Morgunblaðið - 03.02.1953, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 03.02.1953, Qupperneq 7
IÞriðjudagur 3. febrúar 1953 WORGVTiBLAÐSÐ ^nr ai nrmntmifiiiiiih (iiiifiiiimiiutiMMiniiiiimiiMmiimiUiiiiiiiimmiMmiiiiiiitiiiiffNHniiiiiimiiiiiiimdiiiimiiiiiiiiiimiiiiiiiiniiiniimiiiiiiiininrtimiiiiimrrmimtimndHHUiiuiiluifiiiimmvtmnnnmKtmmmmmmunmiininvnilflvil B.MMmimi«<’.IIMIIMMIIIIMím»ll(n»((M»»Mmmil*M(fl«MIIIIIIIIIIIIII Skátareglan að góðum á ven Díooin oci luiMiiMMiiiiMuiMmrMiiiMiiiiiiiMiMrmfmirmiiMiMiimiiiiiiiiriimiiimiiiiiai „AÐ gera skyldu sína við guð og ættjöióina” — þannig hljóðar fyrsti liðurinn í skátaheitinu. Það er stórt og háleitt loforð og felur í rauninni í sér algera mannlega fullkomnun, því að eru ekki allar skyldur okkar fyrst og fremst gagnvart guði? Það þarf þess vegna ekki lítið til að vera „góður skáti" og fróð- iegt væri að skyggnast ofurlítið inn á starfssvið þessa merka fé- lagsskapar. SKÁTAHHEYFINGIN Á ÍSLANDI 40 ÁRA S.L. ÁR Við skulum í því skyni snúa okkur til einnar heiðurskonu inn- ’ an skátahreyfingarinnar, sem veit allt til hlítar um þessi mál. Hún heitir Hrefna Tynes og hef- ur urn langt slceið unnið að mál- efnum skáta, íyrst sem skátafor- íngi norður á Siglufirði um 10 ára bil, síðan úti í Noregi á styrj- aldarárunum og frá árinu 1946 hefur hún verið foringi Kven- skátafélags Reykjavíkur. — Skátahreyfingin á fslandi átti 40 ára aímæli s.l. ár, segir frú Hrefna, —• þ.e. fyrsta skáta- félagið var stofnað árið 1912, fimrn árum eftir að hreyfingin hófst í heiminum, en það var árið 1907, í Englandi eins og kunnugt er. I þessu fyrsta islenzka skáta- félagi voru þó aðeins drengir. Fyrsta kvenskátafélagið, Kven- skátafélag Reykjavíkur, var stofn að 10 árum síðar, og var Jakobina Magnúsdóttir, hjúkrunarkona, hinn fvrsti foringi þess. Hefur hún verið starfandi skáti alla tíð síoan og er nú foringi „senior“- deildar kvenskáta í Reykjavík. GERA BÖKNIN AD GÓÐUM OG NÝTUM BORGURUM Úti á landi eru starfandi skáta- félög í öllum kaupstöðum og íiest um þorpum og nemur tala ís- lenzkra skáta í dag, stúlkna og og Ræif við frú Kre boigurum Tynes, Hjítríi og hindiirvitni Hjéfrú í sambanái við maiargerð og anneð getur off verið skaðieg. Frú lírefna Tynes. álía, frá 8—11 ára, skáta frá 11 ára aldri, svanna, um 20—30 ára og senior-skáta, sem sumir hverj- ir eru stofnendur félagsins og vinna stöðugt mikið og óeigin- gjarnt starí' í þágu þess, sein fjár- liagslegur bakhjallur og' hjálpar- hellur á ýmsan hátt. Á Ijósálfastiginu er aðaláherzl- an lögð á, að „skáti er hjálpsam- ur“, ætíð reiðubúinn til að rétta hjálparhönd, þar sem þes.s gerist þörf og eftir því, sem í hans valdi stendur. Þegar ljósáffurinn verður að skáta keppir hann fyrst og fremst að því að vera „ailtaf viðbúinn“, þ.e.a.s. að vera sem víðast heima, þannig að hann kunni að bregðast rétt og skyn- samlega við hinum ýmsu vanda- málum í daglegu lífi og viti hvað Sokkaþvottur að Úlfljótsvatni. drengja, um þremur þúsundum. — Hvað getið þér sagt mér um starfsemi K.S.F.R.? — Það var upphaflega stofnað innan vébanda K.F.U.K. hér í Reykjavík, á kristilegum grund-! velli. Hefur félagið jafnan gert sér far um að starfa í þeim anda og fyrst og fremst lagt áherzlu á þá hlið starfsins, sem varðar upp- ^ eldi barna og ur.glinga. Skáta hugsjónin vill beita á- hrifum sínum til að gera börnin að góðum og nýtum borgurum, temja þeim allar góðar dyggðir og hvetja þau til drengilegrar breytni hvar og hvernig sem á sténdur. SKÁTl ER HJÁLPSAMUR Kvenskátafélag Reykjavíkur skiþtist eftir a'dri, i sveitir Ijós- á að gera undir vissum kringum- stæðum. IIJALP I VIDLOGUM Mikil áherzla er lögð á hjá'lp í viðlögum og