Morgunblaðið - 26.01.1952, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.01.1952, Blaðsíða 5
Laugardagur 26. jan. 1952 MORGUISBLAÐIÐ 0 ) Verkamannafélagið Hiíf í Hafnarfirði 45 ára VERKAMANNAFÉLAGIÐ HLIF í Hafnarfirði er 45 ára um þessar mundir, en ekki er vitað með vissu um stofndag þess, þar sem fyrsta gjörðabók félagsins er glöt uð. Það sem vitað er um stofnun félagsins og starf fyrstu 7 árin er því eingöngu eftir fréttum úr blöðum um þær mundir svo og það, sem tekið hefur verið sam- an eftir minni stofnenda. Munu stofnendur hafa verið um 40 eftir þvi, sem næst verður komizt, en I um miðjan marz, stofnárið, var ■ fclagatalan 230 og þar af 70—80 kvenmenn. ETFITT STARF Eins og flest hinr.a fyrstu verka lýðsfélaga fékk Hiíf ekki góðar viðtökur og ler.ti því barátta fé- lagsins í það að berjast fyrir til- verurétti sínum. Var það oft erf- itt starf, jafnframt því, sem það þurfti eð koma föstu formi á vinnudaginn og fá viðurkenndan ákveðinn kauptaxta. Fyrsti formaður félágsins var Isak Bjarnason á Oseyíí, en fijótt gerðist Sveinn Auðunsson aðal- baráttumaður fyrir félagið og stjórnaði hann því í gegnum erf- iðustu árin í sögu þess, en það voru fyrstu árin. Bar hann mörg mál félagsins fram með festu bg dugnaði og leiddi þau farsællega til sigurs. MARKMI0 FÉLAGSINS í fyrstu lögum félagsins var stefnan skýrt mörkuð og var hún aðallega fólgin í því að styrkja og efla hag féiagsmanna, koma betra skipulagi á vinnudaginn og takmarka vinnu á helgidögum. l>á var og tilgangurinn að auka menningu ög bróðurlegan sam- hug innan félagsins og einnig að •styrkja þá félagsmenn éftir megni, sem yrðu fýrir óhöppum 'eða slysum. Þegar félagið var stofnað var ekki gerður greinarmunur á því á hvaða tíma sólarhringsins var unnið, og kaup karla var þá 18— 25 aurar á tímann og kaup kvenna 12% eyrir. Á þessum ár- um sömdu verkalýðsfélögin ekki um kaup og kjör við atvinnurek- éndur, heldur samþykktu þau ákveðinn kauptaxta og auglýstu hann. PÓLITÍSK AFSIÍIPTI HIÁFAR Hlíf var ekki aðeins stéttarfé lag heldur og pólitískt baráttu- ■félag verkamanna í bænum og undirbjó það framboð af sinni hálfu i ölium bæiarstjórnarkosn- ‘ingum á tímabilinu frá 1914—- 1924. En eftir það var það ekki beinn þátttakándi í kósningum, heldur var það Alþýðuflokkur- inn, sem var studdur af Hiíf, enda voru forystumenn Hiifar einnig forystumenn Alþýðu- fJokksins um bær mundir. í Þegar Alþýðusamband ísland: var slitið úr tengslum við A1 -þýðuflokkinn var Hlíf eingöngu stéttarfélag verkamanna og hef- ur jafnan ríkt mikil eining í því síðan um það að efla stéttarlegan hag verkamanna. I því sambandi má benda á það, að nú síðustu ár hefur stjórn félágsins verið skip- uð mönnum úr þremur aðalstjórn málflokkunum í Hafnaríirði. MF.NNINGAR- OG LÍKNARMÁL HJíf hefur jafnan iátið sig menningar- og líknarmál miklu skipta. Má t.d. nefna málíunda-. starfsemi innan félagsins, íþrótta mál, söngmálastarfsemi, útgáfu blaðsins Hjálmur, sem kom fyrst út 1912 og margt fleira. Þá hefur löngum verið starfandi