Morgunblaðið - 03.09.1952, Síða 16
Yeðurúiii! í dag:
N-kaldi. Léttir til
199. tbl. — Miðvikudagnr 3. scptembcr 1952.
bleiuk IðiidkynRÍni
í Markva. Gl'i Prr.vda-grein á
bls. 8.
Ekki er ein bórai siök
Oceaitus glímir við flakið
Komid meo s!eir«herié iii Ksfiavíkir
1 r
efctn s
JÁRNFLAKIÐ stóra hefur
[ enn einu sinni slitnað aftan úr
j hoilenzka dráttarbátnum Oce-
1 anus. Skeyti barst um þetta
til Reykjavíkur i gær, írá
skipstjóra dráttarbátsins. —
» Skýrir hann þar frá því, að
t hann hafi verið staddur um
‘ 84 mílur norðvestur af Orkn-
eyjum í þungum sjó, þegar
dráttartaugarnar slitnuðu. —
Ekkert frekara hefur heyrzt
af þessu atviki, en dráttarskip-
ið mun vera búið taekjum íil
að koirra dráttarvírum að
nýju í flakið, jai'nvel þótt á
rúmsjó sé.
Fiskisæld í Faxaflóa eykst
Fisktegtdiidir, sem ekki hafa sézt
í áratugi, gefa nú uppgripaafia
AKRANESI, 2. sept. — Afli trillubáta, sem héðan hafa róið hefur
verið mikill að undanförnu. Hafa 6 bátar verið gerðir hér út að
staðaldri í ágústmánuði og róið alla daga er gefið hefur á sjó.
Bótarnir eru með skötulóð, hver bátur með 5—6 lóð en 32—35
öngla á ijverju lóði. Hafa þeir aflað mikið af lúðu og talsvert
af skötu.
VERÐMÆTUR AFLI «
Lúðuafla sinn hafa bátar þess-1
ir selt til frystihússins hér eða í
búðir hér eða í Reykjavik fyrir
5—6 kr. kílóið. Skötuna hata
fiskimennimir selt til Reykja-
víkur saltaða fyrir 3.25 kr. kg.
— Aflahæstir á þessum veiðum _
eru Kristinn Gíslason, Þórsstöo-
urn o'g Ágúst Ásþjörnsson. Næst-
hæstir eru bræðurnir Jósep og j
Hallvarður Einvarðssynir.
AUKIN FISKI&ÆLD
Að undanförnu hefur það
farið mjög í vöxt, að mcnn
færu dag og dag á smábát hér
út á grunnið til að fá sér í
soðið. Þessar veiðar eru að
miklu leyti til komnar af því
að í sumar hefur veiðst á
Krossvík, rétt við Akranes,
bæði smálúða, 40—50 sm að
lengd og rauðspretta, en þess-
ara fisktegunda hefur ekki
orðið vart hér á víkinni í tugi
ára. — O.
Þrír umsækjendur
um tvö presiaköil
TVÖ prestaköll hafa verið aug-
lýst til umsóknar, Bolungarvík-
urprestakall í N.-ísafjarðarsýslu
og Norðfjarðarprestakall í S.-
Múlasýslu. — Um Bolungarvíkur
prestakall sækir sr. Þorbergur
Kristjánsson, settur prestur að
Skútustöðum, en sr. Ingi Jóns-
son, áður aðstoðarprestur að
Hvanneyri og sr. Marinó Krist-
insson, sóknarprestur að Val-
þjófsstað, sækja um Norðfjarð-
arprestakall.
Myndin sýnir, er dráttaibáturinn „Nocrd IIo!Iand“ dregur ker-
ið inn á Kcflavíkurhöfn, (Ljósm.: Jón Tómasson).
Kefiavíkurbryggja framlengd
í einu álaki um 67 mefra
Kerið frá Normandí komið á sinn slað.
Öruggi bátalagi fsitgið
ÞÁTTTAKENÐUR í brezka
Grænlandsleiðangrinum eru heil-
ir á húfi að því er bezt er vitað
og hafa ekki lent í neinum lífs-
háska. Frásögn í fréttaskeyti til
Mbl. í gaer, stafar af misskitn-
ingi og ranghermi eins af loft-
skeytamonnunum í dönsku loft-
skeytastöðinni Danneborg.
Hvorki brezka sendiráðið í
Reykjavík né stofnun sú í Lon-
don, sem stendur að baki laið-
angrinum hafa fengið neinar
fréttir af þvi, að leiðangursmenn
| séu í nauðum staddir. Þeir
hafa sent skeyti frá sér, þar sem
þeir segja frá óveðri sem yfir
þá hafi dunið, en annars er allt
í bezta lagi.
