Morgunblaðið - 02.09.1952, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 2. sept. 1952
MORGVNBLAÐÍÐ
7 ]
Undirbúningsnefnd l@nur fil
ijastaði
'yrir drykkjumannahsli
Gefur fekið íil siarfa í hausf.
20 ár eru liðin frá vígslu Fossvogskirkjugarðs. Fyrstur var grafinn í kirkjugarðinum Gunnar
Hinrikssor, vefari og sézt legsteinn hans til vinstri. Tii hægri sést einn nýjasti hluti kirkjugarðsins.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
FðssvGfjskirkppflisr ivslifnf
í DAG eru tuttugu ár liðin síðan
kirkjugarðurinn í Fossvogi var
vígður. Staður fyrir garðinn var
valinn í Fossvoginum sunnan í
Öskuhlíðinni, því að þar var
skjólgott, fagurt og sólríkt. Síðan
hefur staðurinn mikið' verið
prýddur með trjárækt, blóma-
rækt og fallegri umgengni í hví-
vetna.
FEGRUN KIRKJUGARÐINS
Gamli kirkjugarðurinn við Suð
urgötu var orðinn svo útgrafinn
á þeim tíma, að fyrirsjáanlegt var
að mjög erfitt yrði að vísa á nýja
grafreiti í horium. Sóknarriefnd
Dómkirkjunnar ákvað því að
velja stað fyrir nýjan kirkjugarð.
Vígsla Fossvogskirkjugarðs fór
fram 2. september 1932 og var
fyrsti maðurinn þá jarðsettur
þar, Gunnar Hinriksson. Annars
átti fólk til að byrja með .erfitt
með að sætta sig við þennan nýja
garð, því að þótt staðurinn væri
fallegur, var þar þó til að byrja
með aðeins berangur. En eftir
þessi ár hefur það tekið miklum
stakkaskiptum. Á hverju ári hafa
verið gróðursettar þar fleiri og
færri trjáplöntur. Garðurinn hef
ur verið smekklega skipulagður,
mörg leiðin tseypt fagurlega og
kirkjugarðsstjórnin annast blóma
rækt meðfram aðalgangstígunum.
Þegar Reykjavíkursöfnuði var
skipt 1940, þá hætti sóknarnefnd
Dómkirkjunnar ein að haía for-
stöðu kirkjugarðanna og var þá
stofnuð Kirkjugarðsstjórn
Reykjavíkur. Hún hefur farið
með yfirstjórn kirkjugarðanna
beggja síðan og eiga í henni sæti
fulltrúar frá öllum söfnuðum
Reykjavíkur, og Bálfararfélag-
UTFARIR FLYTJAST
AF GÖTUNUM
Formaður Kirkjugarðsstjórnar
innar var fyrstu árin Knud Zim-
sen og var hann ötull forustumað
ur í þeim meiriháttar fram-
kvæmdum til l'egrunar og úrbóta
útfara, sem komizt hafa á. Það
var til mikilía úrbóta, þegar Foss
vogskirkja var reist. Hún var
vígð 2. ágúst 1948. Með henni má
segja, að hafi orðið gerbreyting
á útfararsiðum, svo að þeir verða
smekklegri en áður. Með Foss-
vogskirkjunni flytjast jarðarfar-
siEum fealcs iylgi um-
feætur á útfusraYsiðuim
í suðvestur horni kirkjugarðsins eru legstaðir brezkra og norskra
hermanna, sem hér létust á stríðsárunum. Þar voru og áður leg-
staðir bandarískra hermanna, en kistur þeirra voru fluttar til
heimalandsins að loknu stríði.
irnar af götum Reykjavíkur, svo
að hverfandi fáar jarðarfarir fara
nú fram frá öðrum kirkjum.
KIRKJUGARÐSSTJÓRN
ANNAST ÚTFARIR
Um leið og kirkjubyggingin
komst upp, þá ákvað kirkjugarðs
stjórnin að taka að sér fram-
kvæmd jarðarfara og stefna að
því framar öllu öðru, að gera jarð
arfarir sem ódýrastar, einfaldast-
ar og smekklegastar.
LÍKKISTUR GEH3AR ÓDÝRAR
í þessu skyni hefur kírkjugarðs
stjórnin komið sér upp trésrniðju
til líkkistusmíði. Eru þrír menn
starfandi í henni. Kistusmíðin er
ekki til að hagnast á henni, held
ur eru þær seldar á framleiðslu-
verði, án álagningar. Kjartan
Jónsson, sem áður starfgði á lik-
kistuverkstæði Tryggva Arnason
ar, sér um kistusmíði og útfarir.
Nú er líka svo komið. að kirkju-
garðsstjórnin sér að öllu leyti um
framkvæmd jarðarfara. Hún læt-
ur fólki líkhús og kirkju til notk-
unar, framkvæmir kistulagningu
í heimahúsum og sjúkrahúsum og
flutning í líkhús, allt án endur-
gjalds. Þá annast hún kirkjusöng.
