Morgunblaðið - 13.05.1953, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 13. maí 1953
i
133. dagur árgins.
Næturlæknir er í læknavarð-
etfunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
Apóteki, sími 1617.
Rafmagnsskömmtunin:
1 dag er skömmtun í 4. hverfi.
I.O.O.F. = 1355138%
9.0.
Dagbók
Laikiélag Reykjavíkur keðjusýnir leikrit sín
RMR — Föstud. 15. 5. 20. —
VS — Mt. — Atkv. — Htb.
i
• Messur •
j Á morgun:
Elliiieimilið: — Guðsþjónusta
kl. 10 f.h. (Altarisganga). Séra
Sigurbjörn Á. Gíslason.
Laugarneskirkja: — Messað á
nppstigningardag kl. 2 e.h. Séra
Garðar Svavarsson.
Fríkirkjan: — Messað kl. 2 e.
h. á uppstigningardag. — Séra
Þorsteinn Björnsson.
• Brúðkaup •
Nýlega voru gefin saman í Ájóna
band af séra Árelíusi Níelssyní,
Guðni Halldórsson, bílstjóri, Laug
arteigi 20 og Lilja Guðrún Pét-
ursdóttir. Heimili þeirra er að
Laugarteigi 20. — Ennfremur
voru gefin saman í hjónaband
Mnn 9. maí s.l., Reynir Tómasson,
bóndi, frá Eyvík í Grímsnesi og
Emma Kolbeinsdóttir, sama stað.
Og sama dag voru gefin saman í
bjónaband, einnig af séra Árelíusi
Níelssyni, Gunmar Ólafsson, renni
smiður, frá Vestmannaeyjum og
I»uríður Guðrún Ottósdóttir,
Fálkagötu 32. Heimili þeirra verð
ur í Vestmannaeyjum.
Vesalingarnir
Ragnh. Steingrímsdóttir og
Knútur Magnússon
Ævintýrið
Elín Ingvarsdóttir og
Gísli Halldórsson
Góðir eiginmenn
Auður Guðmundsdóttir og
Einar Pálsson
í lok leikársins hefur Leikfélag Reykjavíkur efnt til yfirlitssýninga á þeim þremur leikritum, sem
félagið hefur sýnt í vetur. Standa þessa sýningar yfir þessa viku og hófust með sýningu á „Ævin-
týri á gönguför“ á mánudagskvöldið var, en í gærkvöldi var gamanleikurinn „Góðir eiginmenn
sofa heima“ sýndur. í kvöld verða „Vesalingarnir“ eftir Victor Hugo sýndir, en á morgun verður
, fimmtugasta og síðasta sýning á „Ævintýri á gön?uför“ á þessu leikári og verður það nónsýning,
j sem hefst kl. 3. Annað kvöld verður svo gaman'.eikurinn „Góðir eiginmenn sofa heima“ sýndur
og endurtekinn á föstudagskvöld og eru þctta síðustu sýningar á leiknum.
Hjónaeíni
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
xmgfrú Gunnhildur Þorstemsdótt-
ir, Hverfisgötu 33, Hafnarfirði og
Bergur Jónsson, Selvogsgötu 4,
Hafnarfirði.
Nýl. opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Jenný Árnadóttir frá Ak-
ureyri og Þorleifur Jónsson, Sel-
vogsgötu 4, Hafnarfirði.
I gær opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Oddný Grímsdóttir, Sam-
túnj 42 og Jónas Guðmundsson,
Hringbraut 80. —
Mánudaginn 11. þ.m. opinber-
uðu trúlofun sina ungfrú Ágatha
Kristjánsdóttir, Langholtsveg 34
og Kristján Halldórsson, sjóm.,
Grundarstíg 8, Reykjavík.
