Morgunblaðið - 26.03.1953, Page 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 26. marz 1953
S Y S T I R I N
3KÁLDSAGA EFTIR MAYSIE GRIEG
Framhaldssagan 32
þangað til hún kæmi aftur? Hún
vissi að stúlkurnar skiptu þúsund
um í London, sem mundu grípa
tækifærið ef þeim byðist það til
að fá þetta hlutverk.
„Ég . . ég vil ekki fara, Jack“,
sagði hún. „Því þarf nokkurt okk
ar að fara? Við sem erum nýbúin
að koma okkur fyrir í þessari
litlu íbúð“.
Hann brosti en honum líkaði
ekki allskostar.
„íbúðin fer ekki frá okkur.
Hún verður alveg eins góð þegar
við komum aftur. Og hugsaðu
þér hvílíkt ævintýri þetta verður
fyrir þig. Þú hefur aldrei komist
til útlanda, nema þegar við fór-
um þetta til Parísar".
Hún hristi höfuðið. „Nei, en
mig langar ekkert til að fara“.
„Vitleysa", sagði hann dálítið
hranalega. „Þú ferð og þér mun
þykja gaman þegar af stað er
komið. Það væri óhugsandi að
láta þetta tækifæri ganga sér úr
greipum. Mér dettur ekki í hug
að fara án þín. Þetta er kjána-
skapur að láta svona“.
„Áttu við .. áttu við að þú
ætlir að halda fast við að ég
fari?“ Rödd hennar var hikandi.
„Ég vil ekki þvinga þig til
þess, Janice“, sagði hann. „Ég
vil ekki þvinga þig til neins“.
Það varð stutt þögn. Hún
brosti.
„Jú, þetta var kannske vitleysa
hjá mér“, sagði hún. „Ég var
víst bara hrædd við að fara svona
langt. Ef til vill mun mér finnast
það gaman þegar þangað er kom-
ið. Ég skal að minnsta kosti reyna
það fyrir þig“.
„Elsku Janice“, sagði hann og
tók hana í fang sér.
—//—
Næsta dag fór Janice til Alice.
Hún þorði ekki að fresta heim-
sókninni eftir það sem Jack hafði
sagt. En hún var dálítið tauga-
óstyrk, þegar hún gekk upp tröpp
urnar í gamla húsinu við Bays-
water. Einu sinni hafði hún getað
leyft sér hvað sem var gagnvart
systur sinni. En hún var ekki viss
um að svo væri ennþá. Hún var
viss um að tilfinningar systur
hennar höfðu breytzt í hennar
garð siðustu vikurnar fyrir gift-
inguna.' Janice þótti mjög fyrir
þessum breytingum. Sú staðreynd
að hún sjálf væri orsökin að þeim
gerði henni ennþá þyngra í skapi.
Hún hringdi dyrabjöllunni og
Alice kom til dyra. Alice horfði
fyrst þegjandi á systur sína.
„Komdu sæl, Alice“, sagði
S Janice eins glaðlega og hún gat.
; ,.Mér datt í hug .. mér datt í
hug að koma og spjalla við þig.
Má ég koma inn?“
„Auðvitað” ,sagði Alice.
,,Komdu inn. Ég hef undrast það
sö þú hefur ekki komið fyrr“.
Það var eitthvað þvingað við
framkomu beggja. Þær töluðu
saman kurteislega, eins og þær
væru ókunnugar.
„Ég .. ég hef verið afskaplega
Önnum kafin", sagði Janice. „Við
að koma íbúðinni í lag....“.
„Ég skil“, sagði Alice. „Á ég
að búa til te handa þér?“
„Þakka þér fyrir“, sagði aJnice.
„Ég borða aldrei neinn morgun-
mat . . drekk bara appelsínusafa.
Ég er svo hrædd um að verða of
feit“.
„Þú virðist ekki hafa fitnað“,
sagði Alice. „Mér sýnist þú meira
f að segja hafa lagt af“.
| „Við vorum svo mikið á fart-
inni í París. En það var dásam-
iegt. Ég keypti mér svo mikið af
' fallegum fötum. Ég .Allt í
einu mundi hún eftir því að hún
harfði ekki keypt neitt handa
Alice í París. Þá mundi hún eftir
bláum blómum tiibúnum, sem1
áttu ekki alveg nógu vel við
kjólinn. „Ég keypti dálítið handa
þér“, sagði hún. „En ég skildi það
eftir heima“.
