Morgunblaðið - 28.11.1952, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 28.11.1952, Qupperneq 8
MORGUIVBLAÐltí Föstudagur 28. nóv. 1952 Ctg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgSarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriítargjald kr. 20.00 á mánuði, innanlands. t lausasölu 1 krónu eintakið Fjárlögin í deiglunni FJÁRLÖGIN eru nú í deiglunni á Alþingi. í rúmlega einn og hálf- an mánuð hefur fjárveitinga- nefnd setið að störfum. Hún hefur að vanda lagt mikla vinnu í að afla upplýsinga um rekstur rík- isins og einstakra stofnana þess. Samkvæmt frv. til fjárlaga fyrir árið 1953 voru tekjurnar áætlaðar tæplega 388 millj. kr. Er það um það bil 12 millj. kr. hærra, en þær voru áætlaðar á f járlögum yfirstandandi árs. Hins vegar urðu tekjur ársins 1951 samkvæmt ríkisreikningi samtals kr. 413.5 millj. eða 115.5 millj. kr. hærri en áætlað var í fjárlög- um það ár. Rekstrarútgjöld urðu á þvi ári 304.5 millj. kr. og rekstr- arhagnaðurinn því rúmlega 109 millj. kr. Greiðslujöfnuður varð hagstæð ur á árinu um rúmar 59.3 millj. kr. Því fé, var eins og kunnugt er, að mestu ráðstafað til ýmissa nauðsynlegra framkvæmda í landinu, svo sem til bygginga smóíbúða, iðnaðarbanka, skóla, og hafnarframkvæmda o. fl. Ef athuguð er fjárhagsaf- koma ársins 1951, kemur í ljós, að í lok októbermánaðar voru tckjur ríkissjóðs orðnar 318 millj. króna. Á sama tíma í ár voru þær orðnar 316 millj. króna. Fjárveitinganefnd ger- ir ráð fyrir að heildartekjurn- ar á þessu ári verði um 411 millj. króna, eða 35 millj. kr. hærri en áætlað var. I lok októbermánaðar s.l. voru rekstrarútgjöld orðin 263 millj. króna, eða tæpum 30 millj. kr. meira en á sama tíma og í fyrra. Hins vegar voru þau 47 millj. kr. lægri en tekjurnar á sama tíma. Enda þótt auðsætt sé, að rekst- ursafkoma ríkissjóðs verði engan vegin eins góð á þessu ári og s.l. ári, er þó auðsætt af þessum töl- um, að hún verður að teljast sæmileg. Óhætt er að gera ráð fyrir að nokkur greiðsluafgangur verði. hækkanir ná fram að ganga, hlýtur það að hafa þau áhrif, að útgjöld fjárlaga hækki um milljóna tugi. Þeim útgjalda- auka yrði ekki hægt að mæta nema með öflun nýrra tekna, hækkun skatta eða tolla. Um það ríkir hins vegar naumast ágreiningur, að opinberar álög ur séu nú orðnar það háar, að ekki sé á bætandi. Á síðasta þingi var líka um það rætt, að undirbúa endurskoðun skattalaga, með það fyrir augum að koma skaplegri skipan á skattheimtu ríkisins. Sjálfstæðis- menn höfðu forystu um tillögu í þessa átt. Vitað er að nefnd hefur setið á rökstólum s.l. sumar til athugunar þessu máli. En árang- urinn af starfi hennar sézt hvergi ennþá. Allt situr við það sama í skattamálunum. Fjárlagafrum- varpið byggist á sömu tekjustofn- um og áður. Frá fjármálaráðherr- anum sjást engar tillögur um al- mennan sparnað í ríkisrekstrin- um, eða lækkun skatta. Það skal fúslega játað, að samdráttur ríkisbáknsins, sem undanfarna áratugi hefur ver- ið að þenjast út, er engan veg- inn auðunnið verk. En nokkru mciri viðleitni í þá átt mætti þó gjarnan verða vart hjá þingi og stjórn. íPrag Samkvæmt tillögum fjárveit- ingarnefndar er gert ráð fyrir að tekjuáætlun fjárlagafrv. hækki samtals um 9.7 millj. kr. Hækkun þessi sprettur þó ekki af því, að nefndin leggi til að tollar og skattar verði hækkaðir. — Hún hefur hins vegar breytt áætlun- inni nokkuð, til samræmis við niðurstöðurnar á þessu ári. Ef litið er á gjaldaliðina, hefur frv. hækkað um rúmar 8 miilj. króna í meðferð fjárveitinganefndar. Er þar gert ráð fyrir að rekstrar- hagnaður verði 37.6 millj. kr., en greiðslujöfnuður á sjóðsyfirliti hagstæður um 2.1 millj kr. Óhætt er að fullyrða að þetta verði ekki endanlegar niðurstöðu tölur á fjárlögum ársins 1953. — Fjárveitingarnefnd skýrir sjálf frá því í nefndaráliti sínu, að hún hafi ekki að fullu lokið tillögum