Morgunblaðið - 17.02.1953, Síða 14

Morgunblaðið - 17.02.1953, Síða 14
r 14 MORGVNBLAÐIÐ Í>ri3juðagur 17. febrúar 1953 niniiuniiuniTrirnnnii ■ ■■■■■>»■■■■>M■■«»*■■■■■■■■■■■■■■»■■> SÚf HVERS VEGIMA? Skdldsaga eítir Daphne de Maurier iiiinmiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiinniiiiiiiiiiiiifiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinniitifiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiimiiiiimnmu iiiiiiiiiiiiiiiiiiuuiiniiiiiiahi# Framhaldssagan 14 *Hvað eigið þér við?“, sagði hann. „Ég hef ekkert gert af mér“. Tom Smith stóð á fætur. Aug- lin í honum urðu ennþá minni. „Hvað eigið þér við?“ spurði hann. „Ég hef ekkert gert af |nér“. Black kveikti sér í sígarettu og eettist. „Ég segi það ekki“, sagði hann, „og ég ætla ekki að rann- £aka líferni yðar á þann hátt. En evo vill til að ég veit að þér kom- uð til kor.u nokkurrar, lafði Farr- en að nafni og hún pantaði hjá yður tvo gaxðstóla“. „Hvað um það?“ „Það er allt og sumt. Segið mér ^ðeins hvernig samtal ykkar var“. Tom Smith horfði tortrygginn á Black. „Jæja“, sagði hann loks. ,-Segjum sem svo að ég hafi farið til þessarar konu. Segjum sem evo að hún hafi pantað hjá mér stóla. Ég geri það upp við fyrir- tækið þegar þar að kemur, ef Jseir hafa frétt af því. Ég get sagt að ég hafi beðið um að pöntunin væri skrifuð á mitt nafn af mis- gáningi, og það mun ekki koma fyrir aftur“. Black minntist ungfrú Marsh. Hann minntist líka séra Henry Warners. Jafnvel herra Johnson cg hvernig hann setti sig strax upp í sjálfsvörn. Hvers vegna sagði fólk svo oft ósatt þegar ver- ið var að spyrja það um eitthvað allt annað? „Ég held að það væri miklu einfaldara fyrir yður“, sagði Black, „vegna framtíðar yðar við þetta fyrirtæki, að þér segðuð sannleikann strax. Ef þér gerið það, þá skal ég láta það ósagt bæði við forstjórann og forstöðu- manninn á St. Edmunds-heimil- ínu“. Ungi maðurinn tvísté. Honum var orðið um og ó. „Komið þér frá þeim?“ spurði hann. „Ég hefði mátt segja mér það sjálfur. Alltaf á hælunum á mér. Ég fæ aldrei tækifæri“. Hann var fullur með- aumkunar með sjálfum sér. Hann var næstum farinn að vola. Mað- urinn, sem átti að bjarga heimin- um, hugsaði Black. Honum hafði auðsjáanlega ekki gengið of vel hingað til. „Ég hef engan áhuga á æsku yðar“, sagði hann, „heldur að- eins á samtali yðar við lafði Farr- en. Þér vitið það ef til vill ekki en lafði Farren er dáin“. □-----□ Pilturinn kinkaði kolli. „Sá það í kvöldblöðunum", sagði hann. „Þá ákvað ég einmitt að gera þetta. Hún mundi ekki geta kom- ið upp um mig“. „Gera hvað?“ „Eyða peningunum", sagði hann, „og strika út pöntunina af listanum, og segja engum frá því. Það var svo auðvelt". Black reykti sígarettuna. Hann sá fyrir sér í anda yfirfull tjöld cg vagna, flet úti á víðavangi þar sem óx humall upp við stengur, hlátrasköll og bjórlykt og snar- eygður, rauðhærður náungi, eins og þennan pilt, í felum á bak við einhvern vag'ninn. „Já“, sagði Black. „Það er auð- velt, eins og þér segið. Segið mér tneira“. Tom Smith var orðinn örugg- ari. Leynilögregluþj ónn inn ætlaði ekki að segja neitt. Ekki ef hann sagði satt. Þá það. „Mér hafði verið bent sérstak- lega á lafði Farren í þessu hverfi“ sagði hann. „Nóg af peningum, var mér sagt og hún mundi áreið- anlega kaupa. Þjónninn fylgdi mér inn, og ég sýndi frúnni bók- ina með sýnishornunum og hún valdi tvo stóla og ég bað um ávísun. Hún skrifaði hana og ég tók við henni. Það var allt og sumtí'. „Augnablik", sagði Black. „Var lafði Farren vingjarnleg við yð- ur? Tók hún nokkuð sérstaklega eftir yður?