Morgunblaðið - 04.03.1952, Page 11

Morgunblaðið - 04.03.1952, Page 11
Þrið'judagur 4. rnarz ISE MORCVNBLAÐIÐ 11 Jens Ingvi Jóhannsson Minningarorð , r„ Guðhrandur Jónsson psófessor: ÞANN 27. júlí 1951 andaðist Jens Ingvi Jóhannsson á heimili sínu Suðurgötu 51 í Keflavik, eítir langa og mjög þunga sjúkdóms- jþraut, aðeins 34 ára gamall. Það er ekki af ræktarleysi víð þennan lunga ágætismann að hans hefur ekki fyrr verið minnst opinber- lega. Nei, svo hugstætt er okk- ur það mikla skarð, sem höggvið hefur verið hér í ástvinahópinn. En okkur hefur verið „tregt tungu að hræra“, eins og Egill Skallagrímsson kvað forðum. Hér er enginn meðalmaður kvaddur, heldur frábær efnis- maður og leið drengur hinn besti, er eigi vildi vamm sitt vita. Jens heitinn var fæddur 26. febr. 1917 á Mjóabóli í Dalasýslu. Foreldrar hans_ voru heiðurshjón- in Halldóra Ólafsdóttir og Jó- hann Jensson hreppstjóri, er síð- ast bjó að Hlíðarenda í sömu sýslu. Börn þeirra voru 9 og var Jens heitinn með þeim yngstu þeirra. 9 ára gamall fluttist hann til Bjarna skálds Gíslasonar á Harrastöðum og ólst að nokkru leyti upp hjá honum og konu hans og minntist hann þess heim- ílis æ síðan með ást og virð- ingu. Árið 1935 kom hann til Kefla- víkur í atvinnuleit og varð sú ferð hans býsna örlagarík, því þar kynntist hann eftírlifandi eeonu sinni, Sólveigu Sigurðar- dóttur og voru þau heitbundinn áður en hann fór heim til sín um vorið. Svar við athugasemd Aðalfundur Snæfellingafélagsins er í k>öld kl. 8.30, í Þjóðleikiiúss kjallaranum. Stjórnin. ÞrýstisprautuE' HEÐINNi Yfirdekkjum spennur Yfirdekkjum margar gerðir af kjóla- og kápuspennum. ' Verð frá kr. 4.50 til Kr. 6.60 eftir stærð og gerð. Mjög fljót afgreiðsla. Verzlunin HOLT h.f. Skólavörðustíg 22. UTSALA Kvenkjólar; kvenkápur; barna samfestingar, uilar, á 2ja—• 4ra ára, 80 kr. Drengjafrskk ar, 10—14 ára frá kr. 150.00 Margt annað tilbúið með mjög lágu verðL Sloppa- og kjólaefni. Tækifærisverð. Verzlunin FRAM Frá 3,—-10. marz hefst IITSALA i Antikbúðinni, Hafnarstræti 18. — 10—25 prósent af- sláttur. — Fallegar tækifær- isgjafir: Vasar, málverk, úr frá kr. 250.00, armbönd, ekta silfur, frá kr. 140.00, barmon ikkur, fiðlur o. m. fl. Munið: Antikbúðin Þau voru bæði ung og fram- tíðardraumarnir voru fagrir, þrátt fyrir kreppu og atvinnu- leysistíma. Á smáu var byrjað, en það var unnið saman í ást og ein- drægni að því að byggja upp og fegra litla heimilið. Það kom bráðlega í ljós hve frábærlega hagur Jens heitinn var, og mátti segja að hvert verk léki í hönd- um hans. Honum varð heldur ekki atvinnuvant er hann tók að kynnast í Keflavík, því menn sóttu um að fá hann til allskon- ar smíðavinnu og annara auka- starfa, sem vandasöm þóttu, þó hann hefði árum saman fasta vinnu bæði hjá ■ Bræðslufélagi Keflavíkur og hjá Esso-félaginu á Keflavíkurflugvelli. Allstaðar var Jens heitinn jafnvel kynntur, sem bezt mátti sjá á því, hve snilldarlega félagar hans reynd- ust honum í veikindum hans og dauða. En eins og eftir hann liggur ágætt starf út á við, þá er þó ógetið enn hins allra bezta í fari hans, en það var hve frábær faðir og eiginmaður hann var. Fyrir nokkrum árum réðst hann í það ásamt Þórólfi Sæmundssyni svila sínum að koma sér upp íbúðarhúsi og kom sér þá vel hagleikur hans, eins og fyrri dag- inn. Þarna eignuðust þau hjón- in fagurt og þægilegt heimili og lífið virtist brosa við þeim. En dimmt ský grúfði yfir og áður en varði syrti að. Það var haust- ið 1950 er Jens heitinn tók að kenna lasleika þess er síðar varð að svo þungbæru rheini og dró hann að lokum til dauða. Hann gekk þó ótrauður til vinnu sinn- ar fram að jólum, en eftir þann tíma byrjaði svo ferill hans milli læknanna, bæði innan lands og utan. Allt var gert, sem í mann- legu valdi stóð