Morgunblaðið - 22.01.1952, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
- Lundúnabrjef
Framh. af bls. 7
EINLÍFIÐ Á ENDA
4. janúar kom bjorgunarskip
brezka flotans, Turmoil á vett-
vang, en það er eitt af bezt búnu
björgunarskipum veraldar. Fimm
tilraunir voru gerðar til þess að
festa dráttarkaðla i skipið, en mis
tókust allar. Enn var ofsarok og
rirkoma mikil. Var Carlseif, skip-
stjóra, ókléift að dragá inn drátt-
arkaðiana og festa þá einn síns
liðs. Loks renndi Turmoil sér fast
upp að skipinu og stýrimaður
þess, Kenneíh Roger Dancy, 27
ára, frá Kent í Englandi, stökk
af borðstokk Turrnoil yfir á Fly-
ing Enterprise. Var það allmikið
glæfrastökk, því bæði skinin
veltust mjög í hafrótinu. En þar
með var einlifi Carlens, skip-
stjóra, lokið. Bjuggust þeir félag-
ar um i káetu skipstjóra, sem var
nær eini staðurinn í skipinu, sem
enn varði sig.
Næsta dag, 5. janúar, var veðr-
ið aðeins skárra og nú tókst þeim
félögum að grípa línu er skotið
var frá Turmoil og festa kaðla í
skipinu. Þótti þeim félögum nú
heldur hækka hagur strympu. —
Var nú lagt af stað áleiðis til Fal-
mouth, en sú leið var nær 350
sjómílur og ferðin gekk hægt þar
sem Flying Enterprise varð ekki
stýrt. En veðrið tók nú óðum að
iægja. Næstu fjóra daga var hald
ið áfram jafnt og þétt og höfðust
þeir félagar við í skipinu sem fyr.
Meðan á þessum hildarle.k stóð
höfðu blöð og útvarp í Bretlandi
tekið til óspilltra málanna. Skip
og flugvélar voru send á móti
Flying Enterprise, kvikmyndir
. teknar, fregnir birtar jafnt og
þétt og undirbúningur hafinn í
landi að taka á móti þeim fél"g-
um, ef þeir kæmu heilir á húfi.
Eitt Lundúnablaðið bauð foreldr-
um Carlsens heim, og flugu þau
frá Danmörku til Englands á
kostnað blaðsins til þess að fagna
syni. sínum, er hann stigi á land.
Og borgarstjórinn í Falmouth
| ■* undirbjó hátíðahöld. Þeim félög-
um leið eftir atvikum sæmilega i
skipinu, en Carlsen, skipstjóri,
var mjög tekinn að þreytast,
enda lítið næði til svefns meðan
á óveðrinu stóð.
BARÁTTUNNI LÝKUR
En aðfaranótt 9. janúar gerði
óveður á ný. Skömmu eftir mið-
nætti slitnuðu dráttarkaðlarnir j
hafrótinu og Flying Enterprise
rak enn fyrir straumi og vindi.
Eftir var aðeins 47 mílna leið til
Falmouth. Engin tiltök voru að
tengja skipin saman á nv fyr «u
í dögun, ef veðrið iægði. — En
hvassviðrið hélt áfram. Halli
skipsins óx upp í 80 gráður. Með
morgninum tók það að síga niður
enn meir. Enn neitaði Carlsen,
skipstjóri, að yfirgefá skip sitt.
En brátt var auðsætt að hverju
dró. Oveðrið hélt áfram aúan dn<?
inn og næstu nótt. Skipið fyllti
meir og meir. Skipstjóraklefann
f'æddi og þeir félagar skriðu upp
eftir höllu þilfarinu þangað söm
hæst bar. Skip, sem biðu átekta
allt um kring, færðu sig nær og
kl. 3,10 e. h. þann 10; janúar
stukku þeir félagar frá revlrháf
skipsins í sjóinn og voru innbyrt-
ir í Turmoil eftir nokkrar mínút-
ur. Eftir þrjá stundarfjórðunga
hvarf Flying Enterurise í skaut
hafsins, eftir hálfs mánaðar
hrakninga.
