Morgunblaðið - 06.03.1952, Qupperneq 2
r 2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 6. marz 1952 :
Erindi um sugþurrk-
un á búnaðarþingi
í gær
Á FUNDI Búnaðarþings í gaer-
morgun flutti Einar Eyfells fróð-
legt erindi um súgþurrkun. Benti
hann á þá erfiðleika, sem bændur
«iga við að stríða í erfiðu tíðar-
Xari og einnig hve fóðurmagn
Iieysins minnkaði við loftþurrkun-
ina. Sagði.liann að í Bandaríkjun-
um hefði -verið áætlað, að fóð
urgikli heysins 'rýrnaði um 25—
5(J'> við loftþurrkunina.
Hann sagði að súgþurrkun væri
að breiðast út hór og taldi, að
Jhún rnyndi nú notuð af um’ 500
bændum.
Þá skýrði Einar frá aðferðinni
við súgþurrkun og þeim teg-
undum blásara er við hana eru
notaðar. Hann taldi heppilegustu
aðferðina við súgþurrkurTvéra þá,
að blása á daginn, þegar þurrt
væri og gæta þess að hitnaði elcki
í heyinu, þá héldist það grænt
-og héldi fóðurgildi sínu.
Sagði hann, að nauðsynlegt væri
að fylgjast vel með rakastigmu,
bæði utan hlöðunnar og inni 1
benni.
II
skemmiun"
5éra Jén Muns, démprófasiur:
REYKJUM í Mosfelissveit: —
Ákiveðið er, að hin árlega „Hús-
ráðendaskemmtun“ Mosfellinga,
verði hér í Félagsheimilinu Hlé-
garði hinn 15. marz n.k.
Þennan dag í fyrra var sam-
komuhúsið vigt með veglegri við-
höfn. Hlégarður hefir orðið öllu
félagslífi hér í héraðinu mikil
lyftistöng.
,HÚ6ráðenda skernmtunin1 verð-
ur með þeim hætti, að skemmt
verður með upplestri, þá mUn
Ketill Jensson söngvarf syngja
nokkur ljig, þá er fy^irhugað að á
miðnætti veiði hangikjöt og kart-
öflur bornar fram, en að hangi-
kjötsveizlunni lokinni verður dans
stiginn.
Þotta er í nítjánda skiptið, sem
„Húsráðendaskemmtun“ er hald-
I in hér í sveitinni, en upphafs-
j menn voru pær Helga Magnús-
I dóftir að Litla-Landi, ,þá að Lax-
nesi, og frú Bryndís Birnir í
j Grafarholti.
] Skemmtanir þessar liafa verið
mjög vinsælar og'vafáJaust verð-
ur fjölmenni samankomið í Hlé-
I garði á skemmtun þessari. —jón
Minningarorð um skip-
verjana d „Eyíirðingi"
Smíðaði trérennibekk
Kagnar og rennibekkur hans.
UNGUM rennsmið, Ragnari Þor-
grímssyni, hefur tekizt að smíða
-trérennibekk, sem af alvönum tré-
smiðum er talinn fyllilega sam-
bærilegur við liina amerísku renni-
bekki.
Hefur Ragnar smíðað bekkinn
að öliu leyti sjáJfur, nema raf-
mótorinn. Hefur Ragnar nú lokið
smíði á sjö slíkum bekkjum, og
hefir Reykjavíkurbær keypt þá tu
notkunar í sambandi við lianda-
vinnukennslu fyrir skóladrengi.
Einnig er einn bekkjanna í tré-
smíðavinnustofu Áhal'Öahúss bæj-
arins.
Þar hafa trésmiðir mælt mjög
með ágætri smíði á bekknum, bæði
hvað viðvíkur frágangi hans öll-
um og eins útbúnaði. Telja
þeir hann hafa ýmsa kosti fram
yfir hinar erlendu trérennibekki.
Ragnar Þorgrímsson hefur
smíðað bekkina í verkstæði sínu
að Laugavegi 55. Hann byrjaði á
smíði þeirra í fyrrasumar.
