Morgunblaðið - 06.03.1953, Qupperneq 8
B
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 6. marz 1953
ofsttsdblatK
tltg.: H.f. Arvakur, Reykjavíb.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson,
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði, innanlanda.
í lausásölu 1 krónu eintakið.
Hðfrannsóknir og fiskileit
Á SÍÐASTA Alþingi beittu Sjálf-
stæðismenn sér fyrir samþykkt
tillagna um hafrannsóknir og
fiskileit. Flutti Pétur Ottesen um
það mál svohljóðandi tillögu sem
samþykkt var hinn 4. febrúar:
„Alþingi ályktar að fela rík-
isstjórninni að láta athuga,
hvernig islenzka ríkið geti
meS sem hagkvæmustum
hætti eignast hæfilega stórt og
traust skip, er útbúið sé hin-
um fullkomnustu tækjum til
haf- og fiskirannsókna. Jafn-
framt fari fram á því rækileg
athugun, á hvern hátt verði
bezt hagað fiskileit á djúp-
miðum við strendur landsins.
Að því er tekur til síldarleit-
ar, skal sérstök áherzla á það
lögð að komast að niðurstöð-
um um það, á hverjum tímum
árs hún sé vænlegust til góðs
árangurs.
llm þau atriði, sem i ályktun
þessari greinir, skal ríkisstjórn
in kveðja sér til aðstoðar sér-
fróða menn í þessum málum“.
Hér er vissulega um stórt mál
að ræða fyrir íslenzkan sjávarút-
veg og raunar þjóðarbúskapinn
í heild. Það er alkunna, að á und-
anförnum árum hefur alger afla-
brestur á síldveiðum valdið okk-
ur geysilegum búsifjum. Su.mar-
síldveiðin fyrir Norðurlandi hef-
ur gersamlega brugðist 8 ár.í röð.
Af þessu leiðir að hinar dýru
síldarverksmiðjur, sem mikið
fjármagn hefur verið bundið í,
hafa staðið svo að segja ónotað-
ar þennan tíma. Af því leiðir énn,
að tilfinnanlegur lánsfjárskortur
sem bitnað hefur á öðrum at-
vinnugreinum, hefur gert vart við
sig.
En þótt síldin hafi ekki veiðzt
á grunnmiðum fyrir Norðurlandi
í nokkur ár er ástæðulaust að
ætla að hún sé horfin úr sjónum.
Hún kann að hafa bxeytt göng-
um sínum og haldið sig á öðrum
slóðum. Þessvegna er nauðsynlegt
að allt kapp verði lagt á að halda
uppi sem fullkomnustum rann-
sóknum á lifnaðarháttum henn-
ar og göngum. Reynsla annarra
þjóða, og þá ekki hvað sízt
frænda okkar Norðmanna, bend-
ir ótvírætt til þess, að mikill ár-
angur geti orðið af visindalegum
rannsóknum á þessu sviði. Til
þess að geta haldið slíkum rann-
sóknum uppi þurfum við að eign-
ast fullkomið hafrannsóknarskip.
Ennfremur kemur til greina
áframhaldandi og víðtækari sam
vinna milli okkar og Norðmanna
um þessi mál.
Við Islendingar hljótum að
gera okkur það ljóst, eins og
aðrar þjóðir að vísindalegar
rannsóknir í þágu bjargræðis-
vega okkar geta orðið okkur
að miklu gagni. Þessvegna ber
að stefna að því, að við eign-
umst sem bezt og fullkomnust
tæki til slíkra rannsókna. Við
höfum þegar á að skipa ágæt-
lega menntuðum mönnum á
hinum ýmsu sviðum atvinnu-
lífs okkar. En starfskraftar
þeirra fá ekki notið sín til fulls
meðan þá brestur áhöld og
tæki til vísindalegra rann-
sókna. I
Tilgangur Sjálfstæðismanna
með tillögu Péturs Ottesens um
hafrannsóknaskip og fiskileit er
sá, að úr þessu verið bætt að því
er varðar sjávarútveginn. Verður
að vænta þess að allra hugsan-
legra úrræða verði freistað til
þess að við eignumst slíkt skip.
Áð sjálfsögðu muh það kosta mík-
ið fé. En slík tæki í þágu aðalat-
vinnuvega þjóðarinnar hljóta að
borga sig margfaldlega á skömm-
um tima.
Á síðasta alþingi var samþykkt
önnur tillaga frá þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins um stuðning
við fiskveiðar á fjarlægum mið-
um. Samkvæmt henni var ríkis-
stjórninni falið að athuga til hins
ýtrasta, hvernig, bætt verði að-
staða islenzkra skipa og sjó-
manna, er stunda fiskveiðar á
fjarlægum miðum, til þess að
geta hagnýtt afla sinn og notið
sem bezts aðbúnaðar og öryggis
við störf sín.
