Morgunblaðið - 22.10.1952, Side 10
MORGUNBLAÐIB
Miðvikudagur 22. okt. 1952
í 10
ADELAID
“Skáldsaga eftir MARGERY SHARF
B
bækur
mjMM«HuniM. nl ti»ll(ll m
FramhaldsEagan 41
hana um leið og hún opnaði dyrn
ar svo að hún hóstaði. Hún
greindi óljóst húsin á móti en
ekki lengra. Hún sá einhvern
hreyfast hægt meðfram húshlið-
inni. Það var „Svínið“. Hún virt
ist vera ennþá stærri og. fyrir-
ferðameiri í þokunni. Hún hélt á
könnu í annarri hendinni. Auð-
sjáanlgea á leiðinni í krána.
„Frú Mounsey!" kallaði Ade-
laide.
„Svínið" nam staðar og skim-
aði upp á svalirnar.
„Farðu fyrir mig á safnið í
Spring Streét þar sem ég fæ lán-
aðar bækurnar og sæktu tvær
bækur handa mér“, sagði Ade-
laide skipandi. „Þú biður konuna
þar að veija þær fyrir mig“.
,,Þú getur sjálf sótt þínar bæk-
ur. Ég er engin hlaupatík".
„Borga ég þér ekki, eða hvað?“
Þrátt fyrir að henni var kalt,
hljóp hiti fram í kinnar hennar
af reiði. Hún gerði það viljandi að
ögra „Svíninú“ og reyna hvað
hún gæti komist langt. Hún hafði
óljósan grun um hvílík ánægja
henni mundi verða að því að geta
skipað henni fyrir. Hún sagði
eins höst og frekjulega og hún
gat: „Hafðu það eins og þér sýn-
ist, fíflið þitt. Það verður langt
þangað til þv'i rekst aftur á
manneskju, sem fellst á að borga
þér tíu shillinga á viku“.
Hún lét eins og hún ætiaði að
fara inn aftur. En útundan sér sá
hún að frú Mounsey kom skrefi
nær.
„Ég skal gera það, en bara í
þetta skipti“, sagði hún.
„Þú gerir það þegar ég bið þig
um það,“ sagði Adelaide. „Farðu
með þessar og skilaðu þéim“. Hún
fleygði bókunum tveim sem hún
hafði lokið við niður til hennar.
Henni var ánægja að því að sjá
„Svínið“ beygja sig, með erfiðis-
munum til að taka þær upp úr
götunni. Svo bætti hún við. „Og
þegar þú kemur aftur, þá sækir
þú fyrir mig gin fyrir fjögur
pence í kránni“.
Því Adelaide var xarin að
neyta áfengis. Þó mjög i hófi.
Og hún drakk aldrei í kránni, því
þar mundi hún þurfa að umgang
ast nágrannana, heldur á krá í
Paddington þar sem voru aðeins
konur. En þangað var tíu mín-
útna gangur. Adelaide sat við ar-
ininn og beið eftir að „Svínið“
kæmi aftur. „Ég hef hund til að
þjóna mér“, hugsaði hún ánægð
og brosti lítið eitt. En það voru
aðeins varir hennar sem hreyfð-
ust. Augu hennar voru köld og
hörð.
Þannig varð „Svínið“ þjónustu-
stúlka Adelaide og Adelaide var
um leið fórnarlamb „Svínsins“.
Þær voru þó sæmilega kurteisar
hvor við aðravFrú Mounsey setti
meira að segja stundum upp móð-
urlegan umhyggjusvip, til þess að
láta eins og hún gerði þetta allt
fyrir Adelaide af frjálsum vilja.
Stundum færði hún henni gin
óbeðin. Adelaide gat ekki komist
undan umgengni við hana, svo
lengi sem hún umbar að láta hána
snúast í kring um sig, eða jafn-
vel heimtaði að hún gerði það.
íbúarnir í Britannia Mews fóru
því að líta á þær sem stallkonur.
Brátt varð Adelaide það Ijóst að
•eins og fólkið hafði áður forðast
hana af óttablandinni öfund þá
forðaðist það hana nú af ótta við
frú Mounsey. Bert gamli hætti að
gefa sig á tal við hana, þegar hún
varð á vegi hans. Adelaide gerði
eina eða tvær tilraunir til að ná
hylli hans aftur, en gafzt svo upp.
Hún gafst upp við svo margt.
Hún hætti að gera sér far um að
vera kurteis í framkomu. Hún j
fcætti að vanda hugsanir sínar og
taismáta. Og hún hætti að gera
sér far um að taka tillit til ná-
ungans. 1 Britannia Mews var
þetta líka allt skoðað sem veik-
leikar en ekki kostir.
Hún var þó jafn hreinleg og
áður. Allt var með sömu reglu og
áður í íbúð hennar. Hún borðaði
góðan mat sem hún vandaoi sig
við að matreiða. Með húsverk-
unum og ferðunum á bókasöfnin
hafði hún nóg að gera allan dag-
inn. Þegar hún hafði ekkert ann-
að fyrir stafni, þá sat hún við að
lesa. Hún gekk aldrei um í
skemmtigarðinum af ótta við að
mæta einhverjum sem hún
þekkti.
