Morgunblaðið - 10.09.1952, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.09.1952, Qupperneq 16
YeðurúSii! í dag: Sunnankaldi. — Rjgning. 205. tbl. — Miðvikudagur 10. september 1952 Seimsóte! á ZZi: :ýnin£i:::n. — vjá ! Eldur í geymslu' og verk- stæðisbragga á flugvellinum ^iokkyr! ijón hlaui! aí — Eldsi'pptök ókunn KLUKKAN liðlega sex í gærdag kom upp eldur í geymslu- og verkstæðisbragga er Flugskólinn Þytur á rétt við skýli nr. 2 á Reykjavíkurflugvelli. —- Slökkviliðinu á Reykjavíkurflugvelli tókst á skömmum tíma að ráða niðurlögum eldsins, en nokkurt tjón varð samt á verðmætum, sem í bragganum voru til varðveizlu. Ókunnugt er um eldsupptök. SKEMMDIR AF VATM OG REYK Meðal verðmæta sem í skálan- um voru voru hlutar úr Piber Cup flugvél sem skólinn hefur nýlega fengið frá Englandi. Skemmdust ýmsir hlutir úr henni vegna hnjasks við björgun. í skálanum var einnig allmikið af ýmsum varahlutum í einkaflug- vélar. Bragginn sjólfur skemmd- ist ekki mikið af eldi en þil varð að rífa við slökkvistarfið og skemmdir surðu nokkrar af vatni og reyk. ÍKVEIKJA BARNA HUGSANLEG Eldurinn kom upp á tveim stöð urn í bragganum allfjarri hvor öðrum. Ókunnugt er með öllu um eidsupptökin. Engin hafði svo " vitað væri verið í bragganum frá því um miðjan dag. — Ekki er með öllu talið útiiokað að börn eða unglingar, sem tíðum ieggja leið sína þarna súður eftir, kunni að hafa kveikt í. — Bragginn og verðmæti sem i honum voru voru lágt vátryggð. ___ llíiför GuÖjóns Þórð- arsonar i qær ÚTFÖR Guðjóns Þórðarsonar, skó smíðamcistara, formanns Lúðra- sveitar Reykjavíkur, fór fram í gærdag. Hófst hún með húskveðju að heimili hins látna. Er Kistan var borin þar út, lék Lúðrasveit Reykjavíkur lofsöng eftir Beet- hoven, undir stjórn Poul Pampi- chlers, en' félagar sveitarinnar gengu síðan fyrir líkfylgdinni til kirkju. Á Austurvelli lék Lúðrasveitin Svanur sorgarmars eftir stjórn- andann, Karl Ó. Runólfsson, er 1 líkfylgdin fór þar framhjá og kist an var borin í kirkju. | í kirkjugarði lék Lúðrasveit Reykjavíkur tvö lög og st.jornaði dr. Páll ísólfsson því síðaia. Séra Sigurbjörn Einarsson .jarðsong, en séra Bjarni Jór.sson, vígslubiskup flutti húskveðju. — Athöfnin var mjög virðuleg. . fiplkurafurðum Verðhækkanir á mjólkurafurð- um hafa orðið sem hér segir: Nýmjólk: I lausu máli nú 3.25 áður 2.90 Heilflöskur nú 3.40 áður 3.05 Hálfflöskur nú 1.75 áður L60 Pelaflöskur nú 0.95 áður 0.90 Rjómi: 1 lausu máli nú 24.15 áður 21.85 Heilflöskur nú 24.30 áður 22.00 Hálfflöslcur nú 12.25 áður 11.10 Pelaflöskur nú 6.20 áður 5.60 Skyr: í heildeölu nú 5.17 áður 4.67 1 smásölu nú 5.70 áður 5.15 Bæiur úr Hlufalrygg- ingasjóði, skýrslum skilað fyrir fösfu- dagskvöld LANGT er komið að reikna út bætur úr Klutatryggingasjóðnum en allmargir útgerðarmenn hafa ekki enn skilað tilskildum gögn- um um útgerð sína og afla skip- anna í sumar, svo að hægt sé að reikna út, hverju bætur þær nema, sem þeir eiga að fá. Til þess að ekki verði óeðlilegur dráttur á bótagreiðslunum hefir stjórn Hlutatryggingasjóðsins sett lokafrest 'til að skila skýrslum þessum til næsta föstudagskvölds. Þe.ir útgerðarmenn, sem ekki hafa skilað þessum gögnum fyr- ir tilsettan tíma, geta ekki kom- ið til greina við úthlutun bót- anna. Búið er nú að ákveða, hvað ógreitt var af greiðslum Hluta- tryggingasjóðsins til Vestfirðinga fyx’ír vertíð 1951, en ógreiddar voru 40% af bótunum fyrir þorsk veiðar á þeirri vertíð. Æskan heimsækir Iðnsýninguna Sóiskin og sumar- hiíða á Seyðisfirði SEYÐISFIRÐI, 9. sept. — Fá- dæma góð tíð hefir verið hér um nær hálfsmánaðar tíma, eftir heldur hretviðrasamt sumar. Þcir. sem búskap stuncia, hafa hirt inn öll sín hey og nýting þeirra verð- ur góð. Hér er blíðalogn og sólskin og hlýtt í veðri. Hitinn um miðjan daginn í dag var t. d. 22 stig í forsælu. —B. 503 iunnur síldar lil Hornafjarðar HÖFN í Honrafirði 9. sept. — I gær bárust 500 tunnur síldar til Hornafjarðar. Helgi fékk 200 tunnur, Hvanney 170 og Pálmar 130. Bátarnir komust seint út í gærkvöldi og fengu enga veiði í dag. Tíundi hluti síldarinnar gengur úr til bræðslu. — G. Æskan heimsækir Iðnsýningur.a og virðir fyrir sér það, sem þar