Morgunblaðið - 21.11.1952, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.11.1952, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 21. nóv. 1952 ^ í H ADELAIDE 1 Skáldsaga eftir MARGERY SHARP \ I 1 tMmNimnmtfiiiiiiiiniiiiniiiiiiiiiiiiiMiimiifiimiiiniiiiiiiiiiiimMiniiiiiiiiifiimmiiiiiiiiifitiifimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiHiMiiMiMiiHiHtmiHiiiniiiiiiiiiiiiitiiiiiimiiiiiMiiiii* Framhaldssagan 67 ekki vindil?“ spurði hún. „Þú get ur talað við mig alveg eins og við vern annan karlmann. Finnst þér ekki kynferðismálin vera mjög mikilsvert vandamál?“ Herra Culver stirnaði. Hann hafði rétt höndina yfir í vindla- öskjuna en höndin stöðvaðist miðja vegu. Það var þó ekki vegna spurningar frænku henn- ar, heldur vegna þess að hann heyrði að pósturinn var að ganga upp stíginn heim að húsinu. Svo var barið að dyrum og áður en varði var Treff rokinn á fætur og til dyra. Það var ekkert bréf til hans, aðeins kort, en það var ítalskt frímerki á því. „Amica mio, viltu láta Bumpus eða Hatchards senda mér eitt ein- tak af bókinni eftir Fowler Cox, Oxford University Press, og einn- ig annað sem hann hefur skrifað, kærar kveðjur, M. Van Thal.“ Dodo var farin að leiðast biðin inni í stofunni. Hún kom í dyrnar til að gá að frænda sínum. „Treff ....“, sagði hún. „Haltu kjafti“, sagði Treff æst- ur. „Treff frændi! ....“. Hann reyndi að ná stjórn á sér, þegar hann sá undrunarsvipinn sem kom á hana. Hann stakk kort inu ! vasa sinn og reyndi að brosa til hennar. „Fyrirgefðu. En ég var einmitt að komast að því að bréfin mín hafa verið send í vitlaust heimilis fang. Hvað varstu að segja?“ Dodo hikaði og óskaði þess að hann mundi koma inn aftur og setjast. En henni sýndist hann vera að fara upp. „Ég var að spyrja þig hvað þér fyndist um kynferðismálin yfir- leitt ....“. „Kynferðismál'1. Treff brosti aftur. „Heilbrigðir menn eyða ekki of miklum tíma í að hugsa um það. Konur og blóm eru falleg. Hvorki karlmenn né bý- flugur geta verið án þeirra. Mér hefur persónulega alltaf fundist býflugan skynsöm“. Dodo horfði á hann alvarleg í bragði. Þetta var sama platan sem hafði verið spiluð upp aftur og aftur. Án þess að segja eitt orð, snéri hún sér við í dyrunum. Og Treff Culver fór upp. 2. Við morgunverðin næsta morg un lék Alice á als oddi og sagði frá hljómleikunum kvöldið áður. Dodo og frændi hennar voru bæði fremur þögul. Það var rigning úti. Freddy Baker vopnaði sig regn- kápu og regnhlíf þegar hann fór til vinnunnar. Þegar hann var farinn, lýsti Treff því yfir að hann þyrfti líka að fara til borg- arinnar. „í þessu veðri. Hvaða vitleysa, Treff“, sagði Alice. „Þú færð kvef“. Treff benti á það að hann hefði i þegar fengið kvef. „Þá versnar það“. Treff stóð upp og hnerraði og j spurði hvort hann mundi geta fengið lánaða regnhlíf. „Þú getur fengið mína“, sagði Dodo, „en það er bara gat á henni“. „Úr því þú þarft að fara, því fórstu þá ekki með Freddy? Held urðu að þú komist ekki af með að hringja?" „Þú getur ferigið lánaða regn- kápuna mína líka“, saeði Dodo. „Hún er úr grænu silki“. Það endaði með því að Treff fór I sínum eigin frakka með tvo trefla og regnhlif sem Hambro gamli hafði áður átt. Það var falleg silkiregnhlíf með gylltum röndum. ,Hann týnir henni. Það veit ! ég“, sagði Dodo. j Hún hékk aðgerðarlaus heima, hringdi til Sonju, en það svaraði enginn og loks fór hún inn í stof- una til móður sinnar, hún sat þar | við sauma. Dodo spurði hana um greinarnar sem Treff frændi henn j ar hafði skrifað og Alice tók þær I upp úr skúffunni. Dodo settist með þær á gólfið og las þær gaum gæfilega. Hún sá að birtar höfðu verið eftir hann greinar um listir fjör- um, fimm sinnum á ári og ekki einu sinni það. „Þetta getur ekki verið allt, mamma?" „Jú, það held ég“, sagði Alice. „En ekki hefur hann lifað af þessu“. „Fólk leitar ráða til hans og ég býst við að það hafi borgað hon- um fyrir. Treff hefur alltaf getað séð sér farborða ....“. „Áttu við að hann hafi lifað á kunningjum?“ „Dodo. Ég banna þér að ta^a niðurlægjandi um frænda þinn“. „Ég er bara forvitin“, sagði Dodo. „Mig langar bara til að vita hvernig hann hefur fengið nóg að borða“. Alice hafði líka siálf velt því fyrir sér. Hún laeði frá sér saum- j ana og hugsaði sig um. „Ég he.vrði það einu sinni .... ' það var frú Ambrose sem sagði mér það .... að þetta „Palasso" sem Treff skrifaði frá væri ekki I gistihús í venjulegum skilningi, heldur væri það hús rikrar ekkju. Ef til vill bjó Treff hjá henni . .