Morgunblaðið - 05.08.1952, Page 6

Morgunblaðið - 05.08.1952, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjúdagur 5. ágúsí 1952 r 6 F. 24. júní 1874. — D. 28. júlí 1S52 Á laugaráag- valt bifreiðin A 935 út af þjóðveginum rétt sunnan við Laxaniýri. Bílstjórinr, sem var einn í bílnum, slapp ómeiddur. Bifreiðin var ásamt fleiri bifreiðum frá Akureyri að flytja efni frá Húsavík til Laxárvirkjunar, og var fluttningur hennar 4!4 tonn af járni. — Þá komið var rétt suður af Laxamýri mætast bifreið- arnar A 935 og Þ 87 og vék bifreiðin A 935 mjög utarlega í veg- brúnina og náði bifreiðastjórinn henri ekki aftur upp á veginn og kennir þar um lausamöl. Fulltrúi sýslumanns kom þegar á stað- inn og er málið í rannsókn. — Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd má það teljast undravert að bifreiðastjórirji skyldi sleppa ómeiddur, ekki einu sinni skrámaður. — (Ljósm. Sig. P. Björnsson). Fíugháfyrinn ii borsðrísjaka við Tobinböfða Vefheppnað sjúkraflug til Grænlands. JARÐARFÖR Flosa Sigurðsson- ar fór fram í gær að viðstöddu fjölmenni. Síra Jakotí Jónsson flutti húskveðju. Síðan var kist- an borin alla leið frá heimilinu út að dómkirkju. Fyrra áfangann báru félagar hins látna úr Stúk- unni Framtíðin, en seinna áfang- ar>i fulltrúar frá Félagi ísl. botn- vörpuskipaeigenda og trésmiðj- mni Vélundi. Reglufánar voru bornir fyrir líkfylgdinni og stóðu Templarar heiðnrsvörð við kist- una með þá í kirkjunni og gengu síðan fyrir alla leið í kirkju- Tarð. — Inn í dómkirkjuna báru fulltrúar Stórstúku íslands. Séra Óskar J. Þorláksson hélt ræðu í kirkjunni og Kristján Kristjáns- son söng einsöng. — Út úr kirkju báru stjórnarmenn EHiheimiIis- ins og menn úr Húsfélagi bind- I indismanna. — Síðan hélt lík- fylgdin vestur að Ellihcimilinu og fór þar fram hrífandi og fögur kveðjuathöfn ■ húsagarðinum. j Voru þar sungin kveðjuljóð frá j heimilinu, er orkt hafði Lárus ( Sigurjónsson. j Séra Sigurbjöm Á. Gísíason ; flutti þar kveðjuræðu, en stjórn- armenn, starfsmenn og vistmcnn i Elliheimilisins báru kistuna inn Ií garðinn og út. — Jarðarförin fór síðan fram í gamla kirkju- garðinum. Þar báru kistuna starfsmenn Flosa og knattspyrnu menn. — Séra Óskar J. Þorláks- son jarðsöng. „ÓÐUM hleður snjó á snjó“, eða: „óðum bætist gröf við gröf“. - Svo finnst mörgum aðgætnum, en líklega þó einkum þeim, sem rosknir eru, og sjá nú varla meir en einn jafnaldra sinn af hverj- um tíu, sem fyrrum urðu sam- íerða. VaSi út af veiinisai SÍÐASTLIÐINN föstudag fór kataiínaflugbáturinn Sólfaxi frá Flugféiagi íslands til Meistara-' víkur í Grænlandi með farþega og' flutning. Var þetta síðasta flugferðin þangað að sinni. Áður en lagt var af stað aft- ut frá Meistaravík áleiðis til Reykjavíkur, var þess farið á leit við Flugfélag íslands, að Sól- j faxi yrði send.ur til Scoresby- sund í .