Morgunblaðið - 06.03.1953, Side 12

Morgunblaðið - 06.03.1953, Side 12
MORGVNBLAÐIÐ Föstudagur 6. marz 1953 i 12 — Sr. Jóharcn Harcrcessorc Framh. af bls. 9 staðar þó ekki fyrr en á 13. ðld. Þá voru einnig kirkjulegar árs- . tíðir friðhelgar, svo sem fastan, páskarnir, aðventan og jólin. | Þannig má sjá að kirkjan glím- , ir við friðarvandamálin um leið og hún kristnar og siðmenntar þjóðfélögin á miðöldunum. Var oft við ramman reip að draga, eins og sjá- má af sögu vorrar eigin þjóðar. Þjóðfélagsvenjur germönsku þjóðanna, ættastríð, blóðhefndir; einvígi, ránsferðir, kvennarán o. s. frv. áttu sér afar sterkar og djúpar rætur. Barátt- an fyrir Guðsfriðnum verður; skiljanlegri þegar þess er gætt að þjóðhöfðingjarnir gátu blátt áfram ekki komið friði á innan- lands. Þegar vér heyrum kveðj- una: „í Guðs friði“, þá skyldi ekki gleyma erfiði og þrautum ágætismanna, sem reyndu að leysa þjóðfélög vor úr viðjum vopnavalds og ofbeldis og gáfust ekki upp þótt hægt gengi. Það tók aldir áður en friðarhugtök voru fastmótuð og viðurkennd, éins og t. d. heimilisfriður, gesta- friður, kirkjufriður, þingfriður, torgfriður, kvenfriður (konum var oft rænt af heimilum sínum á miðöldunum), jólafriður, páska friður hvítasunnufriður, haust- friður staðar- og stúndarfriður. í áföngum var friðurinn unninn áður en sá friður varð er vér njótum nú og allir telja skylt að vernda. — Ekki var það ótítt á miðöldum að borgir í sama landi voru í ófriði hvor við aðra. Sjálft orðið „borg“ þýðir upphaflega vigi og heldur þeirri merkingu elin á þýzku og norðurlandamál- urium. Kínverska orðið ,,Cheng“ þ. e. borg, er samansett úr þrem léturmyndum, mold styrkleika og vopni. Allt fram á vora daga hefur kínverskum borgarmúrum verið haldið við og hliðunum lokað að kvöldi og stundum að degi til fyrir hermönnum og ræningjum og „moldarveggirnir“ varðir með vopnum borgaranna. Borgarmúra má enn sjá í Mið- Evrópu og þeir minna oss á að ekki er ýkja langt síðan menn gerðu róð fyrir ófriði í þjóðfélag- inu allt í kring um sig. Það þótti tiðindum sæta þegar það tókst — innan sama lands — að fa borgir, aðalsmenn og fursta til að mynda friðarbandalag eins og t. d. í Worms 1495. Menn töluðu um „eilífan landsfrið", en með því var átt við frið innan sama iands, frið, sem menn þráðu og leituðust við að koma á. HERFERÐ GEGN MÚHAMEÐSTRÚ Innan kirkjunnar var þannig unnið að friðarhugsjónum, en ekki þegar „óvinir trúarinnar" áttu í hlut, þ. e. Múhameðstrúar- menn. Gegn þeim hvöttu páfar og biskupar til krossferða, til þess að endúrheimta hin fornu kristnu lönd. Þegar Tyrkir ógn- uðu Mið-Evrópu og voru þar á ferð með báli og brandi, var ekki lítill ótti meðal manna í Vestur- Evrópu. Árið,.. sem Ágsborgar- játningin var sámin — meira að segja á sama fundi, sem hún var lögð fram — þá voru þeir menn, sem að henni stóðu, einnig þang- að kallaðir til þess að ráðgast um „hjálparlið'gegn Tyrkjanum, þeim gamla