Morgunblaðið - 01.03.1953, Side 11

Morgunblaðið - 01.03.1953, Side 11
Sunnudagur 1. marz 1953 MORGUNBLAÐIÐ II ' Gísli Sigurg>3Írsson 25 ára starfsafmæli Hafcurfirði sextugur MARGIR munu í dag senda hlýj- ar kveðjur að Strandgötu 19 í Hafnarfirði í tilefni af sextugs- afmæli húsráðanda. Hann. Gísla þekkir hvert mannsbam í Hafn- arfirði og fjöldi Reykvíkinga og annarra manna um Iand allt. Og leikur það þá ekki á tveímur tung um, að enginn þekkir hann nema að góðu einu. Það væri sjálfsagt árangurslítil fyrirhöfn, ef einliver ætlaði sér að leita uppi óvildar- rnenn Gísla, eða þá er þaettust eiga honum grátt að gjalda að einhverju leyti. Nei, Gísli hefir orðið óvenju vinsæll maður og á hann það ef- laust að miklu leyti að þakka méðfæddum mannkostum, góðu uppeldi og handleiðslu í foreldra- húsum. , Faðir hans, Sigurgeir heitinn Gíslason sparisjóðsgjaldkeri, var einn þeirra fáu manna, sem frá æskuárum til efsta dags treysti betur guði en mönnum. Konan hans, María Jónsdóttir, var hon- ( um einlæglega fylgjandi í því og þess vegna varð heimilí þeirra fyrirmynd á allan hátt. Þess vegna fylgdi þeim guðsblessun j um langa ævi og þess vegna voru þau gæfumenn. Og það varð ekki minnst gæfa þeirra og gleði í líf- inu, að börnin mótuðust af anda heimilisins, lærðu að elska og virða drengskap og fagrar dyggð- ír, og láta það koma firam í öllu dagfari sínu. Gísli var gæfumaður að eignast slíka foreldra. Ber þess sérstak- lega að minnst nú, er faðir hans er nýlega látinn og móðir hans liggur á líkbörum. Um leið og vinir Gísla hylla hann, heiðra þeir minningu hinna góðu for- eldra. Um æviferil Gísla má margt segja, þótt það verði ekki gert hér, því vonandi á hann enn lang- an starfsferil framundan. En þegar saga hans verður skráð, mun því ekki gleymt hvern skerf hann hefir lagt til menningar- mála og þá sdrstaklega bindindis- málsins og Góðtempiarareglunn- ar. Þar hefir hann dyggilega fetað í fótspor foreldra sinna, Sem um langt skeið voru helztu forvígis- menn reglumálanna í Hafnar- firði. Hefir Gísii starfað í Regi- tinni síðan hann var smáhnokki og gengt þar mörgum trúnaðar- störfum á seinni árum ,enda jafn- an talinn í fremstu röð Templara í Hafnarfirði. Og fyrir trúnað kans við þennan málstað munu samherjar hans sérstaklega minnast hahs með þakklæti og vinarhug á þessu afmaslí. Á. f DAG er Gísli Sigurgeirsson, Strandgötu 19, Hafnarfírði 60 ára. Gísli er fæddur í Hafnar- firði 1. marz 1893 sonur merkis- hjónanna Marínar Jónsdóttur og Sigurgeirs Gíslastmar fyrrv. verkstjóra. Gísli byrjaði mjög ungur að vinna í vegagerð með föður sín- um, Sigurgeir Gíslasyni vega- vinnuverkstjóra og gerðist hann brátt flokksstjóri hjá honum og varð þvi verkstjórn aðalatvinna hans um margra ára skeið, fyrst við vegagerð eins og fyrr ségir, en auk þess tóku þeír feðgar, ásamt Jóni Einarssyni, að sér ýms verk í Hafnarfirði í mörg ár og stjórnuðu stórum vinnufiokk- um af miklum dugnaði og hag-1 sýni. Þá var Gísli mörg ár verk- stjóri hjá Hafnarfjarðarbæ og | síðan varð hann starfsmaður á skrifstofu bæjarins og er það nú. Landbúnað stundaðí Gísii j ásamt Jóni Einarssyni í nokkur j ár á Selskarði í Garðahreppi og i eiga þeir þá jörð enn. Gisli gekk í Flensborgarskól- ann og lauk þaðan kennaraprófi | og stundaði hann bavnakennslu um skeið í Hafnarfirði. Var það starf honum mjög hugleikið og hefur hann oft minnzt á það, þvað mikla ánægju hcnn hefði haft af því að fræða börnin. Gísii er fróðleiksmaður mikiil og hef- ur lesið margt góðra bóka. Gísli hefur tekið mikinn þátt í félagsiífi og gekk hann í Góð- templararegluna mjög ungur og hefur ávallt verið