Bðrgneiingurinn, er barðisi í
binfinn Sff fandsins
ÞorviSdur Friðriksson verður í varnarliðinu
ÞORVALDUR FRIÐRIKSSON, sem var með fyrstu hersveitunum,
er sendar voru til Kóreu, er bandamenn skárust í leikinn og tók
þar þátt í bardögum þar til í júnímánuði í fyrra, er nú kominn
hingað til lands. Verður hann í varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli.
■GAT SÉR FRÆGÐARORÐ «-------------------—
Þorvaldur er sjálfboðaliði í
ameríska hernum, og er þar
„warrent officier". Hann gat sér
hinn bezta orðstír í Kóreustríð-
inu og hlaut þar ýms heiðurs-
merki ög viðurkenningu fyrir
vasklega framgongu í orrustum.
Guðmundur K.
Gestsson
Vernharður
Eggertsson
Marvin Guðmundur
Ágústsson Sigurðsson
ÁNÆGÖUR MEÐ AÐ
VERA KOMINN HINGAÐ
Þorvaldur lét mjög vel yfir þvi,
að vera kominn hingað, er blaðið
átti tal við hann í gær, þar sem
honum gæfist-núi kostur á að
heimsækja ættingja og vini —
-og núna' fyrstu dagana fékk hann
frí frá störfum.
Ekki kvaðst Þorvaldur hafa
r.einar nýjar fréttir að segja frá
Kóreu, enda það langt-síðan hann skipa.
■fór baðan. I Fagna menn almennt því að
se:n kunrsugt er, er Þqrvaldur .þcssu þaría verki ar þannig kom-
Xorgnesingur að ætt, sonur Frið- :3 álsiðis. Gsat er xéð fyrir að
I j ik.s Poi valdsconar, æmda hqlUtst handa svq fl.jótt som mögu-
etj-ku. ' leikar loyfa. —Á. H.
Endurbælur á haf-
skipabryggjunni í
Siykkishóimi
STYKKISHÓLMI, 26. feþrúar. —
Um seinustu helgi kom Selfoss
með timbur, staura og dekktimbur
í hafnaiþryggjuna í Stykkishólmi,
en nú stendur fyrir dyrum að end-
ur byggja bólverkshausinn, þar eð
hann er að falli kominn, svo sem
áður er getið og stórhættulegur
bæði skipum, sem við hann liggja,
og bílum sem um hann þurfa að
fara til fermingar og affermingar
Benedikt Kristjánsson.
SlÐAN á áramótum hefur hver
sorgarfregnin af annarri borizt
frá sjónum, svo að mcð fjórum
bátum hafa farizt tuttugu menn.
Sorgin hufuf því viðu komið,
harmurinn vitjað húsa hjá mörg-
um.
Mánudaginn 11. fcbrús.r strand-
aði „Eyfirðingur“ við Orkneyja-
stiændur og fórst með allri áhöfn,
sjö mönnum. Lík fjögurra skip-
verja hafa fundizt, þeirra: Bene-
dikts Kristjánssonar, skipstjóra,
Marvins Ágústssonar, stýrimanns,
Erlends Pálssonar, vélstjóra, og
Vernharðs Eggertssonar, mat-
sveins.
Hinir, sem fórust með „Eyfirð-
ingi“, voru: Guðmundur Kr. Gests
son, vélstjóri, Sigurður Gunnar
Gunnlaugsston, háseti, og Guð-
mundur Sigurðsson, háseti.
1 dag fer fram minningarat-
höfn um þessa föllnu sjómenn. ■—
Sorgbitnir vinir leita í helgidóm-
inn huggunar og styrks, harm-
andi ástvinir í fjarlægð hugsa
hljóðir um örlagarúnir, scm ekki
verða ráðnar. Sjö menn létu
hraustir og giaðir frá landi, cn
við fjarlæga strönd í framandi
landi reis banaboðinn, og til for-
eldra, kvenna, systkina, barna og
vina kom fregnin, dapurleg og
köld.
