Morgunblaðið - 10.10.1952, Page 8

Morgunblaðið - 10.10.1952, Page 8
MORGUNDLAÐIÐ Fös&idagur 10. okt. 1952 (8 4 t i i Útg.; H.f. Arvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 16.00 á mánuði, innanlands. lausasölu 1 krónu eintakið. bdvamir SÚ STAÐREYND er viðurkennd að ísienzka þjóðin er sVo fámenn að hana brestur möguleika til þess að annast sjálf varnir lands síns. Af þessari staðreynd hefur yfirgnæfandi meirihluti hennar dregið þá ályktun að henni bæri að sjá sér fyrir landvörnum með öðrum hætti. Sú ákvörðun íslendinga að ganga 'í varnarsamtök með öðr- um frjálsum þjóðum er þannig byggð á raunsæju mati á þörfum hennar fyrir vernd og öryggi. Komá hins erlenda varnarliðs til landsins byggist á viðleitni íslendinga til þess að skapa sér þá vernd, sem þeir sjálfir hafa talið ómögulegt að tryggja sér. Að sjálfsögðu hafa varnir ís- lands, sem liggur á veðramótum hins gamla og nýja heims einnig stórfellda þýðingu fyrir aðrar þjóðir Vestur-Evrópu og Norður- Ameríku. Þannig hefur verið komizt að orði að ísland óvarið væri eins og skammbyssa, sem beint væri að hjarta Bretlands. Þessi orð eiga rík rök í reynslu siðustu styrjaldar. Ef Bretar hefðu ekki haft fótfestu hér á landi þegar kabátahernaður Þjcðverja svarf sem mest að þeim eru miklar líkur til þess að Bretlandi hefði verið komið á kné og nazistum þar með tryggður sigur í styrjöldinni. Tilgangurinn með hervörn- um íslands nú er þannig í senn sá, að treysta öryggi og sjálístæði íslenzku þjóðarirn- ar og gera landið að sterkum hlekk í varnarkerfi hinna vestrænu lýðræðisþjcða, sem standa vörð um frelsi og mannréttindi í heiminam. II nemendur fs nán míilprp \orra,i!0 féiagsir^ Á ÞESSUM vetri munu 22 íslenzkir námsmenn íá styrkí fyrir milli- göngu Norræna félagsins til r.áms við lýðháskóla og húsmæðraskóla á Norðurlöndum Nægja styrkirnir til að greiða ýmist allan náms- kostnaðinn eða meginhluta hans. kaupstaði í nágreniii þeirra stöðva, er varnarliðið dvelur í. Sú stefna er því eðlileg og nauð- synleg að reynt verði eftir megni að kcma í veg fyrir umgengni almennra borgara og varnarliðs- ins. Er auðsætt að tilkynning sú, sem utanríkísráðuneytið gaf út um þessi mál í fyrradag byggir fyrst og fremst á henni. Um það þarf ekki að fara í neinar grafgötur að kommúnist- ar kjósa ekkert fremur en að sem víðtækust vandræði skapist í sambúð íslendinga við varnar- liðið. Þeir nota þess vegna hvert tækifæri til þess að egna til ill- inda og uppnáms um þessi mál. Fimmtaherdeildin hér á landi er fyrst og fremst andvíg allri við- leitni til þess að tryggja öryggi og sjálfstæði þjóðarinnar. Af því sprettur fjandskapur hennar við komu hins erlenda varnarliðs hingað. Yfirgnæfandi meirihluti mann kynsins viðurkennir, að von þess um frið og öryggi byggist á sam- vinnu fre^sisunnandi manna. — Engin þjóð, sem ann frelsi sínu, getur þess vegna snúið sér til veggjar og neitað öllu samstarfi um öryggismál. Það er aðeins eiít öryggi til: Hið sameiginlega öryggi, sem byggt er upp með markvísUm átökum ábyrgra manna og þjóða. Einnig íslenzka þjóðin viður- kennir þetta. Þess vegna hafa hvorki hún né ráðamenn