þeim tilgangi að sækja þangað danska hjúkrunarkonu, sem flytja þurfti í sjúkrahús í lieykjavík. Hafði hún orðið fyrir siysi og fengið slæman heila-; hristing. Katalínaflugbáturinn Sæfaxi hafði flogið yfir Scores-! bysund nckkru áður, er hann var á_ heimleið frá Norður-Græn-' landi, en ís var þá það mikill á þessum slóðum, að ekki var talið fært að lenda. SÓLFAXI LFNTI AÐ TOBINHÖFÐA Var því ákveðið að gera aðra tilraun til að sækja sjúklinginn, og lagði Sóllaxi af stað frá Meistaravík um miðnætti á föstudag. Þegar komið var yfir Scoresbysund, tók áhöfn flug- vélarinnar eftir því, að ísinn hafði rekið það mikið frá landi, að unnt myndi að lenda, enda þótt skilyxði væru ekki sem ákjósanlegust, þar sem stórir borgarísjajtar voru þarna á víð og dreif. Var lent skammt frá veðurathugunarstöðinni á Tobin- höfða, og tókst lendingin vel. KÁTIR GRÆNLENDINGAR ” UM HÁNOTT Nokkur bið var á því, að kom- ið væri með siúklin"mn p* f'n#- vélinni, og.motaði áhöfn Sólfaxa tækifærið og skrapp í land á Tobinhöfða á meðan. Hitti hún þarna allmarga Grær.lendinga, sem voru á ferli, þótt um hánótt væri. Virtust þeir hafa mikinn áhuga fynr komu flugvélarinn- ar, og fóru sumir í húðkeipum út að henni. Þegar komið var með hjúkr- unarkonuna, var strax búið um hana í flugbátnum og haldið til Reykjavíkur að svo búnu. Þang- að var komið á laugardagsmorg- un eftir þriggja tíma flug frá Tobinhöfða. Var sjúklingurinn fluttur í Landakotsspítalann, og er líðan hans nú talin góð eftir atvikum. Flugstjóri á Sólfaxa í þessari ferð var Sverrir Jónsson. Minning Margréfar Jénsdéflur frá RauSnefssíöðum F. 8. 4. 1870. — D. 14. 4. 1952. Sérhver hlíðir sínu kalli svona eru forlcg gjörð. Lítið heyrist frá þó falli feyskin eik á vorri jörð. Lífið allt hér er á reiki. Átján systkin, þar af hér þrettán börn úr barnaveiki burtu kölluð; hugsa sér. Vinnukona alla æfi, ei var lífsins stiginn hár. Trúi þegninn hélt í hæfi hér sín störf um fjölda ár. Rauðnefsstaða hún vann hjónum hjá þeim allan búskap var. Ein af trúu, tryggu þjónum, látlaust er vinna allsstaðar. Sextíu ár á sama garði svo var tryggð við fólk og bæ. Verðlaun fékk og af beim arði. Orðstýr hreinn íer ei á glæ. Þegar lét sig lífsins kraftur ljóst fékk arð hjá hjónum séð henni guldu umbun aftur er hún þurfti síðast með. Góða breytnin, fram í fengur færir réttu marki nær. Trúi begninn Guðsveg gengur, Guðdóminum því er kær. Viðræður í Nýju Delhí LUNDÚNUM — Forsætisráð- herra Kasmír og stjórn hans komu til Nýju Delhí fyrir skömmu til viðræðna við Ind- landsstjórn um framtíðarstöðu Kasmírs. Og nú er Flosi Sigurðsson far- inn, og eftir hann er skarð, sem fleiri sjá en jafnaldrar hans. Hann var fæddur í Biskups- tungum 24. júní 1874. Foreldrar hans, voru Sigurður Guðmunds- son, bóndi í Haukadal, og kona Sigurðar, Guðrún Þorláksdóttir frá Neðradal í Biskupstungum. Bjuggu þau lengst í Gröf í Mos- fellssveit. — Þau Sigurður og Guðrún áttu 17 börn og náðu 14 þeirra fullorðins aldri. En af þessum stóra hópi lifa nú aðeins tvö, Guðmundur á Lögbergi og María, háöldruð kona hér í bæ. Margur kann að ætla, að stund- um hafi verið þröngt í búi í Gröf, er börnin voru svo mörg, en aldrei heyrði ég Flosa víkja að þvi, og enginn sá það á þeim bræðrum, sem ég kynntist, að skortur hafi amað að þeim í upp- vextinum. Hjónin hafa hlotið að vera óvenjulega dugleg og ráð- deildarsöm. Trésmiðanámi lauk Flosi alda- mótaárið og hefir stundað þá iðn eíðan. Skömmu eftir aldamótin tók hann að sér ýmsar viðgerðir á fiskiskútum Thor Jensens, og þegar fyrsti togarinn, Jón forseti, kom til landsins 1907, hófst eigin- lega „Rú’lu- og hleragerð Reykja víkur“, þótt smá væri þá í sam- anbiirði við það, sem hún er nú. Því fvrirtæki stjórnaði Flosi með forsiá og dugnaði til dauðadags, bótt Sigurjón, trésmíðameistari, bróðir hans, æ+ti það með honum rúm 20 ár o? Ólafur, fóstursonur Flosa, keypti hlut Sigurjóns árið 1938. Árið 1902 kvæntirf F’osi Jó"- ínu Jónatansdóttur frá Miðengi á Á'ftanesi. Hún var fædd 22. 