I f síðustu ferð Sunderlandbát-
anna bilaði hreyfill á einum
þeirra, en hann komst til Reykja
víkur á þremur hreyflum og hér
var skipt um hreyfil. Þá er það
víst að norska selveiðiskipið
Totten, sem flutti birgðir til
brezka leiðangursins hefur skilað
birgðunum af sér. Hinsvegar —•
virðist sem skipverjar hafi átt
í erfiðleíkum á siglingunni til
baka og hafi þá lent í ís.
498 fn. sífdar til
Akraness í gær
AKRANESI, þriðjudag: — 8 rek-
netabátar komu hingað í dag með
498 tunnur síldar. Fylkir var
hæstur með 128 tn.
Síldlri var afar misjöfn að gæð-
um, en hún fékkst um 30 mílur
frá Akranesi, grunnt á suðurslóð,
sem kallað er. — Oddur.
Sæmd Fálkaorðunni
HINN 30. ágúst 1952 sæmdi for-
seti íslands þessa menn Fálka-
orðunni: Vilhjálm Þór, forstjóra,
stjörnu stórriddara, Jón Árnason,
bankastjóra, stjörnu stórriddara,
Hallgrím Beneditksson, bæjar-
stjórnarforseta, stórriddarakrossi
Gústav A. Jónasson, skrifstofu-
stjóra, stórriddarakrossi, Gunn-
laug E. Briem, skrifstofustjóra,
stórriddarakrossi, Stefán Guð-
mundsson, óperusöngvara, stór-
riddarakrossi, Ara Arnalds, fyrrv
bæjarfógeta, stórriddarakrossi,
Björn Rögnvaldsson, byggmga-
meistara, riddarakrossi, Dr. phil.
Einar Ólaf Sveinsson, prófessor,
riddarakrossi, Freystein Gunnars
son, skólastjóra, riddarakrossi,
Frú Halldóru Ólafsdóttur, ridd-
arakrossi, Dr. med. Jóhann Sæ-
mundsson, próíessor, ríddara-
krossi, Jón Hannesson, bónda,
Deildartungu, riddarakrossi, Dr.
phil. Þorkel Jóhannesson, pró-
fessor, ridaarakr ossi.
ión Pálsson efstur
í hraðskákkeppni
URSLIT urðu sem hér segir í
hraðskákkeppni Tafl- og bridge-
klúbbs Reykjavíkur:
Jón Pálsson 18 vinninga af 19
mögulegum, Guðmundur Ágústs-
son 17V2 v., Ingi R. Jóhannsson
15, Jón Einarsson 14, og Ingvar
Asmundsson og Kristinn Júlíus-
son með 13 V2 vinning hvor.
ingvar iónasson og
Leech leika
á Akureyri
AKUREYRI, 2. sept. — Hinn 9.
þ. m. munu halda hljómleika á
Akureyri á vegum Tónlistarfé-
lags Akureyrar þau Ingvar
Jónasson (Tómassonar tónskálds)
fiðluleikari og miss Hilary Leech
píanóleikari.
Ingvar hefur stundað nám s. I.
tvö ár við Royal College - of
Musie í London og notið
kennslu fiðluleikarans Henry
Holst og lokið 4. o‘g 5. gráðú próíi
við skólann með ágætum vitnis-
burði og í samkeppni í skólanum
hlaut hann hæstu verðlaún í
fiðluleik.
Miss IJiIary Leech er og nem-
andi sama skóla og talin mjög
efnileg listakona. Námsgrein
hcnnar auk píanóleiks er celló-
leikur og hefur hún lokið 5 gráðu
prófi í báðum námsgreinum og
hljóðfræði. Munu tónlistarunn-
endur hér fagna komu þessara
ungu og efnilegu listamanna.
— ÍI. Vald.
MERKUR atburður gerðist í
gær í hafnarmálum Keflavíkur,
er hið mikla steinker, sem keypt
var í hinni fyrrverandi innrásar-
höfn í Normanndí, var sökkt fyr-
ir framan bryggjuenda Kefla-
víkurhafnar.
Þetta steinker cr 62 m langt,
17 m breitt og 18 metrar á hæð.
Þegar það er korniö á sinn
stað, eru hafnarskilyrði og at-
hafnasvið Keflavíkurhafnar öll
önnur en áður, þar sem þessi
framlenging bryggjunnar skapar
öruggt lagi fyrir vélbátaflotann
og gerir afgreiðslu stærri skipa
stórum auðveldari og öruggari
en áður.
Mikill áhugi ríkti því meðal
Keflvíkinga í gær og spenningur
úm það, hvort tækist fullkom-
lega að koma þes^u mikla stein-
keri á sinn rétta stað, en það
gerðist um hádegi í gær.
KOMIÐ Á SINN STAÐ
Ker þetta mun vera í næst-
stærsta stærðarflokki kerja
þeirra, er dregin voru yfir Erm-
arsund til þess að gera bráða-
birgðahöfn á Normandíströnd
sumarið 1945.
