Morgunblaðið - 22.10.1952, Page 1
39. árgangur
241. tbl. — Miðvikudagur 22. október 1952.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Finkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
LUNDÚNUM, 21. okt. — Á fundi, sem haldinn var hér í Lundúnum
í dag og stuðningsmenn Bevans stóðu að, sýndi það sig, að Attiees-
armurinn innan þingmannaflokks Verkamannaflokksins hefur hætt
öHu, samneyti við Bevanítana.
nr otta if
yM.
'iisa við ofveiði á rökum reistan
AÐEINS 4 ATTLEESSINNAR <
MiÉTTIR
Þrátt fyrir miklar tilraunir
BeVanítanna til þess að sannfæra
menn um það, að fundur þessi
væri ekki sérstaklega haldinn fyr
ir fylgismenn Bevans, heldur
alla þingmenn Verkamanna-
flokksins, voru einungis 4 af
þeim 33 Verkamannaflokks-
þingmönnum, sem mættir voru,
úr röðum Attleessinna.
SETTIR ÚRSLITAKOSTIR
Álitið er, að Bevanítum verði
settir úrslitakostir n.k. fimmtu-
dag'og þeim gert að leysa flokks-
brot sitt upp, ef þeir á annað
borð vilji starfa áfram í Verka-
mannaflokknum. — Bevanítar
munu ræða þessi mál á fundi
í dag.
MANILLA, 21. okt. — Um 50
flóttamenn frá Kína fara á mán-
uði hverjum frá Hong Kong til
Bandaríkjanna, Suður-Afríku og
Ástralíu.
James Read, formaður flótta-
mannanefndar S. Þ., sagði nýlega,
er hann var hér á ferð, að áætl-
að væri, að um 20,000 útlending-
ar muni flýja frá Kína í náinni
framt ð. Sagði hann ennfremur, |
að flóttamonn þessir væiu eink-
um Hvít-Rússar, Þjóð’<'erjar og ,
Tékkar, sem sendir nefðu verið
til Kína á vegum kommúnista-
flokka viðkomandi ianda.
E'kkert komið fram, cr
feeiMSis’ fii |»ess að Slússar
iiai
/• *
1
f £1
eu
SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM, 21. okt. — Fulltrúi Ástralíu hjá S Þ.,
R. C. Casey, lýsti því yfir í gær á fundi Allsherjarþingsins, að
ekkert hefði komið fram í ræðum fulltrúa RúSsa á þinginu, er
benti til þess, að Kremlstjórnin berðist fyrir því af einlægni, að
vopnahlé næðist í Kóreu.
GETA IIAFT ÁHRIF ®------------------------------
í PANMUNJOM j
Casey sagði einnig í ræðu
sinni, að Rússar gætu, hvenær
sem þeim þóknaðist, bundið enda
á Kóreustyrjöldina og látið
kommúnista semja frið í Pan-
munjom, ekki frið í einhverri | LUNDÚNUM, 21. okt. — Churc-
annarlegri merkingu, heldur frið
í sinni gömlu og eiginlegu merk-
ingu.
Churchill vonlífill
anakcnnun
Cciluns Eisen-
i
* WASHINGTON, 21. okt. —
Fréttaritari Reuters hefur
símað, að ásökun Trumans,
forseta, á hencíur Eisenhower,
forsetaefni republikana, þess
efnis, að hann sé ákafur and-
stæðingur bæði síonista og
kaþólikka hafi lííinn sem eng j
an árangur borið í þá átt að
skaða Eisenhower. Hins veg-
ar er álitið, að þetta vopn
Trumans hafi algerlega snúizt
í höndum hans og verði
demókrötum vafalaust skeinu
hættara í kosningabaráttunni
er< republikönum.
Fréttaritarinn símar einnig,
að enginn treysti sér til að
spá neitt um það, hvernig
kosningarnar fari, en sam-
kvæmt síðustu skoðanakönn-
un Gallupsstofnunarinnar
ætti Eisenhower að fá 54% i
atkvæða liinna svokölluðu ó- .
háðu kjósenda.
Hins vegar sýnir skoðana-
könnunin, að bann hafi tapað (
fylgi upp á síðkastið, og spáir
Gallupsstofnunin því, að
hann hafi nú 50% fylgi kjós-
enda, en 53% í byrjun sept-
embei. Þykir einnig senni-
legt, að Stevenson hafi aukið
fylgi sitt verulega síðustu
vikurnar, og spáir Gallups-
stofnunin honum nú yfir 40%
kjósendafylgis.
— NTB-Reuter.