Einnig hér er um mikið hags
munamál að ræða fyrir sjáv-
arútveginn. Vegna þverrandi
afla á miðunum umhverfis
ísland af völdum gengdarlausr
ar rányrkju, hefur mikili hluti
togaraflotans nú hafið veiðar
við Grænland á sumrum. En
þessar Grænlandsveiðar eru
miklum vandkvæðum bundn-
ar, sökum þess að alla aðstöðu
skortir þar í landi. Af þeim
ástæðum hefur vélbátaflotinn
heldur alls ekki getað sótt
þangað.
Brýna nauðsyn ber til þess, að
úr þessu verði bætt hið skjót-
asta.
Verkefni
j
Aibherjarþingsfns
ALLSHERJARÞING Sameinuðu
þjóðanna hefir fyrir skömmu haf-
ið störf sín að nýju í aðalbæki-
stöðvum samtakanna í New York.
Meginviðfangsefni þess verður
eins og í haust Kóreudeilan og
lausn hennar. Það verður engan
veginn sagt, að vænlega horfi nú
um lausn þessarar deilu. Eins og
kunnugt er, snérust Rússar og
leppríki þeirra gegn miðlunartil-
lögu Indverja, sem reyndu að
bera sáttarorð á milli.
Ný viðhorf hafa nú að ýmsu
leyti skapazt í Austur-Asíumál-
um. Hin nýja stjórn republikana
í Bandaríkjunum hefir fyrir
nokkru lýst yfir, að hún muni
fella niður varðgæzlu þá, sem 7.
ameríski flotinn hefir haldið uppi
á hafinu milli Kína og Formósu,
þar sem síðustu leifar kínverska
þ.ióðernissinnahersins hafa bæki-
stöðvar sínar.
Af þessu leiðir það, að Chiang
Kai Sjek hefir frjálsari hendur til
árása á meginland Kína. En ótrú-
legt virðist, að hann hafi bol-
magn til að hef ja slíkar hernaðar-
aðf'erðir á næstunni.
Enda þótt ekkert bendi til þess,
að Bandaríkin hyggjist setja
beint hafnbann á Kína, verður
bó að telja fremur líklegt, að
ákvörðun þeirra varðandi afstöð-
una til Chiang Kai Sjek og For-
mósu verði ekki til þess að greiða
fyrir skjótri lausn Kóreudeilunn-
ar. Þvert á móti má gera ráð fyr-
ir, að Rússar og leppar þeirra
telji þá ráðstöfun ögrun við sig
oe herði ofbeldisaðgerðir sínar í
Kóreu. En meðal vestrænna þjóða
og þá ekki sízt meðal Bandaríkja-
manna, ríkir mjög vaxandi áhugi
fyrir að stöðva blóðsúthellingarn-
ar þar sem allra fyrst. Leiðin til
þess er hinsvegar enn ófundin.
Pclskur flugffiðður lenti HIG-
15 flugu á Borgundarhólmi
Félaga hans skipað að skjóla hann niður.
i
Kappfiug upp á líf og dauóa, — en komsf þó undan
Einkasbeyti til Mbl. frá NTB-Reuter.
RÖNNE, 5. marz. — Danska utanríkisráðuneytið hefur lýst því
yfir, að rússneska MIG-15 orrustuflugan, sem pótski flugmaður-
inn lenti heilu og höldnu á Borgundarhólmi í gærmorgun, verði
afhent pólsku stjórninni, ef hún óskar þess.
Hinn pólski flugmaður, sem
flugunni lenti á Rönneflugvelli,
er aðeins 21 árs að aldri. Hefur
hann beðið um dvalarleyfi í
Danmörku, sem pólitískur flótta-
maður.
MIKIÐ ÞREKVIRKI
Það þykir hið mesta þrek-
virki að hafa lent orrastuflug-!
unni á flugvellinum í Rönne.
því að hann er aðeins 1200
m. langur, ósléttur og slæmur
til lendingar, en orrustuflugur j
af þeirri gerð, sem hér um
ræðir, þurfa yfirleitt um 3000
m. langa flugbraut til lend-
ingar.
IJPP Á LÍF OG DAUÐA
Flugmaðurinn skýrði frá því,
að hann hefði haft lengi í huga
að flýja til einhvers Vestur-
Evrópulandanna, en hann hefði
ekki fengið tækifæri til þess fyrr
en í gær er hann var á æfinga-
flugi yfir Eystrasalti, ásamt ann-
arri flugu af sömu gerð.