„Það var fallega gert að muna
eftir mér“. Ef svo var að rödd
Alice var bitur, þá lét Janicé að
minnsta kosti eins og hún hefði
ekki heyrt það.
„Ég held að þér muni falla þau
vel“, hélt hún áfram. „Það eru
tilbúin blóm. Maður fær hvergi
falleg tilbúin blóm nema í París
og ég veit að þér þykir blátt svo
fallegt".
Hún þagnaði snöggvast og
mundi þá um leið að blátt klæddi
alls ekki Alice. Hún flýtti sér því
að halda áfram til að minna bæri
á þessari yfirsjón hennar: „Og ég
hlakka svo mikið til að sýna þér
íbúðina. Ég vildi ekki að þú sæir
hana fyrr en allt væri komið í
lag. Hún er alveg indæl“.
„Það er gott að þú ert ánægð
með hana“, sagði Alice.
Það sauð á katlinum og hún fór
því fram í eldhúsið til að taka
hann af vélinni.
„Mér er farið að þykja svo
vænt um hana“, kallaði Janice
til hennar. „Ég sakna hennar
áreiðanlega á meðan við Jack er-
um fjarverandi. Þú veist að við
erum að fara í einhvern rann-
sóknarleikangur til Haiti eftir
nokkrar Vikur? Heldurðu að það
sé ekki gaman?“
Alice varð undrandi. Hún hafði
ekki átt von á því að Janice tæki
svo vel í það að fara í þetta ferða
lag. En því skyldi hún ekki gera
það? Janice hafði alltaf verið
mikið fyrir allar tilbreytingar.
„Það er gott að þér líkar það
vel“, sagði hún. „Jack minntist
á það við mig í gærkvöldi“.
„Hann sagði mér að hann hefði
minnst á það við þig“, sagði
Janice. Ég ætlaði að koma til þín,
en rétt áður £n ég lagði af stað
fékk ég þennan ægilega höfuð-
verk. Ég varð að fara beint í rúm
ið. Þú mannst eftir því hvernig ég
fékk oft slæma höfuðverki?“
„Ég man ekki eftir því að þú
hafir fengið höfuðverk nokkurn
tíma á ævinni“, sagði Alice stutt
í spuna.
„Þú getur ekki hafa gleymt
því“, sagði Janice. Systur höfðu
stundum leiðinlega gott minni,
hugsaði hún með sjálfri sér. Syst
ur voru leiðinlegar yfirleitt. En
En fólk talaði ekki um það.
Þær sátu yfir tebollunum þeg-
ar Janice spurði kæruleysislega:
„Ekki vænti ég að þú hafir séð
Derek upp á síðkastið?"
„Jú, hann kom hingað um dag-
inn“.
„Jæja“. Reiði brá fyrir í bláum
augum Janice.
„Vesalings Derek“, sagði hún
og reyndi að hlæja. „Skrítið að
ég skyldi nokkurn tíma hafa ver-
ið skotin í honum. Hvernig geng-
ur hjá honum?“
„Ekki sem bezt, því miður“,
sagði Alice. „Leiktímabilið í
Liverpool er liðið. Hann kom
hingað til að reyna að fá aðra
atvinnu".
„Er hann í atvinnuleit . . ein-
mitt“, sagði Janice. „Ætlar hann
að setja upp leikrit hérna?“
„Það sagði hann mér“.
Janice þagði dálitla stund og
horfði hugsi niður í tebollann.
Derek ætlaði að setja upp leikrit
í London. Hún hló við.
Svo stóð hún upp og sagðist
verða að fara. Hún fleygði silfur-
refaskinninu um axlir sér. „Ég
hringi til þín og þá getum við
ákveðið hvenær þú kemur og
borðar með okkur“ sagði hún.
„Vel á minnst, Jack sagði mér
í morgun að þú værir hætt að
vinna hjá frú Denning".
Alice brosti við. „Já, mér var
beinlínis sagt upp“.
„Kerlingartuskan“, sagði Janice
„Hún neitar Jack um að lofa mér
að koma og heimsækja hana. Og
hún veður í peningum. Hún hef-
ur aldrei séð mig svo mér finnst
það nokkuð ástæðulaust .. Þú
ætlar að fara að vinna fyrir ein-
hvern Bruce lávarð?“
„Ég byrja á mánudaginn", sagði
Alice.
