Morgunblaðið - 03.09.1952, Page 14
' 14
MORGUNBLAÐIB
Miðvikudagur 3. sept. 1952
KALLI KÚLA
Skdldsaga eítir FALSTAFF FAKIR
Wé
ituiiiiiiuiiiiiiinimiimiiiiMmwu
FramJialdssagan 10
Með sömu lestinni og Kalli,
fylgdi bréf frá prestadóminum til
séra Jóhannssons, þar sem hann
var hvattur til að sækja um mán-
aðar orlof, til þess að „taugarnar
kæmust í lag,“ eins og stóð í
bréfinu.
Bréfið hafði álíka áhrif á Jó-
hannsson eins og sprengja myndi
hafa haft. Hann lokaði sig inni í
herbergi sínu og starði sljóum
augum út í loftið án þess að geta
hugsað eina einustu hugsun i
samhengi. Honum virtist, sem sér
væru lokuð öll sund af þessum
djöfullegu skemmdarverkamönn-
um.
__Ég þvæ hendur mínar! muldr-
aði hann við sjálfan sig seinna
um kvöldið. Greip svo skriffæri
og samdi umsókn um orlof, eins
og óskað var eftir.
— Ég þvæ hendur mínar! end-
urtók hann og þvoði sér upp úr
vatnsskálinni, gekk s^o til hvílu,
og brátt fékk svefninn vald yfir
hinum samvizkuhreina heila
hans.
TNTú stóð Kalli Kúla á hátindi
Ásavalds síns. Hann baðaði sig í
sólglansi hamingju sinnar, gekk
öðru hverju um í garðinum með
sólfylgju í hnappagatinu og söng
hárri raust „Grát Ingibjargar’1
við valsalagið „An der schönen,
blauen Donau.“ Það olli að vísu
óþægilegri truflun, að hann vaið
að semja við hreppstjórann, sem
kom með umkvörtun um að ein-
herjinn og vinnumaðurinn Ægir
Petterson vildi ekki æfa her-
mennsku, nema með skildi og
boga að vopni. Hann hafði veigr-
að sér við að taka á móti riffli
krúnunnar með ásahöndum sín-
um, og kallaði auk þess hinn
nokkuð uppstökka ofursta „Ang-
antý jarl.“ Einherjinn Ægir tald-
ist til hinna ásaheilögu, sonur
Mömmu Grétu og Haðar.
Kalla Kúlu tókst þó eftir mikið
vafstur að koma í veg fyrir að
Ægir yrði látinn sæta sex mán-
aða fangavist fyrir uppsteit. Er
þessu var lokið, tók hann lífinu
með ró, en því miður varð hann
brátt fyrir alvarlegri truflun aft-
ur.
Dimm óveðursský vofðu yfir
höfði Ásahöfðingjans. Leiftrum
sló niður, en áður átti hann þó
eftir að lifa skemmtilegan dag.
Sunnudag einn var safnað pen-
ingum til heiðingjatrúboðsins í
kirkjunni eftir messu. Það sem
inn kom, var svipað og venjulega
á slíkum hátíðastundum, í þetta
sinn safnaðist ekki meira en tutt-
ugu og einn eyrir.
Síðdegis sama dag kom Kalli
Kúla til séra Andrésar og fór i
fram á að fá þessa peninga, þar
sem þeim hefði auðsýnilega verið-
safnað handa honum. — Séra i
Andrés þrjózkaðist fyrst við, en '
varð að gefast upp fyrir hinum i
dagurinn, sem örlögin höfðu
ákveðið að hinn ágæti ásahöfð-
ingi skyldi njóta fyrst um sinn.
Brátt tóku óveðursskýin að drag-
ast saman yfir höfði hans. Hvert
sem hann leit, sá hann ekkert
annað en þrumuský, útlitið varð
verra og verra, og áhangendum
trúarinnar fjölgaði stöðugt.