Er þær voru í 16000 metra
hæð, dýfði hann sinni flugu
skyndilega með 1000 km.
hraða á klukkustund og
stefndi í vesturátt. Á leiðinui
heyrði hann, að hinn flug-,
maðurinn skýrði flugstöðinni
frá því, sem gerzt hafði, og
fékk hann þá fyrirskipun um'
að elta hann og skjóta orrustu
fluguna hans niður. — En
honum tókst, eins og fyrr
greinir, að flýja og er hann
var kominn til Borgundar-
hólms, var eldsneytisforði
hans að þrotum komínn, svo
að hann var neyddur til að
lenda upp á líf og dauða.
MIKIÐ NOTAÐAR f
KÓREU
Er þetta í fyrsta skípti, sem
rússnesk orrustufluga af þessari
gerð lendir óskemmd í höndum
Vesturveldanna, en þær hafa ver
ið notaðar mjög mikið af komm-1
únistum í Kóreustyrjöldinni og
gefið góða raun. i
Vansskorfinn 1
Udl JÚÍ
ber enn é góma 11
VATNSSKORTINN í einstökum
hverfum bæjarins bar enn á.
góma á fundi bæjarstjórnar í gær.
Borgarstjóri kvað þetta margrætt
mál. Það væri misskilningur, a@
vatsnskorturinn sprytti af því, að
ekki rynni nóg vatn til bæjarins.
Það vatnsmagn, sem bærinn fengi
nú nægði 90 þús. íbúa borg.
Ástæða skortsins í einstökum bæj
arhverjum væri hinsvegar sú, að
vatnsleiðslurnar til þeirra væru
gamlar og of þröngar. Mjög seint
hefði gengið að fá gjaldeyrisleyfi
fyrir nýjum pípum, en það hefði
loks fengizt á síðastliðnu ári. Af-
greiðslufrestur á þessum vörum
væri hinsvegar langur. Þessvegna
hefði orðið nokkur dráttur á
nauðsynlegum framkvæmdum.
En það væri von sín, að unnt
yrði að bæta úr erfiðleikunum í
þessum efnum, að minnsta kosti
í sumum bæjarhverfum á þessu
ári.
Borgarstjóri kvað eðlilegt, að
íbúar þessara hverfa væru orðnir
leiðir á drættinum.
Velvakandi skiifar:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Aðalfundur Verka-
I ^
mannafél. Hlífar
í Hafnarfirði
HAFNARFIRÐI, 5. marz. — Að-
alfundur Verkamannafélagsins
Hlífar í Hafnarfirði var haldinn
s. 1. miðvikudagskvöld. Þetta var
fyrri hluti fundarins, en ekki
hefir enn verið ákveðið hvenær^
seinni hlutinn verður haldinn. —
Stjórnarkosning fór fram og varð
sú breyting á stjórninni, að Mar- j
teinn Marteinssson var kosinn
ritari í stað Sigurðar Þórðarson-
ar. Að öðru leyti skipa þessir
menn stjórnina: Ólafur Jónsson,
formaður, Þorsteinn Auðunsson,
gjaldkeri, Sigurður Einarsson, j
fjármálaritari, Jens Runólfsson,
varaformaður og meðstjórnendur
Bjarni Erlendsson og Pétur
Kristbergsson. G. I
3 umferðfr effir
í bridgekeppni
Hafnfirðinga
HAFNARFIRÐI, 5. marz. —
Meistaraflokkskeppni Bridgefé-
lags Hafnarfjarðar hélt áfram
síðastliðið miðvikudagskvöld. Þá
vann sveit Jóns Guðmundssonar
sveit Árna Þorvaldssonar, Guð-
mundar Atlasonar Óskars Hall-
dórssonar og sveit Reynis Eyjólfs
sonar Ólafs Guðmundssonar. —
Sveit Jóns er nú hæst með 12
stig, en þrjár umferðir eru eftir.
— Næst verður spilað á sunnu-
daginn kl. í.3,30. — G.