Þeir, sem slíkar frengir óvænt-
ar bera yinunum heima, hljóta
oft að undrast, með hve miklum
manndómi og stilling fregninni
tíðum er tékið. Þá sýna stundum
veikar konur hetjudáð og aldraðir
foreldrar aðdáanlega rósemi, svo
að presturi^n hlýtur að spyrja
sjálfan sig: gæti ég drukkið þenn-
an bikar?
En aldrei lærum vér betur en þá,
að sjá, að með mönnunum stríðir
himneskur kraftur í sorgum
þeirra, aldrei þreifum vér betur
en þá á hendinni himnesku, sem
leiðir oss, aldrei lærist oss betur
en þá, að sterkt er það vald, sem
styður oss í stormum og neyð.
Þennan kraft bið ég að allir
finni, sem nú harma vinina sjö.
Fjórum þeirra er fylgt til graf-
ar í dag, en vera má, að þeirn,
sem ekki geta búið vinunum þrem-
ur hina síðustu sæng, finnist dap-
urlegt að mega ekki leggja þeirra
lik í móðurmoldina með líkum fé-
laganna hinna, sem fylgdu þeim
í dauðann, en
Hvað er Guðs um geima
gröfin betri en sær?
Yfir alla heima
armur Drottins pær.
Gröfin í landi eða sæ, geymir ekk,i
annað en umbúðir elskaðra vina.
Engin sál gleymist föður vorum
á himnum, yfir banabylgjunni
svifu 'helgir þjónar hans. Úr djúp-
inu hófu þeir sálir sjómannanna,
báru þær úr storminum, inn í frið-
irin, úr vetiarofsanum inn í vorið
eilífa. Banabylgjan sýnist ógurleg,
en hún brotnar inn í hiruin Guðs.
Guð gefi, að þessi sannfæring
beri alla þá, sem sakna, yfir sorg-
ina og inn í frið trúartraustsins
á honum, sem verndar þá, sem
fara, og vakir yfir oss öllum.
Diottinn minn gefi dánum ró
og hinum líkn, sem lifa.
Jón Auðuns.
Minning Benedikts
Kristjánssonar
EINS og löngum áður hefur ís-
lenzk sjómannastétt goldið mik-
ið afhroð undanfarna vetrarmán
uði. Er þar skemmt að mirnast
hins hörmulega slyss, er „Eyfirð-1
ingur“ fórst við Hjaltslandseyjarj
11. febrúar síðastliðinn, með allri j
áhöfn, sjö mönnum. Skipstjóri á!
„Eyfirðingi" var Benedikt Krist-j
jánsson. Þessa mæta manns og
góða vinar míns vil ég nú á út-
farardegi hans minna'st nokkrum
orðum.
Benedikt Kristjánsson var
fæddur að Einholti í Austur-
Skaftafellssýslu 27. sept. 1906.
Foreldrar hans voru Kristján
Benediktsson oddviti í Einholti
og kona hans, Jóhanna Sigurðar-
dóttir bónda á Miðskeri Hannes-
sonar. Benedikt tók ungur að
stunda sjó og iíkaði það vel, enda
gerði hann sjómennsku að ævi-
starfi sínu. Fyrst var hann ó vél-
bátum frá Hornafirði og á Aust-
fjörðum. Um þrítugsaidur flutt-
ist hann til Reykjavíkur. • Árið
1940 lauk hann hinu minna stýri-
mannaprófi, og var hann jafnan
eftir það ýmist stýrimaður eða
skipstjóri á fiskiskipum og flutn-
ingabátum. Árið 1946 tók hann
hið meira fiskimannapróf frá
Stýrimánnaskóla íslands, með
hárri fyrstu einkunn, enda var
hann námsmaður ágætur.
Benedikt heitinn var sérstakt
orúðmenni í allri framkomu og
einstaklega vinsæll af undir-
rriönnum sínum, sem og öðrum, er
höfðu af honum nokkur kynni.