sínutn um breytingar á 18., 20. og 22. grein. Kveðst hún taka þær til athugunar- fyrir þriðju um- ræðu. Auk þess koma svo breyt- ipgartillögur frá einstökum þing- mönnum. Má gera ráð fyrir að einhverjar þeirra nái samþykki. ★ Loks er svo þess að geta að ef hinar stórfelldu kröfur verkalýðsfélaganna um kaup-i NIÐURSTAÐA réttarhaldanna í Prag hefur orðið svipuð og ráð var fyrir gert. Hinir ákærðu kommúnistaforingjar hafa flestir verið dæmdir til dauða. Höfuð þeirra verða látin fjúka. Þannig gengur lífið í þeim löndum, sern njóta „friðar“ og „öryggis“ sovétskipulagsins! Meðal hinna dauðadæmdu eru eins og kunnugt er menn, sem gegnt hafa æðstu virðingar- og trúnaðarstöðum innan kommún- istaflokks Tékkóslóvakíu. Sjálfir höfðu þeir staðið fyrir „hreins- unum“ innan flokks síns. En allt í einu er röðin komin að þeim sjálfum. Þeir voru gripnir, settir í fangelsi og sviftir völdum og áhrifum. í blöðum kommún- ista um allan heim voru þeir stimplaðir sem „svikarar'* og „njósnarar". Gyðingaofsóknir leppríkjuan Rússlands KOMMUNISTARETTAR- HÖLDUNUM í Tékkóslóvakíu er nú lokið, eins og kunnugt er, og er ekki annað sýnna en að kommúnista forsprakkarn- ir vinni öllum árum að því, að gera samtök Gyðinga í Austur-Evrópu ábyrg fyrir þeim Titóisma, sem nú virð- ist mjög fara í vöxt austur har. í miðjum réttarhöldunum gerð ist sá furðulegi atburður, að foringi kommúnistaflokks ísra- els, Mardochai Oren, skaut skyndi lega upp kollinum í rétíarsaln- um til að bera vitni gegn Slanskí. r n samkvæmt áætlun Skjótt hefur sól brugðið sumri. Það má nú segja. Það er skammt á milli æðstu valda og högg- j stokksins í löndum „alþýðulýð- ræðisins". Er ekki eitthvað rotið í þjóð- ! félögum slíks réttarástands? — Áreiðanlega. — Sannleikurinn er auðvitað sá, að „hreinsanirn- j ar“, fangelsanirnar og aftökurn- ' ar í löndum kommúnista eru ■ greinilegasta vitnið um það nið- ! urlægingarástand, sem þar ríkir. Jafnvel æðstu menn kommún- istaklíkunnar eru hræddir hver við aðra. Öðru hverju eru nokkr- ir drepnir. En enginn veit, að hverjum röðin kemur næst. Nú er jafnvel rætt um að sjálfur; Gottwald kunni að verða næsta j fórnardýrið í Tékkóslóvakíu. 1 búðum kommúnista, leysta úr haldi. Síðan hefur ekkert af hon- um spurzt, fyrr en nú, að hann birtist í einum andstyggilegasta réttarsal heims austur í Prag. FENGU EKKERT SVAR í sumar, sem leið, spurðist ísraelsstjórn fyrir um það í Prag hver örlög hans hefðu orðið, en fékk ekkert svar. — Hins veg- ar var Óren einn þeirra, sem gaf „játningu", enda þótt hann væri ekki nema vitni og sagðist hafa farið þessa ferð í því skyni að reka njósnir fyrir Zíónistasam- tökin og verið handtekinn af þeim sökum. LÉK HLUTVERK SITT VEL Hins vegar lék hann hlutverk sitt í hinum kommúniska grín- leik með hinni mestu prýði, og lýsti því m. a. yfir, að það hefði verið varautanríkisráðherra Júgó slavíu, Alez Bebler, er fyrstur hefði skýrt honum frá svikastarf- semi Slanskís. Árið 1943 hefði svo júgóslavneski utanríkisráð- herrann staðfest þessi ummæli í hans viðurvist og bætt því enri fremur við, að Títóismanum hefði vaxið ásmegin í Austur-Evrópu- löndunum. Sagðist utanríkisráð- herrann hafa þessar upplýsingar frá Slanskí, en sendiherra ísraels í Prag, Avríel Ehuda, hefði kom- ið þeim til sín. Óren skýrði enn fremur frá því í þessari „játninga“-ræðu sinni að honum væri kunnugt um það, að margir stjórnmála- menn í Vestur-Evrópu, þ. á. m. Morrison, fyrrum utanríkisráð- herra Breta, hafi skipulagt und- ! irróðursstarfsemi í Tékkóslóva- kíu í því skyni að kollvarpa hinni kommúnisku „lýðræðisstjórn" landsins. ALLSKYNS „JÁTNINGAR". Eins og kunnugt er, hafa sak- borningarnir „játað" sekt sína hver í kapp við annan. Hafa þeir „játað" á sig Títóisma, Zíonisma, njósnastarfsemi og alls kyns föðurlandssvik. En þó má segja, að „játningar" Clementis, fyrrum utanríkisráðherra tékknesku kommúnistastjórnarinnar hafi vakið einna mesta athygli um heim allan. „ÉG ER SVIKARI“ Clementis komst m. a. svo að orði: „Ég er svikari. Ég er njósnari. Ég hef alltaf verið afturhalds- seggur. Þegar í æsku var ég borgaralegur þjóðernissinni. Ég hef alltaf reynt eftir megni að innleiða kapitalismann í Tékkó- slóvakíu. Ég hef æ ofan í æ lát- ið erlendum sendimönnum ýmis leyndarmál í té. Þegar ég var í Lundúnum 1939 komst ég í sam- band við njósnahring, sem ég hef alltaf haft samband við síð- an.