Morgunblaðið - 17.02.1953, Side 11
Þriðjudagur 17. febrúar 1953
MORGVNBLAÐIÐ
m
Magnús iónsson, alþm.:
Vandræðafálm Hannesar Pálssonar
Þefta var neyðarmerki
En attt er é huldu um, hver sendi það.
STAÐREYNDIRNAR TALA
FYRIR nokkru síðaa sendi
Hannes Pálsson frá Undirfelli
mér persónulega kveðju sína í
„Tínianum“. Vegna mikiíía anna
hefir mér ekki unnízt tóm til að
svara þessum vinarhótum hans
fyrr en nú, og vona ég'aS hann
• misvirði mér það ekki.
Orsökin til þess, að Hannes
Pálsson sýnir mér þann sóma að
beina skeytum sínum sérstaklega
að mér, er sú, að um naiðjan síð-
astliðinn mánuð fékk stjórn Fast-
eignaeigendaf élags Reykj avlkur
birta í „Tímanum“ svargrein við
síendurteknum árásum H. P. á
húseigendur, og þá fyrst og
fremst húseigendur í Reykjavik,
sem hann virðist telja sérstaklega
hættulega fyrir þjóðféiagið.
Viðbrögð Hannesar Pálssonar
.við þessari svargrein stjórnar
Fasteignaeigendafélagsins í „Tím
snum“ voru harla kynleg, þótt
þau hafi að vísu senxtilega ekki
komið þeim á óvart, sem þekkja
skap hans. Greinin var sýnilega
skrifuð í reiðikasti. Kom þar
foæði til sár gremja hans yfir því,
að „Tíminn“ skyldi sýna það
frjálslyndi að birta svargrein
stjórnar Fasteignaergendaféiags-
ins og vanmáttug reiðí yfir því,
að í grein stjórnar Fasteignaeig-
endafélagsins var með Ijósum rök
um sýnt fram á það, hversu bar-
átta Hannesar beinist gegn öltum
þeim mikla fjölda manna, sem af
litlum efnum eru að reyna að
koma sér upp þaki yfir höfuðið,
ekki aðeins í Reykjavík heldur
víðsvegar út um land.. Er enda
reyndin sú, að flestum Framsókn
armönnum ofbýður fjandskapur
sá gegn húseigendum, sem birtist
í skrifum Hannesar Pálssonar —
og um annað virðist Hannes ekki
geta skrifað, svo mjög hefir hann
fengið þetta á heilann.
GRIPIÐ TIL LÚALEGRA
VOPNA
Svokölluð svargrein Hannesar
Pálssonar við greinargerð stjórn-
ar Fasteignaeigendafélagsins er
skýrt dæmi um alger rökþrot í
kappræðum. í stað þess að reyna
að svara röksemdum stjórnar
Fasteignaeigendafélagsins grípur
Hannes eins og drukknandi mað-
ur í hálmsstrá í það neyðarúr-
ræði að ráðast persónulega á mig
í því skyni að gera mig tortryggi-
legan í augum eyfirzkra kjósenda
sem ég hefi að undanförnu farið
með umboð fyrir á Alþingi í for-
föllum Stefáns í Fagraskógi.
Það er rétt, að ég hefi um
nokkurt skeið verið framkvæmda
stjóri F asteignaeigendaf élags
jReykjavíkur og blygðast ég mín
ekkert fyrir það. Ég skal heldur
ekki mælast undan því að vera
að einhverju leyti kallaður höf-
undur greinar þeirrar, sem fór
svo herfilega í taugarnar á
Hannesi Pálssyni þótt hún hafi að
vísu verið birt sem skoðun stjórn-
ar Fasteignaeigendafélagsins en
ekki í mínu nafni. Ég vona hins
vegar að ekki sé til of mikils
mælst við Hannes Pálsson að
hann leggi ekki svo mikið kapp á
að ófrægja mig í augum Eyfirð-
snga, að hann rang^æri efni svar-
greinar stjórnar Fasteignaeig-
endafélagsins, ef hann á annað
borð telur drengilegan málflutn-
ing einhverju varða.
Því miður er ekki því að heílsa
í grein hans, en ég vil þó leggja
það velviljaðan skilning í orð
hans, að þau séu óhugsuð í reiði-
kasti en ekki vísvitandi rógburð-
ur.
