Morgunblaðið - 05.02.1952, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.02.1952, Blaðsíða 8
8 ' MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 5. febrúar 19o2 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjörn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald kr. 18,00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Kr. 1,25 með Lesbók. 20 múnuðir HINN 25. janúar s. 1. hófst 20. mánuður styrjaldarinnar í Kóreu. í þann mund hófst einn- ig áttundi mánuður vopnahlés- umræðna þeirra, sem ræða Jakobs Malik hinn 23. júlí var inngangur að. Á þeim rúmlega 19 mánuðum, sem liðnir eru síðan að komm- úmstar hófu Kóreustyrjöldina með lymskulegri árás á lýðveldi Suður-Kóreumanna, hefur mikið blóð runnið og miklar þjáningar verið lagðar á saklaust fólk, bæði á Kóreuskaga og í þeim 17 lönd- um, sem sent hafa liðsafla til þess að verjast ofbeldinu. Gífur- legu fjármagni hefur einnig ver- ið eytt til þess að heyja þessa styrjöld. Um það þarf engum að bland- ast hugur að vörn Sameinuðu þjcðanna í Kóreu og ósigur kcmmúnista þar, hefur haft stór- fellda þýðingu fyrir framtíðar- öryggi frjálsra þjóða. Með henni vai ofbeldisöflunum sannað, að þau gátu ekki farið sínu fram óhegnt. Þau gátu ekki rænt sak- lausar þjóðir frelsi sínu og hafið ofbeldisárásir án þess að Sam- einuðu þjóðirnar létu þær að- gerðir til sín taka. ★ Það verður nú hinsvegar Ijósara með hverjum deginum sem líður að kommúnistar hafa notað vopnahlésumræð- urnar sem skálkaskjól til þess að undirbúa frekari hernaðar- aðgerðir í Kóreu. Fyrir þeim hefur ekki vakað fyrst og fremst að ná heiðarlegu vopna hléi. Pekingstjórninni var orð- ið ljóst, að herir hennar í Kóreu höfðu beðið geysilegan ósigur. Hún sá einnig í hendi ser, að sá ósigur gat haft ör- lagaríkar afleiðingar fyrir álit hennar meðal þjóða Asíu. — Þessvegna hóf hún vopnahlés- viðræður í Kaesong og síðar undirbúningsviðræður í Pan- munjom. Afstaða Sameinuðu þjóðanna hefur verið sú, að freista í lengstu lög að ná samkomulagi um niður- fat; vopnaviðskipta, til þess að kcimizt yrði hjá frekari blóðsút- hellingum. Þær raddir eru nú hirisvegar teknar að heyrast með- al þeirra þjóða, sem sent hafa her til Kóreu, að þýðingarlaust sé að þjarka öllu lengur við samningaborð við kommúnista. Nauðsynlegt sé að láta hernað- araðgerðir skera frekar úr í við- ureigninni á Kóreuskaga. Sú leið sé- jafnvel hklegri til þess að binda endi á styrjöldina og halda uppi heiðri samtakanna, en frek- ari viðleitni til þess að koma á vopnahléi. ★ Um það skal ekki fullyrt á þessu stigi málsins, hvort þetta verður niðurstaðan af rúmlega 7 mánaða samningaþófi. Frið- samar þjóðir hafa til þessa gert sér nökkra von um að vopnahléi yrði komið á. Sú von fer þverr- andi dag frá degi. í gær bárust að vísu fregnir um, að nokkru vænlegar horfði um samkomulag í fangaskipta- neíndinni en gert hefur um skeið. Sú staðreynd er í dag ljósari en nokkru sinni fyrr, að heimsfriðn- um stafar fyrst og fremst hætta af einu: Ofbeldis- og uppvöðslu- stefnu kommúnista. Það er alveg sama, hve mörg „friðarávörp" Kominformklíkan lætur frá sér fara til þess að varpa yfir_ sig blæju friðarvilja og sáttfýsi. Úlfs- hárin verða ekki