Morgunblaðið - 10.05.1952, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIB
Laugardagur 1L maí 1952.
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
' Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600. '
Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði, innanlands.
í lausasölu 1 krónu eintakið.
Forsetakjörið
Á FORSETAEMBÆTTIÐ hefur
allt frá stofnun lýðveldisins ver-
•ið litið sem sameiningartákn
''þjóðarinnar. Það hefur verið
gæfa íslendinga allt frá frelgis-
.töku þeirra að eiga kost á manni,
‘sem öll þjóðin gat sameinazt um
á forsetastól. En með fráfalli
Sveins Björnssonar skapaðist sá
vandi að finna nýjan mann, sem
eins vítæk samtök gætu skapazt
um.
Undanfarna mánuði hafa lýð-
ræðisflokkarnir freistað þess, að
ná sem víðtækustu samkomulagi
um forsetaefni. Sú viðleitni hef-
ur nú borið þann árangur, að
tveir stærstu stjórnmálaflokkar
þjóðarinnar, Sjálfstæðisflokkur-
inn og Framsóknarflokkurinn,
hafa orðið ásáttir um stuðr.ing
.við sameiginlegan frambjóðanda.
' Mun óhætt að fullyrða að ís-
-lendingar fagni þeim tíðindum.
Með slíku samkomulagi skapast
miklir möguleikar fyrir því, að
friður geti framvegis sem hing-
‘að til ríkt um æðsta embætti
þjóðarinnar.
Fáir menn eru líklegri til
þess en einmitt séra Bjarni
Jónsson vígslubiskup, að geta
borið sáttaorð á milli og orð-
ið sameirJngartákn þessarar
deilugjörnu og sundruðu smá
þjóðar. Hann er engum háður
og getur þjónað þjóð sinni
sem heild án þess að iíta á
hana skipta í pólitíska flokka,
stéttir og hagsmunahópa.
En þótt hann hafi ekki tek-
ið þátt í stjórnmálum er það
öilum kunnugt, að hæfileikar
hans, gáfur og lífsreynsla eru
fullkomin trygging þess að
hann muni sitja forseta-
embættið með sæmd og prýði.
Forseti hins íslenzka lýðveldis
þarf fyrst og fremst að hafá
hæfileika til þess að laða til sam-
starfs um hin þýðingarmestu
mál. Hann er ekki sjálfur póli-
tískur leiðtogi. Hann er ekki sér-
' eign neins einstaks stjórnmála-
flokks. Hlutverk hans er að
gegna þeim skyldum, sem stjórn-
skipulög lýðveldisins leggja hon-
um á herðar,. tryggja þjóðinni
starfhæfa stjórn á grundvelli
þingræðis og lýðræðis, koma
fram fyrir hönd hennar inn á
við og út á við og vera það sam-
einingartákn, sem öll þjóðin get-
ur sameinast um á öriagaríkum
tímufn.
+
Þegar frá því hefur verið
skýrt, að tveir stærstu stjórn--
málaflokkar þjþðarinnar, sem yf-
irgnæíandi meirihluti hennar
fylgir að málum, hafa orðið sám-
mála um stuðning við jafn mikil-
hæfan mann og séra Bjarna Jóns-
son, hlýtur að mega vænta þess
að meðal sjálfrar þjóðarinnar
geti skapast víðtæk amtök um
kjör hans.
Sjálfstæðisflokkinn og Fram-
sóknarflokkinn greinir á um
margt. En þá greinir ekki á um
það, að þjóðareining sé nauðsyn-
leg Um val forseta hins íslenzka
iýðveldis.
Það er að sjálfsögðu á allra
vitorði, að undanfarið hefur
verið minnst á marga menn
sem líklega til forsetaembætt-
is. Það er líka vitað, að meðal
þjóðarinnar eru ýmsir ágætir
menn, sem eru mjög vel hæfir
til þess að gegna forsétastörf-]
um. En þrátt fyrir það hefur
ekki tckizt að skapa eins víð-
tækt samkomulag um nokk-
urn þeirra og séra Bjarna
Jónsson.
