Morgunblaðið - 06.03.1952, Blaðsíða 1
Togaraverkfallinu að ljúka
LandskjáSffarnir:
' Æ'
Ogn núttúruhamfara
grúfir yfir eynni
Samningar tókust í fyrrinótt milli
samninganeínda deiluaðilia
■ ■ ■ ■ ---- a>
Kjarnorkufræðingur
Krafa
hvíld
sjómanna um 12 stunda
samþykkt i aðalatriðum
HORFLR \ ELDGOSLM
ÞÁ OG ÞEGAR
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTB
TÓKÍÓ, 5. marz. — Bandarískar vélflugur hafa flutt fyrstu hlöss-
in af matvælum, lyfjum og ullarbrekánum til hinna nauðstöddu
íbúa eyjarinnar Hokkaido nyrzt í Japanseyjaklasanum, en á ey
þessari urðu ægilegustu landskjálftar aðfaranótt þriðjudagsins, og
í kjölfar þeirra reið flóðbylgja yfir landið. Enn er ekkert frétta-
samband við eyna, en víst er, að flóðbylgjan þurrkaði burt heila
bæi og þorp. Hefir ekki tekizt að fá heildaryfirlit yfir tjónið, þar
sem samgöngur allar um eyna eru úr sögunni í bili.
MARGIR FÓRUST OG
MEIDDUST
Tilkynnt hefir verið um lát 35
manns af völdum náttúruhamfar-
anna, en fullvíst þykir, að marg-
falt fleiri hafi farizt, auk þess
hafa eyjarskeggjar meiðzt hundr
uðum saman.
FLÓTTI AF LÁGLENDINU
Margir eyjaskeggja burgu
lífi sínu með því að flýja til
fjallanna eftir að útvarpið
hafði gert mönnum viðvart, og
komust svo undan flóðbylgj-
unni.
ELDGOS YFIRVOFANDI
Að sögn hefir borgin Kus-
iro orðið harðast úti. íbúar
hennar voru 99 þúsundir. Ilún
er nú einangruð algerlega.
Þegar björgunarsveitir hóf-
ust handa í morgun, rauk í-
skyggilega mikið úr eldfjalli
skammt frá borginni. Þvílík-
ir reykjarstrókar vita jafnan
á gos.
PEARSON YILL EKKI
VERÐA FRAMKVÆMDA-
STJÓRI
OTTAVA, 5. marz. — Utan-
ríkisráðherra Kanada, Lester
Pearson, kvað í dag niður
þann orðróm, að hann tæki
við embætti framkvæmda-
stjóra Atlantshafsbandalags-
ins. í yfirlýsingu um þetta
komst hann svo að orði, að „ég
mundi ekki taka við starfan-
um, jafnvel þótt mér byðist
hann“. — Reuter—NTB.
Nýr sendiherra
WASHINGTON. — Truman, for-
seti, hefur skipað James C. Dunn
sendiherra Bandaríkjanna í
Frakklandi. Fyrirrennari hans,
David K.E. Bruce, hefur verið
skipaður aðstoðarutanríkisráð-
herra.
Pinay reynir stjórnar-
myndun i Frakklandi
Jafnaðarmenn óráðnir enn þá
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTB
PARÍSARBORG, 5. marz. — Antoine Pinay skýrði Auriol, forseta,
frá því í dag, að hann mundi reyna að mynda stjórn. í kvöld
undirbjó hann ræðuna, sem hann flytur í þinginu á morgun,
fimmtudag. Er mikils um vert að vel takizt þá, því að á því getur
oltið, hvort þingið veitir honum stuðning sinn eða ekki. Fer at-
kvæðagreiðsla að líkindum fram annað kvöld.
JAFNAÐARMENN
BEGGJA BLANDS
Jafnaðarmenn taka ekki af-
stöðu til stefnu Pinays fyrr en
að ræðu hans lokinni. Eiga þeir
106 þingsæti, svo að mikið er í
húfi. Aftur á móti á hann vísan
stuðning 'hægrimanna, róttækra
og þjóðlega lýðveldisflokksins.