Carlsen, skipstjóri og félagi
hans hvíldust um borð í skipinu,
en stigu á land næsta dag, þar
sem þúsundir raanan biðu til þess
að fagna þeim með ræðum og
veizluhöldum. Þeim bárust heilla-
óskaskeyti hvaðanæva að úr ver-
öldinni, og tilboðum um kaup á
frásögn um þennan hálfa mánuð
á sjónum rigndi yfir Carlsen,
skipstjóra, frá kvikmyndafélög-
um. úteáfufvrirtækium og aufflýs
ingastofnunum. Ekki er vitað að
hann hafi tekið neinu þeirra
boða. Kvaðst hann hafa verið að
reyna að bjarga skipi sínu, en
ekki að vinna sér inn fé. Hins-
vegar veitti hann viðtöku Danne-
brogsorðu, sem Danakcnungur
sendi honum.
i
Þriðjudagur 22. jan. 1952
Ingvar Sigurðsson
Minningarorð
Slasaður maður
íinnst á fömum vegj
INGVAR SIGURÐSSON var
fæddur hér í Reykjavík 20. júlí
1885. Foreldar hans voru Sigurð-
ur Magnússon kaupm. systurson-
ur Jóns Hjaltalíns landlæknis og
Bergl'jót Árnadóttir. Voru því al-
bræður Ingvars þeir próf. Jón Hj.
Sigurðsson og Magnús SigUrðsson
bankastjóri. Gekk Ingvar einnig
í Lærðaskólann og lauk stúdents-
prófi vorið 1905. Lagði síðan um
nokkur ár stund á læknisfræði
við Khafnarháskóla, en varð þá
að fara á heilsuhæli. Fór hann
svo heim upp úr því og gaf sig
einkum að skrifstofustörfum. Var
um skeið hjá G. Copland þangað
til það fyrirtæki hætti hér störf-
um. Var síðan við bankastörf í
nokur ár, en svo síðast hjá Gjald-
eyris- og innflutningsnefnd og
þeim stofnunum sem við tóku af
henni. — Kvæntur var Ingvar
Mörtu dóttur séra Einars Þórðar-
sonar prests í Hofteigi, er lifir
mann sinn. Börn þeirra eru íjór-
ar dætur og einn sonur.
Með Ingvari Sigurðssyni er
fallið frá hið mesta valmenni og
sérstakur gáfumaður — einn af
þeim fáu, sem ól frumlegar skoð-
anir og sjálfstæðar hugsanir, eink
ánlega um þjóðfélagsmál og ein-
skorðaði sig þá ekki við innan-
landsmálin. Um skeið ritaði hann
allmikið í blöð og þá oft undir
dulnefni. Greinaflokkur eftir
hann sem birtur var í .blaðinu
Vísi undir nafninu „Örn ein-
eygði“ vakti mikla athygli. Ræddi
hann meðal annars varnarleysi
þjóðarinnar og þörf á sterkara
ríkisvaldi. Er nú þegar komið ?
Ijós að hann hafði rétt að mæla
í aðaldráttum og á eftir að sann-
ast betur.
AÐFARANÓTT sunnudagsins,
klukkán um 2.30, fannst með-
vitundarlaus maður á Hafnar-
fjarðarvegi, skammt frá Foss-vogs
kapellu. Hafði hann orðið fyrir
slysi, sennilegt að bíl hafi verið
ekið á hann. ,
Maðurinn sem heitir Eiríkur
Þórðarson, Miðtúni 24, var flutt*
ur í Landsspítalann. Hann hafði
meiðst í baki og á höfði. Rann-
sóknarlögreglan hafði ekki tekið
skýrslu af mannínum í gær. —
Það voru bílstjórar á leigubílum
sem fundu Eirík, og gerðu þeir
lögreglunni aðvart.
Framii.af bls. 6
pkaut ttpp í huga míríwm yar: Héu
hcfjr verið framið, andstyggilegt
og villhnannlegt morð“.
Við iíkamsrannsóknina, sem var
yfirborðskennd m. a. vegna þess,
að ljósið var mjög lélegt, sá dr.
Teply enn fremur, ao fæturnir
voru brotnir, sýnilega fengið högg
af.hamri eða einhverju öðru. þungu
verkfæri. Hendur hans báru líka
merlci örvæntingarfullrar- baráttu.