“ Það kom undrunarsvipur á hann. „Tók hún eftir mér?“ sagði hann. „Nei, því skyldi hún hafa gert það? Ég var bara að selja henni þessa stóla“. „Hvað sagði hún við yður?“ „Hún skoðaði bara bókina með sýnishornunum og ég stóð hjá henni og beið og svo merkti hún við tvo og ég tók við ávísuninni. Það voru tuttugu pund, tíu pund fyrir stólinn. Ég kvaddi og hún hringdi á þjóninn og hann fylgdi mér út. Ég fór og leysti út ávís- unina strax og stakk peningun- um í budduna mína. Ég var ekki búinn að ákveða það þá að eyða þeim, en þegar ég sá það í blöð- unum að hún var dáin, sagði ég við sjálfan mig: „Jæja þá“. Það er ekki hægt að álasa mér fyrir það. Þetta var fyrsta tækifærið, sem mér hefur nokkurn tímann gefist til að eignast dálitla pen- inga og enginn vissi um þetta“. Black slökkti í sígarettunni. „Fyrsta tækifærið og þér ákváð- uð að vera óheiðarlegur“, sagði hann. „Þér áttuð valið og þér eigið yðar eigin framtíð. Skamm- ist þér yðar ekkert?“ „Enginn skammast sín fyrn en allt kemst upp“, sagði Tom Smith. Og svo brosti hann allt í einu. Það kom glampi í litlaus augun og flóttalegur svipurinn hvarf af andlitinu. „Ég sé núna að þetta bragð dugði ekki“, sagði hann. „Ég reyni annað seinna“. „Reynið heldur að bjarga heim inum“, sagði Black. „Hvað þá?“ Black kvaddi og óskaði honum alls góðs. Þegar hann gekk niður götuna, fann hann að pilturinn hafði komið á eftir honum út um dyrnar og horft á eftir honum. Síðari hluta dagsins fór hann til að finna John lávarð að máli og gefa honum skýrslu. Hann bað þjóninn að tala við sig einslega áður en hann vísaði honum inn í bókaherbergið. Þeir fóru inn í setustoíuna. „Þér fvlgduð sölumanninum hingað og skilduð hann eftir hjá lafði Farren. Fimm mínútum síð- ar hringdi lafði Farren og þér fylgduð honum út. Síðan komuð þér inn með mjólkurglas handa frúnni. Er þetta rétt?“ „Alveg rétt“, sagði þjónninn. „Hvað var frúin að gera þegar þér komuð inn?“ „Hún stóð eiginlega þar sem þér standið núna og var að blaða í bókinni með sýnishornunum“. „Var ekkert óvenjulegt við hana?“ „Nei“. „Hvað skeði svo? Ég hef spurt yður að þessu áður, en ég verð að fara yfir það aftur áður en ég tala við John lávarð“. Þjónninn hugsaði sig um. „Ég rétti frúnni mjólkurglasið. Ég spurði hvort nokkrar fyrirskip- anir lægju fyrir bílstjóranum og hún sagði nei. John lávarður mundi aka sjálfur. Hún sagðist hafa pantað tvo garðstóla og hún sýndi mér myndir af þeim í bók- inni. Ég sagði að þeir væru mjög hentugir. Hún lagði frá sér bók- ina og gekk fram að glugganum með mjólkurglasið“. „Sagði hún ekkert meira? Minntist hún ekkert á sölumann- inn, sem hafði komið?