Síðdegis í dag átti de Gaulle,
hershöfðingi, fund með þing-
mönnum flokks síns, sem eru
117. Rætt var um afstöðuna til
væntanlegrar stjórnar Pinays,
en varla verður hún hagstæð.
Kommúnistar eru andhverfir
eins ogvænta má.____________
VANTAR SAMT ATKVÆÐI
Engu að síður vantar hann ein
40 atkvæði á þau 313, sem hon-
um eru nauðgynleg.
TÚNIS. — Frönsk yfirvöld í Tún-
is hafa tilkynnt að í óeirðunum
að undanförnu hafi samtals 60
áianns látið lífið.
Allt bendir til þess að prófes-
sor Paul Scherrer, hinn kunni
svissneski kjarnorkufræðingur,
verði formaður samtaka Evrópu-
þjóðanna, sem áætlað er að komá
á fót um kjarnorkurannsóknir.
Sendiherrann
spjallar við ráð-
herrana
KAIRÓ, 5. marz. — í dag rædd-
ust þeir við um horfurnar utan-
ríkisráðherra Egyptalands og for
sætisráðherrann. Á morgun
gengur sendiherra Breta í Kairó,
Ralph Stevenson, á fund þeirra.
Enda þótt sendiherrann hafi lýst
því yfir, að fundur þessi sé í
engu sambandi við viðræður
þær, sem standa fyrir dyrum um
lausn Súez-þrætunnar, þá þykir
mikils um vert ,að vel takist.
Reuter-NTB
Hiemöller ferðast um
Bandaríkin
WASHINGTON, 5. marz. —
Þýzki klerkurinn Martin Nie-
möller, sem fyrir nokkrum mán-
uðum skrapp til Moskvu, er nú
floginn til Bandaríkjanna í boði
mótmælenda þar. Ferðast hann
þar um 6 vikna skeið.
Sfærsfa skip
Norðurlanda
GAUTABORG, 5. marz. — í
skipasmíðastöðinni í Gautaborg
er nú í smíðum stærsta skip Norð
urlanda, 29 þús. smálesta. Það er
198 metra langt og 24,5 metra
breitt. Því verður hleypt af stokk
unum í apríl öndverðum, Til
þessa hefir norska hvalveiðiskip-
ið Kosmos verið stærsta skip
smíðað á Norðurlöndum. Það var
og smíðað í Gautaborg. — NTB,
KL. UM 9 í gærmorgun náðist samkomulag um nýja samningi
milli útgerðarmanna og sjómanna í togaradeilunni. Höfðu þá stað-
ið yfir svo að segja látlausir fundir sáttanefndarinnar og deilu-
aðilja siðan kl. 4 e. h. á mánudag. Nokkru eftir miðnætti í fyrri-
nótt lagði sáttanefndin, en í henni áttu sæti þeir Torfi Hjartarson
sáttasemjari ríkisins, Gunnlaugur E. Briem skrifstofustjóri og Emil
Jónsson alþingismaður, fram tillögu fyrir deiluaðilja. Byggisfc
það samkomulag sem náðist á henni. Voru samningar undirritaðir
í gærmorgun af samninganefndum Félags íslenzkra botnvörpu-
skipaeigenda og sjómannafélaganna á þeim útgerðarstöðum, sem
verkfallið náði til. Til þess að þeir taki endanlegt gildi, þurfa þeir
að hljóta samþykki á fundum í samtökum útgerðarmanna og sjó-
manna. Mun verða boðað til þeirra í dag.
VERKFALLIÐ STÓÐ í 15 DAGA^
Ef deilua'ðiljar Samþykkja í
dag þá samninga, sem samninga-
nefndir þeirra hafa undirritað og
mælt með, mun verkfallinu ljúka
í dag. Það hófst þ. 21. febrúar og
hefur því staðið í 15 daga. Síð-
asta togaraverkfall, sem var háð
sumarið og haustið 1950 stóð hins
vegar 129 daga.