5. 1869. Þau eieouðust eitt barn. Alexander Flórent. Hann dó 5 ára gamall, árið 1908. — Ólafur Jónsson, sem nú tekur alveg við „Rúllu- og hleragerðinni“, er fóstursonur þeirra. Frú Jónína var övenjulega dugleg kona, samherji manns síns í ýmsum mannúðarmálum og áhugasöm alþýðuflokkskona. Hún andaðist 1. des. 1946 eftir langvinn veik- indi. . i i,,.. gmðssoMf trésmíðameistara Flosi Sigurðsson (mynd eftir mál- verki Brynjúlfs Þórðarsonar) Flosa mun lengst verða getið í sambandi við mannúðarmálin. — Hann var templar yfir 50 ár og gengdi í GT-reglunni ótai trún-) aðarstörfum. Hann var í stjórn Dýraverndunarfélags Islands, Styrktarsjóðs iðnaðarmanna, Samverjans og Elli- og hjúkrun- arheimilisins Grund. Vér Flosi Sigurðsson, Páll. Jónsson frá Hjarðarholtij og undirritaður, vorum allir í stjórn Umdæmisstúku templara veturinn 1913—14 og réðu því að Samverjinn var stofn aður. Sjálfboðaliðar voru margir | frá Reglunni fyrstu árin, en þegar Samverjinn varð að flytja! úr GT-húsinu eftir 2 vetur,' fækkaði þeím stórum. En þá fengum vér þessir 3, sem nefndir voru, þá Harald Sigurðsson og Júlíus Árnason í stjórn Samverj- ans. Þeir störfuðu þar með oss til 1923, er hann hætti. Stofnuðu ( með oss EHiheimilið Grund 1922. i Gafst enginn þessara fimmmenn-1 inga upp, þótt ómökin væru ó- teljandi, og framan af blési kalt á bak og brjóst frá þeim,- sem töldu að einstaklingsframtak ætt.i ekki að koma nærri líknar málum. Nú eru þeir allir farnir þessir 4, sem lengst störfuðu rrieð mér. Og þegar Flosi fór, var eins og að mér væri hvíslað: „Varaðu þig, Valnastakkur, fallinn er hann Fjögramaki“. „Valnastakk- mrinn, sem Guð gaf mér, svo að ég hefi hvorki skolfið i „norðan- garði" né bráðnað í „sunnan- blíðu“, stoðar lítið þegar hjartað gefst upp. En „Fjögramaki“ var Flosi oft og einatt, þegar mikið var í húfi bæði hjá Samverjan- um og Elliheimilinu, um það á ég margar minningar og góðar. Að sjálfsögðu kom sér oft vel að verkfróður maður og hagsýnn var í nefndinni, þegar verið var að laga leiguheimkynni Samverj- ans eða bvggia húsnæði handa gömlu fólki. Skapstór var hann að eðlisfari og gat haldið fast á sínu máli, en þó jafnframt alveg óvenjulega sanngjarn í allri sam- vinnu.. Hann hefði ekki haft sömu verkamenn í 40 ár, ef hann hefði ekki verið góður og sann- gjarn húsbóndi. Eins get ég sagt að Samveriinn hefði ekki orðið 10 ára og Eili- heimilið Grund aldrei farið af stað, ef samvinna vor fyrr- greindra fimmmenninga hefði ekki verið góð. Flosi sagði stund- um við mig í „afmælisræðurri“ síðustu árin: „Við höfum nú unn- ið saman í 40 ár og ekki orðið sundurorða nema einu sinni“. — Því var mér ljúft að þakka í síð- asta skipti, er hann heyrði mál- róm minn hérna megin, — og þakka nú í heyranda hljóði. Og þeir eru æðimargir fleiri, sem undir það þakklæti geta tekið, ástvinir hans, verkamenn, sam- starfendur