Efling land-
helgisgæzlunnar
MÖRG undanfarin ár hafa verið
uppi kröfur um það frá sjómanna
stéttinni og öðrum þeim, sem
látið hafa sig vörzlu landhelg-
innar nokkru varða, að yfirstjórn
landhelgisgæzlunnar yrði tekin
undan Skipaútgerð ríkisins og
fengin sérstök yfirstjórn.
Á það hefur þá verið bent, að
starfræksla og stjórn strandferða
er gjörsamlega óskyld réttar-
vörzlu eins og landhelgisgæzl-
unni. Auk þess er starf forstjóra
Skipaútgerðarinnar svo umsvifa-
mikið og víðtækt, að engin von
er til að sá maður, sem með það
fer, geti sinnt yfirstjórn land-
helgisgæzlunnar eins vel og nauð
syn ber til.
Þegar á þetta er litið verður
auðsætt, að sú ákvörðun Bjarna
Benediktssonar dómsmálaráð-
herra, að taka yfirstjórn land-
helgisgæzlunnar undan skipaút-
gerðinni og fá hana sérstökum
starfsnjanni í hendur, er mjög
skynsamleg og raunar sjálfsögð
og eðlileg. Til þess ber einnig
alveg sérstaka nauðsyn nú, að
vanda til landhelgisgæzlunnar.
Þýðingarmiklar ráðstafanir hafa
verið gerðar til aukinnar vernd-
ar íslenzkra fiskimiða. Flóum og
fjörðum hefur verið lokað og ný
fiskveiðítakmörk ákveðin. Þess
yegna er afar mikilvægt, að öll
yfirstjórn þeirrar réttarvörzlu,
sem felst, í landhelgisgæzlunni,
sé hiklaus og framkvæmd í senn
af gætni og fullri festu.
Með vali Péturs Sigurðssonar
sjóliðsforingja til þessa starfs er
trygging fengin fyrir því, að vel
verður á þessu þýðingarmikla
starfi haldið. Hann er sjálfur
þaulvanur sjómaður, hefur starf-
að á varðskipunum og er allra
manna bezt menntaður í sjó-
mannafræðum. í höndum slíks
manns hlýtur yfirstjórn land-
helgisgæzlunnar að vera betur
borgið en flestra annarra.
Tíminn lýsir andstöðu Fram-
sóknarflokksins gegn þessari ráð-
stöfun dómsmálaráðherra. Telur
blaðið það helzt mæla gegn setn-
ingu Péturs Sigurðssonar í starf-
ið, að hann eigi jafnframt að
annást stjórn sjómælinganna eins
og áður.
Eh ef blaðið telur það mæla
gegn Pétri Sigurðssyni að annast
stjórn sjómælinga jafnhliða
yfirstjórn landhelgisgæzlunnar,
hvernig getur það þá talið sjálf-
sagt, að forstjóri Skipaútgerðar
ríkisins, sem er yfirhlaðinn störf-
um, stjórni þessari réttarvörzlu?
Á það má ennfremur benda,
að stjórn sjórnælinga og land-
helgisgæzlu fer mjög vel sam-
an og samrýmist fyllilega. —
Vegna sameiningu þessara
starfa sparast ríkissjóði einn-
ig fé, þar sem raunverulega
þarf ekki að fjölga starfs-
mönnum ríkisins með þessari
skipulagsbrey tingu.
Að öllu þessu athuguðu er
óháett að fullyfða, að állur al-
menningur muni telja fyrr-
greinda ráðstöfun dómsmála-
ráðherra skynsamlega og
stefna að bættri landhelgis-
gæzhi og auknu öryggi í fram
kvæmd fiskveiðieftirlitsins. —
Það er líka tilgangiainn með
hcnni.