erfðaóvini kristni- nafnsins og kristninnar, hvernig maður geti staðið gegn grimmd hans og árásum með varanlegum og öfiugum vígbúnaði". Þannig er það í inngangi þessarar játn- ingar, en í henni sjálfri segir að leyfilegt sé kristnum mönnum að „berjast í stríði samkvæmt rétti“ (iure bellare). Þannig varð ekki lútherska kirkjan meðal þeirra trúarfélaga, sem tóku af- neitun alls hernaðar á sfefnuskrá sína, en slík trúarfélög eru til, svo sem kunnugt er. Af kunnum trúarlegum leiðtogum sem héldu því fram að kristnum mönnum væri óheimilt að bera vopn undir öllum kringumstæðum má nefna tvo: Mennon, f 1492, en trúar- flokkurinn Mennonítar hefur nafn sitt eftir honum. Þá ber að nefna George Fox, fyrsta leiðtoga Kvekara f. 1624. Hvorugur þessara trúarflokka getur talizt fjölmennur, en báðir eru merkilegir, ekki sízt kvekar- ar sökum mikillar mannúðar í þjóðfélagsmálum, afnámi þræla- halds, endurbótum og fangelsa og síðast en ekki sízt fyrir af- skipti sín af friðarmálum, en þeir láta þau nú til sín -taka á heims- mælikvarða. Víkur sögunni að þeim síðar. Reykjavík í febrúarlok 1953. Jóhann Hannesson. Herflugvélar til flétta marcnafiutnlnga BONN, 4. marz. — Adenauer forsætisráðherra skýrði frá því í þýzka þinginu í dag, að hann hefði beðið Vesturveldin um að láta í té hernaðarflugvélar til þess að flytja flóttamenn frá V.- Berlín til Vestur-Þýzkalands, en brýn nauðsyn krefur nú, að hraða þessum flutningum, þar sem all- ar flóttamannabúðir í Vestur- Berlín eru yfirfullar. —-NTB-Reuter. Sýningar á „Rekkj- ■ir oo ,J mólinu" að nýju Frú Anna Björnsdétt- ir Lækjamóti 50 ára HINN 23. febr. s. 1. átti fimm- tugsafmæli frú Anna Björnsdótt- ir á Lækjarmóti. Heimsótti hana fjöldi fólks úr sveitipni. Bárust henni fjöldi af skeyt- um og fögrum gjöfum. Anna er Skagfirðingur að ætt. Hún er prýðilega vel gefin kona og víðlesin, stjórnsöm húsmóðir og félagslynd. Anna er kvænt Eið Sigurðs- syni oddvita. Hafa þau eignazt 7 börn en 6 þeirra eru á lífi. •> Sveitungi. I P]Oviv SÝNINGAR á „Stefnumótinu“ eftir J. Anouilh hafa legið niðri um hríð sökum þess, að aðalleik- andinn, Gunnar Eyjólfsson, hefur verið undanfarið á leikferðalög- um með „Rekkjuna“ víða um landið. Fyrir atbeina áhugasamra leik- húsmanna var sú nýbreytni tekin upp hjá Þjóðleikhúsinu að gefa sem flestum landsmönnum kost á að sjá sjónleiki Þjóðleikhússins utan veggja þess. Margmennir eða fyrirferðamiklir sjónleikir koma að sjálfsögðu ekki til greina í þessum efnum, en hinsvegar eru verk eins og t. d. Rekkjan einka- iega vel fallin til slíkra leik- kynninga. Fyrsta tilraunin gafst vonum framar. Leikparinu, Ingu Þórðardóttur og Gunnari Eyjólfs syni, hefur verið tekið með kost- um og kynjum af megin þorra landsmanna, ef dæma má eftir þeim viðtökum, sem það fékk ný- lega bæði á Akureyri og Blöndu- ósi, þar sem „Rekkjan“ var sýnd við húsfylli í hvert skipti. Sýn- ingar á sjónleikjum þessum hætta sennilega upp úr miðjum mán- uðinum vegna fyrirhugaðrar brottfarar Gunnars Eyjólfssonar til Bandaríkjanna. Myndin hér að ofan er af Regínu Þórðardóttur, Guðbjörgu Þor- bjarnardóttur og Gesti Pálssyni í „Stefnumótinu“. Hákon Noregskon- ungur til Svíþjéðar STOKKHÓLMI, 4. marz. — Ákveðið er nú hvernig háttað verði móttöku Hákonar Noregs- konungs, er hann kemur í heim- sókn til Stokkhólms 23.