Þessar hræðilegu manneskjur
gerðu allt til að eyðileggja líf
höfðingja síns, en auðvitað óvilj-
andi. Nú voru þeir orðnir fjórtán
alls, og voru undir handleiðslu
hinnar hræðilegu Mömmu Grétu
og manns hennar, Haðar. Það
gerði allt, smátt og stórt, til þess
að líf þeirra líktist sem mest hin-
um fornu ásatrúarmönnum. Það
gat ekki sagt hamar, en talaði uni
„Mjölni“ í þess stað. Kartöflurn-
ar kallaði það „Iðunnarepli" og
ljósmóðir þorpsins nefndi það
„Frigg“, til mikillar armæðu fyr-
ir þessa ágæt.u ungfrú, er bar hið
hljómfagra nafn, Alexandrir.a
Klask. Já, Hörður var nógu ósvíf-
inn til að kalla vasapelann sinn
„Mímirsbrunn“.
Þau töluðu ætíð einskonar
eddumál með margvíslegu bók-
stafarími, þegar þau hittu Kalla
Kúlu:
— Ætlar ásinn að aka til kirkj-
unnar klóka boðbera? spurði Höð
ur til dæmis einu sinni, þegar
Kalli Kúla sagði honum að leggja
á hestana. Og er hann spurði
Mömmu Grétu eitt sinn um,
hvert hún ætlaði, svaraði. þessi
ofsafengna ásatrúarkona með
miklum hátiðleik: „Drekinn drejf
ur oss til eyjarinnar í vatninu".
Það fór hrollur um Kálla Kúlu
við allt þetta. Á sunnudögum
fóru hinir ásaþeilögu út í eyna til
að blóta, en það fór fram á þann
hátt, að þeir slátruðu hænu og
átu hana með andagt. Samtimis
slettu þeir ögn af hænsnablóði á
nefið á aér.
Kalli Kúla varð hræddur við
allt þetta. Söfnuður hans var að
verða honum ofjarl. Mamma
Grét.a og Höður kröfðust þess
eitt sinn að uxinn Baldur og kýr-
in Freyja skyldu skipta um nafn.
Þessi nöfn á húsdýrum væru nán-
' ast guðlast. Kalli Kúla varð ráða-
laus og lét að vilja þeirra — og
1 nú hét uxinn Knaspur og kýrin
: Adeligutta.
En hægfara trúmaðurinn, fjár-
hirðirinn Baldur (Páll) einherji
Jónsson varð sármóðgaður yfir
I þessu, þar sem hann — með eða
án átyliu — sá í nafnbreytingu
þessari lítilsvirðingu á sínu nafni
Hann krafðist því
pro primo: upprunalegu nöfnin
tekin up að nýju.
pro secundo: Kefsing hinna ása
heilögu.
Þá er hinir ásaheilögu heyrðu
þessa kröfu, kölluðu þeir saman
jtil fundar á eynni. Að íundi lokn-
um fóru Mamma Gréta og Höður
heim til Kalla Kúlu og tilkynntu
| að þau sæju sig tilneydd að krefj-
1 ast þess, að Baldri Jór.ssyni yrði
, blótað í eynni, þar sem fram-
| koma hans (er þau voru vitni að
| við blótin) heíði móðgað Val-
höll.
| Auk þess báðu hinir fjórtán að
skila því til húsbóndans, að þau
myndu ekki mæta til vinnu fyrr
en búið væri að blóta Baldri
Jónssyni. Nornirnar höfðu birt
þeim þetta í draumi.
Nú var þetta um uppskerutím-
ann, þegar mest var að gera, og
'sízt mátti slaka til við vinnu og
því lcfaði Kalli Kúla að hann
skyldi fá þeim Baldur Jónsson í
hendur, heldur en að uppskeran
eyðileggðist. Þegar fjárhirðinum
varð kunnugt um að heiðarlegur
fórnardauði biði hans, varð hann
gripinn af slíkri hræðslu, að
hann stökk til skógar og létti
ekki fyrr en hann var kominn í
fjarlægðar aveitir.