til bjargar, en hönd drottins tók. í taumana og dáðríku lífi ungs manns var lok- ið. — Sambúð þeirra hjónanna, Sól- veigar og Jéns, var með slíkum áfætum, að það mátti segja að þar félli ekki skuggi á og betri og umhyggj usamari föður er ekki hægt að hugsa sér. Þau eignuðust fjórar dætur, Halldóru, sem nú er 15 ára, Magneu Ey- rúnu 13 ára, Eygló 10 ára og Jóhönnu 5 ára. Jens var röskur mlðalmaður á hæð, vel vaxinn, fríður sýnum og svipbjartur eins og fagur vor- dagur. Hann var ágætlega greindur og hafði mikið yndi af Ijóðum og gat brugðið fyrir sig að svara með laglegri stöku, ef á hann var yrt í ljóði. Öll var framkoma hans meitluð af prúð- mannlegri góðvild og hófsamri gleði. Hann var góður borgari Keflavíkurbæjar og vildi sóma hans í hvívetna, en hann bar einnig til hinztu stundar óslít- andi tryggð til æskustöðvanna, og mátti segja, að hann væri jafn ágætur Dalamaður sem Keflvík- ingur. Hans er sárt saknað af systkin- um, tengdafólki og vinum, en aílra sárast af elskaðri eigin- konu og ungu dætrunum. En við treystum því öll að guð hafi kallað hann til æðri starfa á landi ljóss og friðar. Blessaður veri hann þar á sinni þroska- braut. J. G. MORGUNBLAÐINU hefir borist eftirfarandi svargrein við grein Sigurðar Sigurmundarsonar um „Sjöundarmorðin", er birtist í blaðinu 25. febrúar. Höf. segist óttast, að hneyksl- ast verði á því, að „lítt þekktur leikmaður“ riti dóm um bók, sem „einn hinna lærðu" hafi samið. Það gerir enginn maður með viti, en það íylgir sá böggull skammrifi, að menn verða að geta fundið því stað, sem þeir skrifa. Höf. kveðst aðeins ætla að gera greinina „Sjöundármorðin“ í bók minni að umtalsefni. Það fer þó út um þúfur, því að það fara fjórar og hálf af ellefu síðum handritsins í allt annað. Hálf önnur síðasta síða þess fer í almenna skraddaraþanka um gildi íslenzkra ritdóma og nauð- synina á því að varðveita ís- lenzka tungu, sem allt hefur ver- ið sagt margsinnis, en miklu bet- ur en höf. gerir, og bætir þó nokkuð, að hann prentar um leið vísu úr „Stórasandi“ eftir Einar Benediktsson, en ekkert af þessu kemur við Sjöundár- morðin. Hinar þrjár síðurnar fara í að athuga formálann, sem ekki lýtur að Sjöundármorðun- um frekar en hitt. Höf. telur að formálinn sé hvorki „ítarleg- ur né greinilegur“, heldur ó- skipulegur og þokukenndur, og hefir eftir mér ýmsan þvætting, er þar á að standa. Ég rauk í for- málann og las hann, en þar stóð allt annað, en eftir mér var haft, og mér fannst það vera sæmilega ljóst og rétt. Ég vildi nú prófa, hvort svo væri, og lét þokkalega greindann pilt á fimmtánda ári lesa þann kafla formálans, lið- uga eina síðu af sex, sem fettar voru fingur út í, og segja mér efni hans. Gerði hann það rétt, og er það mér nægur dómur um formálann, og reyndar um grein- arhöf. iíka. Ekki meiga formálar ríða bæk- ur á slig. Höf. kvartar undan því, að formálinn sé ekki ítarlegur og hlýtur þá eitthvað að vanta þar að hans dómi. Ef þetta er ekki skvaldur eitt hjá höf., hlýt- ur hann að hafa gert sér grein fyrir hvað það sé, og hvað er það þá? Þegar höf. snýst að Sjöundaár- morðunum, sem hann vill láta sýnast vera aðalatriði hjá sér, en er ekki, segir hann, að gangi málanna sé yfirleitt „allgreini- lega og skilmerkilega lýst.