dulin undir sauðargærunni. Þess ákafari, sem friðaryfirlýsingar kommúnista verða, þess auðsærri eru ráða- gerðir þeirra um frelsisrán og ofbeldi. Þessi sannleikur getur nú ekki dulizt neinum hugsandí manni. Aðeins þeir, sem freðið er fyrir skilningarvitin á af ofstæki og skurðgoðadýrkun, geta trúað því, að friðartal kommúnista styðjist við annað en hræsrti og yfirdrepsskap. ★ Allar líkur benda til þess, að Sameinuðu þjóðirnar taki mjög fljótlega afstöðu til þess, hvort halda beri áfram þófinu í Panmunjom. Ef niðurstaðan verður sú, að þar slitni upp úr öllum tilraunum til að koma á vopnahléi, mun nýr og ör- lagaríkur þáttur í Kóreustríð- inu hefjast. Þeim þætti getur áreiðanlega ekki lokið á mjög skömmum tíma. Um það verð- ur heldur ekki sagt fyrirfram, hvað gerast kunni í heims- stjórnmálunum meðan á þeim átökum stendur. En nokkur á- stæða er til þess að vera ugg- andi um þá atburði. Habib Bourgbiba - maðuríoii, se kostar Frakka blóð eg óbyggjnr I CASBAH-borgarhlutanum í Túnisborg er lítið hús og lág- reist. Þar eru aðalbækistöðv- ar Neo-Destur-flokksins, eða þjóðernisflokksins í Túnis. Flokksforystan kippir sér engan veginn up við, að Habib foringi flokksins, er oftast „að heiman“, en konan hans, sem er 10 árum eldri og frönsk að ætt, tekur þátt í flokksstarfinu af átríðuþunga, og er persónu- legur fulltrúi hans, þegar hann er ekki heima. Sagt er, að hún sé miklu harðvítugri í garð frönsku stjórnarinnar en hann sjálfur. í LITLUM bæ í útnára Túnis- I eyðimerkurinnar dvelst Habib Bourghiba um þessar mundir og Foringí |)|óðernBssin/iia á Túnis er þeim erfiður í handrilamálinu FYLLSTA ÁSTÆÐA er til þess að fagna þeim ummælum Her- ma nsen kirk j umálaráðherr a Dana, í samtali, sem blaðið birtir við hann í dag, að líkur séu til þess að sú lausn finnist í hand- ritamálinu á þessu ári, sem bæði íslendingar og Danir geti fellt sig við. Það er einnig fullvíst, að skynsamlegt er að reyna að kcmast sem fyrst til botns í þessu máli, sem vitað er að báð- um þjóðunum er viðkvæmt. Orð ráðherrans um sambúð þessara tveggja norrænu frændþjóða eru íslendingum áreiðanlega gleði- efni. Við getum fyrir okkar leyti lýst því yfir, hvar sem er og hvenær sem er, að áhugi okkar fyrir sem nánastri og beztri sam- vinnu við dönsku þjóðina er ein- lægur og fölskvalaus. Það er okkur ánægjuefni, ekki síður en vinum okkar í Danmörku, að sam búð þjóðanna hefur stöðugt farið batnandi undanfarin ár. Aukin kynni þeirra af högum hvor arin- ara munu halda áfram að bæta hana og skapa gagnkvæman skilning og vináttu á milli þeirra. Islendingar eru norræn þjóð að ætt og uppruna. Því vilja þeir hvorki né geta gleymt. Aukin þátttaka fs- lands í alþjóðlegu samstarfi og vaxandi viðskipti okkar við hin vinveittu engilsaxnesku stórveldi hafa ekki fjarlægt íslenzku þjóðina frændþjóðum sínum á Norðurlöndum. Einn- ig þær hafa orðið að leita sér skjóls og verndar í víðtækum samtökum frjálsra þjóða. Það er steoðun okkar íslend- inga, að hin menningarlegu tengsl milli okkar og annara norrænna þjóða megi aldrei rofna. Ennþá síður mega þessar þjóðir vanrækja fræridskap sinn. Þvert á móti hljóta norrænar þjóðir að þoka sér saman, treysta vináttubönd sín og ættartengsl, ávaxta