Morgunblaðið - 22.10.1952, Blaðsíða 2
T2"
M ORCUN BLAÐIÐ >
Miðvikudagur 22. okt. 1952'
Öll ríkisstjórnin stendlur
að núv. áfengisreglum
Um þetfa þegir Halldór á Kirkjubóli
J Herra ritstjóri. I
5FYKIR nokkru benti ég á það í
bréfi til yðar að umræðurn-
|ar um áfengisveitingaleyfin
-sneyddu hjá einu aðalatriði máls- j
ins. Halldór frá Kirkjubóli og
líminn þegja sem sé um þá
jmikilsverðu staðreynd, að núver-
andi reglum í þessum efnum er.
•i vigt. ekki aðeins með samþykki
.idómsmálaráðiierra. heldur allrar
píkisstjórnarinnar.
I Frá þessu hefur verið sagt op-
>.nberlega og engir hlutaðeigend-
atr hafa mótmælt því. Verður þay
:|að skoða þögn sem samþykki. |
v En segja verður það, að meiri
jynanndómur fyndist mér í því,;
ief ráðherrar Framsóknarflokks- ■
jns segðu hreinlega frá hinu!
eanna i þessu máli, eða a. m. k.
liétu Tímann leiðrétta hinar
röngu frásagnir Halldórs frá
jfíirkjubóli. Því er þó ekki að
iheilsá.
Þeir skjóta sér undir- þögnina
®g gefa Halldóri þannig íæri á
að halda áfram ódrengilegum
árásum á dómsmálaráðherra.
Rökþrot Halldórs og takmarka
laus ósvífni birtast í því, að hann
•vitnar til skýrslna, sem fylgja
‘áfengislagafrumvarpinu nýja um
)iað, að áfengissala í veitinga-
liúsum hafi verulega aukizt frá
júrinu 1946. Þetta á að vera rot-
Ihögg hans á dómsmálaráðherra,
en um það má segja, að oft verð-
’ur lítið úr því höggi, sem hæst
*r reitt.
‘ Ég hef athugað það, að núver-
®ndi dómsmálaráðherra tók ekki
;við því starfi fyrr en á árinu
>*1947 og núverandi lögreglustjóri
fckki við sínu starfi fyrr en tölu-
ívert síðar.
Það er þannig beinlínis sannað
með rökum Haildórs sjálfs, að
Sjálfstæðishúsið var tekið til
starfa áður en þessir menn tóku
við meðferð þessara mála og sú
breyting, sem Halldór telur, að
orðið hafi við tilkomu Sjálfstæð-
ishússins, var þess vegna fyrir
valdatíma þeirra manna, sem
hann r.ú árum saman hefur
veitzt að af þesíum sökum.
Hitt er svo annað mál, að
Sjálfstæðishúsið hefur fyrr og
síðar einungis verið lótið lúta
sömu reglum og aðrir veitinga-
staðir. Fullyrðing Halldórs um
hið gagnstæða er alger ímyndun,
sprottin af pólitísku ofstæki og
hefndarhug.
En úr því farið er að tala um
skýrslur er fylgja áfengislaga-
frumvarpinu er fróðlegt að at-
huga, að neyzlumagn áfengis
hefur sízt aukizt, heldur þvert á
móti rninnkað, við það að þess-
um umdeildu vínveitingaleyfum
hefur fjöigað.
Ekki skal ég segja að hér sé
beint samband á milli, en ná-
kunnugir menn, þar á meðal lög-
gæzluinenn, hafa sagt mér, að
drykkjuskapur sé sízt minni á
þeim samkomum þar sem vín er
haft ólöglega um hönd en þar
sem það er löglega veitt.
Allir þeir, sem eilthvað vilja
skilja, vita, að þetta mál allt er
mjög vandasamt.
Það verður sérstaklega að víta
það, að ósvífnir ofstækismenn
eins og Halldór Kristjánsson
skuli nota það til árása á þá
cmbaettismenn, sem framfylgja
sameiginlegum ákvörðuntim rík-
isstjórnarinnar í málimi.
Skagfirðingur.
ornmni ver
heimiluð lántakii
veitunum til handa
■fi-iJ
IIITT frumvarpið flytja fimm Sjálfstæðismcnn, þeir JVIagnús Jóns-
son, Ingólfur Jónsson, Sigurður Bjarnason, Pétur Ottesen, Jón
Sigurðsson, og fjallar um heimild fyrir ríkisstjórnina að taka 15
millj. króna lán í erlendum gjaldeyri til þess að endurlána Raf-
ÍTuagnsveituimm. í greinargerð segir:
Danska gefrauna-
staiisemin skilaði
millj. kr. hagnaði
ÞEGAR íþróttahreyfingin hóf í
vor getraunastarfsemina var
gert ráð fyrir því, að hún mundi
geta orðið mikil lyftistöng starfi
hennar, eins og reynslan hefur
orðið á hinum Norðurlöndunum.