í mannúðarmálum, fjölmargir aldraðir einstæðingap og stór vinahópur. Drottinn blessi Flosa Sigui'ðs- son um eilífð, segjum vér öll ein- um rómi. Sigurbjörn Á. Gíslasoií. í YS OG ÞYS hinnar miklu um- ferðar á torgi lífsins, þar sem flestir virðast alnboga sig áfram til að flýta sér sem mest, er það hending ein hverjum maður mæt- ir, og þó máske enn meiri hend- ing hverjum maður verður sam- ferða óg hve lengi leiðir liggja saman. Stundum geta menn ekki orðið samferða þótt báðir stefni í sömu átt, vegna þess að þá grein ir á um til hvorrar handar víkja skal. Við aðra verður maður við- skila í þrönginni og sér þá ekki framar. Allir þessir menn geta orðið minnisstæðir, hver á sinn hátt. En hugstæðust verður oss jafnan minning þeirra, er lengi hafa orðið oss samstiga og aldrei hefir neitt á bjátað um samfylgd- ina. Þeirra manna hljótum véi* að sakna sárt þegar leiðir skilja. Og margur mun nú sakna hins góða samferðamanns, þegar Flosi Sigurðsson hverfur sjónum. Nú eru um 30 ár síðan ég kynnt ist honum fyrst. Sú kynning varð nánari með hverju árinu sem leið, og alltaf var ég að uppgötva nýa og nýa þætti í-fari hans og lífs- skoðun. Hann var einn af þess- um dulu mönnum, sem ekki bera tilfinningar sínar út á stræti og gatnamót, og ekki eru að vasast í því, sem þeim kemur ekki við. En þeim mun tryggari var hann og drenglyndari þegar á reyndi. Og nú að leiðarlokum verður mér sérstaklega starsýnt á drenglyndi hans og ói’ofa tryggð við allt, sem hann taldi satt og rétt. Aldrei lék hann tveim skjöldum. Oft- ast var hann fáskiftinn og hafði sínar skoðanir lítt í frammi. En er á reyndi tók hann gjarna af skarið og var þá hvorki veill né hálfur, ef verja þurfti góðan mál- stað. Nauðleitarmönnum reyndist hann föðurlegur. Eymd og bág- indi annarra gengu honum hjarta nær, og þeim, sem rötuðu í ógæfu reyndi hann að hjálpa með ráð- um og dáð. Þótt þeir hefðu hlaup- ið gönuskeið/var hann ekki með umvandanir og ásakanir í þeirra garð. Hann hafði næmar tiifinn- ingar og vissi að mannúðin ein getur bjargað þar sem allt ann- að bregst. Vegna þessa innrætis var það mjög eðlilegt að hann legði mann úðarmálum allt það lið er hann mátti. Og þar var hann ekki þröngsýnn. Helst hefði hann vilj- að ná til allra þeirra er bágt áttu, bæði manna og málleys- ingja. Hann var í stjórn Dýra- verndunarfélags íslands. Hann var í stjórn „Samverjans", er bezt hjálpaði fátæku fólki í þreng ingum fyrri heimsstríðsins. Hann var í stjórn Elli- og hjúkrunar- heimilisins í Reykjavík allt frá því að það var stofnað. Hann var í Góðtemplarareglunni hátt á 6. tug ára og hún varð annað heimili hans. Hugsjón Reglunn- ar um bræðralag allra manna, átti hug hans óskiftan, einnig viðleitni Reglunnar að hjálpa þeim, sem eru aumastir allra, og forða mönnum frá að lenda inn á ógæfubrautir. Störf hans í þágu Reglunnar verða ekki rakin hér, enda þótt þau hafi verið unnin í þágu lands og þjóðar. En það ber vott um óbifanlega trú á góð- an málstað, að vinna stöðugt fyr- ir hann í heilan mannsaldur, án þess að sjá að nokkuð miði að ráði. Slíkt er ekki öðrum færit en „þeim, sem eina lífið er bjarta brúðarmyndin". Og holt væri það Framh. á bls. 9 j

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.