“ hjá mér. Þetta er að vísu lof, en ef satt skal segja lítils eða einskis virði vegna þess, að mér er kunnugt um, að greinarhöf. hefur alls ekki litið á heimildir þær, sem ég hef farið eftir. Hann getur því enga hugmynd haft um hvernig ég hef farið með þær. Ef hann hefði sagt, að sér virtist þetta vera svona, þá hefði verið vit í því. Bætir hann því við, að þetta haldist ekki hjá mér, nema meðan ég rek „rás viðburð- anna hlutlaust eftir heimildum“. Á hann með þessu við, að ekki meigi vinna úr heimildunum, meta gildi þeirra og rýna þær ( svo, að meira eða annað fáis^ út úr þeim, en þær bjóða við bókstaflegann lestur þeirra, og að ekki meigi draga af þeim þær ályktanir, er þær virðast gefa tilefni til? Ef svo er, virð- ist hann ekki hafa hugmynd um, hvernig sagnfræðilegum vinnubrögðum háttar. Hann virðist og heldur ekki skilja, að löngu liðnir tímar geta ekki haft á sér þá nærgætnishelgi eins og viðburðir líðandi stundar. Höf. segir þá, að ég virðist á allann hátt reyna að gera hlut Stein- unnar betri en Bjarna. Þetta er misskilningur, því þótt ég reyni að gera mér grein fyrir skap- gerð þeirra, er mér persónulega alveg sama um hvernig hún var, og persónulega hef ég enga sam- úð með hvortigu, og ekki heldur meiri andúð á þeim, en athafnir þeirra gefa tilefni til. Skoðun mína byggi ég á orðum þeirra og athöfnum, og geta menn gengið úr skugga um, hvort þeim þyk- ir hún rétt, með því að lesa bók mína, sem reyndar er svo til uppseld. Minnst er á tilraunir mínar til þess að finna tilgang síra Jóns Ormssonar með hinni óheppilegu framkomu sinni í málinu, og seg- ir höf., sem satt er, að þær hafi engann árangur borið. Sjálfur kemst höf. að þeirri barnalegu niðurstöðu, að tilgangur síra Jóns hafi enginn verið, og er þó kunn- ugt, að allt hefur tilgang engu síður en orsök, Kemst hann loks, þrátt fyrir þessa staðhæfingu, að þeirri niðurstöðu, að perstur hafi ekki „viljað heyra um“ eða trúa slíkum hermdarverkum á sókn- arbörn sín. Á þennan mögu- leika hafði ég að vísu bent, en hafnað honum af því, að ef sókn- arbörnin voru sýkn, var ástæðu- laust að vera með nein undan- brögð, og væru þau sek, væri það ósæmandi presti að hylma yfir þetta. Þá kemur að aðalatriðinu fyr- ir höf., sem eru ummæli mín um háttalag síra Eyjólfs Kolbeins- sonar. Greinin ber það með sér, að hún er eingöngu rituð vegna þeirra; allt hitt eru umbúðir til þess að láta sýnast sem ádeilan sé almenns eðlis. Höf. ber síra Eyjólf svo rækilega fyrir brjósti, að halda mætti, að hann væri náskyldur honum eða afkomandi hans að langfeðgatali, en ég hef ekki nennt að rannsaka, hvort svo sé. Ég veit, að sumir eru svo hvimpnir út af ummælum um löngu liðna og gleymda for- feður og frændur, að þeir líkj- ast um það konungsdótturinni á bauninni. Hefur höf. hvað ofan í samt rangt eftir mér, eykur við eða dregur frá. Hann segir, að ég kalli prestinn illgjarnan. Það er ósatt, en hitt segi ég, að mér þykir hann muni hafa verið kærulaus. Byggi ég það á tveim barneignum hans, er tví- vegis bægðu honum /frá prest- skap. Höf. segir réttilega, að nú mundu menn ekki kippa sér upp við þetta, en það var öðru vísi í þá daga, því að þá var þetta háskabraut fyrir presta og prestsefni, og hefði annað barn- ið með afleiðingum þess átt að vera nóg aðvörun, en því þykir mér síra Eyjólfur muni hafa ver- ið kærulaus; fleiri líkur er og hægt að tína til. Það sem máli skiptir er, hvað fram fór milli síra Eyjólfs og þeirra Bjarna nóttina, sem þau játuðu. Ég hef hvergi staðhæft neitt um hvað það var, en bent á, að síra Eyj- ólfur tvisvar segi, að þau hafi játað fyrir sér heimuglega. Það var um þetta, sem ég hnaut, og svo um það, að sýslumaður var ekki viðstaddur, er samtalið fór fram. Leynileg skriftamál, sem Norsku lög kalla, voru í þá daga manna á meðal nefnd heimug- leg skriftamál, og leiðir því orð- ið heimuglega, sem prestur not- ar, hugann að skriftamálum þeim, sem Norsku laga greinin á við. Ég hef ekkert staðhæft um það, hvort hér hafi verið um skriftamál að ræða, en bent á það, að mér þykja vera nokkrar líkur fyrir því. Ég hef því ekki heidur fellt neinn dóm um síra Eýjólf, heldur af5eins bent á það, hvernig meta bæri framferði hans, ef um skriftmál hefði ver- ið að ræða, og segir hin tilfærða grein Norsku laga til. Höf. stað- hæfir á einum stað, að ég segi, að hér hafi verið um skriftamál að ræða, en nokkrum línum seinna segir hann: „Að vísu fullyrðir höf. (þ. e. ég) ekki að þetta sé rétt skilið hjá sér,“ Hvað hef ég þá sagt? Ég get ekki hafa gert þetta hvorttveggja. Það sem hér veltur á er samanburður á því, sem sýnist hafa gerst og fyrir- mælum greinarinnar í Norsku lögum. Höf. segir að ég hafi „fyr- ir fram ákveðið að hnekkja áliti síra Eyjólfs“..