En þær vonir, sem við hana voru
bundnar og byggðar voru á sam-
anburði á aðstæðum hér og í Nor-
egi og Danmörku, hafa að mikl-
iim hluta brugðist.
I síðasta mánuoi sendi danska
getraunastarfsemin frá sér yfir-
lit yfir starfsárið 1951—2. Á því
starfaði stofnunin í al.ls 40 vikur
I og námu heildartekjur hennar
40.2 millj. d. kr. og fór helming-
ur þess í greiðslu vinninga. Þá
rúnnu 3.13 millj. kr. til íþrótta-
[ mála og 5.16 rnillj. til annarra
menningarstarfa.
Þar eð getraunastarfsemin hér
hefur starfað í 18 vikur er orðið
möguiegt að gera nokkurn sam-
anburð á henni og þeirri dönsku.
Við hann verður að gera ráð fyr-
ir að starfsemin nái aðeins til
j % allra íbúa landsins, og miðað
' við þann fjölda, þegar borið er
* saman hvað hér væri samsvar-
j andi þátttaka og í Danmörku.
Danmörk Hér
Seðlar á viku 588.000 1.615
Raðir á vikn 4020.000 11.000
Hliðstætt miðað við 100 000
13.500
93.000
Að vísu má segja, að svona sam
anburður sé alls ekki raunhæfur,
því að í margmenninu fáist fljót
lega háir vinningar, sem eru aðal-
aðdráttaraflið og verka því til
hækkunar, en í fámenni fáist ekki
fljótlega háir vinningar, sem
verki öfugt. Annað atriði er, að
með stærri þjóðum er meira unnt
að notast við innlenda leiki en
hér, en þó nota Danir enska og
sænska leiki að rúmum 2/5 og er
umsetningin mest með enskum
leikjum, svo að það verður ekki
er til lengdar lætur svo veiga-
mikið. En miðað við meðalviku
Dansk Tipstjeneste mundi tilsvar
andi umsetning hér vera rúmar
70.000 kr. og færi þá 35.000 kr. í
vinninga.
Nöfn þeirra birí sem gerasf s«
iga álagningn
iBRÝNT VERKEFNI
! Það viðfangsefnið, sem er hvað
-brýnust nauðsyn að leysa nú í ná-
inni framtíð, er að leiða raforku
'um allar byggðir landsins. Raf-
orkan veitir í senn ómetanleg
lífsþægindi og er óhjákvæmilegt
'skilyrði margvíslegs atvinnu-
rekstrar. Islenzka þjóðin hefur
•orðið að byggja upp atvinnulíf
ígitt og skapa sér lífsskilyrði til
'menningarlífs á fáum áratugum.
Slíkt er erfitt fyrir þjóð. sem ekki
á mikinn veraldarauð, en þjóðin
hefur trúað á mátt sinn og fram-
tíðina, og hún hefur á mörgum
Isviðum lyft Grettistaki á fáum
tárum. Á það ekki sízt við á sviði
raíorkumálanna, þar sem einmitt
mú er verið að byggja orkuver,
sem eru hinar stærstu fram-
Jkvæmdir, er unnið hefur verið
að til þessa hér á landi.
FÓLKSFLÓTTINN
i'VFIR??
j En það er hér sem víðar, að ein
dú'amkvæmdin getur gert aðra
Jcnn nauðsynlegri en áður. Þau
-jauknu lífsþægindi og bættu lífs-
iskilyrði, sem hin nýju orkuver
■veita þeim, sem þeirra njóta,
Istuðla að sjálfsögðu að jafnvægis-
jleysi í þjóðfélaginu, ef aðrir lands
•menn eru um langan aldur dæmd
;ir til að vera án þessara hlunn-
•inda. Sjái þetta fólk ekki hilla
lUndir sams konar þægindi sér til
HarrowslysiÖ
upplýst
LUNDÚNUM, 18. okt. — Nú hef-
ur rannsókn farið fram á slysinu
hörmulega í brezka menntaskóla
bænum Harrow, þar sem 111
manns létu lífið. Orsökin var sú
að hraðlestin frá Skotlandi gaf
engan gaum að ljósmerkjum, er
skipuðu henni að nema staðar og
voru til reiðu á brautarstöðinni.
Mun lestarstjórinn ekki hafa séð
merkín, þar sem önnur heimalest
stóð á sama spori og skyggði á.