styrktar- sjóður innan Hlífar og stendur sú starfsemi með miklum bJóma nú. Hefur því oft tekizt að rétta bágstöddum Hlífarmanni hjóipar hönd. Félagið átti 14 hlutn í f'skiskipi árin 1916—’17 og pöntungrstarf- semi komst ó á vegum félagsins 1919. ÐEILDASKÍPTING Innan Hlífar starfa tvser deild- ir, er það deild vörubif reiðastjóra, sem stofnuð var 1931 og deild vélamanria í frystihúsum. Deildir þessar vinna að sérmálum sínum auk þess sem þær vinna að sam- eiginlegum hagsmunum Hlífar- manna í heild og hefur samstarf- ið vérið gott á milli þeirra og aðalfélagsins. FÖRMAÐUR í Í2 ÁR Hermann Guðmundsson hefur nú veríð formaður Hlífar í 12 s. 1. ár og hefur enginn verið svo lengi í ícrmannssæti í félaginu. Hefur hann átt drýgstan þáttinn í því að bera starfsemi félagsins uppi þau ár, sem hann hefur ver- ið í stjórnarforystu. Aðrir í stjórn eru: Sigurður Þórðarson ritari, Þorsteinn Auðunsson gjaldkeri, Ólafur Jónsson varaform., Jens Runólfsson íjármáiaritari, Pétur Kristbergsson vararitari og Bjarni Erlendsson varagjaldkeri. TÍMARNIR TVENNÍR Það verður ekki annaö sagt en að Hlíf sé búin aó iifa cverina tímana þau 45 ár, sem íélagið á að baki. Breytingarnar í at- vinnulífi Hafnfirðinga hafa verið geysimiklar. Félagið hefur því alltaf mætt nýjum og nýjum við- fangsefnum. Hörð átök hafa orðið á milli þess og atvinnurekertda og mikil átok hafa átt sér stað í því innbyrðis. Gekk það svo langt einu sinni að það var stofnað annað verkálýðsfélag, Verkalýðsfélag Háfnarf jarðar, í þeim tilgárigi að kljúfa Hlíf og Hlíf rekin úr Al- þýðusambandinu, en cll þessi á- tck hefur Hlíf staðið af sér. Sé litið fram á við þá er það fullvíst, að Hlíf á eftir að fá mörg og stór viðfangsefni til að leysa og um þau geta orðið hörð átök bæði út á við og inn á við. Von- andi farnast félaginu vel á ókomn- um árum og störf þess verði til Framlfc á bls. 8 Sveins Bjömssonðf minnsf í Danmörku KALTPMANNAHÖFN 25. jan. — Danska útvarpið helgaði í kvölcl hálfrar stundar dagskrá minningu Sveins Björnsson- ar forseta. Fyrst söng bland- aður kór íslenzka þjóðsöng- inn, en síðan flutti Ole Björn Kraft utanríkisráðherra Dana minningarræðu frá Parísar- borg. Kvað hann hina óvæntu fregn um fráfall forsetans hafa valdið sér faislausum trega og sendi hann íslenzku þjóðinni innilegar samúðar- kveðjur. Hann sagði, að það hefði fært Sveini Björnssvni mikla hamingju að sjá óskir ísienzku þjóðarinnar rætast og liún hefði borið óskorað traust til hans. Staða íslands meðal Norðurlanda og innan Atlantshafsbandalagsins væri mikils virði og forsetinn hefði jafnan fylgt þessum samtök- um með einlægum áhuga. Hann var vinur Danmerkur, sagði Ole Björn Kraft að lók- um, og við þökkuin honum fyrir hans góða skilning, sem varð til góðs fyrir bæði lörid- in. Þvínæst var leikin íslenzk tónlist, unz dagskrárliðnum lauk. — Páll. tJmmæíi Bjama Asgeirs- sonar m forsefann OSLÓARBORG, 25. janúar. —> Bjarni Ásgeirsson sendiherra fs- lands í Noregi, minntist Sveins Björnssonar forseta í gær og fór- ust honum