Hinír ásaheilögu urðu reiðir
■ mjög er þeir fréttu þetta. Þeir
dróttuðu þvi að höfðingja sínum,
að hann hefði hjálpað fórnar-
lambinu undan, og litu nú á hann
I hatursfullu augnaráði. Ásahöfð-
inginn varð eitthvað undarlegur
og fór að hátta.
Hann sá í draumi sýn eina, sem
nærri því fékk blóðið til að
storkna í æðum hans. Honum
* fannst hann sjá Valhöll. Óðinn
! sat í hásæti sínu og var að ræða
Gröli
óhrekjandi
sonnunargognum
Kalla Kúlu og lét hann hafa tutt-
ugu og einn eyrir til réttlátra
skipta milli ásatrúarmanna sókn-
arinnar. Séra Andrés var fýrst í j
stað í efa um hvernig hann ætti
að bókfæra þetta, en Kalli Kúla
leiðbeindi honum. Loks mannaði
hann sig upp og skrifaði með ör-
uggri hendi í kirkjusöfnunarbók-
Hinn sextugasta og fyrsta
sunnudag fyrir jól:
Söfnun til heiðingjatrú-
boðs ................ kr. 0,21
Greitt beint til heiðingja
hér á staðnum ....... kr. 0,21
Afgangur kr. 0,00
Summa summarum kr. 0,00
En þetia var síðasti áolskins-
eítir Grimmsbræður
3.
„Ég lofaði honum að vaka við grofina og ég verð að efna
það loiorð.“
Um kvöldið fór hann svo út í kirkjugarð og settist á gröf-
ina. Allt var hljótt og máninn varpaði geislum sínum yfir
kirkjugarðinn. Einstöku sinnum flaug ein og ein ugla garg-
andi íram hjá iátæka bóndanum, þar sem hann sat á
leiðinu.
Um sólarupprás fór fátæki bóndinn heim til sín, og
haíði ekkert sérstakt borið fyrir hánn. Næsta nótt leið sömu-
leiðis án þess að nokkuð kæmi fyrir. En svo var það að
kvöldi þriðja dagsins, að íátæka manninum íannst vera ein-
hver kvíði í sér. Honum fannst eins og eitthvað hryllilegt
myndi koma fyrir.
Þegar hann kpm inn í kirkjugarðinn, sá hann mann standa
á kirkjugarðsveggnum. Hann var nokkuð kominn við-ald-
ur og skarplegur til augnanna, með ör í andlitinu. Hann var
í skikkju og svo hafði hann feiknastór reiðstígvél á fót-
unum.
„Að hverju eruð þér að leita?“ spurði íátæki bóndinn.
„Eruð þér ekki hræddur að vera einn í kirkjugarðinum á
þessum tíma sólarhringsins?“
„Ég er ekki að leita að neinu sérstöku,“ svaraði ókunni
maðurinn. „Ég hræðist ekki heldur neitt. Það er eins háttað
með mig og piltinn, sem fór út í víða veröld til þess að
læra að hræðast, og svo eignaðist hann kóngsdóttur og varð
auðugur. Ég heíi alltaf verið íátækur. Ég er ekki annað
en uppgjafa hermaður og á mér engan fastan sama stað“.
„Ef það er satt, að þér séuð ekki hræddur,“ sagði fátæki
bóndinn, „þá ættuð þér að vera hjá mér í nótt og halda
vörð við gröfina.“
HÚSNÆB8
3 lierbergi og eldhús', ósk-
ast strax. Sími 7970.
GBIJD
óskast strax eða 1. okt. —
Uppl. í síma 7057.
3túlka óskasf
Sérherbergi. Uppl. gefur
Ágúst Sigurðsson. Bólstað-
arhlíð 12, uppi, eða í sima
5155, kl. 1—3 í dag.
HERBERGB
TBL LEIGD
Tvö herbcrgi (annað í risi)
til leigu. Bólstaðarhlið 12,
uppi. — Sími 5155.
1 Sieybcngl
og eldhúfs
eða aðgang að eldhúsi og
baði óskast til leigu 1. okt.
Tvennt í heimili. Uppl. í
síma 4772 frá kl. 10—5. e.h.