Augnabliki síðar ók hraðlestin á
hina lestina, með víðkunnum or-
sökum. Brautarvörðurinn sá j
sama mund Lundúnalestina koma
brunandi af heljar ferð út ur
þokubakka 600 metra burtu og
skeytti ekki hætis hót um neyðar
merkin sem dauðskelkaður braut
arvörðurinn gaf í ofboði. Ók hún
•handa, þá ei1 hætt við, að það síðan rakleitt á hinar lestirnar.
hverfi á brott úr sínum byggðar-
lögum, enda ekki aðeins að það
fari á mis þægindanna, sem sam-
borgararnir njóta, heldur er einn-
ig öll aðstaða til lífsbjargar erfið-
ari á þeim stöðum, þar sem raf-
orku skortir eða hana verður að
kaupa svo dýru verði frá diesel-
rafstöðvum, að lítt viðráðanlegt
er.
EFTIRFARANDI greinai-gcrð
frá vióskíptamálaráðimeytinu
um verðlagsskýrsiur, barst
blaðinu í ;ær:
Verðgæzlustjóri hefir látið gera
athugun á verðlagí víðsvegar á
landinu, er nær yfir tímabilið
april — júlí þessa árs, og hefir
skýrslan r.ýlega verið birt. Sök-
um þess cð' skýrsla þessi hefir-
verið gerð sð umræðuefni opin-
berlega og i hana vitnað með
þeim hætti að likiegt er, að al-
menningur fái rangar hugmynd-
ir um hina raunverulegu mynd,
sem skýrslan sýnir, af álagningu
innflytjenda og smáverzlana á
ýmsar vörur, vill ráðuneytið taka
fram eftirfarandi,
MEÐALÁLAGNING 17,1% í
HEILDSÖLU, EN 39,8%
<SMÁSÖLU
Athugaðar voru 100 sendingar
af vefnaðarvörum, sem tollaf-
greiddar voru á tímabilinu febr.
— maí þ. á. Samtals voru 83 send-
ingar fluttar inn af heildverzlun
um og var meðal heildsöluálagn-
ing á þeim 17,1%. 17 sendingar
voru fiuttar inn af smáverzlun-
um og var heildarmeðalálagning
á þeim 39,8%. Álagning í smásölu
á vörur fluttar inn af heildsclum
skv. framanrituðu reyndist að
meðaltali 31.5%.
Ef athuguð er álagning á hverja
sendingu má segja, að af framan-
greindum 100 sendingum séu
nokkrar sendingar í heildsölu og
srnásölu sem réttilega gæti sætt
gagnrýni. Álagningin et :iokkuð
misjöfn en yfirleitt verður hún
að teljast hófleg, með nokkrum
undantekningum.
FRÍLISTA VÖRUR
Athugaðar voru 100 sendingar
af vörum á skilorðsbundnum frí-
lista, tollafgreiddar í febrúar —
maí þ. á. Hér er um að ræða ýmsa
vöruflokka, sem eðli sínu sam-
kvæmt og venju eru háðar mis-
jafnri álagningu, Meðalálagning á
þessa vöruflokka virðist ekki gefa
Fjárhsgsráð og vcra
MÉR VAR nú i þessu sýnt blað,
sem Varðberg nefnist, og í því
mikil rammagrein á veglegasta
stað þess: „Fjárhagsráð lagt nið-
ur frá og með áramótum?" og
undirfyrirsögn: „Magnús Jóns-
son mun eiga að kasta á það
rekunum og hverfa svo að vís-
indastörfum".
Ég sá einhversstaðar áður vik-
ið áð því, að ég væri á förum
úr fjárhagsráði og mun tilefnið
vera heimildargrein í fjárlaga-
írumvarpinu, er mig snertir.
.Út af því vil ég biðja Morgun-
blaðið að gera svo vel að birta
eftirfarandi:
Þegar ég tók að mér starf í
íjárhagsráði setti ég það að skil-
yrði að ég fengi að halda rétti
! mínum til prófessorsembætíis,
því að störf slík sem þessi eru
næsta óviss, og sannast að segja
bjóst ég þá ekki við, að starfa
lengi í fjárhagsráði, þó að ég
tæki þetta að mér í svip. Nú
hefir þó tognað svo úr þessu,
að Háskólinn vildi fá úr því
skorið, hver embættið ætti að
skipa, og sagði ég þá af mér
embættinu gegn tryggingu fyrir
því, að ég missti ekki í af laun-
um, og skil ég varla að nokkur
geti láð mér það, því að ann-
ars var sjáifsagt fyrir mig að
taka heldur embættið. Út af
þessu og cngu öðru er umrædd
heimildargrein í fjárlögunum.
■ Hún stendur eingöngu í sam-
bandi við það, að ég sagði af
mér prófessorsembættinu, en er
alveg óviðkomandi hinu, hvort
ég vcrð lengur eða skemur í fjár-
hagsráði. — Þvert á móti var svo
um talað, að ég stytti ekki dvöl
mína í fjárhagsráði, af þessum
sökum, þó að vitanlega væri
ekkert skilyrði um það sett. Og
um framtíð fjárhagsráðs ákveð-
ur Alþingi en ekki ég. Hefi ég
ekkert um það mál frétt.
