Morgunblaðið - 12.07.1952, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.07.1952, Blaðsíða 11
Laugardagur 12. júlí 1952 MORGVNBLABIÐ 11 ’ Kanp>Sala Minningarspjöld dvalar'heimilis aldraðra sjómanna fást á eftirtöldum stöðum í Rvik: skrifstofu Sjómannadagsráðs, Gróf- inni 1, sími 6710 gengið inn frá Tryggvagötu); skrifstoíu Sjómanna- félags Reykjavikur, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10; Tóbaksverzlun- inni Boston, Laugaveg 8; bókavcrzl- uninni Fróða, Leifsgötu 4; verzlun- inni Laugateigur, Laugateigi 41 og Nesbúðiru|i, Nesveg 39. 1 Hafnar- firði hjá V. Long. Vinna TAKIÐ EFTIR Eldhússtúlka, helzt vön, óskast á hótel úti á landi. Upplýsingar í sima 6731 frá kl. 1. Hreingerninga- miðstöðin Sími 6813. Ávallt vanir menn. Fyrsta floklcs vinna. Mafithías Þórðarson ritsfiióri áttræður I a p a ð BILTJAKKUR tapaðist sunnudagskvöld á leið- inni Reykjavík—Hveragerði, lík- lega við Kolviðarhól, finnandi vin- samlega beðinn að skila honum, gegn fundarlaunum, til Jacobsen, Grettisgötu 71. SamftcoBKBur Klrkja Krists Guðsþjónusta verður haldin kl. 1.30 e.h. í kapellu Keflavíkurflug- vallar af kirkju Krists. ■—• ATlir velkomnir. — Séra Gene Wannan, sími 4746. — Tilkynning Ferðir að Jaðri í sumar Alla rúmhelga daga frá B. S. R. kl. 1.40 og 6.15. — Frá Jaðri kl. 2.10 og 7.00. — Sunnudaga frá B.S.R. kl. 2.00 og 6.15. — Frá Jaðri kl. 2.30 og 7.00. 1. O. O. T. Stúkan Framtíðin nr. 173 Stutt skemmtiferð á morgun kl 3 frá Lækjartorgi. éiagslíl Tilkynning frá FRÍ Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að aldursákvæði drengja eru nú þannig: Unglingar (19—20 ára) Þyngd kaatáhalda sú sama og hjá fullorðnum, að sleggja undan skilinni, er skal vega 6 kg. — Hæð grinda í 110 m. grindahlaupi sé 1.06 m. Drengir (17—18 ára) Þyngd kastáhalda sú sama og verið hefur hjá drengjum, kúla 5.5 kg., kringla 1.5 kg., spjót 600 gr. og sleggja (ef notuð er) 6 kg. Ilæð grinda í 110 m. grindahlaupi 91.4 cm. Sveinar (14—16 ára) Þyngd kastáhalda sú sama og hjá konum: kúla 4 lcg., kringta 1 kg. Hæð grinda í 80 m. grinda hlaupi 76.2 cm. Aldurstakmörkin eru miðuð við áramót, þannig að unglingar niega keppa það ár, sem þeir verða 20 ára o. s .frv. — Heimilt er að keppa í aldursflokki fyrir ofan með sérstöku leyfi hlutaðcigandi aérráðs eða FRl. Drengjumeistaramót það, sem auglýst hefur verið 15., 16. og 17 júlí n.k., á því að bera nafnið Unglingameistaramót, 19--20 ára en síðar í sumar (byrjun sépt.) fer svo fram sérstakt meistaramót fyrir drengi 17—18 ára, þar sem kcppt verður með drengjaahöldum 'i ; Stjórn FRl MATTHÍAS ÞÓRÐARSON *rit- stjóri og skipstjóri er fæddur 1. júli 1872 að Móum á Kjalarnesi, og því nýlega áttræður. I-Iann á að baki langt og dáðríkt starf, og svo fjölbreytilegt, að það mun aðeins kunnugt þeim, sem bezt þekkja Matthías. Hér heima var hann um langa hríð í hópi braut- ryðjendanna og oft.