m. a. orð á þessa leið: Sveinn Björnsson var allt frá æskuárum einn af mikilhæfusti* íslendingum á sviði efnahags- og' sljórnmála. Um áratuga skeið hafði hann forustu í utanríkismál um Islendinga og lagði grund- völlinn að íslenzkri utanríkis- þjónustu. Það var mikil gæfa fyr ir íslenzku þjóðina að eiga slík- um stjórnmálamanni á að skipa þegar hún tók sjálf í sínar hend- ur æðstu stjórn landsins, eina manninn, sem þjóðin gat sam- einast um áð fela það starf. Sagði sendiherrann, að fráfall Sveins BjörnSsonar væri áfall fyrir íslenzku þjóðina, sém harm- ar nú hinn virta og ástfólgna for- seta sinn. — NTB Frambjóðendur B-listans í Dagsbrúnarkosningunum, sem hefjast í dag. Fremri röð, talið frá vinstri: Sigurður E. Jónssön, varafor- maður, Sveinn Sveinsson, formaður og Magnús Hákonarson, ritari. Aftari röð: Bjarni Björnsson, f jármálaritari, Jörundur Sigurbjarn- arson, meðstjórnandi, Magnús Hjörleifsson, gjaldkeri og Jóel Jóns- son, meðstjórnandi. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M. Stríðsnndirbúaingur Etússa við Eystrasait Einlcaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTB BONN, 25. janúar. — Vestur-þýzkt blað, sem þekkt er að áreið anlegum fréttaflutningi, segir í dag, að Rússar búi sig nú undir að gera Eystrasalt að rússnesku innhafi, ef til styrjaldar komi. VifS Wúmite Fertnésu- * sfjóroarinuðr ef sfríSið í Kóreu breiðisi úf YFIRLÝSING sú, er Taft fram- ^boðsefni repúblikana gaf fyrir skömmu um Kóreustríðið, hefur vakið heimsathygli. Hann sagði sem kunnugt er, að óhjákvæmi- legt væri fyrir Sameinuðu þjóð- irnar, að hefja árásir á kínverskt ír.nd, ef ekki næðist samkomulag við samningaborðið í Ivóreu. Taft kvaðst vera þess fullviss að loftárásir á flugstöðvar og birgðastöðvar kinverskra komm: únista mundu ekki leiða til virkr- ar þátttöku Rússa í styrjöldinni. LOKA EYSTRASALTI ^ Rússar hafa, segir blaðið, síðan stríðinu lauk komið sér upp áiit- legum flota smáskipa, sem nota á til að ieggja tundurdufl í Eystra- salti. Með aðstoð rússneska flot- ans, sem bækistöðvar hefur í Kronstað á þéssi floti að löka Eysti-asalti fyrir öllum siglingum erlendra skipa. LEPPRÍKIN MEÐ Pólland, Austur-Þýzkaland og Eystrasaltslöndin eru látin taka þátt í þessum áætiunum Rússa, sem hyggjast nota kafbáta sina til að herja á siglingaleiðum Breta og Bandaríkjamanna. Segir blaðið að skipasmíðastöðvar í Póllandi hafi smiðað fjölda slikra smáskipa, en Rússar hafa einnig keypt mik- ið af þeim í Hollandi og Belgiu. NORÐURLÖNDIN Blaðið segir sfi Rússar telji einn hættuna stafa af sænska flotanum, en þeir búazt þó við, að Svíar verði hlutlaus- ir sem fyrr. Að lokum segir, að Rússar búizt ekki við öfl- ugri mótspyrnu í Noregi og Danmörku, sem þeir hyggj ast leggja undir sig fljótt og fyrirhafnarlítið. Etjórn Hlífar 1951. Standandi frá vinstri: Jens Runólfsson, Þor- steinn Auðunsson og Bjarni Erlendsson. Sitjandi frá vinstri: Sig- urður Þórðarson, Ólafur Jónsson, Kermann Guðmundsson og Pétur Kristbergsson. Sendiherra i Mesk^u MOSKVU 25. 