Það er athyglisvert að kirkjukór-
inn sést ekki við guðsþjónustur í
Fossvogskirkju. Hafa sumir talað
SÍÐAN í vor hefir nefnd verið
starfandi til þess að athuga hvaða-
ráðstafanir bæjarstjórn getur!
gert til að koma upp hæli fyrir^
áfengissjúklinga. í nefndinni hafa
átt sæti Gústaf A. Jónapson, skrif
stofustjóri, dr. med. Jón Sigurðs-1
son borgarlæknir og Alfreð Gisla *
son, læknir.
Úr líkkistuverkstæði kirkjugarðsstjórnar. Sigurbjörn Þorkelsson
framkvæmdarstjóri kirkjugarðanna og Kjartan Jónsson líkkistu-
smiður. —
um að kirkjusöngurinn muni vera
fluttur af hljómplötum, en það er
ekki. Þetta fyrirkomulag hefur
verið haft végna þess a^5 gert hef-
ur verið ráð fyrir að Fossvogs-
kirkja sé útfararkirkja og þá
þótti það fyrirkomulag betra að
láta ekki bera of mikið á kórn-
um. En kirkjukórar hinna ýmsu
safnaða syngja við útfarir .eftir
því úr hvaða sókn hinn látni
maður er. Kirkjugarðsstjórnin
hefur þegar séð um 606 jarðar-
farir.
BÁLFARIR FARA 1 VÖXT
Um sama leyti og Fossvogs-
kirkja var vígð, tók til starfa í
sambandi við hana bálfararstofa
og er umsjónarmaður hennar
Jóhann Hjörleifsson, sem einnig
er kirkjuvörður. Bálfarir eru í
vexti. Hefur nú farið fram bál-
för 163 manna. Útfararathöfnin
við bálfarir er hin sama og við
venjulegar útfarir og skal tekið
fram, að þar þarf engu síður lík-
kistu. En síðan er kistan sett inn
í líkbrennsluofn. Er hitinn svo
mikill að á skömmum tíma eyðist
allt efni nema kalk og steinefni
beina. Kistunaglar eru teknir úr
með segulstáli en jarðneskar leif-
ar hins látna settar í lítið ker með
áletruðu nafni.
Nú er verið að skipuleggja og
ganga frá fyrstu grafreitunum,
þar sem grafin er niður aska. Er
mjög smekklega frá þessum nýju
grafreitum gengið, fagrir blóma-
reitir allt umhverfis.
FOSSVOGSKIRKJUGARÐUR
ER ORÐINN HINN YNDIS-
LEGASTI GROÐURREITUR
Kirkjugarðsstjórnin lætur ekk
ert hjá líða til að fegra og prýða
umhverfi grafreitanna.
Eftir beiðni aðstandenda lætur
hún steypa umgerð um legstað-
ina, höggva legsteina og einstakl-
tngar mega gróðursetja trjáplönt
ur á leiðunum. Margir þeirra
vilja sjálfir annast fegrun en
en auk þess er margt garð-
yrkjufólk starfandi á vegum
kirkjugarðsstjórnarinnar. En
garðyrkjunni stjórnar Sumarliði
Halldórsson skógræktarfræðing-
úr. Helgi Guðmundsson, sem er
Frh. á bls. 11
MARGAE JARÐIR
Á BOÐSTÓLUM
Auglýst var eftir jörðum til
kaups, og komu tilboð um nálega
20 jarðir víðsvegar á landinu.
Nefndin heíir unnið að undir-
búningi málsins. Og hafa tveir
nefndarmannanna, Jón Sigurðs-
son og Alfreð Gislason, skilað
áliti til bæjarráðs í fjarveru
Gústafs A. Jónassonar, sem nú er
í útlöndum.
Segir m. a. í nefndarálitinu:
Margar af jörðum þessum hafa
allmikið landrými, góða ræktun-
armöguleika (tún, kartöflur eða
skógur) og viðunandi gripahús.
Nokkrar þeirra veita ennfremur
skilýrði til ýmist sjósókna eða
silunga- eða laxveiði, faglatekju,
eða til sand- og gjallnáms. Á
einni jörðinni, Syðri-Reykjum, er|
jarðhiti og gróðurhús, en þar er.
tvíbýli, og jörðin, með mann-!
virkjum er aðeins boðin til leigu.
Hins. vegar eru íbúðarhús á1
jörðum þessum, að Skeggjastöð-1
um og Söndum undanskildum,'
allt of lítil fyrir stofr.un þá, er
hér greinir, og mundi íbúðarhús-
næðið, þar sem húsakostur er
mestur, naumast gera meira en
nægja starfsmönnum einum á!
hinu væntanlega drykkjumanna-)
hæli.