hennar hikað við að taka á sig þau ó- þægindi, sem t. d. leiða af komu erlends herliðs til landsins. Við hefðum að sjálfsögðu helzt vilj- að komast hjá þeirri ráðstöfun. En þegar okkur varð ljóst, að sjálístæði og öryggi lands okkar og þjóðar krafðist hennar hik- uðum við ekki við að fram- kvæma hana. Vegna fæðar þessarar þjóð- ar hlýtur hún að gæta varúð- ar í umgengni sinni við hið erlenda varnarlið. Það verður íslenzkur almenningur og yf- irstjórn hins erlenda varnar- liðs að gera sér ijóst. Æski- legast er að samskipti þess- ara aðilja séu sem minnst. Islenzka þjóðin verður í sambúð sinni við hið erlenda 1 varnarlið, að koma fram af þroska og ábyrgðartilfinningu. Við höfum fengið erlenda menn hingað til þess að ann- ast þær varnir okkar eigin lands, sem við ekki getum sjálfir annazt. Vegna sérstöðu okkar sem örfámehnrar smá- þjóðar fer bezt á því að sam- skipti okkar og þeirra séu sem minnst. En þeir eru hér sam- kvæmt okkar eigin vilja og þess vegna eiga þeir velvild okkar og samúð. Við skulum Iíta raunsætt á þetta vandamál, en ekki láta , flugumönnum erlendrar kúg- unarstefnu takast að æra okk- ur frá rökréttri hugsun og ábyrgri fram.komu. Deila Svía og Rássa SVÍAR eru sú þjóð Evrópu, sem ásamt Svisslendingum hafa lagt mesta áherzlu á sð fylgja hlut- leysisstefnu í utanríkismálum. — Engu að síður hafa fáar vest- rænar þjóðir orðið jcfn heiftar- lega fyrir barði rússneskra njósna en einmitt þeir. Undan- farin ár hefur hver kömmúnist- inn á fætur öðrum verið afhjúp- aður íyrir njósnir um landvarnir Svíþjóðar í þágu Moskvustjórn- arinnar. Það er ekki nóg með að sænskir kommúnistar hafi rekið þessa iðju, heldur hafa starfs- menn rússneska sendiráðsins í Stokkhólmi gengið þar rcsklega íram. Þegar við þetta bættust hermd- arverk Rússa gagnvart sænskum eftirlitsflugvélum yfir Eystra- salti varð almenningur í Svíþjóð svo beiskur í garð Rússa og kommúnista að segja má að sam- búð þessara þjóða hafi um skeið verið mjög meini blandin. IVIIKILSVERD HLUNNINDI I Til að gefa nokkra hugmynd um það, hvers virði þessi hlunn- indi eru, má geta þess, að miðað við þann gjaldeyri, sem íslenzkir | námsmenn á Norðurlöndum fá ! nú, myndi þessi hópur þurfa um 300.000 kr. í yfirfærsiur. Eflaust er þetta einnig fyrir flesta eina tækifæ.ið til námsdvalar erlend- is. Langflestir fara til Svíþjóðar eða 15, 2 til Noregs, 1 til Finn-' lands og 4 til Danmerkur. ■ Þetta er í fyrsta sinn, sem náms styrkir eru veittir til matreiðslu- námskeiða, og á næsta ári munu einnig standa til boða styrkir til ha^davinnunámskeiða. í vetur munu tveir sænskirj nemendur stunda nám við ís-' lenzkan gagnfræðaskóla, og hafa þeir hlotið styrk frá sænska rík- inu til þess, en óvíst er um náms- styrki hér. ÞAU, SEM UTAN FARA Þeir sem fara á lýðháskóla í Svíþjóð, eru þessir: Anna Sigurðardóttir, Stykkis- hólmi, Sigtuna-lýðháskóla, Bára Þórarinsdóttir, Garði, til Tarna, Guðrún H. Thorsteinsen, Revkja- vík, til Gripsholm, Gunnar Skúla son, Reykjavík, til Katrineberg, Helga Vilhjálmsdóttir, Reykja- vík, til Brunnsvik, Hjördís Þor- leifsdóttir, Reykjavík, til Malung, Þórólfur