'jan. — Hinn nýi sendiherra Noregs í Sovétrikjun- im, Jens Snhive afhenti Nikulási Svernik íorseta, embættisskilríki sín í dag og flutti ávarp við það tækifæri. Kvaðst. hann mundu gera allt sem í sínu valdi stæði til að stuðla að vinsamlegum samskiptum þessara þjóða. Viðstaddir athöfnina voru m. a. Zorin varautanríkisráðherra og ýmsir starfsmenn utanríkisráðu- neytisihs í Mcskvu. Dmhverfis jörðina fyrir 2000 krónur LUNDÚNUM. — Brezkir verk- fræðinemar, John Dowdeswell og Michael Barrett, hafa lokið því þrekvirki að ferðast vegalengd sem samsvarar hring uinhverfis jörðina fyrir einungis rúmar 2000 ísl. kr. Fyrir þá er hyggjast fara að þeirra dæmi, er nauðsynlegt að skýra frá ferð þeirra. Þeir lifðu fyrir 7 krónur á dag og mat- seðillinn var þannig í ferðinni. í Frakklandi: Daglega tvær máltiðir, hrisgrjón soðin á þrímus. En í Kannes keyptu þeir þó sína vinflðskuna hvór fyrir 2,30. — Á ferðalaginu í Ítalíu og Júgóslavíu neyttu þeir einungis brauðs og sultu. 'í Grikklandi niðursóðið kjöt, Sem Grikkjum ér mjög illa við og seldu þeim þess vegna fyr- ir lítið verð. Birgðir af því tóku þeir með sér ög neyttu á leið- inni yfir Atlantshafið, sern þeir fóru ókeypis. í Ameríku fengu þeir að sitja í bílum ó þriðja þúsund mílnr og urðu nú að grípa til sultu og brauðs. í Toronto staðnæmdist Barrett en Dowdeswell brá scr til Kyrrahafsstrándarinnar, ó- keypis og aftur til New York og tók sér far heim með Queen Éliza beth. — NTR. HEIMSKÚLEG STEFNA Hann lýsti þeirri skoðun sinni að S. Þ. bæri tafarlaust að þiggja liðveizlu Formósa- stjómarinnar, ef til þess kæmi að Kóreustríðið breiddist ÚL Það væri „heimskuleg stefria * að hafna aðstoð „beztu her- manna, sém kostur er á í f jar- lægari Austurlöndum“. VARNIR EVRÓPU Taft hallast að því, að Vestur- Evrópa eigi í rauninni að verja sig sjálf án aðstoðar bandarískra iiðssveita. Telur hann að um sið- ir eigi að kveðja þær heim. Hann. er andvígur því, að Bandaríkin. sendi her tii aðstoðar Bretum á Súez-eiði, nema samningar Breta og Egypta verði endurskoðaðir og samþykki Egypta fengið til veru bandarísks hers þar. ÖFLUGUR STUÐNINGUR VIÐ FRAKKA Hins vegar vill hann leggja áherzlu á aðstoð við Frakka ■ Indókína, án þess þó aíf bandarískur her verði sendur til vígvallanna. SIGURMÖGULEIKAR Taft hefur enn mesta sigur- möguleika, að því er talið er, til þess að verða tilnefndur forseta- efni republikana. Sanckvæmt könnun, sem nýlega var gerð, á hann örugglega fylgi 400 fulltrúS af 1100. Eisenhower er talinn nokkuð viss með 300 en á ýmsu getur oltið um afstöðu þeirra sena. eftir eru. lm Frakka TUNIS 25. janúar. — Upplýsinga mólaráðherra Frakklands upp- lýsti eftir ráðuneytisfund í dag, að franska stjórnin mundi senda Beiinum í Túnis nýja orðsend- irigu um afstöðu Frakka til mála þar í byrjun næsíu viku. Schuman utanríkisráðherra hef ur heitið forseta Állsherjarþings- ins að gera honum aðvart um ákvarðanir Frakka í Túnismálinu- jafnskjótt og þær verða teknar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.