Hollandssöfnuniiuii
Jýkur annað kvöld
ERUÐ þið búin að gefa í Hol-
landssöfnuina? — Nú gerast
hin síðustu forvöð, þar eð söfn-
uninni lýkur annað kvöld. Þeir
verða eflaust margir, sem bregða
við í dag og á morgun til að
leggja .frsun súua a’ieííf og senni- ,
lega verða þeir öllu stórtækarí ein
mitt fyrir þá sök, að þeir hafa .
dregið dag fram af degi þátttöku j
sina, þó að þeir hafi verið stað- J
ráðnir frá því fyrsta í að skerast
ekki úr leik. Ég held, að enginn
hafi efni á því að láta sitt eftir
líggja undir slíkum kringumstæð-
um sem þessum, enda hafa líka
íslendingar sýnt, hvað eftir ann-j
að, þegar neyð og þrengingar haf a
dunið yfir eina eða aðra af ná- j
grannaþjóðum okkar, að þeir
skilja hve mikið liggur við, að,
hjálp berist utan að frá. Ef til vill
skilja þeir það ennþá betur,
vegna þess, hve saga þeirra
sjálfra á margar örlagaþrungnar
frásagnir að geyma um harðindi (
og hailæri, sem herjað hafa á
land þeirra æ ofan í æ.
Lánnðu okkur fé til
smíði á gamla Gullfossi
FULLVÍST er, að Hollendingum
mun mikill styrkur að fram-
lögum hinna mörgu landa, sem
efnt hafa til samskota til að létta
undir með þeim í hinu geysilega
víðtæka uppbyggingarstarfi, sem
þeir eiga fyrir höndum á næstu
árum. Hollendingar eru vissulega
vel að þessari aðstoð komnir, —
þeir eru hin mesta dugnaðar- og
heiðursþjóð.
Við íslendingar mættum t.d.
muna þeim það, er þeir, fyrstir
erlendra þjóða urðu til að lána
okkur fé, þegar verið var að
ráðast í smíðina á gamla Gull-
fossi á sínum tíma. Nú býðst
hverjum góðum íslendingt tæki-
færi til að launa þeim greiðann.
Hollandssöfnunin á íslandi nem
ur nú nær 450 þús. krónum, eða
um þrem krónum á hvert manns-
barn í landinu. — Nær hún hálfri
milljón, áður en lýkur?
Morgunútvarpið létt
og skemmtilegt
ANÆGÐUR útvarpshlustandi
skrifar:
„Á hverju kvöldi, áður en ég
svif á vængjum svefnsins inn í
draumalandið hugsa ég tíl þess
með tilhlökkun að vakna morg-
uninn eftir við morgunútvarpið.
Eða hvað getið þið hugsað ykkur
dásamlegra en að vakna hress og
endurnærður við díllandi
skemmtilega músík? Það fyllir
mig bókstaflega af fjöri og góðtt
skapi, sem endist mér að jafnaði
allan daginn — jafnvel þótt hanir
gangi á með grenjandi útsynn-
ingi myrhranna á milli!
Það er ekki einungis, að lögin,
sem leikin eru séu einstaklega vel
valin og skemmtileg að öllum
jafnaði, heldur eru þulirnir líka.
hressilegir og upplífgandi, og það
hefur meira en lítið að segja.
Mér er sérstök ánægja að því
að geta h^-ósað þessum dagskrár-
þætti Ríkisútvarpsins okkar. —
Nógu margir samt verða til þess.
að senda því tóninn, miður vín-
samlegan stundum“.
Varð aff hætta
í Tónlistarskólanum
ÉR hefur borizt bréf frá B.S.
á þessa leið:
„Kæri Velvakandi!
Kunr.um tónlistarmanni fórust
orð við mig eitthvað á þessa Ieið:
„Þeir, sem ekki vissu áður, að
Guðmundur Ingólfsson er af-
bragðs listamannsefni, hafa sann-
færzt, er þeir hlýddu á píanó’eik
hans í Sjálfstæðishúsinu á öög-
unum“.
En Guðmundur er ungur, að-
eins 14 ára, svo að hans bíðuF
sleitulaus þjálfun, ef vel á aST
vera. Mér hnykkti því satt að
segja við, er ég frétti, að þessi
efnilegi unglingur hefði orðið að
hverfa frá námi í Tónlistarskól--
anum á miðjum vetri vegna fjár-
skorts.
Getur það verið, að við stönd-
um það að baki nágrannaþjóðum
okkar, að við gefum ekki efna-
litlum afbragðsnemendum kost á
ókeypis vist í Tónlistarskólanum?
Samt veit ég ekki betur en að
skólinn hljóti 140 þús. kr. styrk
frá bæ og ríki á þessu ári.
Hví ekki að ætla þar nokkmm
góðum nemendum sæti, þó að
ekki sé greitt í reiðufé? —- Því
minni sem þjóðin er, þeim mua
meiri fengur er henni í hverjum
nýjum listamanni, sem kemur
fram á meðal hennar. Hann er
sínu leyti eins og spámaðurinn,
sem rís upp með þjóðinni. — B.S."