Friðgeirsson, Stöðvar- firði, til Kungálv. Á húsmæðraskóla í Sviþjóð: Anna Borg, Reykjavík, til Jára, Anna Óskarsdóttir, Reykja- vík, til Esloöv, Ingveldur Valdi- marsdóttir, Akureyri, til Tomel- illa, Sesselja G. Kristinsdóttir, Reykjavík, til Gamleby, Karó’ína Jc isdóttir, Vestmannaeyjum, úl Bollnás, Sigurláug Þórisdóttir, Reykjavík, til Gamleby. Til Noregs fara: Björn Pálsson, Skeggjastöðum, Felíahr., til Möre folkehögskole, Ingólfur Þórarinsson, Reykholti, til Toten Fyikeskole. Til Finnlands fer: Gísli Svanbergsson, ísafirði, til Eorgá Folkhögskola. Til Restrup-húsmæðraskóla í Danmörku fóru: Erna Aradóttir, Pareksfirði, Elin Sigurðardóttir, Reykjavík, Olga Haildórsdóttir, Reykjavík, Sólveig Axelsdóttir, Reykjavík. . ÓSLÓ, 6. okt. — Skrifstofa hinn- i ar Gagnkvæmu öryggisstofnunar | í Noregi tilkynnti í dag, að í ssptembermánuði einum hafi Noregur fengið vörur á vegum Marshailhjálparinnar fyrir sam- tals 7.889.294 norskra króna. — Meðal þess varnings, sem þeir fengu, var hráolía o. fl. fyrir 6.649.082 norskra króna og korn fyrir 1.152.179 norskra króna. líkkssíi!Rni WASHINGTON. — Nýlega gerð- ir.t sá einstæði atburður, aÚ lík- kistu var varpað í sjóinn úr há- loftsvélflugu í því skyni að koma í veg fyrir, að flugan hrapaði í sjóinn. Þannig var mál með vexti, að þrír af fjórum hinna geysistóru hreyfla vélflugunnar biluðu skömmu fyrir lendingu, svo að nauðsynlegt var að létta á henni. Velvakandi skrifar: UR DAGLEGA LlFINU Fyrir skömmu hefur hershöfð- ingi varnarliðsins, að undan- j gengnum viðræðum við íslenzk j stjórnarvöld takmarkað aflveru- j iega leyfi óbreyttra hermanna ! til fjarvista frá stöðvum þeirra. Er ástæða til þess að fagna þeirri ráðstofun. í íitium bæ eins og Reykjavík er dvöl erlendra her- manna mjög óheppileg, ekki sízt að kvöld- og næturlagi. Sama gildir að sjálfsögðu um aðia Nú hafa komið fram kröfur um það frá tveimur stærstu stjérnarandstöðuflokkum Sví- þjoðar að samtök Sameinuðu þjóðanna fjalli um ofbeídis- aðgerðir Rússa gagnvart Sví- um. Hvað úr því verður er e- nþá óvíst. Það eitt er víst, að hlutleysissteína Svía hefur litt megnað að bæta sambúð j þeirra víð hinn gráðuga ná- | granna þeirra í ausfri. i Békaflokkur (il e§ kynna æskunni þjóðskáidin, á «eg- sim Helgafellsút- gáfunnar BÓKAÚTGÁFA Helgafells ætl- ar að stofna til sérstaks bóka- flokks fyrir unglinga, þar sem öndvegisskáld þjóðarinnar eru kynnt hinu unga fólki með sí- gildum ritverkum. Bækurnar sem verða í góðu bandi, verða seldar við lágu verði. í fyrsta flokki þessara bóka verða þessar bækur fjórar: Pilt- ur og stúlka eftir Jón Thorodd- sen, er. Steingrímur Þorsteinsson hefur séð um útgáfuna og í for- mála kynnir hann skáldið. Þá er Upp við fossa eftir Þorgils Gjall- anda og hefur Arnór Sigurjóns- son annazt útgáfuna og ritar hann formálsorð. Þá er alþýðu- útgáfa á Völuspá og hefur próf. Sigurður Nordal annazt þessa út- gáfu, sem verður í alla staði gerð sem aðgengilegust. — Því hefur af mætum mönnum verið haldið fram að öllu betra veganesti út í lífið geti ungt fólk ekki fengið, en einmitt við lestur Völuspár. Fjórða bókin er Halla eftir Jón Trausta í