Skipti hann sjaldan skapi, en tók
öllu, er að höndum bar, með
mikilli geðró og jafnaðargeði. En
þótt hann væri hlédrægur í allri
framkomu, var hann víkingur til
starfa og hlífði sér aldrei: Þar
sem saman fór starfsáhugi og
óvenjuleg lagvirkni, voru afköst
hans iafnan mikil, að hvaða starfi
sem hann gekk. Er mikil eftir-
sjón að slíkum mönnum, er þeir
falia frá í blóma lífsins.
Benedikt heitinn kvæntist eftir
lifandi konu sinni, Ingibjörgu
Þorsteinsdóttur Líndal, 8. marz
1949. Þau eignuðust einn son,
sem nú er tveggja ára. Auk hans
lætur Benedikt eftir sig tvö stjúp
börn, 11 og 14 ára. Munu þau
sakna hans sem hins bezta föður,
því að með prúðmennsku sinni
og framkomu allri hafði hann
unnið hug þeirr^ pg h.iar.ta. Sorg
eiginkonunnar, sem sér nú á baþ
manni sínum eftir farsæla en
alltof stutta sambúð, er meiri en
svo, að fátækieg orð megi þar
nokkru um boka. Er öllum ást-
vinum Benedikts heitins, sem nú
syrgia hann látinn, vil ég færa
inniiegustu samúðarkveðju mína
og bið beim blessunar.
Benedikt. husliúfi vinur. Ég
sendi þér hinztu kveðjú mína og
þakka þér ógleymanlegar sam«
verustundir.
J. F.
MINNING
Liðnu árin bera Benni
bjarta mildi augna þinna.
Síðla og árla sárt ég kenni
sæiuhljóminn drauma minna.
Þakka liðnar lífsins stundir
lengur mátti ei sköpum renna,
Einhverntíma endurfundir
okkar verða og kæra Benna.
Frá konu og börnum,
Gísii Halldórsson
endurkjörinn
form IBR 1
ÁRSÞINGI ÍBR lauk í.gær<
kveldi, en það var haklið í Fc«
lagshejmili Knattspyrnuféiag^
Reykjavíkur. Þingið sátu um 7Q
fulltrúar íþróttafélaganna í bæn«
um, svo og fulltrúar sérráða ojf
sérsambanda. í
Á þinginu voru samþykkt
lög fyrir bandalagið, allmiki'3
styttri en jafnframt hagkvæmarj
en hin fyrri. ‘ j
Meðal tillagnanna er samþykkf
ar voru á þinginu, var svofelld tili
laga,( varðandi byggingu sund«
laugar í Vesturbænum: |
„Ársþing ÍBR, haldið 4. mar4
1952, samþykkir að verja ágóðgj
af Samnorrænu sundkeppninni 3
Reykjavík, sem er kr. 6.176.02, tií
byggingar yæntanlegar sunglaug-*
ar í Vesturbænum, og ítrekar jafrj
fram fyrri áskorun sína til bæj«
arstjórnar Reykjavíkur, um aði
hafist verði handa um framkvæmdi
verksins, sem fyrst“. . j
Þá var og samþykkt á þinginrj
reglugerð um úthlutun ókeypis að«
göngumiða að íþróttamótum á í«
þróttavellinum í Reykjavík, bæðj
fyrir aðila innan íþróttahreyfing«
arinnar og utan. j
Einnig var samþykkt reglugerZJ
fyrir Minningarsjóðs íþrótta«
manna í Reykjavík. j
Formaður bandalgsins fyril}
næsta kjörtímabil var kosinn 3
einu hljóði Gísli Halldórsson, arki«
tekt, og er það í fjórða sinn í röðj
sem hann er kosinn formáður. —«
Auk formanns eiga sæti í stjórn«
inni einn fulltrúi frá hverju fé«
iagi innan bandalagsins.
I héraðsdómstól IBR voru k jörn«
ir þeir Jón Bjarnason, Haraldui}
Guðmundsson og Gunnlaugur J<
Briem. Endurskoðendur voru kosn*
ir Tómas Þorvarðarson og Sigur*
páll Jónsson.
I Íþróttabandalaginu eru nú 2H
félag með h. u. b. 8700 manns. J