hinn sameiginlega menn- ingararf, sem tilvera þeirra fry£g-;st á. sé varnalaus fangi franskra yfir- valda — að minnsta kosti í svip. EKKI OFSTÆKISFULLUR FJANDMAÐUR FRAKKA Habib er ekki fjandsamlegur Frökkum í venjulegum skilningi. i Hann er ekki ofstækisfullur Múhameðstrúarmaður, hann er ekki heldur andevrópskur. Hann er meira að segja áhangandi vest | rænna menningarstrauma. Hann talar betur frönsku en mállýzku ættflokks síns. Hann hefir hlotið menntun sína við Sorbonne, á áhrifamikla vini í löndum Breta og Bandaríkjamanna. Dvelst langdvölum erlendis, þar sem hann rekur þrotlausan áróður fyr ir málefninu Frjálst Túnis innan takmarka hins vestræna heims. SAT ÞRÍVEGIS í FRÖNSKUM FANGELSUM Fæddur er hann í litla evði- merkurbænum Monastir. o? barn skónum sleit hann í Túnis, en vestrænir siðir hans eru útlend- ingslegir í augum margra flokks- manna hans. Hann klæðist falleg- Frjálst Túnis er markmið hans. hefst ekki að, svo að séð verði. Franskir hermenn gæta hvers fót máls hans. Þó er engan veginn látið í veðri vaka, að hann sé fangi, ekki einu sinni í stofu- fangelsi. Hann hefir einungis verið „fjarlægður frá Túnisborg, þar sem nærvera hans er ekki æskileg, meðan á óeirðunum stendur". En ef hann reyndi að hverfa, þá mundi urmull franskra sendi- manna leita hans um þvert og endilangt landið, og ekki gefast upp fyrr en hann væri fundinn. Þeir létu sér einnig vel líka að heyra rödd hans í bandaríska út- varpinu. Þar hefir hann stundum ávarpað fólkið á hinni góðu frönsku sinni. I Habib Bourghiba er foringi Neo-Destur-flokksins, en tilvist hans hefir kostað mikið blóð og valdið Frökkum miklum erfið- leikum við seinustu stjórnarmynd I un, og mátti þó sízt þar á bæta. SÁ EINI, SEM FRAKKAR ÓTTAST Hann er að líkindum sá mað- urinn í Túnis, sem Frakkar óttast mest og þora ekki að skerða hár á höfði hans, og er það meira en sagt verður um nokkurn annan . Túnis-búa. J Ef honum væri einhver miski ; unninn, mundu þær tvístruðu og I ósamstæðu óeirðir, sem gosið hafa upp hingað til, verða vopn- , uð og samstillt barátta. Því að j Neo-Destur-flokkurinn er ekki I vopnlaus. Hann er skipulagður I ágætlega og forystan veit, hvað j hún vill. Innsti kjarni hans er bræðralag manna, sem vinna á . laun og fara ólöglegar leiðir. Sennilega þyrfti Bourghiba ekki annars en laumast allra , snöggvast úr auesýn gæzlumann ( anna til að fá hjálp til að hverfa , og dveljast svo óhultur með ! flokksmönnum sínum. En hann telur það betur stoða málstað sinn að láta líta út fyrir, að hann um fötum eftir evrópskri tízku, notar aldrei vefjarhött, í mesta lagi fez og þá til að þóknast lönd- um sínum. Þrívegis hefir hann setið í frönskum fangelsum, á styrjaldar árunum var hann fluttur til Frakklands, þar sem hann var hrifinn úr fangelsi í Toulon 1952. Þá á hann að hafa sagt: ,,Eg þigg frelsið, hvaðan sem það kemur, jafnvel þótt það sé frá Þjóð- verja“. Habib er eini maðurinn, sem veit hve öflugur flokkur hans er. Hann er að vísu bannaðúr, en öllum er Ijóst, að hann er til. Franska lögreglan vissi það löngu áður en óeirðirnar gusu þar upp rétt eftir miðjan janúar s.l. Perluuppboð. LUNDÚNUM — Stjórn Venezú- ela hyggst efna til uppboða í Lundúnum, París, Beirút og víð- ar, þar sem 215.000 sterlingsp. virði af perlum verða seldar. 