Ég skal svo ekki gera að um-
ræðuefni svo neinu nemi ann-
að í þessari ómerkilegu grein.
Þó skal ég gcta þess að öll
reikningsskil fjárhagsráðs og
deilda þess hafa frá upphafi ver-
ið mjög skýr og jafnan send
ríkisstjórn og endurskoðun og
ekkert farið þar með neinni
leynd. Skal ég fullyrða — sem
og er ekki ncma sjálfsagt — að
öllum kostnaði hefir verið stillt
í hóf, starfsemi færð saman eft-
ir föngum o. s. frv. En hvers
vegna fjárhagsráð er ekki tekið
á fjárlagafrumvarpið get ég ekki
sagt um. Það er ekki- mitt né
fjárhagsráðs að ákveða um það.
Verði haldið áfram að gefa í
skyn að þarna sé „kannske
óhreint mjöl í poka“ mun ég fara
fram á það alveg eindregiö. að
endurskoðunin gefi umsögn sína
þar um.
Með fyrirfram þakklæti fyrir
birtingu.
Magnús Jónsson.
tilefni til gagnrýni. Hins vegair
eru nokkur dæmi um ofháa álagn
i ingu á einstakar sendingar af vör
um svo sem raksápu, shampoo,
! kvenveski, hurðarlokur, fótbolta
j og húsgagnahöldur.
ÝMSAR VÖRUR
Athugaðar voru 14 sendingar af
leir- og glervörum og reyndist
meðal-hcildssöluáiagning 22,4%' «
cg meðal-smásöluálagning 38,6%.
Aí 16 búsáhaldasendingum reynd
ist meðalálagning í heildsölu
11,1% og í smásölu 33,3%.
Af 30 sendingum sf gúmmískó-
fatnaði reyndist meðalálagning í
heiidsölu 11,6% og í smásölu
26.8%.
Athugaðar voru 69 sendingar
af ýmsum vörum. Af þeim eru
nokkrar sendingar sem ástæða er
til að gagnrýna álagninguna bæðí
í heildsölu og smásölu.
Athugaðar voru 20 sendingar
af helztu matvörum, innfluttar
febrúar — júní þ. á sykur, hveiti,
kartöflumjöl, rúgmjöl, haframjöl,
hrísgrjón og kaffi, fyrir samtals
um 9,5 millj. kr. að kostnaðar-
verði. Meðalálagning á þessár
vörur í heildsölu var 5,3% og í
smásölu 22,8%. Samkvæmt há-
marksákvæðum 'var leyfð álagn-
ing í heildsölu 4,9% — 5,8% og
í smásölu 16,1%—22,2%.
í
VÍÐTÆKAR ATHUGANIR
Að síðustu má geta þess, að víð-
tækar athuganir hafa farið fram
á álagningu á ýmsum vörum hjá
verzlunum víðsvegar um land.
Verður ekki annað sagt en að
áiagningin sé allsstaðar svo hóf-
leg, að ekki er ástæða til gagn-
rýni að tveimur dæmum undan-
teknum. Lagt er á plastik-dúk (á
Siglufirði) 88,6% og vasaklúta
228,8%. En rétt er þó að geta þess
að útsöluverðið á báðum þessum
vörum er lægra en samnefndum
vörum öði'um, sem miklu minna
er lagt á.
Þótt álagningin yfirleitt virð-
ist vera að komast í fastar og hóf-
legar skorður, ber enn á ýmsum
undantekningum um óhóflega
álagningu. Gagnvart þeim, sem
gera sig seka um slíkt, verður
notuð heimild í lögum frá 6. mai
þ. á. um að birta megi nöfn
þeirra. í
Ferðir Heklu lil
Ameríku og Norð-
HEKLA millilandaflugvél Loft-
leiða h.f. kom í gærmorgun fra
Noregi, íullskipuð Ameríkufar-
þegum. Flugvélin hélt áfram í
gær til New York og er væntan-
leg þaðan á föstudagsmorgun.
Yfir vetrarmánuðina breytist
áætlun Heklu þannig, að flug-
vélin kemur frá Kaupmanna-
höfn og Stavanger á sunnudög-
um og fer samdægurs til New
York. Kemur aftur frá New Yorlc
á þriðjudögum og fer samdægura
til Stavanger :og Kaupmanna-
hafnar.
Rétt er að geta þess, að aulc
þess sem póstur er fluttur í öll-
um ferðum vélarinnar til og frá
Evrópulöndum, þá flytur hún nú
einnig Ameríkupóst í hverri ferð
til og frá New York. Þessi póst-
ur hefir til skamms tíma aðeiná
yerið fluttur með erlendum flug-i
vélum.
/