V
ÁHtSAAiÁL
BREZKA stórblaðið Times birti á mánudaginn ritstjórnargrein um
orðsendingar þær, er farið hafa milli brezku og íslenzku ríkis-
stiórnanna, bæði út af útvíkkun landhelginnar, og eins fjallaði
greinin um bann það er brezkir togaraeigendur hafa lagt á upp-
skipun fisks úr ísl. togurum í Hull og Grimsby. Er grein þessi
nokkurn veginn hlutlaus. Hér á eftir fer útdrátíur úr greininni,
þar sem rætt. er úm þessi mái.
WASHINGTON, 21. okt. — Inn-
anríkisráðuneytið búlgarska hef-
ur lýst því yfir, að réttarhöldin
yfir hinum 40 leiðtogum kaþólsku
kirkjunnar í Búlgaríu séu þátt-
ur i þeirri viðleitni stjórnarinn-
ar „að uppræta leifarnar af
kaþólskri trú í Búlgaríu“. —
Hinir kaþólsku leiðtogar voru,
eins og forystumenn mótmæl-
enda vorið 1949, ákærðir fyrir
„bandaríska heimsveldishyggju
og skemmdarstarfsemi gegn
kommúnistastjórn Búlgaríu“.
'40Í
a
Helmskayfakönnisður
HAFA BARIZT FYRIR FRIÐI
„Tilraunir S. Þ. til þess að
koma á friði í heiminum,“ sagði
Casey ennfremur, „hafa verið
einurðarlegar og ákveðnar, og
hefur samninganefnd S. Þ. ekk-
ert tækifæri látið ónotað til þess
að friður kæmist á. Hins vegar,“
sagði hann ennfremur, „geta S.Þ.
ekki gengið að þeim afarkostum
kommúnista að knýja alla stríðs-
fanga til þess að fara heim aftur,
og ganga þannig í berhögg við
vilja meirihluta þeirra."
Schuæan mælir með
Spáni í Evrépuherinn
PARIS, 21. okt. — Schuman, ut-
anríkisráðherra Frakka, lagði til
í dag, að Spánverjum yrði heim-
ilt að gerast aðilar að Evrópu-
hernum og studdi þar með sam-
hljóða tillögu, sem Juin, mar-
skálkur, bar fram s.l. föstudag.
Sagðist Schuman vonast til að
máj þetta yrði leyst á skynsam-
legan hátt innan skamms.
— Reuter-NTB.
hill, forsætisráðherra Breta, sagði
á fundi neðri málstofunnar í dag,
að hann áliti, að nú væri orðið
um seinan að reyna að koma á
viðræðufundi milli Stalins og
Trumans. — Churchill sagði þetta
í tilefni þess, að Verkamanna-
flokksþingmaður einn færði þetta
í tal í neðri málstofunni í dag og
stakk upp á því, að reynt yrði
að koma slíkum viðræðufundi í
kring. —Reuter-NTB.
NeS 25 pund
LUNDÚNUM, 21. okt. — í dag
tilkynnti fjármálaráðuneyti Breta
að ferðamönnum yrði leyft að
hafa með sér 25 pund, er beir
færu í skemmtiferðir til annarra
landa. — Leyfi þetta gildir til
25. okt. 1953. —Reuter-NTB.
II
MOSKVU, 21. okt. — Rússneska
blaðið, Rauði flotinn, skýrir frá
því í dag, að rússneski heim-
skautakönnuðurinn, Vladmir
Voronin, sé látinn, 62 ára að aldri.
— Voronin, var yfirmaður á ís-
brjóthum Siberyakov, sem brauzt
um íshafið milli Atlantshafsins
og Kyrrahafsins 1932.
—Reuter-NTB.
STOKKHÓIjMI, 21. okt. — Al-
þjóða skákmótinu, sem fram hef-
ur farið hér að undanförnu, lauk
í dag með sigri Kotovs. Hlaut
hann I6V2 vinning. — Fjói’ir
ræstu fengu allir sama vinnings-
fjölda, og varð því að nota sér-
stakt kerfi til að skera úr um
hvern.ig reðin yrði. Niðurstöður
urðu þessar: Petrosian og Tai-
m3”ov 13]/> v., Geller 13, Aver-
bach 12M', Staahlberg 12 V2, Szabo
12W, Gligoric 12V2, Unzicker 12.