Aðal ritverk Ingvars var Al-
ríkisstefnan, sem kom út árið
1932. Það er bók upp á rúmar 300
síður og rituð til að slá til hljóðs
og skýra þá skoðun, að eina leiðin
til lækningar á hinu sjúklega
ástandi heimsmálanna sé sú að
stefna að samstjórn allra þjóða
undir einu alríkisvaldi. Lýsir
hann sjálfur efni bókarinnar svo
í lokakaflanum:
„Fyrst hefur verið sýnt hver
grundvöllur alríkisstefnunnar
skuli vera, þar næst í stórum
dráttum byggingu Alríkisins, þar
næst sýndir kostir þessa stjórnar-
fyrirkomulags í helztu atriðum
’og hver trygging það sé fyrir
friði og góðri samvinnu meðal
mannanna. Því næst eru taldar
upp aðferðir þær, sem vænlegast-
ar þvkja til að afla Alríkisstefn-
unni fylgis og gera bygginguna
sem traustasta. Loks eru nefndar
nokkrar helztu mótbárur, sem
líklegt er að fram komi gegn1
etefnunni og leitast við að benda
á hver svör skuli veita til að
hnekkja þeim.“ — Þessu verki
Ingvars var sem vænta má tekið
með nokkru tómlæti. Menn sögðu
að það væri ekki nógu raunhæft.
En tíminn sem liðinn er síðan
þessi bók kom út hefur sannað
að þar voru þó orð í tíma töluð.
Síðan má segja, að um allan heim
hafi menn sannfærzt um, að ein-
hverskonar „alríki“ eða sam-
stjórn á heiminum sé það eina
sem geti bjargað honum frá glöt-
un eða þeirri menningu sem
byggð hefur verið upp. Drög að
þessari samstjórn voru lögð með
stofnun Sameinuðu þjóðanna. Og
nú segja menn að ef „þriðja
heimsstríðið“ kemur, verði það
háð um „heimsyfirráð” — urrt
það hvaða völd eigi að fá að reka
smiðshöggið á stofnun hins fyrir-
hugaða alríkis og stjórna því.
Það má því seg.ja að viðurkenn-
ingin á aðalhugsjón Ingvars Sig-
urðssonar — þörfinni á samstjórn
uðu heimsríki — sé nú staðreynd.
Annað mál er það, í hversu rík-
um mæli þetta heimsriki petur
fullnægt þeim demókratísku kröf
um sem Ingvar óskaði.
Svo ástúðlegur sem Ingvar var
í öllu dagfari og viðkvnningu, því
síður þurfum við vinir hans að
orðlengja um það, hve mjög við
söknum hans.
H. T.
+
KVEBJA
Skírist myndin og mótast,
mennirnir koma og fara.
Elfunnar ber í bakka.
Bilið á milli skara -----
breytir vegfarans vegi,
vinanna næsta degi.
brofinn björgunar-
bál og skemmdar
birgðir
1
PATREKSFIRÐI, 21. jan.: - Tog
arinn Vilda frá Grimsby kom
hingað til Patreksfjarðar í dag
eftir níu sólarhringa útivist frá
Englandi.
Var togarinn með mölbrotinn
björgunarbát, leki var kominn
að lestinni og allar birgðir að
mestu ónýtar.
Gert verður við togarann hér,
hann fær nýjan björgunarbát og
annað, sem hann vanhagar um.
— Gunnar.
Hugsjónir háar stórar
heimurinn varð að reisa.
Samstillta elfa orku,
alheim úr fjötrum leysa.
Kærleikans vinna vegi
varðveizlu næsta degi.
Fækkar vinanna vali,
vist skal þó eigi kvarta,
þar, sem oss gafstu ylinn,
orkuna úr þínu hjarta.
Það er svo gott að geyma
gjafirnar þínar heima.
Þ. Sigurðsson.
Skipafloti Vestur-Þýzkalands
BONN — Skipafloti Vestur-
Þýzkalands eykst nú stórum. Á
árinu 1951 voru smíðuð 112 vöru-
og .-farþegaskip í Vestur-Þýzka-
landi, samtals 191.000 tönn.
KAUPMANNAHOFN — Undan-
farna 3 mánuði hafa alls 35 blöð
og tímarit hætt að koma út í Dan-
mörku vegna stóraukins útgáfu-
kostnaðar.
ffl vors 1954
FRV. um breyting á lögunum um
menntaskóla varð að lögum í
gær. Er efri deild hafði írv. til
meðferðar var því breytt frá því
er neðri deild samþykkti það,
svo að frv. varð að fara aftur íil
neðri deildar.
Hún samþykkti svo frv. óbreytt
eins og efri deild gekk frá því og
var frv. síðan afgr. til ríkisstjórn-
arinnar, sem lög frá Alþingi.
Efni laganna er á þá leið, að
ráðherra getur, að fengnum tillög
um hlutaðeigandi skólastjórnar,
heimilað, að við menntaskólana
starfi óskipt miðskóladeild til
vorsins 1954. ?