Dráttarskjpið „Noord Holland“
kom með kerið um síðustu helgi.
Ekki var hægt að sökkva því við
bryggjuendann á mánudag sakir
stórviðris.
Er veðrinu slotaði var strax
farið að undirbúa að koma því
fyrir á sínum stað. Kerið risti
20 fet.
FLUTNINGURINN HíNGAÐ
SANDBOTN UNDIRBÚINN
I Á undanförnum vikum hafði
feiknum af sandi verið sökkt þar
sem kerið nú stendur. Voru sett-
ir þar niður 1460 bilfarmar, tn
. hver farmur var 3—4 tonn.
I Dráttarskipíð lagði af stað með
kerið frá Normandí 6. ágúst. Vnr
komið við í Suður-Englandi. Þar
var dælt sjó úr því. Ferðin yfir
hafið gekk slysalaust. En fimm
sinnum lenti skipið í stórviðri og
átti skipstjóri dráttarskipsins í
svo miklum erfiðleikum síðustu
daga sjóferðarinnar, að þegar
hann kom til Keflavíkur, hafði
honum ekki komið dúr á auga
í nálega fjóra sólarhringa.
KERINU HNITMIÐAÐ
NIÐUR
Kerinu var sökkt með þeim
hætti, að tveir vélbátar ýttu því
til, sinn við hvora hlið kersins,
unz það var komið nákvæmlega
á sinn stað. Að því búnu voru
opnaðar botnlokur, svo kerið
fylltist af sjó og sökk niður á
sandbotninn.
Það' mun ekki eiga að fylla
kerið af grjóti heldur láta sjó-
inn nægja, en steypa yfir það
bryggj upallinn. Alls lengist
bryggjan um 67 metra.
Útsölum lokað 5 sep(.
SAMKVÆMT lögum skal sumar-
útsölum með vefnaðarvörur
ljúka föstudaginn 5. september.
Drengjameislara-
mólið hefsi
á fimmtudag
ÍSLANDSMEISTARAMÓT
drengja í frjálsum íþróttum, 18
ára og yngri, fer fram í Hafnar-
firði (á íþróttasvæðinu á Hörðu-
völlurn) n.k. fimmtudag og hefst
kl. 7,30. — Þá verður keppt í
þessum greinum: 80 m. hlaupi
(12 keppendur), hástökki (8 kepp
endur), kringlukasti (17 kepp-
endur) og stangarstökki (8 kepp-
endur). — Undankeppni i kringlu
kasti hefst kl. 7.45. Keppendur
frá 10 íþróttafélögum víðsvegar
að af landinu, taka þátt i mótinu,
en íþróttabandalag Hafnarfjarðar
sér urn það.
ASaiiundur Presla- ;
félags Suðurlauds 1
AÐALFUNDUR Prestafélags Suð
urlands var haldinn í Grindavík
um síðustu helgi. Aðalmál fund-
arins var „kristindómuriníi »og
' nútímamaðurinn". — Framsögu
höfðu þeir sr. Sigurjón Þ. Árna-
son og sr. Sveinbjörn Svein-
björnsson í Hruna. Urðu umræð-
, ur fjö'rugar og stóðu lengi dags.
I Eiga Grindvíkingar miklar
þakkir fyrir viðtökurnar. Skóla-
stjóri og skólanefnd léðu barna-
skólahúsið til fundahaldsins, þeir
er önnuðust þar risnuna er var
með sérstökum myndarbrag og
eins hinar mörgu fjölskyldur, er
vegna gistihúsaskorts hýstu prest
ana af svo ríkri alúð og velvild.
Fundinum lauk á mánudags-
kvöld með altarisgöngu í Grinda
víkurkirkju. — Stjórn félagsins
var endurkjörin, en hana skipa:
Sr. Hálfdán Helgason, prófastur
á Mosfelli, formaður, sr. Sigurður
Pálsson, Hraungerði og sr. Garð-
ar Svavarsson.
Gæsir faSia upp kartöflur
GP.ÁGÆSIR eru orðnar plága
í Hornafirðinum. Stendur svo á
því, að fyrir tveimur íil þremur
árum kcmust þær upp á þann
ósið að ráðast að kartöflulöndum
Hornfirðinga, oft að næturlagi, I
rífa þar kartöflugrösin upp með1
öliu og háfha í sig. Þannig geta
i þær valdið nokkru tjóni.
I Gíesirnar eru nú komnar fyrir
um viku í stórum hópum, ofan
af hciðum. Gengur slymmdar-
starf þeirra orðið það iangt, að
margir tclja vissast að fara að
taka upp kartöflur sínar. Mikið
af kartöflulaufi féli í rokinu um
daginn, en stönglarnir standa, svo
að enn má búast við nokkrum
vexti. •—Fréttaritari.
<kt-
'wSk