í íbúðarhúsnæðinu að Sönd-
um í Vestur-Húnavatnssýslu, sem
er járnvarin timburbygging,
byggð um aldamót, en sögð vel
við haldin, eru 20 herbergi. Það
er þannig hugsanlegt að íveruhús
þetta sé nægilega stfert undir
drykkjumannahæli, a. m. k. fyrir
10.—15 vistmenn, en nefndinni
hefur ekki þótt ástæða til að
kynna sér þetta nánar, þar eð
jörðin liggur að dómi nefndarinn
ar of langt frá Reykjavík til að
nefndin vilji mæla með henni í
þessu skyni.
SKEGGJASTADIR
Jörðin Skeggjastaðir í Mos-
fellssveit hefur algjörlega sér-
stöðu, hvað húsakynni snertir.
Þar er vandað, nýlegt íbúðarhús,
byggt að rnestu á árúunum 1944
—45, nægilega stórt til að hýsa
20 vistmenn og starfsfólk allt,
ráðsmann og fjölskyldu hans,
ráðskonu og 4—5 gæzlumenn.
Herbergjaskipun er þar einkar
hentug fyrir drykkjumannahæli,
þannig að sáralitiar breytingar
þarf að gera á húsnæðinu.
ÁLITSGERÐ SÉRFR7EDING3
Vegna sérstöðu jarðarinnar
Skeggjastaða í Mosfelissveit, hef-
ir r.efndin fengið Sigmund Hall-
dórsson arkitekt til að kynna sér
byggingar á jörðinni, ásigkomU-
lag og verðmæti, og ennfremur
gera nefndinni grein fyrir nauð-
synlegum breytingum. Samkv.
áliti hans, er verðrnæti húsa á
jörðinni kr. 1.385,000, vatnsleiðsl-
ur kr. 43.500, vegur 152 þús., er»-
kostnaður við nauðsynlégar
breytingar telur hann að verði
115 þús. Mat á jörðinni og mann—
virkjum nemur samtals kr.
1.950,000, þar með talin lancí og
ræktun 170 þús. rafstöð 200 þús.
ATVINNUMÖGULEIKAR
FJÖLÞÆTTIR
Svo segir ennfremur í áliti
nefndarinnar:
Atvinnumöguleikar vistmanna
að Skeggjastöðum myndu vera
þessir. Mikil skilyrði er.u á jörS
inni til ræktunarumbóta, og meði
ræktun má reka þar alhliða bú-
skap. Skilyrði eru góð til mikill-
ar kartöflu- og matjurtaræktar.
Mannvirki, næstum fullgerð, eru
fyrir hendi til að koma upp klaki
og að alifiskarækt. Þá gildir það
um þessa jörð sem aðrar, að þar
má vinna. að margs konar hand-
íðum, skógrækt og nýbygging-
um.
Ágalli verður það að teljast, áð
jörðin liggur ekki að sjó. Samt
er vafasamí, hvort mikið hefði
áunnist, þó svo hefði verið, þar
eð varhúgavert gæti verið að
sleppa vistmönnunum á sjó.,
Skeggjastaðir liggja um 30 km.
frá Reykjavík, tæpa 3 km. frá
þjóðveg, vel í hvarfi frá allri
urnferð. Auðvelt er um samgöng
ur allan ársins hring.’ Nálægðiu
við höfuðborgina ætti að auð-
velda mjög ráðningu starfsfólks,
en á hinn bóginn léttir hún lika.
vistmönnum strok í bæinn.
GETUR BYRJAÐ FLJÓTLEGA
Að framanskráðu athuguðu
leggur nefndin eindregið til að
tilboði Eiríkis Ormssonar um sölu
á jörðinni Skeggjastaðir í Mos-
fellssveit verði tekið. — Sam-
kvæmt álitsgjörðum Sigmundar
Halldórssonar arkitekts og Pálma
Einarssonar landnámsstjóra, virð
ist söluverð jarðarinnar ekki
ósanngjarnt, en engar líkur eru
til að ódýrara yrði að byggja hæl-
ið frá grunni. — Nefndin telur
það mjög mikilvægt, að hælið
geti tekið til starfa sem fyrst, og
að ekki þurfi að bíða 1—2 ár eða
lengur eftir að byggt verði.
STRÁKHNOKKI frá Larvík:
týndi fyrir nokkru veskinu sínu,
er hann var á skemmtireisu við
Rjúkanfossana, en í því voru um
150 krónur. Nokkrum dögum síð-
ar fékk hann ávísun frá Lin-
köping, og hljóðaði hún á sömu
upphæð og stráksi týndi. — Kom
það upp úr kafinu, að sænskur
ferðamaður hafði fundið veskið
með peningunum, en hann var á
ferðalagi í Noregi fýrir skömmu.
■ ■■saaaitBaBceaav
■ ■ ■ ■ ■ ■■■■■■■■■■
■ ■■■■■■■■■■■■OB^
Einangrunarkork
bæði í plötum og mulinn, útvegum við með stuttum
fyrirvara frá Spáni. — Mjög hagstætt verð.
CJÍa^iir (jíófaóon & L.f.
laáon
Hafnarstræti 10—12. Smi 81370.