• Afmæli •
Sextug er í dag frú Vilborg
Kristjánsdóttir að Ölkeldu í Stað-
arsveit. —
Starfsafmæli
í dag á Lauritz K. Petersen, bif
teiðarstjóri hjá Kveldúlfi, 25 ára
ötarfsafmæli. Hann kom hingað
til landsins 13. maí 1928 og hefur
dvalizt hér æ síðan. Petersen er
fæddur í Kaupmannahöfn 7. ágúst
árið 1906. —
Hnífsdalssöfnunin
(i Söfnunarnefndinni hafa borizt
eftirtaldar gjafir: — Skipshöfnin
AUGLYSINGAR
sem birtast eiga í
Sunnudagsblaðinu
þurfa að hafa borizt
fyrir ki. 6
á föstudaig
orcpu
n llaÍiI
á'b.v. Marz kr. 1.800,00. Þórhild
ur Ólafsdóttir 200,00. Margrét og
Jón Helgason 250,00. Sigríður
Björnsdóttir 50,00. Herdís og Þor
lákur 50,00 og bækur. Jón Einars-
son kr. 100,00. —
Hafnarfjarðarkirkja
Altarisganga í kvöld kl. 8.30. —
Séra Garðar Þorsteinsson.
í happdrætíi
Sjáifstæðisflokksins
eru 50 vinningar, samtal* að
upphæð 130 þús. krónur. —
Prentvilla í fyrirsögn
varð í blaðinu í gær, í fréttinni
um bandarísku vísindamennina,
sem hingað eru komnir til að
kanna ísrek á hafinu fyrif norð-
an land. — Var í undirfyrirsögn
sagt, að þeir myndu hér halda fyr-
irlestra á vegum Náttúrulækninga
félagsins, en átti að vera Náitúru-
f ræðif élagsins.
Orðsending til Heimdellinga
Vinsamlegast gerið skil í happ-
drættínu sem allra fyrst.
Stjórn Heimdallar.
• Skipafréttir •
Eimskipafélag Islands h.f.í
Brúarfoss fór frá Reykjavík 7.
þ.m. til New York. Dettifoss kom
til Warnemiinde 11. þ.m., fer það-
an til Hamborgar og Hull. Goða-
foss kom til New York 10. þ. m
frá Vestm.eyjum. Gullfoss fór frá
Leith í gærkveldi til Reykjavíkur.
Lagarfoss fór frá Vestmannaeyj-
um í gærkveldi til Rotterdam,
Hamhorgar, Antwerpen og Hull.
Reykjafoss fór frá Reykjavík 6.
þ. til Álaborgar og Kotka. Selfoss
fór frá Fáskrúðsfirði i gærkveldi
til Seyðisfjarðar og Akureyrar. —
Tröllafoss kom til Reykjavíkur
8. þ. m. frá New York. Straumey
fer frá Reykjavík f.h. í dag til
Akraness. Birte fór frá Húsavík
í gærdag til útlanda. Laura Dan
kom til Reykjavíkur 8. þ.m. fi’á
Leith. Birgitteskou fór frá Gauta
borg 9. þ.m. til Reykjavíkur. —
Drangajökull fór frá New York
8. þ.m. til Reykjavikur.
Kíkisskip:
Hekla er á leið frá Austfjörðum
til Akureyrar. Herðubreið fór frá
Reykjavík í gærkveldi austur um
land til Raufarhafnar. — Skjald-
breið er í Reykjavík og fer þaðan
á laugardaginn vestur um land fcil,
Akureyrar. Þyrill er í Reykjavík.
Oddur fór frá Reykjavík í gær-
kveldi til Vestmannaeyja.
Skipadeild SÍS:
Hvassafell kom við í Azoreyjum
8. þ.m. á leið til Reykjavíkur. —
Arnarfell fór frá Reykjavík 8. þ.
m. áleiðis til Finnlands. Jökulfell
er í Wernemúnde.
Ehnskipafélag Rvíkur li.f.:
M.s. Katla er í Kotka. —
Heimdellingar
Gerið skil á happdrættismiðun-
um í jtvöld. — Skrifstofan verður
opin frá kl. 8—10 e.h.