í fararbroddi, og hafði járn í mörgum eldum samtímis. — Matthías var fyrst skipstjóri 1892—1900. Leiðsögu- maður við sjómælingar og fisk- veiðigæzlu með dönsku varð- skipunum við ísland 1900—1907. Stofnaði ásamt fleiri félag til út- gerðar togara 1907. Stofnaði fyrir Conrad Lauritzen í Esbjerg út- gerðarstöð í Sandgerði 1909. — Varð síðar eigandi hennar og rak hana nokkur ár. Ferðaðist 1904—05 til Noregs ' til að kynnast fiskveiðum þar og j félagsmálum fiskimanna. Þegar j Matthías kom heim úr þeirri förj stofnaði hann tímaritið Ægir, og gaf það út á eigin kostnað til 1912,1 ð Fiskifélag íslands keypti ritið j og tók að sér útgáfu þess. 1909 fór Matthías til Spánar og Ítalíu til þess að kynna sér fisksölu. Jafnframt vann Matthías ótrauð- lega að félagsmálum hér heima og tók þátt í stofnun Heilsuhæl-1 isins að Vífilsstöðum og mörgum fleiri þjóðþrifamálum. Hann á-tti og mestan þátt í stofnun Fiski- félags Islands, og var fyrsti for- seti þess, og síðan ráðunautur erlendis. Matthías vann og ötul- lega að stofnun Eimskipafélags íslands, og var heilshugar um það, að íslendingar ættu að standa á eigin fótum og eignast sín eigin skip. Árið 1920 íerðaðist Matthías um Mið- og Suður-Evrópu til að kynnast síldarverzlun o. fl., og 1931 fór hann í sömu erindum til Niðurlanda og Frakklands. Rit- aði hann skýrslur um þessar ferðir sínar og benti á margt nýtt. Síðan 1914 hefur Matthias ver- ið búsettur erlendis, en jafnan fylgzt prýðilegg með öllum ís- lenzkum málum, einkum þeim, er varða sjávarútveg og verzlun. Þar hefur hann verið hinn ó- þreytandi vökumaður. Þannig var hann einn þeirra, er opna vildi augu íslendinga og Dana fyrir fiskauðlegðinni við strendur Grænlands, og átti mikinn þátt í stofnun félagsins Det nye Grön- land og sat í stjórn þess frá 1928 til 1938. Sumarið 1937 fór Matt- hías með fiskileiðangri í Davis- sund, og skrifaði skýrslu um þá íör fyrir stórblaðið Times, og ýms önnur stórblöð í Evrópu og Ameríku. Vakti skýrsla Matthí- asar mikla eftirtekt, þótt minna yrði úr framkvæmdum. Tímaritið „Nordisk Havfiskeri Tidsskrift“ gaf Matthías út 1926 til 1932, og bókina Havets Rig- domme 1937, og Aarbog for Fisk- eri heiur hann gefið út frá 1935. Þá samdi Matthías og Síldarsögu íslands, er kom út 1930. Mörg fleiri rit hefur M. Þ. samið og fjölda ritgerða í blöð og tímarit, hérlendis og erlendis. Og enn sit- ur hann hvern dag við skriftir til þess að skrifa um gömul og ný áhugamál, og gamlar minn- ingar. Er Matthías í hópi okkar beztu rithöfunda, því hann er sannsýnn, góðgjarn og greindur í bezta lagi. Verður hinu merka og langa starfi hans ekki gerð skil nema í langri tímaritsgrein. Matthías var kvæntur Sigríði Guðmundsdóttur frá Lambhúsum á Akranesi, hinn ágætustu konu. Eörn þeirra eru þessi: Ástþór, verksmiðj.ueigandi í Vestmanna- eyjum, kvæntur Sissi G. Johnsen; Karitas, ókvænt; Friðrik fram- kvæmdastjóri í Vestmannaeyjum, kvæntur Margretu de Fontany; Sverrir, framkvæmdastjóri á Bíldudal, kvæntur Fjólu Snæ- fcjörnsdóttur; Jarþrúður, kvænt Lorenz stórkaupmanni í Khöfn, og Guðríðut, kvænt Börge ChrLstensen verkfræðingi við danska flugliðið. Matthías Þórðarson hefur ver- ið