Kjarninn í grein Hannesar er
sá, að það sé persónuleg skoðun
min, að hækka eigi stórlega hjá
bændum landsins áætlaðar tekj-
ur af eigin húsnæði og beinír
hann glaðhlakkalega þeim orðum
til Eyfirðinga, hversu þeim þyki
að eiga slíkan skaðræðísmarm a
þingi. ,
' Hannes Pálsson segir í grein
sinni, að erfitt sé tveim herrum
að þjóna. Þetta er vitaníega al-
gildur sannleikur fyrir mann,
sem aldrei getur Iitið á mál nema
frá einni hlið og getur því ekki
hugsað sér það, að hægt sé að
vinna að _ hagsmunamálum eins
án þess að skaða annan. En þetta
er því miður það stéttasjónarmið,
sem alltof oft ræður í okkar þjóð-
félagi og því gengur mörgum ilia
að átta sig á þeirri staðreynd, að
þvi aðeins getur okkar litlu þjóð
vel farnast, að við getum leyst
vandamálin með hagsmuni allra
stétta í huga.
Að minm hyggju þarf það því
ekki að vera nein fjarstæða, þótt
maður sé þingmaður fyrir kjör-
dæmi norður í landi og sinni fram
kvæmdastjórastörfum fyrir félag
húseigenda í Reykjavík — ef
maðurinn lætur sanngirni og rétt
sýni ráða gerðum sinum.
Þetta virðist Hannes Pálsson
hins vegar alls ekki geta skilið.
í hans huga er ekki hægt að líta
með sanngirni á mál húseigenda
í Reykjavík nema með því að
níðast um leið á bónda norður í
landi. I hans augum get ég ekki
barizt gegn óhæfilegum skatt-
álögum á húseigendur í Reykja-
vík nema með því að svíkja um-
bjóðendur mína norður í Eeyja-
firði.
Það er alrangt, sem Hannes
Pálsson staðhæfir í grcin sinni,
að ég vilji hækka eigin hús-
leigu hjá bæneíum landsins.
Hvergi í grein stjórnar Fast-
eignaeigendafélagsins, sem
hann eignar mér, er því heldur
haldið fram. Þar er einmitt
lögð áherzla á það, að Ilannes
Pálsson virðist ekki hafa kom-
ið auga á þá einu leið, sem
réttlát sé, en það er að hætta
alveg að skaítleggja nienn fyr-
ir notkun eigin íbúðar.
Þarna er einmitt bent á þá einu
leið, sem ér sanngjörn og eðlileg
í stað þeirrar mjög svo handahófs
legu skattlagningar, sem til þessa
hefir verið framkvæmd. Þetta er
nú kenningin, sem á að vera svo
glæfraleg, að eyfirzkir bændur
eigi fyrir þá sök að losa sig við
þenna voðamann sem umboðs-
mann sinn.
IIVOR ER BÆNDUM ÞARFARI?
Ég skal ekki metast um það við
Hannes Pálsson hvor okkar sé
einlægari vinur sveitanna og
bænda. Um það atriði verður
hver og einn að hafa sína skoðun,
en þó kann ég því illa að vera
talinn svikari við málstað sveit-
anna, sem ég tel hafa gefið mér
bezta vegarnestið í lífinu.
En árásargrein Hannesar Páls-
sonar á mig gefur mér tilefni til
að biðja bændur að bera saman
afstöðu okkar Hannesar Pálsson-
ar í tveimur málum.
Annað málið er það, sem
Hannes hefir séð ástæðu til að
reyna að ófrægja mig fyrir í um-
ræddri blaðagrein. Þar er kenn-
ing Hannesar sú, að leggja eigi
alla áherzlu á að hækka skatta á
húseigendum í Reykjavík og öðr-
um bæjum landsins og þá vænt-
anlega ætla einnig bændum þann
sama skattauka og gert hefir ver-
ið. Mín tillaga er sú, að algerlega
verði hætt þeirri fráleitu skatt-
lagningu að áætla mönnum tekj-
ur af notkun eigin húsnæðis, og
hefi ég flutt frumvarp á Alþingi
um það efni ásamt Sigurði Bjarna
syni, sem því miður náði ekki
fram að ganga vegna andstöðu
Framsóknarmanna.