er ætlazt til, að skátar scu allvel að sér á því sviði. Sá ég eitt sinn sem oftar dæmi þess, hve slík kunnátta er nauð- synleg og sjálfsögð hverri mann- eskju: stúlka varð fyrir slysi, hlaut djúpan skurð á læri, sem blæddi mikið. Enginn iæknir var við hendina og allir sem við- staddir vöru stóðu uppi ráða- lausir hvað gera skyldi til að stöðva blóðrásina, þangað til syst ir stúlkunnar, 13 ára skútastúlka, kom til og tróð sárið eins og við þurfti. SKATASKOLtNN Á ÚLFÍ JÖTSVATNI — Hvar og hvernig fer fram þéssi uppí æðsla skátanna? — Skáfafélögin stofnuðu árið 1942 til sérstaks skátaskóla á Ulf- Ijótsvatni. Hann er í rauninni tveir áðskildir skóiar, annar fyrir drcngi og liinn fyrir stúlkur. Á hvérju sumri fara þar fram 8—10 vikna námskeið. Stúlkurnar læra þar almenn skátafræði og heim- ilisstörf þannig, að þær eiga að vera, að námskeiðinu loknu, fær- ar um að sjá um heimili í forföll- um móður sinnar. Mjög mikil að- sðkn er að námskeiðum þessum, svo að miklu færri en vilja kom- ast þar að á hverju ári. Að jafn- aði eru um 40 stúlkur á nám- skeiðinu í Senn, á mismunandi aldri, svo að erfitt er að sam- ræma kennsluna scm skýldi við allra hæfi. ÓFULLNÆGJANDI HÚSNÆDI Að vetrinum fer öll fræðslu- og félagsstarfsemi fram i Skátcf- heimilinu við Snorrabraut, sem skátafélögin sameiginlega fengu frá bænum eftir stvrjöldina til að hafa þar bækistöð sína. Hús- næði þetta er annars langt frá því að vera fullnægjandi, og keppum við að því að fá fundarherbergi í hinum ýmsu hverfum bæjarins, þ.e. aíltóf Iangt er fyrir mikinn fjölda barnanna að sækja fundi í Skátaheimilinu. Skátafræðslan hvílir aðallega á herðum flokksforingjanna, sem valdir eru með sérstöku tilliti til kunnáttu þeirra og forystuhæfni og bera þeir áð nokkru leyti upp eldislega ábyrgð á flokki þeim, sem þeim er trúað fyrir. VAXANDI ÁIIUGI — Og eru ekki stúlkurnar yð- ar brennandi af áhuga í skáta- starfinu? — Ahuginn hefur farið vax- andi nú upp á síðkastið. Hins vegar var eins og' að dofnaði ein- kennilega yfir því um 'nokkurra ára skeið, um og eftir landsmótið 1948. Mér fannst ég verða vör við breyttan anda á meðal barnanna og svo er reyndar enn. Þau kvarta yfir, að þegar gagnfræðanámið byrji hafi þau engan tima af- gangs til að sinna félagslífi og starfi skátanna. Ég held, að hér sé einnig um að ræða misskilning 'p.f hálfu foreldra. Skátastarfsem- in á fvrst og fremst að vera börn- unum holl tómstundastarfsemi og fu'Mt tillit er tekið til þess, að þan þurfi að helga skólanáminu hægilegan tíma. HOLLUR OG GÓÐUR FÉLAGSSKAPUR 12—13 ára gamlar telpur þurfa frcmur en á nokkrum öðrum aldri á hollum og góðum félags- skap að halda og það er einmitt þesskonar félagsskapur, sem skátastarfið leitast við að sjá þeim fvrir. — Hefur K.S.F.R. einhverjar merkar fyrirætlanir á prjónun- um? — Við þurfum fyrst og fremst að keppa að bættu ástandi í hús- næðismálum okkar sem starfsem Framh. á bls. 12 FÓLK er almennt auðtrúa á alls- konar hjátrú og hindurvitni, sem slegið er frám, og hefur alltaf verið. Þessa gætir þó ekki eins mikið og fvrr á öldum, en lcyf- arnar eru ennþá víða við lýði, ekki hvað sizt í allskonar húsráð- ■ um. Nú dettur engum í hug að trúa því að bezta ráðið við lungna bólgu sé að þurrka margfætlu, sem hefur drukknað í hunangi, steyta hana, blanda duftið í geit- armjólk og drekka það, með vax- andi tungli. En ef húsmóður 20. aidarinnar er sagt, að eggin springi aldrei, ef hún setur brennda eldspýtu í vatnið, sem þau eru soðin í, þá reynir hún 1 þao strax við næsta tækiíæri. 