—25. marz n.k. — Tekur Svíakonungur á móti honum ásamt ríkisstjórn Sviþjóðar á járnbrautarstöðinni, og um kvöldið er boð inni í norska sendiráðinu fyrir sænsku konungsfjölskylduna, þá er og af- ráðið að konungsfjölskyldurnar verði viðstaddar leiksýningu í Stokkhólmi. -—NTB Framhald af bls. 1 VISHINSKÍ HELDUR HEÍM Frá New York berast þær fregnír, að Vishinskí, utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, sem nú er staddur í New York á þingi S. Þ., muni halda heim á morg- un með vélflugu. Er ástæðan vanheilsa Stalíns og þykir Vis- hinskí mikið við liggja að kom- ast heim, þar sem hann hefur venjulega áður farið sjóleiðis. Á hinum vikulega blaðamanna- fundi sínum í dag sagðist Eisen- hower, forseti, vera fús til þess að hitta eftirmann Staiíns að máli, ef um það næðist sam- komulag'. MIKIÐ RÆTT UM VEIKINDI STALÍNS í MOSKVU Fréttaritari Reuters í Moskvu segir, að veikindi Stalíns setji svip á allt þjóðlífið í Sovétríkj- unum um þessar mundir. í Moskvu eru veikindi marskálks- ihs mikið rædd manna 1 milli og bíður fólkið með óþreyju eftir nýjustu fregnum um líðan ein- ræðisherrans. — í rússnesku blöð unum hafa fréttir um líðan Stalíns verið á forsíðunum, og hafa blöðin hvatt þjóðina til að sína stillingu og fylkja sér um kommúnistaflokkinn. Moskvu-út- varpið hefur í allan dag útvarp- að þáttum úr lífi Stalíns, auk þess' sem lesið hefur verið upp úr verkum hans. Á milli þess hafa svo komið tilkynningar um líðan hans. ÞRIGGJA MANNA IÍÁÐ Mjög hefur verið rætt um það meðal vestrænna stjórn- málamanna, hver verði eftir- maður Stalíns. Hafa margir hallazt að því, að Malenkov verði látinn taka við starfi hans og gerður að einvalds- herra, en aðrir —• og eru þeir mun fleiri —, að skipað verði þriggja manna ráð Malenkovs, Moloíovs og Beria, er hafi með höndum allt fram- kvæmdavald í Sovétríkjunum. EITT af þeim máium, sem Flutn- inganefnd S.Þ. tók fyrir á fund- um sínum í New York í febrúar var óhreinindi í sjó, sem stafa af úrgangi frá skipum, olíubráð og þessháttar. Nefndin leggur til að sérfræðingar verði fengnir 'til að rannsaka þetta vandamál í sam- ráði við ríkisstjórnir, sem áhuga hafa fyrir málir.u. Tregur afli í Bolung- arvík í febr. ' BOLUNGARVÍK, 5. marz: — Afli hefir verið tregur frá Bolungar- vík í febrúarmánuði á heimamið- um. Alls var lagt á land 293,850 kg: Einar Hálfdáns fékk 54,280 kg í 17 róðrum, Flosi 44,670 kg í 15 róðrum, Víkingur 44,235 kg í 15 róðrum, Særún 15,600 kg. í 10 róðrum, Kristján 15,293 kg. í 11 róðrum og Ölver 8.762 kg. í 9 róðrum. Heiðrún sem er