Hitt málið er fasteígnamatið.
Það vildi Hannes Pálsson láta allt
að því tólffalda. Gegn því barðist
ég og aðrir þingmenn Sjálfstæðis-
f lokksins. Bændur, sem eiga eftir
að fá rafmagn heim til sín og
þurfa að greiða stofngjöld eftir
fasteignamati jarða sinna vita,
nvaða áhrif margföldun fasteigna
matsins hefði haft á þau gjöld.
Þetta eru tvö mál, sem við
Hannes Pálsson höfum báðir haft
afskipti af, hvor á sinn hátt. Ég
læt bændur sjálfa um það dæma,
hvor afstaðan muni þeirra hags-
munum þarfari.
ÞEKKIR EKKI
EEFIRÐINGA
Ég óttast ekki hinar lítt drengi-
legu tilraunir Hannesar Pálsson-
ar til þess að gera mig tortryggi-
legan i augum Eyfirðinga. Mín
kynni af Eyfirðingum eru ekki á
þann veg, að þeir séu þröngsýnir
eiginhagsmunamenn, sem ekki
geti séð út fyrir sinn eigin tún-
garð. Ég þykist því þess viss, að
þeir óski ekki eftir að eiga tals-
marrn á þingi, sem ekki þori að
berjast fyrir sanngjörnu máli,
þótt það varði aðra þjóðfélags-
borgara en þá. Og ég get jafnvel
sagt Hannesi Pálssyni það, að ég
myndi ekki óttast að missa traust
Eyfirðinga fyrir þá sök að standa
með máli, sem jafnvel skerti eitt-
hvað þeirra hagsmuni, ef það
væri þjóðarheildinni til farsæld-
ar. Þess vegna læt ég mig litlu
varða tilraunir Hannesar Páls-
sonar til að ófrægja mig fyrir af-
stöðu mína í máli, sem beinlínis
er í þágu Eyfirðinga við sjó og
í sveit jaxnt sem annarra lands-
manna. Af þeirri ástæðu hefði ég
getað látið árásir hans sem vind
um eyru þjóta, en ég skrifa þess-
ar línur bæði til þess að leiðrétta
rangfærslu hans á afstöðu minni
og vildi einnig nota þetta óvænta
tækifæri til þess að staðfesta af-
stöðu mína í því máli, sem
Hannes Pálsson færir mér til
ávirðingar. Þykist ég líka sæmi-
lega öruggur með að hafa valið
hina réttari leið þegar ég sé
Hannes Pálsson stefna í aðra átt.
Magnús Jónsson.
Skemmfun hjá
kvenndeild Slysa-
vamafél. Akraness
AKRANESI, 10. febr. ■— Kvenna
deild Slysavarnafélagsins á
Akranesi hélt skemmtifund í
fyrradag í félagsheimili templ-
ara, sem var helguð 25 ára af-
mæli slysavarna hér á landi.
Fjölbreytt skemmtiatriði voru.
Séra Jón M. Guðjónsson hélt
ræðu, 5 stúlkur sungu með gítar-
undirleik, frú Sigríður Ólafs-
dóttir sagði ferðasögu frá Þýzka-
landi, sýndur var leikþáttur, Jó-
hanna Gunnarsdóttir söng gaman
vísur. Einnig var fjöldasöngur
undir stjórn frú Sigriðar Sigurð-
ardóttur. Að lokum var dansað.
—Oddur.
Aðalhmdur Búnaðar
fél. Hafnarfjarðar
HAFNARFIRÐI, 14. febr,—Aðal-
fundur Búnaðarfélags Hafnar-
íjarðar var haldinn í Sjalfstæðis-
húsinu síðastliðinn fimmtudag.
— Félagið hefir undanfarin ár
átt vél, sem það hefir*leigt út, og
hafa margir notfært sér hana til
að plægja garða og slá tún. —
Hafa orðíð nokkrar tekjur af leig
unni, og er hagur félagsins góð-
ur. — Á fundinum var samþykkt
að gefa kr. 1000,00 til byggingu
Árnasafns.
Búnaðarfélagið verður 25 ára
í sumar, en í því eru nú nær 80
manns.