“. „Ég er viss um að hann hefur búið hjá henni“. „Dodo“. „Hvað hefur hann lengi haft það heimilisfang?“ „í mörg ár“. „Þá er ég viss um að hann hef- ur verið elskhugi hennar", nagði Dodo æst. „Það væri eina afsök- unin. Það getur ekki verið að hann hafi búið þar án þ"ss að vera elskhugi hennar .. Eg get ekki hugsað mér að hann hafi verið þar eins og köttur sem læt- ur strjúka sér og færa sér rjóm- ann. Og nú hefur hann yfirgefið hana, vesalinginn, vegna þess að hann hefur haldið að það væri gaman að koma aftur til Eng- lands. Mér finnst það andstyggi- legt“. Stundum kom Alice Baker fólki á óvart, því hún átti það tii að vera kjarnyrt og skýr í hugs- jun. Nú leit"hún á dóttur sína og sagði ákveðin: „Þú ert ekki sjálfri þér sam- kvæm. Þið unga fólkið eruð alltaf j að tala um að eldra fólkið sé harð gert. Ef Treff frændi þinn hefur 1 þegið gestrisni af konu í öll þessi ár, án þess að sýna henni blíðu- jhót, þá hefur hann sigrað kenn- ingar ykkar, og þú ættir að dást j að honum fyrir það. En ef þér ' finnst hugsjónir hans andstyggi- legar, þá eru þínar það engu að síður.“ | Dodo þagði. Eftir nokkra um- ' hugsun sagði hún: „Við erum.öll harðger, mamma. , Þá stöndum við jafn að vígi. Þessi kvenmaður, sem Treff frændi hef ur haft gott af er ef til vill hjálp- arvana vesalingur, sem getur ekki séð um sig sjálf“. | Alice hafði vit á því að svara engu. Dodo setti úrklippurnar í! skúffuna aftur og fór út. Hún var að reyna að viðurkenna ekki von brigði fyrir sjálfri sér. 3. Herra Culver stóð rennvotur hjá Hatchards og var áð kaupa bókina sem frú Thal hafði beðið um. j Þegar hann kom heim, hóstaði hann og hnerraði á víxl. Hann hafði fengið að vita það í bóka- búðinni að herra Cox væri sjálf- ur staddur á Ítalíu og mundi verða þar fram á vor. Heimilis- fang hans var í Pallazzo í Flor- enee. Alice lét Treff hátta, þegar hann kom heim og það var stjan að við hann í þrjá daga. Dodo var bannað að koma nálægt honum. Hún átti að sksr'a hálsinn vand- lega oft á dag til að smitast ekki og fara til að heimsækja frænku sína, Ellen, og sýna áhuga sinn á húsinu. „Maður skyldi halda að þú ættir ekki eftir að búa þar“, sagði Alice. „Þú sýnir engan áhuga fyrir því“. UJ Hrói höfttur snýr afftur eftir John O. Ericsson 58. Nú er ykkur frjálst að fara til Nottingham, sagði hann. En reynir ekki að laumast inn í skóginn og bíða þar unz dimmt er orðið. Dagsbirtan skal fá að skíha á skömm ykkar. Annars liggja þrír af mönnum okkar í leyni hinu megin við veginn. Ef annar hvor ykkar stígur spor í aðra átt, skul- um við sjá um, að þið gleymið því ekki svo auðveldlega. | Langen tók úr örvamal sínum ör með grágæsarfjöður á og rak hana upp undir nefið á Normandímönnunum og brosti um leið. Bróðir Tuck hafði einnig nokkur vel valin orð að segja við þá að skilnaði. I — Auðvirðilegu hrakmenni, sagði hann, og var auðfundið, að honum létti við að geta sagt það. Nú berið þið það þó greinilega og ótvírætt utan á ykkur hvers konar menn þið eruð. Og allar manneskjur, karlar sem konur, munu hlæja að ykkur, hvar sem þið farið. Nú geta allir séð hvað Hrói höttur gerir við þá samvizkulausu ágirndarpúka, sem æða eins og úlfar gegn hinum hjálparvana og féfletta fátækl- ingana inn að skinninu. í dag geta allir hlegið, sem eru ekki nógu öflugir til að reka sjálfir réttar síns gegn hinum vold- ugu, því að nú vita þeir, að það eru til menn, sem vilja hjálpa þeim. — Og þú gráðuga skriðlús, sem útsýgur bóndann og dirf- ist að leggja saurugar krumlurnar á frjálsa menn. Hér sneri bróðir Tuck sér að Stork, sem stóð albúinn að flýja leiðar sinnar, en gat það ekki, því að Litli-Jón stóð fyrir honum og varnaði honum þess. — Þiggðu kveðjukoss af eina kjaft- inum, sem hefir nokkurn tíma þráð að kyssa þig. Verðir þú nokkrn tíma á vegi mínum framar, hengi ég þig upp í belti þit.t. Snæri er of gott handa þér, hrakmennið þitt. Strauvélarnar fyrirliggjandi Verð kr. 1.990.00 Hagkvæmir greiðsluskilmálar. HEKLR M/F. Skólavörðustíg 3. — Siml 4748. Ný sending af kápum ftekin upp i dag 3Mur /,/ Ausfturstræti 10 Eftirsóftftu strigaefmn í fjölbreyttu úrvali. Verð kr. 26,40 meterinn. K 4 llMIIIIMIMMMMIIIIIIIIIIIIIIIIIMMMMMMimilllllMIMIIIIIIII

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.