í útilegu lagði upp fjórum sinnum allt, 11.110 kg. úr samtals 19 lögnum. Sami bátur iagði upp á þriðjudag 39.550 kg. afla, sem hún fékk aðal lega í tveimur lögnum. — Hrað- fryst voru 1092 kg. af skelflettri rækju. •— Fréttaritari. - Æskulýðssíða Framhald af bls 11 gegn kynþáttahatri og trúar- bragðaofsóknum keisaratímans. Hin fyi-ri er, að nú hefur ísra- elsríki slitið barnsskónum og fylgir Vesturveidunum sem fast- ast að málum. Sú síðari á rót sína að rekja til atburðar er gerðist nýlega á járnbrautarstöðinni í Moskvu. — Mikill fjöldi Gyðinga hafði þar safnazt saman til þess að fagna með viðhöfn nýjum sendiherra ísraels í Moskvu og votta hon- um virðingu sína. Þá sáu vald- hafar Sovétríkjanna enn ljósar, að tilvist slíks félagshóps, er játaði virðing og hollustu trú sinni og musteri hennar í Jerú- salem yrði ekki þoluð í því ríki sanntrúaðra heiðingja, — Sovét- ríkjunum. Mannfjöldanum var dreift með lögregluvaldi pg skömmu seinna voru iæknarnir níu dæmdir. Og iokasporið kom skömmii síðar. í annarri viku febrúar sleit Sovétstjórnin stjórnmála- sambandi við ísrael og kaliaði sendiherra sinn heim frá Tel Aviv. 'k 'k Þannig hefur nú Sovétstjórnin bætt trúarbragðahatrinu við safn sitt af hinu fjölbreyttasta mann- hatri, sem undir sólinni finnst í dag. Kommúnisminn prédikar Stéttahatur, stéttastríð, hugsjóna- hatur, kynþáttahatur, lífsótta og trúarbragðahatur. En mæiirinn er ekki enn fullur, því það er eðli öfganna að brýnast og efiasfc þar til öllu lýkur og himinninn fellur niður. Ofbeldi leiðir af sér meira ofbeldi, hatur vekur auk- ið hatur, ofsalegri andstöðu og endanlega byltingu. En á meðan verða hlutlausir áhorfendur að sjónarspili ís- lenzkra kommúnista, hvort sem það fer fram á sviðinu í Stjörnu- bíói eða annars staðar, að virða mönnum eins og Sverri Krist- jánssyni og Birni Þorsteinssyni það til vorkunnar, þótt þeir geri ser það til dundurs að falsa bæði íslandssöguna og mannkynssög- una í amstri harðra dægra. Því það geta fleiri ríkisþinghús brunnið en það þýzka. g'gs. hússtðrl Haldið hðndunum bvortai hvli |úkum nico um þvi M A R K Ú S Eftir Ed Dodd DON'T WOERV, AAV DAELING-.- I MAVE BOOKS HBEE AND 2, fOSTCN TO THE PADIO A GOOP DEAL. . . I'M OKAV, AND I FEELy- •^L MUCM BETTEK f . ) CHECDV, TELL ME, . HONEV, AEE VOU ■ SUSE YOU WANT , TO MACCY JE-F-F CCANE V *' OF COUDSE. ► DAD... I'M GOINS Tv. ■* MACRV MIM ., NEXT WEEK 1) — Svo líður þér miklu bet- haft tíma til að heimáfekjk þig. | 3) — Mér leiðist ekkerí. Ég ur þegar þú vaknar aftur. i Það er svo mikið að .gera, þeg- hef hérna bækur til að skemmta 2) Á meðan: — Ég hef haft | ar maður ætlar að fará að gifta !mér við og ég hlusta á útvarpið. svo mikið að gera, að ég hef ekkiisig. ____ .__________.f* 4) — Sirrí, segðu mér elskan mín, langar þig í raun og veru til að giftast Jafet. — Auðvitað, annars myndi ég ekki gera það. _________;

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.