2.
Adelaide frétti ekki um heim-
sókn móður sinnar fyrr en nokkr
um dögum síðar. Það var „Log-
inn“ sem sagði henni frá því,
vegr.a þess að hún hafði veika
von um að geta gert frú Mounsey
grikk með því. Hún gekk því i
veg fyrir Adelaide morgun nokk-
urn þegar hún var á leið út. Ade-
laude stóð hinn mesti stuggur af
þessari ungu stúlku og hafði hka
nægar ástæður tii þess. En „Log-
inn“ nam staðar beint fyrir fram
an hana, svo að hún komst ekki
áfram.
„Leiðinlegt að þú skyldir ekki
vera heima um dagipn, þegar
mamma þín kom“.
Adelaide horfði á hana, en svar
aði ekki. „Loginn“ studdi hönd-
unum á mjaðmirnar og hló rudda j
lega.
„Það var hreinasta leikrit að
horfa á það. Mamma þín vesling-1
urinn, barði og barði á dyrnar og
spurði út um allt hvort nokkurj
vissi hvar frú Lambert væri,
þangað til „Svínið“ vaggar upp
tröppurnar heldur ófrýnileg á
svipinn og segir henn að þú hafir
farið fyrir tólf mánuðum alfar-
in.... “.
Adelaide svaraði ekki enn og
við það espaðist „Loginn“ og hélt
áfram:
„Skildi húp ekki eftir neitt
heimilisfang", spyr mamma þín.1
„Skildi dótturskömmin mín ekki
eftir neitt heimilisfang“. „Ekk
ert“, sagði „Svínið". „Hún fór
bara“, og með þeim orðum fór
mamma þin aftur og „Svínið“
fylgdi henni á leiö. Mig skvldi
ekki furða þótt hún hafi haft eitt-
hvað af henni“.
„Þú ert íyrir mér“, sagði Ade-
laide loks. „Lofaðu mér að kom-
ast leiðar minnar“.
„Loginn“ reyndi fyrst að stara
í augu hennar þangað til hún léti
undan. Hún mætti hvössu og
hörðu augnaráði Adelaide sem
„Svínið" jafnvel hræddist. Því
Adelaide hafði látið sér fátt um
finnast þessa sögu. Hún vissi að
„Svínið“ hefði umfram allt vilj-
að sjá sér borgið. Hún var úrræða
góð og Adelaide var ekkert
óánægð með þessa aðferð hennar.
Hún hugsaði þessa stund aðeins
um það sem farið hafði fram á
milii eiginmanns hennar iátins og
þessarar stelputuðru sem stóð fyr
ir framan hana. Hatrið skein svo
úr augum hennar að „Loginn“
varð fyrst til að líta undan. Hún
ypti öxlum með hæðnisglott á
vörum og snéri burt. Og Adelaide
héit áfram leiðar sinnar án þess
að líta við.
Hún minntist ekkert á þetta við
„Svínið“. En einhvern veginn
frétti frú Mounsey af því hvað
hafði farið á milli „Logans“ og
Adelaide. Henni fannst því viss-
ara að tala um það við Adelaide,
en fór þó varlega af stað.
„Ef einhver kæmi og spyrði
eftir þér, þá þykist ég vita að þú
kærir þig ekki um að láta ókunn
uga blanda sér inn i ....“.
„Nei“, sagði Adelaide. Henni
fannst gaman að því hvað „Svin-
ið“ var varkár.
„Ef einhver kæmi og spyrði um
þig, þá mundi ég segja að þú
værir flutt burt ....“.
„Og hefði ekki skiiið eftir neitt
heimilisfang“, sagði Adelaide.
„Ég hugsa að þú mundir líka fá
shilling fyrir fyrirhöfnina“.
Frú Mounsey leit á hana slótt-
ugum augum. Hún vissi mikið,
konukindin,, hugsaði hún, en hún
B
H
9
■
■
a
a
m
m
■
■
frá Isafolclcirpreiitsirilépj ■
■
■
VANDAMÁL KARLS OG KONU, eftir Pétur Sigurösson. — g
Bókin er í 11 köflum og fjallar unt hið mikla'þjóðféiagsvanda- g
mál: sambúð karls og konu. Kaflarnir eru m. a. „Hinn sam- j*
eiginlegi tlraumur æskumanna“, „Að þau geti gift sig ung“, m
„Heimilið", „Tívað ieiddi hernámie t Ijós“, „Mannrækt og kjn- *
bætur“ o. 11. Pctur Sigttrðsson er þekktur fyrir hreinskiini og u
bersögii. Hér ræðir haiin um vandamál, sem ailir þurfa að ®
kynnast. B
H 2. ÚR HULDUHEIMUM, sögur og ævintýri, cftir Jón ArnfiniVs-
son. í bókinni ertt 5 ævintýri og sögur: Álfhiidur, Við fjalla-
vegi, Skyttur, Gæfuvegir, Hjá Helgahnjúk. n
H 3. LUNDURINN GRÆNI, eftir Óiínu og Herdísi Audrésdætpi-. g
® Með myndum eftir Halldór Pétursson. 1 guilfaiipgum formála B
B segir séra Jón Auðuns frá tildrögum kvæðisins, en þaö er ort K
* til frú Ásthiidar Thorsteinsson.
