfuðu af líkamsárás. I hnakk- anum var sár, sýnilega skotsár eftir byssu með 7,65 mm hlaup- vídd. Og fyrsta hugsunin, sem Framh. á bls. 8 Velvakandi skrifar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Stórhriðarnótt í Reykjavík STÓRHRÍÐARNÓTT í Reykja- vík er óyndisleg eins og alls staðar annars staðar. Á föstudags kvöld tepptist umferð um bæinn að mestu og alveg um úthverfin. Strandarglópar voru því í öðru hverju húsi, því að erfiðlega gekk að fá farartæki heim. Nosek, innanríkisráðherra og yfirmaður leynilögreglu Gott- walds. Stórhríðarnótt í Reykjavík Fram eftir allri nóttu mátti sjá fólkið brjótast áfram fótgangandi í ófærðinni og veðurofsanum. Ungir og gamlir, jafnvel aldraðar konur og börn í fylgd stæltra karlmanna. Mönnum er um og ó að gista EINHVERJIR hafa vafalaust orðið að gista. Til að mynda Hafnfirðingar staddir í Reykja- vík og öfugt, en gistingar var ekki leitað fyrr en í fulla hnef- ana. Menn kusu helzt að fara heim í notalega hornið sitt, þar sem er hið eina og bezta athvarf. Engin fyrirhöfn er of mikil til að þurfa ekki að gista í ókunn- um stað, þótt ekki sé nema nokkr ar stundir. Allir sækja heim eins og lítið barn í hálsakot. Kaffiilmurinn seiddi KÆRI Velvakandi Ég var beitt svo miklu óréttlæti hérna á dögunum, er ég fór með vjnkonu minni í kaffihús neðar- lega við Laugaveg, að ég get ekki orða bundizt. Okkur var kalt í nepjunni og munaði okkur því í hið Ijúffenga kaffi, sem við vissum, að fram- reitt var á þessum stað. Og þegar við komum inn bláar í kulda, létti okkur stórum við að sjá að fáir voru inni og því skammt að bíða afgreiðslu. „Ég get ekki afgreitt ykkur“ EN ÓLÁNIÐ hófst með því, að inni sátu tveir hermenn, og annan þeirra þekkti ég. Þar sem ég er vön að heilsa fólki, sem ég þekki, kinkaði ég kolli til hans. Svo settumst við við borð, sem laust var. Þjónustustúlkan gekk til okk- ar og sagði: „Ég get ekki afgreitt ykkur“. „Og hvers vegna?“ „Vegna þess“, sagði hún, ,,að mér er ekki heimilt að afgreiða stúlk- ur, sem koma hingað til þess að tala við hermenn“. Við stöllurnar urðum alveg orð lausar, en þó stundi vinkona mín upp: „Stendur það einhvers stað- ar utan á okkur, að við höfum komið hingað til þess?“ Stúlkan svaraði þessu engu, en sagði: „Ég má ekki afgreiða stúlk ur, sem þekkja hermenn“. Að svo mæltu gekk hún burt og fram í eldhús. Ættu að auðkenna veitingahúsin VIÐ fórum út við svo búið án frekari athugasemda. Kusum við heldur að skrifa þér og vita, hvað þú hefðir að segja um'þetta mál. En svo er mál með vexti, að ég er sjálf opinberlega trúlofuð flug manni úr bandaríska flughern- um, og þætti mér það heldur hart, ef ég mætti eiga von á að verða rekin út úr íslenzku veit- ingahúsi fyrir að láta sjá mig í fylgd unnusta míns. Ef veitingamennirnir vilja ekki hafa varnarliðsmenn né stúlkur, sem þeir þekkjá, inni hjá sér, þá ætti þeim að vera vorkunnar- laust að merkja dyr sinar á þann hátt, að ekki verði um villzt. Það er hart, að íslenzkar stúlk- ur skuli vera reknar út úr íslenzk um veitingahúsum, þó að þær þekki margumtalaða menn“. Bvriað á öfugum enda A F FRÁSÖGN stúlkunnar er L* Ijóst, að hermenn hafa fengið afgreiðslu í þessu veitingahúsi neðarlega við Laugaveginn. Virð- ist því óskiljanlegt, hvers vegna þær stöllur fengu ekki afgreiðslu, af því að þær könnuðust við ann- an þeirra. Og þessi krafa um auðkenní eða skilti er réttlát, enginn kærir sig um að láta niðurlægja sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.