útgáfu Jóns Guðjóns- sonar þjóðskjalavarðar. í sambandi við þessa útgáfu sagði Ragnar Jónsson forstjóri Helgafellsútgáfunnar, að mikill og vaxandi áhugi væri meðal al- mennings fyrir nánari kynnum af skáldum þjóðarinnar og hvers konar listum. Stormur í vínglasi UM miðjan september sl. var mikil bindindisráðstefna haldin í París. Sóttu hana um 300 fulltrúar frá 30 löndum. Fulltrúar þessir skiptust í ívo hópa: Hina ..skraufþurru“ og hina „hálfröku”, ef svo mætti að orði komast. Hinir fyrrnefndu voru aðallega Bretar og Norðurlanda- búar, en hinir siðarnefndu Frakkar. Fyrri hópurinn taldi algert bindindi það eina sáluhjálplega. Hinn síðari taldi glas af léttu víni með máltíðum óskaðlegt og raunar sanna heilsubót. r Um þessi sjónarmið urðu svo miklar deilur. Að ráðstefnunni lokinni var fulltrúunum boðið í veizlu að Hotel de Ville. Var þar kampa- vín á borðum. Vakti það almennt hneyksli meðal hinna „skrauf- þurru.“ En hinir „hálfröku“ voru hinir ánægðustu og kneyfuðu kampavínið af góðri lyst og mik- illi háttprýði!! Endurskoðun áfengis- laganna IÞESSU sambandi hvarflar hugurinn að endurskoðun ís- lenzkrar áfengislöggjafar, sem nú er á döfinni. Nefnd skipuð mætum mönnum hefur skilað til- lögum til þings og stjórnar um æskilegar breytingar. Fljótt á litið virðist margt í þeirn skyn- samlegt, enda þótt veitingamenn séu gramir yfir þeirri uppá- stungu að þeír megi ekki taka þjónustugjald af selau áfengi á veitingasölum. Er það líka hálf- skrýtið fyrirkomulag. En aðal breyting þessara til- lagna felst í því, að lagt var til að einkaréttur Hótel Borgar á al- mennum vínveitingum sé afnum- |inn og svo kölluðum 1. fl. veitinga húsum heimilað að veita vín. Þá er og lagt til að þjóðar- atkvæðagreiðsla fari fram um það, hvort leyíð skuli framleiðsla létts áfengs öls. Gert er ráð fyrir að dregið verði verulega úr veit- ingu vínveitingaleyfa vegna sam- komuhalds einstakra félagasam- taka. KemurHil kasta lög- gjafarvaldsins ESSAR tillögur koma nú íil kasta löggjafarvaldsins. Því miður er reynslan sú, að skyn- samlegar tillögur í áíengismál- um eigi þar fremur erfitt upp- dráttar. En þar sem skýrt mót- aðar tillögur stjórnskipaðrar nefndar liggja nú fyrir, ætti að mega vænta þess, að þingmenn láti skynsemina ráða en ekki áróður ofstækismanna. Sýnd vciði, en....... YMSIR, sem séð hafa erlendar vörusýningar og iðnsýning- ar hafa kvartað undan því, að hin. glæsilega yfirlitessýning ís- lenzks iðnaðar, sem nú stendur yfir, skuli elcki vera einnig að nokkru leyti sölusýning, þannig, að hægt sé að gera þar pantanir á þeim vörum, sem sýndar eru. Þessi umkvörtun á við nokkur rök að styðjast. Hér er um að ræða stórfelldustu auglýsingu, sem innlendur iðnaður hefur fengið. Ekkert væri þvi eðlilegra en að áhrif hennar væru notuð þegar í stað, enda er það vitað að fjöldi kaupsýslumanna og annara einstaklinga vildu gjarn- an nota tækifærið til að kaupa ýmsar þær girnilegu vörur, sem til «ýnis eru á þessari fjölbreyttu sýningu. Er þetta til athugunar fyrír næstu Iðnsýningu. Hinir „skraufþv.iru" og hi.úr „hálfiöku"!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.