Morgunblaðið - 21.11.1952, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.11.1952, Blaðsíða 5
Föstudagur 21. nóv. 1952 MORGUNBLAÐIÐ 5 7 Ráðhúsbyggingin á ný á dagskrá i bæjarstjórninni p. Bent á hæðirnar ausfan Sjómannaskólans B^GGING ráðhúss fyrir Reykjavíkurbæ og skipulagning á sér- stökif Jtiverfi ýmissa opinberra bygginga bar á góma á fundi bæjar- stjórnar í gær. EKKI f MIÐS.’ENUM Fulltrúai* Alþýðuflokksins vöktu máls á þesap- Jón Axel Pétursson taldi það- fyrirsjáan- legt, að það væri nú oi'tSitf úrelt tillaga, sem komið hafði franv' um það að velja væntanlegu ráðhttsi stað í Miðbænúm. Fyrirsjáanlegt væri að búa þyrfti til nýjan mið- bæ, eins og hann orðaði það, í úthverfum Austurbæjar, og taldi hann helzt koma til mála hæð- irnar fyrir innan Stýrimanna- skólann. Hann taldi nauðsynlegt, að bærinn tryggði sér lóðir í þéssu skyni þar. Bar hann siðan fram tillögu þess efnis, að skipuð skuli 7 manna nefnd til þess að athuga og gera tillögur um stað- setningu ráðhúss og nokkurra annarra opinberra bygginga, og skuli nefndin hafa lokið störf- tim fyrir bæjarstjórnarkosning- arnar 1954. i BENT HEFUR VEREÐ Á 16 STAÐI Borgarstjóri kvað ráðhúsmálið oft hafa verið rætt í bæjarráði, og snemma á þessu ári hafi hann falið skipulagsnefnd að semja greinargerð um þá staði, er hún teldi koma til greina fyrir ráð- hús. Hafi hún bent á 16 slíka staði. Einkum taldi nefndin Von- arstræti. heppijegt, og fyllt yrði þá upp við norðurenda Tjarnar- innar. Sá staður, sem nefndin taldi næst æskilegan var fyi'ir ofan grjótnám hafnarinnar. i ÓFORMLEG FYRIRSPURN BORGARSTJÓRA Borgarstjóri kvaðst eitt sinn í lok bæjarráðsfundar nýlega hafa spurt bæjarráðsmenn að því ó- formlega hvar þeir helzt vildu, að ráðhús yrði byggt. Einn þeirra Vildi, að það yrði reist í norður- enda Tjarnarinnar, einn inni á Klambratúní, tveir á Háaleiti, eða þar nálægt, og sá fimmti hafði ekki tekið afstöðu. Taldi Borgarstjóri að þessi skoðana- könnun hans væri sýnishorn af því, hve bæjarbúar væru skiptir í málinu. i/ ‘ HÆTT VAR VIÐ SKÓLAVÖRÐUHOLTIÐ Um 1920 hafi verið um það rætt, að ráðhúsið yrði reist á Skólavörðuholtinu, en frá því var horfið þar eð þá þótti það Of langt frá Miðbænum. Hins Vegar munu margir vera þeirrar skoðunar í dag, að æskilegt hefði verið að Skólavörðuhæðinni hefði verið haldið opinni, svo að ráðhúsið hefði getað risið þar. Borgarstjóri kvaðst ekki á þessu Stigi vilja segja sínar persónu- legu skoðanir um, hvar ráðhúsið ætti að vera, en hann vseri mót- íallinn því að taka hluta af Tjörninni undir ráðhús. Borgarstjóri kvað bæjarráð nú myndi taka þetta mál til umræðu á ný og kvaðst vona, að eigi þyrfti að bíða þess Iengi, að mál- ið fengi endanlega afgreiðslu. Sýslumaður ísafjarð- arsýslu heiðraður ÍSAFIRÐI, 20. nóv. — í gser var Jóhann Gunnar Ólafsson, sýslu- maður í Ísaíjarðarsýslu og bæj- arfógeti á ísafirði, fimmtugur. í tilefni þessa afmælis heimsóttu hann fjöldi samstarfsmanna í héraði og vinir hans og sátu þar lengi dags í góðum mannfagn- aði. Voru honúm fluttar margar ræður og árnaðaróskir og honum þökkuð margþætt og mikilsverð störf í þágu síns sýslufélags ög bæjar. BáruSt þönum margar góð ar gjafir, m. a. færði sýslunefnd N.