í henni síðan. Hefur hann gegnt þar trúnaðar- störfum á öllum stigum. — í st. Morgunstjörnunni nr. 11 hefur hann setið í öllum aðalembætt- um og er nú umboðsmaður stór- templars. í framkvæmdanefnd Stórstúkunnar hefur Gís’i verið í mörg ár og einnig hefur hann átt sseti í framkvæmdanefnd Um- dæmisstúkunnar nr. 1, og um skeið var hann umdæmistemplar. Gísli hefur þótt hinn bezti liðs- maður innan reglunnar, verið einlægur og þróttmikili bindind- ismaður, sem hvergi hefur legið á liði sínu. Gísli er söngvinn vei og hefur hann oft gegnt organistastarfi i Fríkirkjunni í Hafnarfirði í for- föllum, þó að hann, vegna anna á öðrum sviðum, hafi ekki gert það að föstu starfi. Hann hefur verið mjög áhugasamur um kirkju- og kristindómsmál og hefur setið í stjórn Fríkirkju- safnaðarins í 16 ár. Gísli er giftur Jensínu Egils- dóttur hinni ágætustu konu og eiga þau 5 börn á lífi, sem öll eru uppkomin. — Heimili þeirra hjóna er mjög rómað fyrir gest- risni og höfðingsskap. Gísli á marga vini í fæðíngar- bæ sínum Hafnarfírði og víðar, sem munu senda honum hlýjar árnaðaróskir og vinarkveðjur á þessum merku tímamótum í lifi hans. Guð og gæfan fylgi þér og heimili þínu á ókomnum æviár- um. Vinur. í DAG á frk. Þórunn Ólafs- dóttir 25 ára starfsafmæli, sem afgreiðslustúlka í Verzlunin Kristín Sigurðardóttir h.f., enda mun hún vel kunn flestum frúm þessa bæjar sem alið hafa aldur sinn hér. Nú mætti ef til vill segja, að þetta sé varla í frásögur fær- andi, en til þess liggja þó ýmsar orsakir. Þótt ótrúlegt megi virð- ast, þá hefur Þórunn verið frá vinnu vegna veikina í fimm daga á þessu timabili, eða einn dag fyrir hver fimm ár. Auk þess hef- um það aldrei komið fyrir hana, að mæta of seint til vinnu og má það út af fyrir sig teljast einstakt og gæti orðið mörgum til fjrrir- myndar. Þórunn er einstaklega prúð og dagfarsgóð og hefur aí þeim ástæðum unnið sér vinsældir, 1 bæði húsbænda sinna og við- skiptavina. Hún er einnig hús- bóndaholl og trú í starfi með afbrigðum, enda unnið sér óskor- að traust þeirra, sem hafa haft yfir henni að segja. j Margt gott mætti fleirá um frk. Þórunni segja, en það skal ekki I gert hér, enda kærir hún. sig víst litið um það. Á þessum degi skal frk. Þór- unni þakkað mikið og vel af hendi leyst starf í þágu verzl- unarinnar og viðskiptavina jhennar og jafnframt látin i ljósi ' ósk um að þau megi enn um I mörg ókomin ár njóta starfs- krafta hennar og þeirra ágætu kosta sem hana prýða. G. H. titmnveig frá Hrnuni í Slétfuhlíð Hólmfríður E. Levy, Ósum, Vafnsnesi; fimmtug í dag í DAG hinn fyrsta marz er fimmtug, ungfrú Hólmfríður E. Levy, Ósum á Vatnsnesi í Vestur Húnavatnssýslu. Hún er fædd að Efri-Mýrum í Austur-Húnavatnssýslu, — elzta dóttir hjónanna Agnar og Egg- erts Levy. Kornung fluttist hún með foreldrum sínum að Ósum á Vatnsnesi og þar hefur hún átt heimili alla tíð síðan. Stend- ur hún nú fyrir búi þar með Óskari bróður sínum sem fyrir nokkrum árum tók við búi að Ósum. Ung tók Hólmfríður tryggð við Ósa sem foreldrar hennar og systk'ini hafa breytt úr miðlungs- jörð í höfuðból. Hefur hún sann- arlega ekki legið á liði sínu í því mikla uppbyggingarstarfi, sem þar hefur verið unnig. A þessum tímamótum er henní af frændum og vinum þökkuð tryggð og vinátta, jafnframt því sem henni er árnað heilla og blessunar um ókomin ár. Þ. B. Guðmundur 6uð- i SJÖTUGUR varð á föstudaginn Guðmundur Guðmundsson skó- smiður, í Vík í Mýrdal. Harín er fæddur að Ytri-Skóg- um undir Eyjafjöllum, 27. febrú- ar 1883 pg ólst þar upp til 7 ára aldurs. Fluttist þá að Drangshlíð- ardal, í sömu sveit með móður 1 sinni. Dvaldist