Stjórnin var endurkosin, en
hana skipa: Ingvar Gunnarsson
kennari, formaður, Bjarni
Erlendsson, Víðistöðum og Berg-
úr Bjarnasón, bifreiðastjóri. —G.
BLAÐINU hefur borizt eftir-
farandi grein frá Þórði Jóns-
syni að Látrum í sambandi
við hin dularfullu Ijósmerki,
er þeir Látramenn sáu 7. jan.
s.I. og skýrt var frá hér í
blaðinu á sínimi tíma. Varp-
ar hun nokkuff nýju ljósi á
þetta mál, en sem kunnugt er,
er Þórffur Jónsson einn af öt-
uiustu forystumönnum slysa-
varnamála hér á landi.
Látrum, 25/1 1953.
Herra ritstjóxi!
ÞAR sem blaðið birti ekki í heild
fréttaskeyti það, er ég sendi við-
komandi ljósi því, er við Látra-
menn sáum 7. janúar, en Segir
það mjög sammála fréttum þeim,
er það hafði eftir fréttaritara sín-
um á Patreksfirði, en við það vil
ég ekki kannast að öllu leyti, bið
ég fyrir eftirfarandi frásögn til
birtingar í blaðinu, svo að þeir,
sem um þetta vilja hugsa, geti
gert það í ljósi réttra upplýsinga.
Það, sem ég vil helzt leiðrétta
við áðurkomnu frétt er það, að
ljósið var ekki út af Látrabjargi,
og við skutum aldrei flugeldum.
Ég veit ekki til að nokkur hér
hafi fullyrt að hér hafi verið um
menn á báti, eða fleka, að ræða,
þótt allar líkur séu til þess, því
ég vil ekki geta svo ills um
neinn sjófarenda, að hann af
ásettu ráði narri út björgunarlið.
EINKENNILEGT LJÓS
Það, sem við sáum og gerðum,
var eftirfarandi, í stuttu máli:
Rétt fyrir klukkan 4 e. h. 7.
janúar var ég ásamt fleiri mönn-
um staddur í lendingu okkar
„Fúluvík". Kom þá maður að
heiman með þær fréttir, að ein-
kennilegt ljós sæisí framundan
Bjarnarnúp, sem er norðanvert
við Látravík.
Við gengum þá norður að núpn
um og þar framá sjávarkletta og
biðum þess að sjá ljósið, sem
sást þá rétt í því. Við sendum
þá eftir vasaljósi og sjónauka og
fengum við hvorttveggja eftir
nokkrar mínútur. Ég brá þá upp
vasaljósinu og sást þá strax hið
dularfulla ljós, en hvarf síðan.
Okkur sýndist ljósið grynnra en
á siglingaleið eða mjóg skammt
undan landi. V*5 reyxxdum þetta
nokkrum sinnum og var alltaf
svaraff, en þar sem svo var skugg
sýnt orðið sást Iítið betur 1 sjón-
aukanum en með berum augum.
Gátum við ekki greint, hvað það
var, sem bar þetta ljós uppi, bn
hefðum séð með berum augum
hefði þar verið um nokkurskon-
ar skip að ræða. Við óttuðumst
þegar að um neyðarkall væri að
ræða, og vissum að suðurstraum-
ur, sem á var, mui;di bera þetta
suður á röst, ef það þá ekki lenti
áður í brimgarðinum. Við drógum
einnig þá ályktun þar sem þetta
ljós var ekki alltaf uppi, þá
þyrftu þeir, er því stjórnuðu, að
spara ljósmetið.
LJÓSMERKI Á 20. MÍN. FRESTI
Ákváðum við hví aff senda ekki
út ljósmerki nema til að svara
hinu dularfulla Ijósi, en þaff sendi
út á 20 mínútna fresti. Var það
nóg til þess, aff viff gátum fylgst
meff því, hvernig þaff rak meff
straumnum suður vikina í átt-
ina aff Látraröst, en hún var
mjög úfin.
Við höfðum strax samband við
Patreksfjörð og Slysavarnafélag-
ið, og fengum þau skip á vett-
vang, sem Morgunblaðið hefir
áður skýrt frá, og gerðum aðrar
varúðarráðstafanii', ef þetta
skyldi bera á land.