1 ÞAÐ ER EKICI RÉTT . . . I Það er t. d. ekki rétt að salt- lögur sé mátulegua sterkur, ef ,egg flýtur á honum. Vatnið er rúmlega 70% af innihaldi eggs- ins og það gufar upp, í gegn um skurnina, eftir því sem eggið eldist. Nýtt egg flýtur því á legi, sem eldra egg sekkur í. Það er heldur ekki rétt að ramma bragðið, sem kemur af kaffi þegar það sýður, hverfi, ef köldu vatni er renn í gegn um stútinn á könnunni. (Það fylgir reglunni, að vatnið verður að fara í gegn um stútinn). Rángt er það líka, að menn fái vörtur á hendurnar ef þeir þvo sér upp úr vatni, sem egg hafa verið soðin í. Sömuleiðis er það rangt að „mayonnaise" aðskilji sig ef ekkí er alltaf hrært í sömu átt. Það er líka rangt að ekki sé hægt að stífþeyta eggjahvítur, et nokkur ögn af eggjarauðu er saman við. HJÁTRÚIN GETUR VERID SKAÐLEG Gömul hjátrú er það líka a? kjöt verði ekki þurrt, ef það er „spekkað". Safinn rennur ein- mitt úr kjötinu í gegn um göt- in, sem stungin eru í það og kjöt- ið verður þurrara fyrir bragðiff. Ef hætta er á því að kjötið sá of þurrt, er betra að binda ,spekk. ið‘ utan um það. Hjátrúin við matargerðina get- ur líka stundum verið beinlínis skaðleg: Húsmóðir kaupir t. d. steik til sunnudagsins, og vegna þess að hún hefur látið sannfær- ast af hindurvitnum, steikir húrs. hana lítið eitt á laugardagskvöld- ið, vegna þess að þá á hún að* geymast betur. En hvað segir frægur danskur gerlafræðingur„ Svend O. Koch, að nafni: „Þæi fáu bakteríur, sem eru í yzta kjöfr laginu, drepast, en þær sem eru. inni í stykkinu, dafna við hitann, sem fram kemur við steikinguna og geta framleitt eitur, og það eyðileggst ekki við steikinguna na;sta dag. Árangur: Magaverkir og eitrun, eða eitthvað þaðan aP verra“. UTAN ELDIIÚSSINS En hjátrúin á ekki aðeina Framh. á ols. 12 Tvær íilenikar konur fá verð- jóSabord Tclf konur írá sex lcrduni fáky þáft í ksppninnr TVÆR íslenzkar konur, Soffía Stefánsdóttir og Bergljót Rafnar^ en þaer eru giftar Páli Gíslasjmi og Bjarna Rafnar, sem báðir es-ur læknakandídatar á sjúkrahúsum í Danmörku um þessar mundirr gátu landi sínu frægðar í desember s. 1. — Tóku þær þátt í sam- keppni ásamt 10 öðrum konum frá 6 löndum, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Englandi, Bandaríkjunum og íslandi, um það, hver gætjt útbúið fallegasta jólaborðið. íslenzka borðið fékk II. verðlaun. I TONDER I DANMORKU í desember voru Páll og Bjarni á sjúkrahúsinu í Tönder í Dan- mörku, og konurnar að sjálf- sögðu með þeim. Dag nokkurn kom frú ein að máli við þær, og fór þess á leit við ungu íslenzku konurnar að þær útbyggju fyrir hana íslenzkt jólaborð — cg Soffía og Bergljót tóku það að sér. Til að byrja með vissu þær ekki um, að þetta var samkeppni, en kvenfólkið í Tönder gekkst fyrir góðgerðarbazar og átti sam- keppnin að fara fram þar. hætta við, en þá var búið tilkynna þátttöku þeirra í dág- blöðum bæjarins og of seini vas* að snúa við. LAUFABRAUÐIÐ ÁTTI gg SINN ÞÁTT í SIGKINUM Tíndu þær nú til allt borð- skraut, sem þær áttu, og bökuðu jafnframt laufabrauð, sUðu hangi. kjöt og létu búa til handa sér skyr. , Borðið var skreytt með íslenzk Er þær komust að því, að þetta , um fánaborðijm, speglum, jóíja- var samkeppni, ætluðu þær að CísSfji da< Mey var manni gefin áður en hún var átta nátta, átti barnið ársgömul og dó áður en hún fæddist. Ráðning á bls. 12 greinum og öðru því skrauti, sem. þær áttu. Síðan létu þær mat- inn á borðið, og fóru síðan heim. til sin. Um kvöldið, kl. 10, er bazar- inn var úti, áttu þær að koma til þess að sækja borðbúnaðinn, óg það sem á borðum hafði ver- ið. Þá var búið að kjósa og telja atkvæðin og viti menn — ís- lónzka borðið hafði þá fengið II. verðlaun, sem var skínandi falleg ur hördúkur. — Hrós sé þeim og' heiður fyrir frammistöðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.