Ég var alltaf andvígur samn- ingnum, sem Stalín gcrði við Hitler á sínum tíma“. — Og trainnaiu a bls. 12 Velvakandi skrifcn: ÚS DAGLEGA LÍFINU Óren þessi hvarf á dularfullan hátt fyrir einu ári, er hann var á ferðalagi fyrir austan járntjaldið i þeim tilgangi að reyna að fá Gyðinga, sem verið hafa i faoga- Skautasvellið á Tjörninni ÞAÐ er komið svell á Tjörnina og krakkarnir eru komnir á skauta. Hundruð unglinga renna sér um sléttan ísinn, gleypa gol- una og sækja þrek og yndi í úti- veruna. Fáar íþróttir eru eins hollar og skemmtilegar og skautaíþróttin. Það er ekki mikil hætta á að fólk ofreyni sig á skautum. Aðalatrið- ið er að renna sér sem léttilegast áfram. Þeir, sem geta leika alls- konar listir, fara í hringi, renna sér aftur á bak og rispa stafina sína í svellið. En þótt Tjörnin sé grunn er þó rétt að ganga þar varlega um gleðinnar dyr, sérstaklega fyrir iitla stráka og stelpur. ísinn er misjafnlega sterkur og er enginn gamanleikur að detta í vatnið í frosti. Farið þess vegna varlega, krakkar mínir, og búið ykkur líka vel. Kuldaboli getur verið anzi hrekkjóttur. Hreyfing á handritamálinu EINHVER hreyfing er að kom- ast á handritamálið við Eyr- arsund. Er nú næstu daga von á frumvarpi frá Hvidberg, mennta- málaráðherra, um ákveðnar til- lögur í málinu. Fréttaritari Mbl. í Kaupmanna- höfn hefur skýrt frá því í frétta- skeyti, að Berlingatiðindi hafi látið þau orð falla fyrir skömmu, að meirihluti danska þingsins vildi að öll handritin yrðu af- hent íslendingum. Þetta þykja mér góðar fréttir og má vera að sannar séu. Meðal danskra stjórnmála- manna hefur ríkt vaxandi skiln- ingur á þessu máli. Er það áreið- anlega ekki hvað sízt því að þakka að margir danskir stjórn- málaleiðtogar hafa komið hingað til lands hin síðari ár. Þeir hafa kynnst bæði íslenzkum stjórn- málamönnum og menntamönn- um og fundið þann einlæga á- huga, sem hér ríkir meðal al- mennings fyrir endurheimt hinna fornu þjóðardýrgripa. Hafa kynnst landinu ÞESSIR norrænu frændur okk- ar hafa einnig kynnst land- inu, Sögueyjunni, eins og ísland er oft nefnt á Norðurlöndum. — Koma þeirra hingað hefur skapað þeim skilning á því, að hér er vagga norrænna fræða. Hér hafa flest handritin verið skráð og varðveitt þangað til umkomu- leysi þjóðarinnar varð þess vald- andi að þau voru flutt úr heima- högum sínum. Ástæffa til bjartsýni MEÐAL þeirra manna, sem hingað hafa komið og kynnst afstöðu fslendinea í hand- ritamálinu er einmitt Flemming Hvidberg, núverandi mennta- málaráðherra. Hann kom hingað á fund Norræna þingmannasam- bandsins, sem hér var haldinn sumaríð 1947. Hvidberg hefur sjálfur sagt frá því, að dvöl sín hér hafi veitt sér aukið útsýni og skilning á handritakröfum ís- lendinga. Ýmsir aðrir merkir stjómmála- menn, svo sem Hans Hedtoft, leiðtogi jafnaðarmanna, og Ole Björn Kraft, einn af dugmestu forystumönnum íhaldsflokksins danska, hafa einnig komið fram af velvild og drengskap gagnvart okkur í þessu máli. Nokkur á- stæða er því til bjartsýni um úr- slit handritamálsins í danska þinginu. Um það þarf hins vegar ekki að fara í neinar grafgötur, að ýmsir af prófessorum og forvígis- mönnum Hafnarháskóla eru eng- an veginn eins frjálslyndir og sanngjarnir í okkar garð og stiórnmálamennirnir í Ríkisdeg- inum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.