Langholíssókn
Gjafir og áheit til kirkjuhygg-
ingar í Langholtssókn: — Anna
og Halldór kr. 250,00. V. B. kr.
100,00. Frá konu úr Fríkirkjunni
kr. 500,00. Til minningar um Ingi
björgu Þorst. frá Stykkishólmi,
frá aðstandenchim hennar krónur
500,00. Frá Jódísi Sigmundsd., kr.
100,00. Áheit frá Guðbjörgu Sig-
valdad., kr. 100,00. Frá Jens Her-
mannssyni kr. 100.00. Til barna-
starfs að Hálogalandi kr. 4.000,00.
Margar hendur vinna létt verk.
Guð elskar glaðan gjafara. Heill
ykkur gefendur og hjartans þökk.
Árelíus Níelsson.
Esperantistafél. Auroro
heldur fund í Edduhúsinu í
kvöld kl. 9.00. —
Fólkið að Auðnum
G. Þ. krónur 50,00. S. K. krón-
ur 100,00. —
Ungbarnavernd Líknar
Templarasundi 3 er opin þriðju-
daga kl. 3.15—4 e.h. og- fimmtu-
daga kl. 1.30—2.30 e.h. Á föstu-
dögum er opið fyrir kvefuð börn
kl. 3.15—4 e.h.
Orðsending til Óðinsfélaga
Vinsamlegast gerið skil í happ-
Irættinu sem allra fyrst.
Afmæli
Kvennadeild Slysavarnafélags
Islands hélt upp á 23ja ára af-
mæli sitt 4. maí s.l. í Sjálfstæðis-
húsinu með skemmtifundi. Fund-
urinn var afar fjölsóttur. Stjórn
kvennadeildarinnar „Hraunprýði"
ásamt nokkrum slysavarnafélags-
konum utan af landi, sem staddar
voru í bænum, voru boðnar á fund
(Kaupgengi):
1 bandarískur dollar .. kr.
1 kanada dollar .... kr.
1 enskt pund ........ kr.
100 danskar krónur .. kr.
100 norskar krónur .. kr.
100 sænskar krónur .. kr.
100 belgiskir frankar kr.
1000 franskir frankar kr.
100 svissn. frankar .. kr.
100 tékkn. Kcs............kr.
100 gyllini '............ kr.
16.26
16.35
45.55
235.50
227.75
314.45
32.56
46.48
372.50
32.53
428.50
inn. Var þar glaumur og gleði og
margt til skemmtunar. Lárus Páls
son, leikari, las upp úr Pétri Gaut
og Karl Guðmundsson skemmti
með eftirhermum. Var báðum þess
wm listamönnum ásamt tvöföldum
kvartett, sem stúlkur úr kvenna-
deildinni hafa æft, tekið forkunn-
ar vel af fundarkonum og þakkað
með lófaklappi. Þá vöru ræðu-
höld, ýmis minni haldin, ættjarð-
arsöngvar sungnir og að síðustu
dans stiginn til klukkan 1.
Háskólaf yrirlestu r
Dr. Irving Schell frá Woods
Hole Oceanographic Institution
flytur 3 fyrirlestra á vegum Veð-
urstofu íslands, í 1. kennslustofu j
Háskólans, miðvikudag 13., föstu J
dag 15. og laugardag 16. maí kl.
20.30. Fyrirlestrarnir verða flutt-
ir á ensku og fjalla um rannsókn
ir hans varðandi veðurspár og
spár um ísrek á vestanverðu At-
lantshafi. Þessar spár eru gerðar
fyrir all-löng tímabil. — 1 dag
mun dr. Schell halda fyrirlestur
um hafísspár. — Öllum er heim-
ill aðgangur að fyrirlestrunum.
Kristniboðsfl. K.F.U.K.
heldur kristniboðssamkomu í
kvöld. (Sjá augl. á öðrum stað í
blaðinu).