hann þar unz hann fluttist austur í Skaftafells- 1 sýslu, skömmu fyrir aidamótin, fyrst til Bjarna prófasts Einars- jsonar á Mýrum, en átti síðan heima í ýmsum bæjum í Mýrdal. Árið 1904 kvæntist Guðmund- ur Egiiínu Jónsdóttur frá Kerl- ingardal og bjuggu þau þar fyrstu árin. Seinna fluttust þau til Víkur og byggðu sér þar hús. í fyrstu stundaði Guðmundur alla venjulega verkamannavinnu, en lærði síðar skósmíði og hefur aðallega unnið að henni síðustu áratugina. Guðmundur hefur látið félags- mál til sín taka. Hann var einn aðalhvatamaður að stofnun verkalýðsfélags hér í Vík og for- maður þess í 13 ár. Þá hefur hann átt sæti í hreppsnefnd Hvamms- hrepps síðan 1946. Hann er og söngmaður góður; hefur sungið í kirkjukór Víkurkirkju frá stofn- un hans og syngur þar enn. — 'Á yngri árum var Guðmundur fjallamaður með afbrigðum og t með léttfærustu mönnum til allr- | ar vinnu. ; Þau hjónin eignuðust 9 börn og eru 5 þeirra á lífi. Konu sína missti Guðmundur árið 1934. — Margir vinir og kunningjar Guð- mundar heimsóttu hann í tilefni afmælisins. — Kirkjukór Víkur- kirkju heimsótti hann einnig. -— 1 Honum bárust góðar gjafir og fjöldi heillaóskaskeyta. — Karl. Brúðkaup og skilnaðir ' JÓHANNESBORG — Þ>-iðja | hvert hjónáband, sem stofnað er til í JóhanneSborg, endar með skilnaði, að því er segir í nýút- komnum skýrslúm. f S-Áfrfku- iýðveldinu í heild skilja áðeins 1 hjón af hverjum 7, sem gefin eru saman. Minningarorð Fædd 11. sept. 18G8 Dáin 21. febr. 1953 HINN 21. febrúar lézt að heimili sínu Hrauni í Sléttuhlíð, ekkjan Rannveig Ingibjörg Bjarnadóttir á 85. aldursári. Hún var fædd á Mannskaðahóli á Höfðaströnd 11.1 sept. árið 1868, dóttir merkis- hjónanna Bjarna Bjarnasonar og konu hans Margrétar Jónsdóttur.1 Þau hjónin voru bæði komin af vel metnum skagfirzkum bænda- ættum og bjuggu um lang skeið rausnarbúi á Mannskaðahóli. —] Á morgun, mánudag, verður hún jarðsungin frá Fellskirkju í Sléttuhlíð. | í foreldrahúsum ólst Rannveig upp til 19 ára aldurs, en þá árið 1887 gekk hún að eiga Jón bónda Eyjólfsson á Hrauni í Sléttuhlíð. Jón hafði verið kvæntur systur hennar, en misst hana frá einu barni þeirra. Má nú segja að hin langa og merka lifssaga Rann- veigar hefjist fyrir alvöru. Fram að þessu hafði hún lifað áhyggju- lausu og glöðu lífi heimasætunn- ar, en nú kallar lífið hana, svo unga og óreynda til þeirrar á- byrgðar, að ganga í móðurstað systurbarni sínu og vera manni •sinum, sem ef til vill hefur vart verið gróinn sára sinna, stoð og styrkur í erfiðri baráttu einyrkj- ans. En Rannveig brást ekki hlut- j verki því er hún hafði að sér tekið, hún gekk með óskiptum I huga að starfi, og tókust með : þeim hjónum innilegar ástir, sem 1 aldrei sló fölskva á meðan sam- búð þeirra entist. J Brátt óx fjölskyldan á Hrauni og urðu börnin alls 9, og er tím- 1 ar liðu tók Rannveig til sín aldr- aða foreldra sína, og hjá henni áttu þau athvarf til dauðadags. Ærið verkefni hefur hinni ungu húsmóður verið lagt á herðar og mundi vel hafa jnátt heimfæra til hennar þessi orð skáldsins: i Engi getur þreytu þinnar þunga, lagt á vogarskál. I Engi getur andvökurnar | álnað, það er vonlaust mál. Nærri má geta að oft muni hafa verið þröngt í búi þar eð svo marga munna þurfti að seðja, en kapp og dugnaður, nýtni og forsjálni héldust í hendur hjá þeim hjónum, svo allt blessaðist. Þau áttu líka bæði glaða og létta lund, sem gerði þeim kleift að líta vonbjörtum augum fram á veginn og láta ekki erfiðleikana vaxa sér yfir höfuð. En „sorgin gleymir engum“, hún átti eftir að berja að dyr- um hjá Rannveigu á Hrauni. Á einni viku missti hún tvö börn sín