1— Andvirðinu verður varið til kaupa á landbúnaðarvélum. Velvakandi skriíar: ÚB DAGLEGA LlFIMU Bókamarkaðurinn í Listamannaskálanum ALDREI hafa Reykvíkingar séð jafnmargar bækur á boðstól- um í einu og nú á bókasýningunni í Listamannaskálanum. .... á bókasýningunni. Bókasýning þessi, sem réttast væri að kalla bókamarkað, er hin athyglisverðasta fyrir ýmissa hluta sakir. En það skiptir mestu máli fyrir almenning, að þarna getur hann moðað úr meiru en á nokkrum öðrum stað, því að bæk- urnar kváðu vera á 6. hundrað, og verðið er miklu lægra heldur en tíðkast á nýjustu bókunum, sem einkum er otað að mönnum í bókabúðunum nú. Þetta kunna menn að meta, enda hefir verið ös. Greiður aðgangur að bókunum SMEKKLEGA og haganlega er gengið frá bókunum, þær flokkaðar og þeim stillt saman eftir efni, svo að gestir geti sem bezt gert sér grein fyrir, hvað er að fá. Yfirleitt eru þetta mestu sórna- bækur eftir innlenda höfunda og erlenda, þó að dálítið rusl hafi fengið að fljóta með. Það er líka undanrennan, sem múgur manns gleypir við að sagt er. Framtakssemin sú arna er þakkar verð, og kaupendum jafnt sem seljendum til hagsbóta. Skyldur happdrættishafanna VART líður sá dagur, að ekki séu birt í blöðum og útvarpi þessa lands auglýsingar og áskor- anir til fólksins að kaupa miða í hinum og öðrum happdrættum, og er ekki ætlun mín að amast við því, oft eru það menningar- og líknarstofnanir, sem efna til þeirra. En eins og það er skylda al- mennings að bregðast vel við, þegar svo stendur á, þá tel ég, að á happdrættishöfunum hvíli og skyldur við almenning. Þeir, sem til happdrættis stofna, eiga tafar- laust að birta, á hvaða miða vinn- ingar hafi komið og á það glögg- an hátt og skilmerkilegan, að ekki geti farið fram hjá kaup- endum rniðanna. Setja ætti regur um birting vinninga. SANNLEIKURINN er sá, að hætt er við, að miðarnir fari forgörðum, ef birting vinnir.ga dregst á langinn. Mér fyndist, að leyfi til happdrættis ætti að binda því skilyrði, að vinningar yrðu birtir á tiltekinn hótt. Happdrætti Háskólans, ríkis- sjóðs og SÍBS eru til fyrirmyndar um birting vinninga og fleiri fara að þeirra dæmi. Tilefni þess, að ég tek mér penna í hönd nú er eiginlega, að vinningar í happdrætti Alþýðu- flokksins, sem draga átti í um áramót, hafa ekki enn verið birt- ir, svo að ég viti. Ef búið er hins vegar að birta vinningana, gætirðu þá ekki vís- að mér á hvar úrslit er að finna? Reykvíkingur“. Dregizt mun hafa að birta vinn ingana, þar sem staðið hefir á að menn gerðu skil. Við rekum flugurnar úr matnum ÞAÐ hefir vakið óhemjufögnuð í Danmörku, að landbúnaðar- ráðuneytið gefur út fyrirmælí um, að allir ostar búnir til í land- inu skuli hér eftir heita dönskum nöfnum í stað þess að vera kall- aðir eftir erlendum staðarnöfn- um. Danir, sem flytja ostana út, kæra sig ekki um, að þeir beri annarleg nöfn, sem ef til vill varpa huliðshjúp á uppruna þeirra. Þarna gætum við tekið dansk- inn til fyrirmyndar og skorið nið ur einhvern slatta þeirra hlálégu nafngifta, sem setjast á matinn. okkar eins og flugur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.