-ísafjarðarsýslu honum mál- verk að gjöf og starfsfólk hans borðlampa. Hvorutveggja góðir munir. Páll Pálsson, hreppstjóri að Þúfum, færði honum gjöf sýslu- néfndar og flutti honum þakkir sýslunéfndar fyrir vél unnin störf í þágu héraðsins og árnaði honum allra heilla. Sátu gestir þeirra hjóna lengi við góðan fagnað og rausnar- legar veitingar. —Fréttaritari. Kuldabylgja í Evrópu LUNDÚNUM — Norð-austlægur heimskautavindur hefur undan- farið leikið um Vestur- og Mið- Evrópú, svo að þar héfur kyngt niður feikimiklum snjó auk þess sem kuldinn hefur verið gífur- legur. í Skotlandi hefur frostið kom- izt upp í 23 gráður á Celsíus. í París hefur einnig snjóað allmik- ið og í Ölpunum er nú þegar kominn geysimikill snjór. ■— Yfirleitt hefur verið 6—7 stiga kuldi í Frakklandi undanfarið. — Sömu sögu er að segja úr flest um Vestur-Evrópulöndum; meira að segja hefur þessarar kulda- bylgju gætt suður eftir öllum Ítalíuskaganum. Þar skjálfa menn um þessar mundir úr kulda ekki síður en annars staðar í Mið- og Vestur-Evrópu. —Reuter-NTB. Píanóténieiksr Rögnvaldar Sigur- jónssonar í Ausfur- bæjarbíói RÖGNVALDUR Sigurjónsson hélt píanótónleika i Austurbæjar bíói á vegum Tónlistarfélagsins, mánudaginn 17. og miðvikudag- inn 19. þ. m. Verkefnin voru eft- ir Chopin og Prokofieff. Rögnvaldi Sigurjónssyni eig- um við það fremur öðrum að þakka að við höfum átt kost á að heyra hér dálítið af nýrri tónlist. Á þessum tónleikum lék hann sónötu eftir Rússann Prokofieff, sem aldrei mun hafa heyrzt hér áður og virtust áheyrendur taka hénni mjög vel, enda er verkið skemmtilegt, hægi kaflinn mjög fallegur. Einnig voru á efnis- skránni nokkur smærri verk sama höfundar. Það segir sig sjálft að tónleik- ar sem ætlaðir eru stórum hóp áheyrenda eins og meðlimir Tón- listarfélagsins eru nú orðnir verða að verulegu leyti að vera valdir eftir eldri tónskáld, því að slíkir hópar koma ekki á hljóm- leika nema að litlu leyti til þess að nema alveg nýja list, heldur til þess að heyra nýja túlkun á þeirri tónlist, sém þeir hafa að meira eða minna leyti tileinkað sér, en öllum má þó vera ljóst jafnframt að menbirnir geta ekki staðið í stað. Sá sem kýs að láta fara svo vel um sig að hann vill ekki leggja það á sig að freista að kynnast þvi nýja í list síns tíma er einnig dæmdur til þess að missa sjónar á fegurð og gildi þess, sem fyrri kynslóðir hafa af- rekað. Listin er ekki með öllu ó- tímabundið fyrirbæri á þann hátt að eitt tónskáld geti samið tón- list eða málari gert málverk fyrir margar aldir. í höfuðatriðum lifir hver einstaklingur, ef hann á annað borð lifir einhverju and- legu lífi, í mjög tímabundnum heimi og umhverfi. Gefist hann upp við að ná þar fótfestu, skilja samtíðarlist, flosnar hann upp með öllu og á hvergi athvarf í and legum heimi. Að flýja frá samtíð sinni er flótti frá lífinu sjálfu. Túlkun Rögnvaldar á verkum ýmissa samtíðarlistamanna er mjög sannfærandi. Leikni hans er örugg og glitrandi og virðist njóta sín þar til fullnustu. Pro- kofieff hefir lengi verið eitt af eftirlætisskáldum hans, enda var sá liður efnísskrí;'innar hápúnkt- ur tónleikanna. Var listamannin- um marklega fagnað. Vikar. Hlauf !2 þús. kr. sekf o§ missfi 58 vínfl&kur fyrir smyg! í NÓTT sem leið komst tollvörúurinn á Akranesi,-Magnús Krist- jánsson, á snoðir um að maður no.kkur hafði fengið eina flösku ai víni um borð í Selfossi. Gerði ham,’ Þegar bæjarfógetanum, Þór- halli Sæmundssyni, aðvart, en hann fy'rirskipáði toJlverði að fram- kvæma tafarlausa leit í skipinu hátt AS lágt. , 58 FLÖSKUR AF STERKUM 1 VÍNUM | Fór tollvörðurinn? ásamt lög- regluþjónum um 'bófð*'! Selfoss og hófu þeir leitina. Lauk henni með því að fundust höfðu 58 flöskur af sterku áfengi. I Bæjarfógeti yfirheyrði við- komandi aðilja þegar um riótt- ina. Kom í Ijós að einn maður átti vín þetta. 