Ég fulvissa um það, að ég hef engann persónulegann áhuga fyrir síra Eyjólfi, og er alveg sama um það, hvernig hon- um hefur verið farið. Ég hafði því enga ástæðu til þess að aflaga neitt viljandi viðvíkjandi hon- um. Höf. -segir, að ég virðist gera einkennilega mikið úr hinni til- vitnuðu grein Norsku laga, og „verður að álíta að það séu trú- arskoðanir hans (þ. e. mínar), sem liggja þar til grundvallar“. Höf. virðist eftir þessu ekkert vita um það, að einkaskriftir voru um þessar mundir i mikl-- um metum hér og mjög tíðar, þótt þær séu nú naumast um hönd hafðar hér á landi í lúth- erskum sið. En að því er til trú- arskoðana minna kemur, þá er af staðhæfingu hans augljóst, að hann hefur ekki frekar hug- mynd um þær en kötturinn um sjöstirnið. Ég þarf naumast að geta þess, að Norsku lög eru hvorki samin af mér eða að mínu undirlagi, því að þau gengu í gildi nákvæmlega 200 árum og 1 degi áður en ég fæddist. Þau eru spegilmynd réttarvitundar í dansk-norska ríkinu í þá daga, en það var þá hálútherskt. En það er bezt úr því sem komið er, að ég segi frá því, hvernig frá kaþólsku sjónarmiði væri litið á atvikin, sem hér er fjall- að um, og geri ég það engum til hugmóðs, heldur höf. til lær- ingar. Þar eð lútherskir prestar að dómi kaþólsku kirkjunnar, og líka margra mótmælenda, eru ekki perstar heldur leikmenn, éins og hann og ég, gat þarna um engin skriftamál verið að ræða. Hafi síra Eyjólfi i samtal- inu verið trúað fyrir einhverju, og hann Ijóstrað því upp, gat frá kaþólsku sjónarmiði aðeins verið um venjulega lausmælgi að ræða, sem að vísu gat verið siðferðilega jafn saknæm sem um rof á skriftalaunung væri að ræða, en það ylti alveg á því undir hvaða yfirskini síra Eyjólfur hefði náð trúnaði þeirra hjúa. » Þetta er í fyrsta skipti í þau 50 ár, er ég hef játað kaþólska trú, sem nokkur íslenzkur mað- ur hefur orðið til þess að bregða mér um það. Það er einu skípti of oft, og ég skammast mín fyrir hönd höf. fyrir þessa undir- furðulegu lævísi, ósvinnu og háttvísisskort. Það er eingöngu þessu atferli hans að kenna, að ég hef nennt að sinna þessu staðlausa skrifi hans, sem morar af ósannindum, annars hefði mér ekki dottið í hug að líta við sliku rausi. Siíkt vil ég ekki láta nein- um haldast uppi, enda þarf ég naumast að óttast að það komi fyrir, svo óíslenzkt er það, en slíkt má það öllum gera. Annars vildi ég taka það fram, að ég þykist manna hleypidómaminnstur í þeim málum, og mun nýtast að því vitni margra presta og pre- láta Þjóðkirkjunnar; hef og marg sýnt það í verki, þótt mér sé óljúft að minnast á það. Þá segir höf., að ég haldi því fram, að síra Eyjólfur hafi af illgirni sinni stritast við að koma þeim Bjarna undir manna hend- ur, en ekki til þess að leiða sann- leikann í ljós. Þetta hef ég hvergi sagt, og aldrei nefnt orðið ill- girni. En ég hef bent á, að það væri einkennilegt, að þeir hefðu togað sinm í hvora áttina, síra Jón, húsbóndi síra Eyjólfs, er virt- ist viija hylma yfir afbrotin, og síra Eyjólfur, er vildi koma sak- borningum undir manna hendur, og að það lýsi ekki ótvíræðri hneigð til þess að vilja leiða sann- leikann í ljós. Er þetta sagt af því, að mér virðist þetta benda til greinilegs ósamlyndis milli prestanna, og að sira Eyjólfur kunni að hafa tekið sína afstöðu Framh. é bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.