“ „Nei. Hún minntist ekkert á hann. En ég man að ég gerði það hins vegar, en ég er viss um að frúin heyrði ekki hvað ég sagði, því að hún svaraði mér ekki“. „Hvað sögðuð þér?“ „Ég sagði — svona í gamni — frúnni þótti gaman að gamni — að ef sölumaðurinn kæmi aftur, þá mundi ég þekkja hann strax á hárinu. „Alveg eins og gulrót, greyið að tarna, sagði ég. Svo lokaði ég á eftir mér og fór fram“. „Þakka yður fyrir“, sagði Black. „Þá var það ekkert meira, sem ég þarf að vita“. Hann stóð og horfði út í garð- inn þegar John lávarður kom inn. „Ég bjóst við yður inni í bóka- herberginu", sagði hann. „Er langt síðan þér komuð?“ „Aðeins nokkrar m!nútur“, sagði Black. „Jæja, og hver er úrskurður- inn?“ „Sá sami og fyrr“, „Eigið þér við að við stöndum á sama stað og við stóðum þegar rannsóknin hófst? Getið þér ekki gefið mér neina skýringu á þvi hvers vegna konan min framdi sjálfsmorð?" „Nei. Ég er kominn á þá skoð- un að ályktun læknisins sé rétt. Einhver skyndileg bilun orsakaði það að lafði Farren stytti sér aldur. Hún var hamingjusöm og ánægð og eins og þér og aliir vita, hafði hún lifað flekklausu lífi. Það er ekki hægt að finna neina skýringu á þvi að hún skyldi geta þetta?" „Guði sé lof“, sagði John lávarð ur. Black hafði aldrei áður álitið sjálfan sig tilfinninganæman. En nú var hann ekki viss um, hvað hann átti að halda. SÖGULOK. Gæsastúlkan hjá hrunninum 2. „Hvernig ferðu að rogast með þetta allt saman heim til þín, kona góð?“ spurði hann. I „Það gengur einhvern veginn", svaraði hún. „Þér viljið kannske hjálpa mér. Á yður er bakið breitt og beint og unga hafið þér fæturna, svo að ekki myndi yður verða mik- ið um að halda á piklinum mínum. Húsið mitt’er ekki langt í burtu. Það er þarna á heiðinni, bak við hálsana, og ekki, nema fárra mínútna gangur þangað.“ I Pilturinn kenndi í brjósti um gömlu konuna og mælti: „Að vísu er hann faðir minn greifi og ekki bóndi, en til þess að sýna þér, að það eru ekki bændurnir einir, sem geta tekið til höndunum og borið byrðar, þótt þungar séu, skal ég halda á pinklinum þínum.“ „Það er indælt“, sagði konan- „Það er nú að vísu hér um bil míla vegar, sem við verðum að fará, en yður ætti ekki að saka það. En þér verðið þá líka að halda á perunum nu'nura og eplunv.m.“ ödýra gaberdínið er komið aftur. U' 1^1 KO\) k i /f 3 Útsalan hefst í dag Eftirmiðdagskjólar Síðir kjólar Alls konar kjólaefni Kjólabrjóst (snuðblússur) Kjólakragar Brjósthöld Buxur (kven) Náttjakkar Barnaútiföt Kjólaskraut Verzt -Xjóttirm. Þingholtsstræti 3. Bújörð á Miðnesi með stóru túni í góðri rækt, rúmgóð- 3 um íbúðarhúsum og skepnuhúsum, er til sölu. — Góðir Z m atvinnumöguleikar fyrir bifreiðastjóra. Sími, diesel-raf- » stöð, olíukynding. m Málflutningsskrifstofa S VAGNS E. JÓNSSONAR 3 Austurstræti 9 Símar 4400 og 5147 “ Vandað einbýlishús á góðum stað í bænum til sölu. Upplýsingar gefa Sveinbjöm Jónsson. Gunnar Þorsteinsson. Hæstaréttarlögmenu. Tilhoð éskast í mjólkur- og vöruflutninga i Mosfellssveit frá 1. apríl n. k. — Umsóknir séu komnar fyrir 25. þ. m. til Þórarins Auðunssonar, sem gefur nánari upplýsingar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.