Vistfólk Elliheimilisins
Grundar
héfur beðið Mbl. að færa Leik-
félagi Reykjavíkur sínar alúðar-
fyllstu þakkir fyrir þá hugulsemi
að bjóða því að sjá Ævintýri á
gönguför s.l. mánudag.
Krabbameinsfél. Rvíkur
Skrifstofa Krahbameinsfélags
Reykjavíkur, Lækjargötu 10B., er
opin daglega frá kl. 2—5. Sími
"047.-----
Föðurnafn
Herdísar Þorvaldsdóttur mis-
ritaðist í grein Almars í blaðinu
í gær (stóð þar Pálsdóttir) og
ennfremur föðurnafn Freymóðs
Jóhannssonar (þar stóð Jóhannes
son).
• Utvarp •
Miðvikudagur, 13. maí:
8.00—9.00 Morgunútvarp. — 10.10
Veðurfregnir. 12.10—13.15 Hádeg
isútvarp. 15.30 Miðdegisútvarp. —
16.30 Veðurfregnir. 18.30 Barna-
tími: a) Útvarpssaga barnanna,
b) Tómstundaþátturinn (Jón Páls-
son). 19.25 Veðurfregnir. 19.30
Tónleikar: Óperulög (plötur). —
19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir.
20.30 Útvarpssagan: „Sturla í
Vogum“ eftir Guðmund G. Haga-
lín; XIV. (Andrés Björnsson). —
21.00 Tónleikar (plötur). 21.20
Erindi: Áfengisneyzla á hættutím
um (Pétur Sigurðsson erindreki),
21.50 Merkir samtíðarmenn; VI:
Arnulf överland (Clafur Gunn-
ai’sson). 22.00 Fréttir og veður-
fregnir. 22.10 Brazilíuþættir; —
VIII: Auðæfi jarðar (Árni Frið-
riksson fiskifræðingur). 22.35
Dans- og'dægurlög: Lionel Hamp-
ton og hljómsveit hans leika (plöt-
ur). 23.00 Dagskrárlok.
m* H
Erlendar útvarpsstöðvar:
Noregur: Stavanger 228 m. 1313
kc. Vigra (Álesund) 477 m. 629 kc.
19 m„ 25 m., 31 m., 41 m. og 48 m,
Fréttir kl. 6 — 11 — 17 — 20. —
Fréttir til útlanda kl. 18.00, 22,00
og 24.00. Bylgjulengdir: 25 m., 31
m. og kl. 22.00 og 24.00, 25 m., 31
m. og 190 m. —
Danmörk: — Bylgjulengdil
1224 m., 283, 41.32, 31.61.
Svíþjóð: — Bylgjulengdir: 25.41
m., 27.83 m. —
England: — Fréttir ld. 01.00 —
03.00 — 05.00 — 06.00 — 10.00 —
12.00 — 15.00 — 17.00 — 19.00 —
22.00. —
• Gengisskráning •
(Sölugengi):
1 bandarískur dollar .. kr. 16.32
1 kanada dollar .... kr. 16.41
1 enskt pund kr. 45.70
100 danskar kr kr. 236.30
100 sænskar kr kr. 315.50
100 norskar kr kr. 228.50
100 belsk. frankar .... kr. 32.67
100 finnsk mörk .... kr. 7.09
1000 franskir fr kr. 46.63
100 svissn. frankar .. kr. 373.70
100 tyrkn. Kcs kr. 32.64
1000 lírur kr. 26.12
100 þýzk mörk kr. 388.60
100 gyllini kr. 429.90
SINIÐUM
Dömudragfir — döniukápur
telpukápur — stuttjakka.
Þræðum saman og mátum,
ef óskað er. Til viðtals alla
miðv.daga og föstudaga kl.
6—8 e. h.
Sníðastofan
Klapparstíg 16, IV. hæð.