DÖNSKU
ungbarnafötin komin aftur,
bl. buxur á 5.25; bolir,
treyjur og sokkabuxur. Úti-
jerseyföt á 2ja—4ra ára og
stakar jersey-gallabuxur á
1—4 ára. Verðið hvergi
lægra.
NONNABÚÖ
Vesturgötu 27.
ATMUGIÐ
ef þér þurfið að spara!
1 grár kvensvagger nr. 42
á 585.00. — 1 brún kven-
kápa með belti nr. 42, á
630.00. — 1 svört kvenkápa
með belti nr. 44 á 630.00. —
1 telpukápa með hettu á ca.
10—12 ára, á 350.00. — 1
telpukápa m. hettu á ca 6—
7 ára 285.00. — Þetta er 20
-—30CA undir innkaupsverði.
N O N N A B tl Ð
Vesturgötu 27.
ISlýkomnar
ódýrar vöruT
Ullartau í kjóla, 135 cm. br.
9 litir. — Prjónasilki í kjóla
105 cm. br., á 33.50. — Rifs
efni, 3 litir, 110 cm. br. á
25.50. — Taftsilki, 4 litir,
105 cm. br. á 28.00. Taft-
silki, 4 litir, köflótt, 80 cm.
á 23.80. — Sængurveradam
ask, 140 cm. á 24.50. Kakí-
efni hvítt á 13.90. Flónels-
skyrtuefni, köflótt á 15.90.
Gardínuefni-bobenet frá
22.00 pr. mtr., og m. fl. með
hagstæðu verði.
NONNABÚÐ
Vesturgötu 27.
Iiiús til söiu
*
í nágrenni Reykjavíkur,
gæti verið 2 íbúðir. Útborg-
un 15—20 þús. — Góðir
greiðsluskilmálar. -— Tilboð
sendist afgr. Mbl. fyrir
laugardag merkt: „Hús —
189“. —
FÆÐB
Tveir menn geta xengið
fæð'. Uppl. Skeggjagötu 19.
Hafnarfjörður
Hcrbergi til leigu á Mýrar-
götu 2. Uppl. í síma 9500.
STIJLK A
Fullorðin stúlka óskast á
fámennt heimili. — Aðeins
barnlaus stúlka kemur til
greina. Uppl. í síma 9466.
HERBERGI
Stórt og skemmtilegt her-
bei-gi á móti sól, með sér
inngangi og innbýggðum
skápum og þvottaskál, til
leigu á Ránargötu 10. —
Sími 4091.
W.C.-ská!ar
með S. O. P. stút, nýkomnar
Sigtivatur Einarsson & Co.
Garðastræti 45. Sími 2847.
Kefðavik
Til leigu: Verzlunarpláss,
17 ferm., á góðum stað. Til-
boð sendist afgr. Mbl. fyrir
10. sept., merkt: „V-10 —
193“. —
1 h'erb. og eldhús
í eða við Miðbæinn óskast
sem fyrst. Tilboð merkt: —
„fbúð — 192“, sendist á af-
gretðslu Mbl.
2—3 herbergi
og ddhú§
óskast. Tilboð sendist afgr.
MbL, merkt: „77—194".
Vetrartízkar(
Útlendir hattar teknir upp
í dag. —
HattaverzL Isafoldar h.f.
Austurstræti 14.
BBIJÐ
1—2 herbergi og bldhús eða
eldhúsaðgangur óskast til
leigu strax. Tvennt fullorð-
ið í heimfli. Tilboð merkt:
„Há leiga — 195“, sendist
Mbl. fyrir fimmtudagskvöld
STIILK A
frá 30—40 ára, sem gæti
tekið að sér að stjórna góðu
heimili á Akureyri, óskast.
Uppl. hjá Guðrúru Eirfks,
Skaptahlíð 15. Sími 5105.
í vélstjóraskólanum vantar
herbergi sem næst sjómar.na
skólanum. Tilboð leggi.st á
afgr. Mbl. fyrir föstudags-
kvöld, merkt: „196“.