BREYTINGAR FUÁ FYRRI
SAMNINGUM
Þær breytingar frá fyrri samn
ingum, sem samkomulagið felur
í sér og jákvæðar eru fyrir sjó-
menn, eru í aðalatriðum þessar:
1. Samið er um 12 stunda
vinnu á ísfisksveiðum fyrir
erlendan markað. Áður hafðij
náðst samkomulag um 12
stunda hvíld á öllum öðrum I
veiðum. Hafa sjómenn því
komið fram þeirri kröfu sinni
í aðalatriðum að fá 12 stunda'
hvíld viðurkennda á öllum I
veiðum togaraflotans.
2. Full verðlagsuppbót skal
greidd á fast mánaðarkaup í
samræmi við samkomulag at-
vinnurekenda og verkalýðs-
samtakanna frá 21. maí s.l.
3. Aflaverðlaun á saltfisk-
um hækki úr kr. 4.75 í kr. 6.00
á smálest. Álar á þessi afla-
verðlaun þegar fiskað er á f jar
lægum miðum hækki úr 10%
í 15%, þó þannig, að ef afferm
ing fer fram í því landi, sem
miðin liggja að, greiðist eng-
in uppbót.
4. Ef kaupgjaldsvísitala hækk-
ar frá því, sem nú er greiðist há-
setum á saltfiskveiðum uppbót á
aflaverölaunin, sem nemur kr.
7.50 á mánuði fyrir hvert vísi-
tölustig.
5. Hásetar skulu fá aflaverð-
laun af hrognum, sem að vísu
munu hafa verið greidd áður, þó
að þau væru ekki samningsbund-
in.
6. Þá skulu hásetar fá greidd-
an hundraðshluta af farmgjöld-
um fyrir vörur, sem skipin flytja,
á sama hátt og þeir fá hundraðs-
hluta af afla.
7. Til bráðabirgða var og sam-
ið um aflaverðlaun og önnur kjör
við fiskimjölvinnslu og hraðfryst
ingu fiskjar en nokkrir togarar
eru nú að hefja mjölvinnslu og
hraðfrystingu.
8. Vinnudagur háseta er skip
liggur í erlendri höfn vegna við-
gerðar styttist úr 8 klst. í 5 klst.
NÝ ÁKVÆÐI ÚTGERÐINNI
í VIL
Þær breytingar, sem samkomu
lag varð um og útgerðarmenn
munu telja sér í vil eru þessar:
1. Hlutaskipti á ísfiskveiðum
fyrir erlendan markað breytasfc
þannig, að skipt skal í 33 staði i
staðinn fyrir 31 áður.
2. Aukaaflaverðlaun af ísfiski
greiðast af því, sem umfram er
9 þús. sterlingspundasölu í stað
8 þús. punda sölu áður.
3. Frádráttur frá aflaverði
vegna uppskipunarkostnaðar sem
ákveðinn var kr. 50 á smálest er
hækkaður í 66 kr. á smálest.
4. Hásetar skulu annast varð-
stöðu í innlendum höfnum utan
heimahafnar skipsins en áður
voru þeir undanþegnir þeirri
skyldu.
5. Álag á aflaverðlaun á salt-
fiskveiðum á fjarlægum miðum
greiðist ekki, ef afferming fer
fram í því landi, sem miðin liggja
að.
Útgerðarmenn óskuðu eftir
að fá inn í samninginn ákvæðí
um, að skipverjar skyldu
Framh é bls. 7
_______________/■
Laglegur slgur
Churchills
LUNDÚNUM, 5. marz. — I
dag fóru fram umræður í
neðrimálstofu brezka þingsins
um stefnu stjórnarinnar í
landvarnamálum. Hafði stjórn
arandstaðan borið fram van-
trauststillögu vegna land-
varnaáætlunar Churchills, en
hún var felld með 314 atkvæð-
um gegn 219.
Reuter-NTB
Morska vorsíldin
BJÖRGVIN, 5. marz — Vorsíldar
aflinn í Noregi er nú kominn yfir
2 milljónir hl., þó er hann 800
þús. hl. lægri en í fyrra. í dag vac
landað um 65 þús. hl. — NTB.