er að sjá. Horfnar kynslóðir hafa horft á fallvötn landsins fvrr á tímum án þess að gcra scr grein fyrir orkunni, sem þau hafa að geyma. En.siðustu hálfa öld hefur féleysi og úrræðaleysi hamlað því, að vatnsorkan yrði nýtt. Um það leyti, sem landsmenn gerðu scr grein fyrir, hvernig fossaflið yrði hagnýtt, kom til orða, að þessi fagri foss, er hinir ungu Reykvíkingar virða fyrir sér á myndinni, kæmist í hendur erlendi v. Komið var í veg fyrir það á sögulegan hátt eins og menn muna. Vonandi faer Gullfoss að vera óhreyfður í framtíðinni mönnum til augnayndis. En mikilsvert vcrður það fyrir hina upprennandi kynslóð í lar.dinu, að þjóðin geti bcizlað þá orku, sem í fallvötnum landsins felst. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M. tók myndirnar. „Skýfaxi“ vígir nýjun flugvöll ú Grænlnndi KATALÍNUFLUGBÁTURINN ,,Skýfuxi1'‘ frá Flugfélagi íslancls vígði í fyrradag nýjan flugvöll við'^'^.'js'taravík á austurströnd Grænlands. Var farið frá Reykjavík kl. 9,30 á mánudagsmorgun, og eftir fjögurra stunda flug var lent á Meistaravíkurflugvellinum. Flogið var yfir völlinn um stund áður en lent var til að kanna lendingarskilyrði, sem reyndust góð, enda tókst lendingin prýðilega. FLUGVALLARGERÐIN TÓK MÁNUD • Framkvæmdir á hinu nýja flugvallarstæði hófust fyrir rétt- um mánuði síðan, og hefur þeim miðað óvenjulega vel áfram. Stór virkar vélar hafa verið notaðar við flugvallargerðina, og unnið hefur verið 22 tíma á sólarhring í tvískiptum vöktum. 1800 VI FLUGBRAUT Flugbraut’in sjálf er nú full- gerð, en hún er 1800 metrar á lengd og um 50 metrar á breidd. Verið er að ganga frá öryggis- brautum meðfram sjálfri flug- brautinni, og verða þær 50 m breiðar hvor um sig. í flugvöll- inn hefur verið borin möl og sand ur og ráðgert er að halda honum rökum, þar til fer að frjósa, svo brautin verði enn þéttari. Er í ráði, að F.í. sendi í fram- tíðinni Douglas Dakota flugvél- ar til Meistaravíkur eftir því sem aðstæður leyfa. „Skýfaxi“ hafði viðkomu á Ellaey á heimleið og tók þar 17 farþega, sem fluttir voru til Reykjavíkur. Flugstjóri í þegsari ferð var Jóhannes R. Snorrason, I yfirflugmaður F. L. Örn Johnson framkvæmdastjóri. Flugfélags ís- lands var ennfremur með í för- inni til Maistaravíkur. Æ fleiri sjá STÖÐUGUR straumur fólks er á IðnsýrJnguna. — í gær komu yfir 1000 sýningargest- ir og hafa þá 6200 manns séð hana. Að líkindum eru sýn- ingargestirnir enn aðallega úr Reykjavík og nágrenni, en á næstunni er von til að hép- ferðir komizt á frá öðrum héruðum. Forsetafundiir j Evrópuráðsins FORSETAFUNDUR í Evrópurá# inu hefur verið ákveðinn 12. þ.m., og fór Jóhann Þ. Jósefsson, sem er einn af forsstum þingsins, í nótt flugleiðis tii útlanda at þessu tilefni. Sjálft Evrópuþingið á svo að koma saman 15. þ.m. s topr®sjóifiaiur snissti fótinn og lézt af blóðmissi SEYÐISFIRÐI, 9. sept. — Tog- arinn John-Kiatte frá Bremer- haven símaði úr hafi í morg- un, að hann hefði um þorð stórslasaðan mann, sem skip- verjar óttuðust að blóðrynni. Bað hann um læknishjálp taf- arlaust. Héraðslæknirinn fór þegar á móti togaranum á vélbáti, en maðurinn v?.r andaður, þeg ar lækniiinn kom um borð. Togarinn var staddur á Bcru fjarðardjúpi, cr slysið vildi til. Maðurinn lenti í vírinn og tók fótinn af uppí á læri. Tókst skipverjum ekki að stöðva blóðrásina, cða draga það úr henni að hann lifði það af, enda var löng kcyrsla til lands. Vélbáturinn, sem fór með héraðslæknirinn, mætti togar- anum langt fyrir utan fjörð. Togarinn er nú kominn hingað inn til Seyðisfjarðar. —B. Vöruskipfajöfnuður- inn sfóð í járnum í ágúsf INNr LUTNINGUR og útflutning ur stóðst nær því á í ágústmán- uði. Þá var fiutt inn fyrir 60,3 milljónir króna en út fyrir 60,1 millj., þannig .að vöruskiotajöfn- uðurinn varð óhagstæður um 0,2 millj. Það sem af er þessu ári er vöru skiptajöfnuðurinn orðinn óhag- stæður um 252 milljónir. Innflutn ingurinn hefir' numið 600,9 millj. króna, en útflutningurinn 348,9 millj. — Á sama tíma í fyrra var jöfnuðurinn óhagstæður um 178,5 millj. Útflutr.ingurinn var þá 383,1 milljj, en innflutningurinn 561,6 millj. 1' ‘

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.