Forseti alþjóða skáksambands-
irs afhenti verðlaun við hátíð-
'e"p athöfn. Tilkynnti hann, að
Taimarov, Petrosian og Aver-
ha'-’- hrfðu verið útnefndir stór-
meistarar. — NTB.
iillii SBHt
’BADIR HAFA NOKKUÐ
TIL SÍNS MÁLS
Það er heimsku'egt að láta
tvær vinveittar þjóðir, brezka
neytendur og þá sem á fiskveið-
um lifa, gjalda þess að mistekizt
hefur að grípa flókið mál skyn-
samlegum tökum. Báðir aðilar
hafa nokkuð til síns máls í deilu
þeirri, sem risin er út af hinum
nýju takmörkunum á íslands-
miðum.
SJÓNARMIÐ ÍSLENDINGA
OG BRETA
íslendingar halda því fram, að
þeir hafi verið í fullum rétti sín-
um og farið að alþjóðalögum við
að forða fiskimiðum sínum frá
ofveiði. Bretar hafa aftur á móti
svarað þessari afstöðu íslend-
inga á þá leið að eigi sé hægt að
skoða dóm Haagdómstólsins í
norsk-brezku deilunni sem algilt
fordæmi.
IIÆTTULEGA NÆRRI
FISKISTOFNINUM GENGIÐ
Aðgerðir íslendinga hafa í för
með sér að Bretar verða af um
25.000 tonnum af fiski árlega. —
Times viðurkennir að fjölgun
fiskiskipa, og að þau verði stærri
og betur búin, hljóti að gera
það að verkum að hættulega
nærri fiskistofninum við landið
verði gengið og að ótti íslend-
inga í þessu efni sé á rökum
reistur.
HAGSMUNAMÁL BEGGJA
Hins veg'ar, segir blaðið, eru
einhliða aðgerðir íslendinga í
máli þessu óheppilegar og skyn-
samlegri afstaða að fiskveiðarnar
við landið séu sámeiginleg hags-
munamál beggja þjóða.
1
LOKAORÐ TIMES
Laúsn deilumáls þess, sem ris-
ið er upp milli íslendinga og
Breta, er ekki í því fólgin, segir
Times, að svipta Breta fornum
réttindum. — En viðskiptabann
og verkföll eru ekki heldur heppi
legar gagnráðstafanir, segir blað-
ið að lokum.
reymr
stjómaniiyndHn
HFLSINGFORS, 21. okt. — Til-
kyrmt var í kvöld, að Paasikivi,
Finnlandsforseti, hafi beðið Kekk
onen, fyrrum forsætisráðherra,
að mynda nýia stjórn í Finn-
landi. — Reuter-NTB. '
1 gær
Einkaskeyti til Rlbl. frá Rcuter.
NÆRÓBÍ og LUNDÚNUM, 21. okt. — Iiermenn með alvæpni voru
á ferð á götum Næróbí í dag og tóku fjölmarga borgara höndum.
— Hundruð Afríkunegra voru meðal hinna handteknu, og voi'U
þeir fluttir í vörubifreiðum á burtu. Herlið hefur mjög verið aukið
í Kenýju síðustu daga.
VERÐA BRATT LATNIR
LAUSIR !
Tilgangurinn með þessum hand
tökum er sá, að yfirheyra þetta
fóik, ef ske kynni, að með því
móti væri hægt að hafa hQndur
í hári óeirðarseggja þeirra, er^
létu mest til sín taka á dögunum.
Er álitið, að hinir handteknu
vsrði látnir lausir, jafnskjótt og
þeir hafa .verið yfirheyrðir.
í dag var öllum vegum í suður,
hluta landsins lokað í því skyni,
að óeirðarseggir gætu ekki flúið
yfir landamærin.
ÆTT 5JÁLFUR TIL
KUNÝJU
Oliver Littleton, nýlendumála-
ráðherra Breta, sagði á þingfundi
í dag, að hann ætlaði að fara til
Kenýju í næstu viku til þess að
sjú með eigin augum, hvað þar
er rcunvcrulega að gcrast.
Haguib boðar rifsksðisn
KAIRÓ, 21. okt. — Naguib, for-
sætisráðherra, sagði í dag, að
nokkur hinna egypzku blaða yrðu
'ritskoðuð um óákveðinn tíma af
öryggisástæðum.
Héðan berast einnig þær frétt-
ir, að sendiherra Breta í Egypta-
landi hafi rætt við forsætisráð-
herrann í dag og er álitið, að
þeir hafi einkum rætt um fram-
tíð Súdans. ■— Reuter-NTB.
5000 xnillj. doilara aðstoð
WASHINGTON — Samkvæmt
upplýsingum verzlunardeildar
utanríkisráðuneytis Bandaríkj-
anna nam fjárhagsaðstoð til vin-
veittra þjóða um 5000 millj. doll-
ara á s. 1. ári.