Klukkan 5,30 höfðum við ekki
séð ljósið í 20 mínútur. Gáfum
við þá merki með vasaljósinu en
fengum ekkert svar. Ég brá þá
upp ljóskastara og var þá strax
svarað. Sendi hið dularfulla ljós
út þrjú stutt og eitt langt. Ég
veifaði þá Ijóskastaranum til
merkis um að við skildum þetta
merki. Því var svaraff með elnt*
löngu merki.
I
ÞETTA YAR NEYÐARMERKI
Þótt ég áffur hefffi veriff í vaf’a'
um, aff hér væri um neyffarmerki
að ræða, þá gat hvorki ég ná
aðrir sem skildu þetta merki,
iokað augunum fyrir þeirri
staffreynd sem hér biasti við'.
Þetta VAR neyffarmerki.
Þetta var síðast, er við sáum.
ljósið greinilega, þá komið fram
undan Brunnum eða Brunnanúp,
sem er sunnanvert við Látravík.
Rétt fyrir klukkan 6 og aftur
klukkan 6,45 töldu menn sig sjá
ljósið mjög óglöggt. Mun m.b.
Sigurfari hafa séð ljósið í síðasta
skiptið, en hann þar þá að koma
á vettvang. Áframhald þessarar
sögu er lenendum Morgunblaðs-
ins kunn.
HVER SENDI MERKID?
Hver eða hverjir Kafa sent út
þetta neyðarmerki er mér jafa
hulið og öðrum, eða kannske
frekar. En ég tel ekki útilokað,
að hér hafi getað verið um mann
eða menn af þýzka togaranum
að ræða, þá helzt þegar athuguð
er vindátt og veðurhæð á þess-
um slóðum í þá 15 daga, sem
liðnir voru frá því togarinn fórst,
og tekið tillit til hins sterka
straums sem liggur hér með land-
ir\u á þessum tima árs, saman-
ber það, að flak af m.b. Helga,
sem fórst við Vestmannaeyjar
rak hér á Rauðasandi og Barða-
strönd eftir 14 daga, þá búið að
reka yfir 200 mílur í ákveðna
átt.
f
RANNSÓKNAR ÞÖRF
Þótt haff upplýsist aldrei, hvaff
hér hefir á reki verið er við sá-
uxn hetía Ijás, há hefir þaff orðiff
til þess aff vekja aíhygli mína á
því, hvort það mundi ekki verffa
hagkvæmt okkar slysavörnmn, aff
nákvæm raxxnsókn væri gerð á
reka báts effa fleka, úti fyrix'
ströndum landsins við ýmiskon-
ar skilyrði. Mun ég gera það, sem
í mínu valdi stendur, til þess aðf
sú rannsókn verffi hafin. Þæíti
mér ekki óliklegt að slík ranrí-
sókn gæti leiít i ijós, hvers vegna
leit hefir stundum ekki boriff
árangur, þólt hið íýnöa skip effa
bátur hafi verið ofansjávar.
Með þökk fyrir birtinguna.
Þórður Jónsson.
Bæjsrúfgerðarlog-
aramlr á ís- og -
salffiskyeiSiim
B.V. INGÓLFUR Arnarson kom
9. þ.m. og landaði hér 46 tonnum
af nýjum fiski og 106 tonnum af
saltfiski. Auk þesS hafði skipið
1114 tonn af lýsi. í veiðiförinni
landaði skipið 16V2 tonni á Flat-
eyri. Skúli Magnússon fór á ís-
fiskveiðar 8. þ.m. Hallveig Fróða-
dóttir fór á ísfiskveiðar 7. þ.rfii'
Jón Þorláksson fór á ísfiskveiðar
6. þ.m. Þorsteinn Ingólfsson kom
lí. þ.m. og landaði 112 tonnum a<f
ísuðum þorski, 37 tonnum af
karfa og 37 tonnum af öðrum<
fiski. Auk þess hafði skipið 6
tonn af lýsi. Fór aftur á ísfisk- '
veiðar 12. þ.m. Pétur Halldórsson
fór á saltfiskveiðar 4. þ.m. Jón
Baldvinsson fór á saltfiskveiðar
23. jan. Þorkell máni er í Reykja-1
vík.
í s.l. viku unnu 150 manns í fisK’
verkunarstöðinni.
___________________________L
4 RE7.T AO ALCLÝSA Á'
T I MQIIG LíSBLAÐIISII. %