12 ÞUS. KR. SEKT j Dómur í málinu var kveðinn upp með morgninum. Allt vinið j var gert upptækt til handa rikis- sjóði og eigandi þess dæmdur í 12 þús. króna sekt._______ LUNDÚNUM, 20. nóv. — í clag lýsti Eden, utanríkisráð- - 1 sfæðlsmavina í Kjós- arsýslu n.k. laugartf. SJÁLFSTÆÐISFÉLÁsGIÐ Þor- steinn Ingólfsson I K,'ósarsýsl« heldur héraðsmót að Fév'agsgarði í Kjós langardaginn 22. nóv. og hefst mótið kl. 10 e. h. Ræður flytja þingmaður kjör- dæmisins, Ólafur Thors, atvínnu- máiaráðherra og Sigurður Bjarna son, alþingismaður. — Skemmti- herra Breta, yfír því á fundi atriði: Haraldur Á. Sigurðsson, Allsherjarþingsins, að brezka' Alfreð Andrésson og fleiri sýna. stjórnin væri fvlgjandi tillög- um Indverja til lausnar Kór- eudeilunni. — Reuter-NTB. þætti úr Haustrevýunni. Hljómsveit Halldórs frá Kára- stöðum leikur fyrir dansi. IMarm sýni sama sam- takamátt og aðrar átvineustéttir Bygging Blóðbankans kostar 503 bús. krónur j Bsrinn leggi fram helming keslnaðar A FUNDI bæjárstjórnar í gær var samþykkt að verja á næsta ári um 279 þús. kr. til byggingar Blóðbankans við Barónsstíg. Borgarstjóri reifaði málið. — Bygging Blóðbankans hófst fyri ir tveimur árum. — Hér er á ferðinni nauðsynlegt fyrirtæki, Og komu þegar í byrjun fram öskir um það, að bærinn greiddi 50% bygginga.rkostnaðar. Málið hefir oft verið rætt í bæjarráði, þar sem það fékk góðar undir- •tektir bæjarráðsmanna. í Blóð- bankanum verða aukin húsa- kynni fyrir rannsóknarstofu Há- skólans. Borgarstjóri upplýsti síðan, að byggingarkostnaðurinn við Blóðbankann sjálfan væri 558 þús. kr. og myndi því hlutur Keykjavíkurbæjar verða 279 þús. kr. Prófessor Níels P. Dungal, sem verið hefur driffjöður þessa nauðsynjamáls, hefur skýrt borg- arstjóra svo frá, að það nægi, að bæjarsjóður greiði þennan hluta sinn á næsta ári. Það er ekki gert ráð fyrir því, að bæjarsjóð- ur taki neinn þátt í öðrum kostn- aði við stofnun Blóðbankans en byggingarkostnaðinum. „Mímir" móhnælir háskólafrumvarpinu Á AÐALFUNDI Mímis, félags norrænunema, sem haldinn var mánudaginn 17. október 1952, var eftirfarandi tillaga samþykkt einróma: „Mímir, félag norrænu- nema, lýsir sig eir.dregið mótfaliið frumvarpi því til laga, sem nú liggur fyrir al- þingi, um breytingu á lögum nr. 21, 1. febrúar 1936, um Háskóla íslands. Félagið telur, að frumvarp þetta, ef að lögum yrði, sé til þess fallið að torvelda fá- tækum nemendum nám enn frekar en orðið er, og sér það enga frambærilega ástæðu til þess að prófa þá nemendur þyngra en aðra, sem vegr.a ytri aðstæðna geta ekki sótt tilskilinn tímafjölda, eins og i frumvarpinu felst. Af þessum sökum skorar félagið á hæst- virt alþingi að fella frumvarp þetta. Félagið mótmælir ennfrem- ur þeim starfsháttum há- skólaráðs að leggja frumvarp þetta fyrir alþingi án vilja og vitundar stúdenta.“ ALMENNUR fundur í Félagi ísl. iðnrekenda var haldinn í Þjóðleikhúskjallaranum s. 1. laugardag. Formaður félagsins, Kristján Jóh. Kristjánsson, setti fundinn og bauð fundarmenn og gesti velkomna, en gestir félags- stjórnarinnar á fundinum voru iðnaðarnefndir beggja deilda Al- þingis, bankaráð Iðnaðarbanka íslands h.f. og stjórn og framkv.