Mohteinn til húsbygg
inga úr
Framleiðsla hafin á honum í Hafnarhrði
í GÆR gafst. tíðindamanni blaðsins kostur á að kynnast fjálda-
framleiðslu á holsteinum, sem verksmiðjan Hraunsteypan h.f. í
Hafnarfirði framleiðir. Er hún fyrsta verksmiðjan hér á landi, sem
framleiðir steina þessa í stórum stíl. Holsteinarnir eru gerðir úr
hraungjalli, sem fengið er úr Vatnsskarði við Krýsuvíkurveg.
280—300 STEINAR A DAG
Er gjallið malað þar suður frá
í þar. til gerðum vélum, og ,er það
þá tilbúið í hrærivél, sem gerir
það enn fínna. Einnig er sett hæfi
lega mikið sement í vélina, er
samlagast svo gjallinu. — Eftir
skamma stund er það tilbúið í
vélina, sem mótar steininn. Vél
þessi er vélknúin, og tekur ekki
nema augnablik að framleiða
hvern stein. — Afkcstin nunu
verða 280—300 steinar á dag. —
Vélsmiðja Hafnarfjarðar smiðaði
hrærivélina, og brevtti mótunar-
vélinni til þess sem hún er nú.
TILRAUNIR HÓFUST
Upphafsmaður þessarar starf-
semi er .Tóhannes Teitsson, húsa-
smiður í Reykjavík. Hann hóf til-
raunir að steypa holstein úr
hraungjalli ário 1949 — eru þeir
nokkuð frábrugðnir steinum
þeim, sem gerðir hafa verið úr
þessu efni hér á landi. Hugðist
Jóhannes gera holsteina, cem
bæði væru nægilega hlýir og
sterkir til veggjagerðar smærri
■ íbúðarhúsa, án þess nokkurs
, þyríti með annars en múrhúðun
utan og innan. Rannsóknarstofa
I háskólans rannsakaði þessu :iæst
j brotþol og einangrunargildi
hraunsteypunnar. Reyndust ?:ann
sóknir þessar svo góðar, að Jó-
hannes ásamt nokkrum :mönnum
stofr.aði Hraunsteypuna h.f.
MJÖG EFTIRSÓTT EFNI
Hér á landi hafa nokkur hús
verið byggð úr hraunsteypu. —
Hafa sum þeirra reynst vel en
önnur miður, og fer það að sjálf-
sögðu eftir meðferð og vand-
Fiör í leikfisfarlffi
■ m
æ
LEIKLIS’TARVIKAN, sem Banda
lag íslenzkra leikfélaga ‘beitir sér
fyrir með sýningum leikflokka
utan af landi, sétur mjög svo svip
sinn á leiklistarlífið í bænum
núna um helgina og r.æstu daga.
Eru það fjögur leikrit, sem boðið
er upp á, auk þeirra, sem Þjóð-
leikhúsið og Leikfélag bæiaririS
hafa verið að sýna að undanförnu
Fyrsta leikrit utanbæjarfélag-
anna var sýnt á íimmtudagskvöld
ið við góðar undirtektir, það var
,,Á útleið", leikið af Leikfélagi
Hveragerðis. I gærkvöldi sýndi-
svo Leikfélag Reykjavíkur , Pi-
p?-ki“ og komust færri að en
vi.du, svo að félagið heíur ákveð-
ið aukasýningu á iöstudagihn
kemur, en á morgun sýnir félagið
sjónleikinn „Djúpt liggja rætur“
sem hlotið hefur ágæta dóma
bæði hvað efni og meðferð snert-
ir, en nónsýning verður á söng-
leiknum vinsæla, „Ævintýri á
gönguför“ sem leikflokkur U. M.