mikill hamingjumaður í einka- lífi sínu. Barnalán hans má telj- ast frábært. Hann hefur líka verið í hópi þeirra göfugmenna sem hafa fórnað sér fyrir mál- efni til almennings heilla og vel- ferðar, án alls tillits til launa eða heiðurs. — Góðvild og göfug- mennska eru kynfylgjur Matt híasar Þórðarsonar, og þann arf hefur hann ávaxtað með þeirri sæmd og prýði, að íáir munu betur gera. Hann vill í hvívetna láta gott af sér leiða, og er því virtur af öllum sem þekkja hann, og þeir eru margir, innlendir og útlendir. íslenzkir sjómenn og útvegs menn standa þó í mestri þakkar- kuld við Matthías Þórðarson. Fyrir þá hefur hann unnið mikið og langt vökumannsstarf. Nú síðast með greinum sínurn um 'andhelgismálið. Fyrir þetta vilja þeir þakka og senda hinum unga áttræða og lífsreynda manni hamingju- og blessunaróskir. — Megi starf hans bera sem ríku- legastan ávöxt fyrir alda og óborna; og aðrir taka upp merk- ið, er hans missir við. Það yrði mesta gleði afmælisbarnsins átt- ræða, því hann hefur lifað og starfað með þeirri reglu, að al- heimta ei daglaun að kveldi og jafnan látið drjúgan skerf í fram- tíðarsjóð. Arngr. Fr. Bjarnason. 4ra manna A í góðu lagi til sölu. — Til sýnis í Sörlaskjóli 32 eftir hádegi í dag. Sími 81063. * 1 BEZT ÁÐ ÁVGLÝSÁ MORGVNBLÁÐINU Flatningsmenn óskast á togaranir KARLSEFNI. Upplýsingar í síma 1686 eða 6333. STATI JEEP T I L SÖLU og sýnis á Grettisgötuj 3, frá.kl. 1—4 í dag. Sími 80360. ‘T Ég undirrituð sendi ykkur öllum innilegustu hjartans þakkir fyrir það mikla vinarþel, er þið sýnduð mér með heillaóskum, heimsóknum og gjöfum, í tilefni af 60 ára afmæli mínu. Guð blessi ykkur öll í nútíð og framtíð. Guðný S. Guðmundsdóttir, Bjargi, Bíldudal. Ég þakka öllum þeim, er sýndu mér vinsemd og virð- ingu á 60 ára afmælisdegi mínum og sérstaklega starfs- fólki Bæjarútgerðar Reykjavíkur. Þórarinn Árnason, fiskimatsmaður. Hæstiréttur Islanás getar Samkvæmt 14. gr. laga nr. 36 frá 1945 um fram- boð og kjör Forseta íslands, er svo ákveðið, að kærur vegna kjörs Forseta Islands, sem fram fór 29. júní s.l., skuli fram bornar fyrir Hæstarétt fyrir kl. 17, föstudaginn 18. júlí n.k. Reykjavík, 11. júlí 1952. Jón Ásbjörnsson. Ilákon Guðmundsson. Rafmagnstakmörkun Álagstakmörkun dagana 12. júlí - kl. 10,45 — 12,15. 18. jiilí frá ■ygsjjf ■ m * Laugardag 12. júlí 1. hluti. Sunnudag 13. júlí 2. hluti. Mánudag 14. júlí 3. hluti. Þriðjudag 15. júlí 4. hluti. Miðvikudag 16. júlí 5. hluti. Fimmtudag 17. júlí 1. hluti Föstudag 18. júlí 2. hluti Straumurinn verður rofinn skv. þessu, þegar og að svo miklu leyti, sem þörf krefur. SOGSVIRKJUNIN Stúlka óskast mánaðartíma. GÍGJA BJÖRNSSON, Sjafnargötu 4. — Sími 6142. Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, frá Fossi, andaðist 10. júlí að heimili sínu, Bergþórugötu 29. Jón Marteinssson, börn og tengdabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jálðarför KONSTANTINS ERIKSSONAR. Hállgríma Gísladóttir, Hanna og Jón S. Helgason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.