- stjórn Landssambands iðnaðar- manna. Fundarstjóri var kjörinn H. J. Hólmjárn. ! Fyrstur tók til máls Kristján Jóh. Kristjánsson, en dagskrár- mál fundarins var, iðnaðarmál- in á Alþingi. Ræddi hann m. a. um nauðsyn þess, að iðnáðaí- stéttin sýndi sama samtakarríátt og aðrar atvinnustéttir, til þ'éss að koma fram réttmætum óskr- um um fyrirgreiðslu af hálfu löggjafans. Einnig fluttu fráíri- söguræður þeir Páll S. PálsSóB, framkvæmdastjóri F.Í.I, er raéddi um iðnaðarbankann og lánsfjár;- j þörf iðnaðarins, Björgvin Fr.ede- riksen, form. Landssambands 1 iðnaðarmanna, er gerði • greiri fyrir samþykktum síðasta -. iðu- þings og skýrði viðhorf -Lands- sambandsins til hinna ýmsu. iðn- aðarmála á Alþingi, Magnus-.,yíg- lundsson, ræðismaður, ræddi um innflutningsmál iðnaðarins og endurskoðun frílistans, Sveinn jValfells talaði um frumvarp til hlutafélaga. Útbýtt var á fundinum fjölrit- uðu yfirliti um iðnaðarmál, sem nú eru á baugi á Alþingi, og lýst afstöðu F. í. I. til þeirra. j Að framsöguræðunum loknum töluðu alþingisménnirnirGíslr; Jónasson, Emil Joná'sson, Skúli Guðmundsson og áteingrimur Aðalsteinsson. Gerði hver um sig grein fyrir áístöðu sinni til ýmsra iðnaðarmála, er nú liggja fyrir Alþingi og fylgdust fund- aimenn með ræðum þeijra af óskiptri athygli. Ennfremur töluðu H. J. Hólm- járn, Axel Kristjánssón og Kristján Friðriksson. Fundurinn var fjölsóttur af iðnrekendum og fór hið bezta fram. Létu fundar- menn í ljós ánægju sína ýfir þvi, að fá tækifæri til þess að ræða við og hlýða á mál þeirra þing rrianna er valdir eru af þing- ■ flokkunum til þess að fjalla sér staklega um iðnaðarmálin á Al- þingi. (Fiá FÍI). Hugulsemi í GÆRKVÖLDI eftir vinnutíma kom til mín bifvélavirki meJ 720,00 kr. að gjöf í lyftusjóð þann^ sem vistmenn hér stofnuðu fyrir nokkru. Fjárhæð þessi var gjöf frá , nokkrum starfsmönnum á Bi|reiðaverkstæði Steindórs Ein- arssonar. Mér þykir vænt um þessa ræktarsemi í garð gamla fólksins. Elli- og hjúkrunarheimil ið Grund fær sjaldan gjafir, enda er ekki leitað um fjárstyrk til starfseminnar, en það gleður mig ávallt, þegar ég finn samúð og velvild fólksins og skilning þess á því starfi sem hér er unnið. Þessi gjöf sýnir, að mennirnir* sem vinna við viðgerð á flutn- ingatækjum •— bifreiðum — skilja manna bezt hvers virði það er að geta ferðast — ekki aðeins í bifreið ■— heldur Og einnig innanhús — í lyftum. Þeir bera samúð í huga með gömla og lasburða fólki, sem oft á erfitt með stigagang og þess vegna hafa þeir lagt fram rausnarlega gjöf í lyftusjóðinn. Flyt ég þeim alúðar þakkir vist fólksins fyrir þessa hugulsemi. Gisli Sigurbjörnsson. 1 Aðalfundur Verzlun- armannafélags Hafnarfjarðar " AÐALFUNDUR Verzlunarmanna félags Hafnarfjarðar var haldinn 10. þ. m. en starfsemi þess hef- ur að mestu leyti legið niðri aS undanfórnu. Nú er hins vegar mikill áhugi meðal félagsfólks um að eila sem mest félagsstarf- ið og standa vörð um velferðar- og*hagsmunamál verzlunarfólks. í stjórn voru kosnir: Haraldur Guðmundsson form og meðstjóm endur Sævar Magnússcn, Jóhann T. Bjarnason, Hrefna Árnadóttir og Pálmi Ágústsson. Þá var kös- ín launakjaranefnd og hlútu kosningu: Kjartan Ólafsson, Helgi Sigurðsson og Jón Pálma- son.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.