F. Skallagríms í Borgarnesi sýn-
ir í’ Iðnó. Þjóðleikhúsið sýnir
„Litla Kláus og Stója Kláus“ og
„Tyrkja-Guddu“. Á mánudags-
kvöld halda svo áfram sýningar
utanbæjar-leikfélaganna msðsýn.
ingu Leikfélags Akraness á
splunkunýju leikriti, sem hefur
verið fært til íslenzkra staðhátta
og nefnist „I Bogabúð", en á
þriðjudagskvöld verður sýning á
„Allra sálna messu“, sem Leik-
félag Hafnarfjarðar frumsýndi í
Firðlnum fyrir skemmstu. —
Otaldar éru þá sýningar Þjóð-
leikhússins á „Gullna hliðinu" og
„Islandsklukkunni“, en að þeím
meðtöldum eru það hvorki méirá
né minna en tíu leikrit, sem verða
sýnd á réttri viku hér í bæ og
má með sanni kallast leiklistar-
vika.
Leikéri L. R. lýkur í
þessum mánuði
STARFSÁRI Leikfélags Reykja-
víkur lýkur í þessum mánuði. Hef
ur félagið sýnt sex leikrit á vetr-
inum, fjögur ný og tvö, sem voru
•frumsýnd í fyrra. Verður sýn-
ingarfjöldinn um 80 sýningar og
er Pi-pa-ki, leikritið, sem fyrsr
var sýnt á jólum, með um helm-
ing sýningarfjöldans. Var íi'ætl-
unin að hætta sýningum á þessu
leikriti með sýningunni í ga.rr-
kveldi, en eftirspurnin eftir að-
göngumiðum var svo mikil, að
ákveðið hefur verið að hafa auka
sýningu á föstudaginn kemur.
Nýjasta viðfangsefni Leikíélags-
ins, ameríski sjónleikurinn
„Djúpt liggja rætur“, 'verður sýnd
ur annað kvöld, en þar sém nú
tekur að líða á starfstíma félags-
ins, verða ekki margar sýningar
úr þessu og ættu menn ekki að
láta tækifærið ganga sér úr greip
um að sjá þennan athygligverða
leik. ___________
virkni. — Geta má þess, að hol-
steinar úr hraungjalli hafa það
fram yfir vikurinn, að þeir eru |
sterkari og drekka síður í sig
vatn. — Er þetta hið ákjósan’eg- j
asta byggingarefni, sem sjá má á j
því, að í Bandaríkjunum er,
byggt mikið úr því. Hefir jafn-j
vel komið til orða að ílytja hraun j
gjall út, því að aðrar þjóðir eru
mjög sólgnar í það.
Þá hefir Hraunsteypan h.f, á-
kveðíð að taka upp þá nýlundu
að -láta kaupendum framleiðsl-
unnar í té allar þær upplýsing-
ar, sem unnt er að gefa um
notkun-hennar. — Verksmiðjan
mun og hafa náið samstarf við
Atvinnudeiíd háskólars um allt
það, er verða má til þess að ná
sem beztri íramleiðslu.
(ilw K.y KVvV•£>PVV'£2 p"V?u6
AÐ ALFORST J ÓRI FAO, mat-
væla- og landbúnaðarstofnunar
•Tæknilegur ráðunautur félags- Sameinuðu þjóðanna, Norris E.
ins er Olafur Jensson, bygginga- Dodd, heimsótti í gær búið að
verkfræoingur^ en stjórnina Bessastöðum og skoðaði þar bú-
skipa: Jóhannes Teitsson, húsa- skap og ræktun. Hann mun :iú
smiður, form., Páll V. Daníels- fara austur í svjitir til að kynn-
son, ritstjóri, Stefán Jónsson, íor- ast búnaðarháttum bænda á þeim
stjórf Varemaður Ragnar Gísla- s-léðum og skoða mun hann hið
nýja orkuver að Ljósafossi.
son, bifreiðarstjórí.
Velvakandi skrifar:
ÚB ÐAG&EGA E.ÍF1MU
Börnin og bílarnir.
,AÐ er oft verið að áminna bif-
reiðarstjórana um varfærni.
Sérstaklega er það brýnt fyrir
þeim að gæta varúðar gagnvart
börnunum.