9 4. HUGLEIDINGAR Á HELGUM DÖGUM, eftir séra Finn Tulin- B
m m
H ius. Þetta era stuttar hugiéiðingar, sem ætlazt er til að lespar g
9 séu á helgum dögum. „Upp úr hpfi virkra daga, gráu og til- Bi
■ breytingariausu, standa helgidagarnir eins og klettaborgir, og §
* hefur fagnaðarboðskapurinn, bænin og sálmasöhgurinn hvert H
um sig gefið þeim sinn sérstaka svip“. Þessi litla bók ætti uð JJ
® vera til á hverju heimili.
B 5. ÞiTT RÍKI KOMI (77 sálmar). Þessa sálrna valdi séra Harajd- 9
H ur Níclsson, og notaði við messur sínar í Frikirkjunni. Þeir J
9 hafa verið lengi ófáanlegir og því eru þeir nú settir í bóka- a
H verzlanir í fallegu bandi.
Bókaverzliin Isajoídar
i:
Skothurðajárn
80, 90 og 100 cm.
Verzl. Brynja
Sími 41ÍÍ0
Hrói höttur
snýr aftur
eítir John O. Ericsson
33.
í Bordó urðum við að bíða í margar vikur áður en við
fengum sk:p, sem fór til Englands, því að hinir miklu vor-
stormar geisuðu sem ákafast á þessum tíma. Þegar við bið-
um þarna, fréttum við, að Ríkarður væri látinn.
Þegar við vorum að því komnir að gefast upp á þessari
löngu bið í Bordó, rákumst við á skipstjóra, sem lofaði að
fiytja okkur til Bristol. Það tók þó langan tíma að prútta
við hann, því að hann vildi fá geysimikla peninga fyrir að
fiytja okkur.
Við fengum mjög vont veður í hafinu, og urðum því að
hvíla okkur í nokkra daga á enskri grund áður en við gát-
um haldið áfram ferðinni.
— Hvert fóruð þið svo, spurði Litli-Jón. Og hvar eru menn
þínir. Aí hverju kemur þú einn hingað?
— Það' eru margar ástæður fyrir því, sagði Hrói höttur.
En nú ætla ég að halda áfram með söguna.
Ég og Rauðskeggur keyptum okkur hesta í Bristol og
riðum í loítinu fram hjá Oxford, til Huntingdon. Menn mín-
ir fóru aftur á móti norður eftir, fram hjá Cotswold. Við
vorum búnir að ákveða að hittast við Lee-kastala þremur
dögnm eftir Sankti-Baltasarmessu.
Ríkarð Lee hefir ekki enn gleymt vinskap okkar, frá því
er við vorum saman í Sherwood-skóginum. Það eru sterkir
múrar umhverfis kastalann, og hann liggur á mjög heppileg-
um stað. Ég var viss um, að þar gæti ég fundið hæli fyrir
konu mína. Jóhann landlausi myndi bráðlega hrif'sa vöídin
í Englandi — en hann er versti óvinur minn. — Eins og þú
veizt, varð ég að hafa hraðann á.
Til allrar hamingju kom ég til kastaians í tæka tíð — og
þar var konan mín. — Hún var heilbrigð og glöð þegar hún
sá mig, og kvaðst vera fús til þess að fylgja mér hvert sem
væri.
N AHtSHRENGLR
fyrir áhugafólk um leiklist, verður starfræktur
á vegum Leikfélags Reykjavíkur í vetur.
Leiðbeint verður í hinum ýmsu greinum leiklistar.
^JCennarar: GUNNAR HANSEN, EINAR PÁLSSON,
SIGRÍÐUR ÁRMANN
Umsóknir merktar: Námshringur — sendist í Iðnó
fyrir sunnudag.
líitgllngspiitiur
óskast til sendiferða
JJ^er't CJnótt
Lfanóóon
& Co. L.f.
Ný sending af
pc<ttablómii»n
Sendum blómin heim, ef óskað er.
Rlómaverzlunin Eden,
Bankastræti 7. Sími 5509.
fainof
(onvivium deposifurorum
annuum in aedibus libertatis celebrabitur die Jovis
XXIII octobris anno MCMLII et hora VI et quarta parte
initium habens.
Codicilli die Martis et die Veneris ab hora IV ad VI
aqud Coriáilium Studiosorum prostant.
Vestitus festus.
Collegium Studiosorum Universitatis Islandiae.
- AUGLYSÍNG ER GULLS ÍGILDI