og stjúpbarn úr barnaveiki. Má nærri geta hve sú raun hefur gengið nærri móðurhjartanu. En Rannveig bar harm sinn með stillingu og rækti skyldur sínar við lífið, af sömu koStgæfni og áður. Og tíminn leið. Það var komið árið 1910. Þá var farið að rofa til fyrir einyrkjahjónunum á Hrauni. Börnin voru að koma til hjálpar, það átti að ferma elzta drenginn í vor. En þá var það einn sólbjartan vordag að hús- bóndinn fór að vitja um silunga- net sín í Sléttuhliðarvatni, en kænan var iítil og völt, henni hvolfdi. Rannveig stóð á strönd- inni með barnahópinn sinn um- hverfis sig og horfði á dauðastríð ástvinar sins. — Það var enginn bátur nærri og björgun varð ekki viðkomið; eftir skamma stund var Rannveig orðin ekkja með sjö börn, það elzta 14 ára, en hið yngsta á fyrsta ári. Aldrei kom stilling og þrek Rannveigar betur í 1 jós en nú á mestu reynslustund hennar. Ekki var unnt að halda saman heimili með svo stóran barnahóp, en þá sást hvílíkum vinsældum þau hjón höfðu átt að fagna hja sveit- ungum og vinum, því margir kepptust um að greiða götu ekkj- unnar. Þrjú börnin voru tekin.í fóstur af venzlafólki hennar, en. eitt þeirra lézt um það bil ári síðar. Elztu börnin tvö fóru í vist, en sjálf gerðist Rannveiíf ráðskona á næsta bæ, og hafði tvö börn sin hjá sér. Aliar sínar stundir helgaði Rannveig börnum sínum, hér eft- ir sem hingað til, enda hlaut hún fölskvalausari ást þeirra en flest- ar mæður, sem ég hef þekkt, þrátt fyrir langan aðskilnað við sum þeirra á uppvaxtarárunum. Árið 1917 kvæntist elzta dóttir hennar Stefanía, Jóhanni Jóns- syni frá Minna-Grindli í Fljót- um, og hófu þau búskap á Hrauni það sama ár. Rannveig fluttist þegar til þeirra og var þar upp frá því. Þrátt fyrir allt auðnaðist hemji að eyða iöngu og förgu æfikvöldi á þeim stað, er hún unni mest, og þar sem hún hafði lifað sína mestu gleði og dýpstu sorg. Dótturbörrí hennar urðu henni sem hennar eigin .börn, og til hinztu stundar lét hún sig vöxt og viðgang heimilisins miklu skipta, og fylgdist af.áhuga með öllum umbótum. Fátt gláddi hana meir, en að sjá óræktarmóa breit- ast í iðjagræna töðuvelli, og traustar byggingar rísa á rústum gamalla og úreltra. . - Rannveig var kona greind i beztá lagi, bókelsk og fróðleiks- fús og haíði þó öðru fremur yndi af söng og' ijóðum. Hún fvigist vel með almennum málum, stefnuföst og ákveðin í skoðun, gerði sér ekki alla að vinum, en batt vjnáttpbönd æfilangt. ... Börn Rannveigar, þau er kom- ust til aldurs, eru þessi, talin .í aldursröð: Antön Jónsson, bóndi á Höfða á Höfðaströnd; Stefanía Jónsdóttir, húsfreyja á Hraun'i, Sléttuhlíð; Pálmi Jónsson, lög- regluvarðstjóri; Helga Jónsdótt- ir, húsfrú; Bjarni M. Jónsson, fangavörður og Friðrikka Jóns- dóttir, húsfrú, öll búsett í Reykja, vík. Á siðastliðnu. hausti kom ég að Hrauni, og ræddum við Rannveig margt saman, .þá stund er ég tafði. Hún lét þess getið í viðræðu okk- ar, að hún teldi sig hafa verið mikla gæfumaríneskju þegarí a allt væri litið. Börnin sín hafðu öll komizt vel til manns og þau, ásamt tengdabörnum og barna- börnuni ■ sýnt' sér sérstaka ástúð og umhvggju. Er-.viS kvqddumst iét hún þess getið að við mynd- um vart sjást oftar hérmegin grafar. Mér láðist þá að þskka henni þá ástúð og vináttu ei'hún ætíð hafði sýnt mér og fjölskyldu minniv- ■ Þær þakkir skúlu nú frambornar þótt um seinan sé. Blessuð séminning hennar. Pétur Björnsson. Kvimféba Hátclyssókiiar heldur fund með sameigin •. legri kaffidrykkju, „þriðju daginn 3. marz kl. 8.30 í Sj< mannaskólanum., ' * ■ J* Vesurgötu 10, sími .6434. •»

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.