Þessar aðvaranir eiga fullan
rétt á sér. Bifreiðarslys eru alltaf
hörmuleg. En sorglegast er það
þó þegar lítil börn verða fyrir
þeim og hljóta bana eða limlest-
ingar.
En það þarf sannarlega að
áminna íleiri en þá, sem bifreið-
um stjórna um varfærni í þessum
efnum. Foreldrarnir burfa ekki
síður að kenna börnum sínum að
fara varlega í umferðinni. Á það
brestur miög. Mikill fjöldi barna
Það er ekki nóg að kenna þeim
varfærni, sem ökutækjunum
stjórna.
er gjörsamlega óhræddur við bif-
reiðarnar. Þessi börn vita bóksíaf
lega ekkert um, hvaða hætta staí-
ar af óvarkárni gagnvart ökutækj
um. Þau flana hugsunarlaust út
á göturnar, þverbrjóta allar um-
ferðarreglur og stofna Jífi sínu
í geigvænlega hættu. Bifreiðar-
stjórarnir standa oft uppi bók-
stafiega varnarlausir gagnvart
þessu gáleysi barnanna.
Foreldrarnir verffa að
taka í taumana.
ÉR verða foreldrar og forráða-
menn barnanna ,að taka i,
taumana. Skólarnir verða líka að |
leggja kapp á að innræta þeim ;
vaxandi varfærni. Það er ekki i
nóg að kenna þeim að gæta var-
úðar, sem ökutækjunum stjórna, |
ef fólkið á götunni æðir afram í j
hugsunarleysi og lætur börnum
sínum haldast það uppi, að tefla ^
lífi sínu í hættu með skeytingar-
leysi og gálausu framferðí.
Unglingarnir verða að vita það,
að yfir þeim vofir ægileg hætta,
ef þau leggja ekki niður gálevsi
sitt gagnvart ökutækjum. Dauði
og_örkuml eru þar á næsta leiti.
Ég trúi ekki öðru en að hægt
sé að skapa vaxandi skilning
barna og unglinga á þessari
hættu. En það er ekki nóg að
slysavarnasamtökin og hið opin-
bera vinni að því að skapa hann.
Allur almenningur, hvert einasta
heimili verður að taka þátt í því.
Þætti þröngt hér.
;R. Benjamín Eiríksson hefur
skýrt frá því, að árið 1939
hafi 5 manna fiölskylda í Rúss-
landi að meðaltali ráðið yfir 20
fermetra húsnæði. Eru það fiór-
ir fermetrar á hvern einstaking.
Þessar upplýsingar bygg.iast á töl
um, sem Rússar hafa sjálfir gefið
upo.
Þetta mundi þvkja bröngt hér
á landi. Hér er nú verið að byggja
smáíbúðir sem eru 75—80 fer-
metrar að stærð. Þetta þvkja hóf-
leea'' þrivgja herbergja íbúðir
hér á landi.
f>U fiölskvidan
í einu herberci.
F upplýsingum dr. Benjamíns,
sem hann hpÞir eftir sovéf-
rússneskum heim.ildum. er au.ð-
sætt að ]á«?launafólk í Rússlandi
b'h- yfirleitt í einu herbergi. Hér
á íslandi hefur siíht að siálfsögðu
bekkst os þekkist, enn þann dag
í dae. En þær fiöiskvldur eru
ekki lengur marsar hér á landi,
sem við svo brönst húsnæði búa.
Yfirleitt er bnð t =*Iið heilsuspill-
andi að fó^k búi bannig.
En kommúnistar hér á landi
telja slíka mannabústaði bó alls
ekki slæma í Rússlandi. Þeir
svngja þeim bvert. á móti lof os:
dýrð op sesia Tslendingum, að
hvergi í heiröinjjm búi vérka-
menn oi? skvldulið þeirra í rúm-
betri, biartari og fullkomnari
hús'akynnum.
Þeir eru hálf skrítnir komma
skinnin. Það er varla rð búast við
því, að islenzkur almenningur
skilji röksemdafærslu þeirra.