„Til hamingju með það“, sagði
XX.
ins en ella. Það var aftur á móti erfiðara fyrir hans að kom-
ast upp úr brunninum. Eftir langan tíma og mikið erfiði,
tókst honum þó að fikra sig upp á brunnbarminn.
Nú sá Hans, að það hefði verið betra fyrir hann að fara
að ráðum refsins. Hann hafði alltaf á réttu að standa. Hans
lagði nú af stað til þess að leita að kóngsdóttur, því að hann
vissi, að bræður hans hefðu tekið hana með sér. Hann varð
að bjarga kóngsdóttur úr höndum þeirra.
Hans hélt viðstöðulaust áfram þar til hann kom heim í
kóngsgarð- Bræður hans höfðu komið heim nokkru á und-
an Hans, og höfðu þeir sagt föður sínum, að þeir hefðu í
sameiningu handsamað demantsfuglinn, sömuleiðis demants-
hestinn og síðast en ekki síst kóngsdótturina úr demants-
höllinni. En svo einkennilega vildi til, að kóngsdóttirin
fékkst ekki til að tala eitt einasta orð. Fuglinn og hesturinn
voru einnig mjög miður sín. Áður en Hans kom í konungs-
ríki, hafði hann búið sig í dulargerfi. Hann leit nú út sem
fjörgamall maður. í fyrstu átti ekki að hleypa honum inn í
höllina, en þegar hann sagðist vera með mjög áríðandi skila-
boð til kóngsins, var honum loksins hleypt inn.
Þegar Hans kom inn í salinn, þar sem kóngurinn var,
stóð þannig á, að kóngsdóttirin fagra var þar stödd. Og
þegar hún sá „gamla manninn", sá hún strax, að það var
Hans. Hún hljóp beint í fang hans, og urðu miklir fagnað-
arfundir með þeim. Síðan sagði hún kóngi allt eins og var.
Hvernig bræður hans höfðu svikið Hans — og að þeir hefðu
ætlað að drepa hann.
Kóngurinn lét nú kalla syni sína fyrir sig. En þeir höfðu
ekki minnstu hugmynd um annað en Hans væri steindauður
í brunninum. Þegar þeir komu inn í salinn og sáu Hans
og kóngsdóttur, ætluðu þeir að flýja út úr herberginu, en
Hvítar og grænar
fiakkplötur
(í tíglum).
Sænsk-ísl. verzlunarfél. h.f.
Vatteraðar
Kutdaúlpur
fyrir börn og unglinga,
margir litir. — Þrjár teg-
undir. —
TAKIÐ
EFT1IK
Peningamenn eða konur. —
Vill ekki einhver lána á-
byggilegum manni fyrir
nýrri jeppabifreið. Til mála
gæti komið að sá hinn sami
geti ekið í stuttar skemmti-
ferðir við tækifæri. Tilboð
sendist afgr. Mbl. fyrir
mánudag n. k., merkt: „Góð
ur félagi — 485“.
Sænskar
Utihuröa-
skrár, lamir. —
ÍBUÐ
— Trillubátur
Til sölu 3ja herbergja íbúð
í kjaliara. Söluverð 100 þús.
tJtborgun 60 þús. — 3ja til
4ra tonna trillubátur, nýr.
Ný Universal-vél. Verð 24
þús. Uppl. í síma 3946 eftir
kl. 6 næstu daga.
Nýtízku íbúð
fyrsta hæð, 120 ferm., fjórar stofur, eldhús og bað, með
sérinngangi og sérhita í Hlíðahverfi, til sölu. — Laus
14. maí n. k.
Nvia fasteignasalan
Banlsastræti 7, sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e.h. 81546
Viljum kaupa
góða 4ra herbergja hæð á hitaveitusvæði, ásamt lítilli
íbúð í risi eða kjallara. — Útborgun kr. 250 þúsund.
Málflutningsskrifstofa Högna Jónssonar
Austurstræti 12 — Sími 7739.
Afgreiðslustúlka
óskast frá miðjum apríl í nýlenduvöruverzlun í Vestur-
bænum. Umsóknir með upplýsingum um fyrri störf og
meðmæli, ef fyrir hendi eru, sendist afgr. Mbl. fyrir
laugardagskvöld, merkt: „Merva — 481“.
Sjómannr vantar
á þorskanetjabát. — Uppl. um borð í m.b. Aðalbjörgu,
sem liggur við gömlu Verbúðarbryggjuna.