NOSEK OG CLEMENTIS
Á VETTVANG
Líkið var flutt aftur í íbúð
Masaryks, og þangað fylgdi dr.
Teply bví.
Rétt áður en hann gekk inn í
húsið sá hann stóran, svartan bíl
renna upp að því. Út úr. honum
komu þeir Vaclov Nosek, innan-
ríkisráðherra og yfirmaður leyni-
lögreglunnar, og Vladimir Clem-
entis, er seinna varð utanríkis-
ráðherra, en situr nú í fangelsi.
Þeir flýttu sér í lyftuna og kom-
úst í íbúð Masaryks á undan
Teply.
Fleiri skinn á boð-
stólum en fyrr
KAUPMANNAHÖFN, 21. jan. —
Á alþjóða grávörumarkaðinum í
Kaupmannahöfn í dag og á morg-
un, eru á boðstólum 130 þúsund
minkaskinn og 6000 silfurrefa-
skinn. Er þetta mesti skinna-
markaður, sem nokkru sinni hef-
,ur verið haldinn.
Markaðinn sækja kaupendur frá
Bandaríkjunum, Bretlandi, Frakk
landi, Ítalíu og Vestur-Þýzkalandi.
NTB
LEYNDARDOMSFULL
IIEIMSÓKN TIL HINS
DAUÐA
Þegar hann kom inn í íbúðina,
voru þeir, sem á undan fóru, í
óða önn að færa allt til betri veg-
ar og afmá ummerki hins æðis-
lega bardaga, sem hafði verið háð-
ur þar inni. Teppin voru færð úr
stað, húsgögnum velt, stólfætur
brotnir frá, einkum var allt á tjá
og tundri í svefnherbergi Mása-
rýks.
Þegar lögreglumennirnir höfðu
lagað dálitið til í.rúminu, var líkið
lagt þar. Nosek gekk að ghigg-
anum, starði út og sagði alvar-
legur í bragði: „Sjálfsmorð“. Þeg-
ar dr. Tepsy hreyfði mótbárum,
skipaði ráðherrann honum að
hverfa til vinnustofu Masaryks
og biða þar.
Tuttugu mínútum seinna kom
einhver maður með handklEeði á
handleggnum, hvíslaði nokkrum
orðum að Clementis og Nosek og
gekk í áttina til svefnherbergisins.
Þegar lögreglumaður ætlaði að
varna honum inngöngu, hratt sá
aðkomni honum til hliðar og sagðí
hrottalega: „Verið þér ekki að
gera yður merlcilegan, maður
minn, ég fer þessa leið“.
Þessi ókunni maður dvaldist
hálftíma einn inni hjá líkinu, því
næst kallaði Nosek alla i íbúðinr.i
saman og lét þá sverja, að þeir
hefðu hvorki séð né heyrt neitt
markvert.
IIMIIIHIIIIiaMIIIIIIIINMIMI
Markús:
£
&
&
1) Raggi
Þæistinguna.
í óleyfi.
getur ekki
Hann tekur
staðizt
bílinn
2) — Heyrðu, bannaði pabbi
þinn þér ekki að keyra bíl í einn
mánuð.
— Kemur ekki málinu við.
3) — Sjáðu, nú ætla ég að
taka þessa b..
ég komi að.
tveimur hjólum
-6111
>■ t
,1 »
t J : V
l ■51.
« \ i ;
I. ,í .1 w t
í H
I 1 'I I .11 - - Mí
.“í Öi ; riui v / .
AHRIFANNA GÆTIR
Þremur mánuðum eftir dauða
Masax-yks, dó dr. Tepsy í skrif-
stofu sinni í aðalbækistöðvum lög-
reglunnar. Látið var heita, að
hann hefði gefið sjálfum sér
ranga innspýtingu. Og mönnum
verður að spyrja: Hafði vitund
Clementis um atburðina 10. marz
ekki einhver áhrif á örlög bans
seinna meir? Það hefir óreiðan-
lega ekki verið neinum hollt, þeg-
ar frá leið, að vita of mikið um
atburðina í utanríkisráðuneytinu.
Eftir þessa yfirlýsingu Sulz-
feergers má gera ráð fyrir, að
skýrsla dr. Teplys verði birt í
heild.
Eftir Ed Doddf<
u svo hratt, að
við veginn á
4 I t »
• I I •
I II
« f II II
IMt